Morgunblaðið - 16.11.2009, Page 9
Öllum hugmyndum sem fram
komu á þjóðfundinum var safn-
að saman og verða þær skráðar
í gagnagrunn. Hugmyndirnar
eru merktar eftir aldri, kyni og
búsetu þeirra sem settu þær
fram, og verða gögnin því ef-
laust mikilvæg félagsvís-
indamönnum sem vilja rann-
saka þessi mál frekar. Þannig er
t.d. hægt að greina hvernig lífs-
gildi breytast með hópumræðu,
enda skráðu gestir niður þau
þrjú grunngildi sem voru efst í
huga þeirra áður en umræða fór
fram. Síðan var rætt um þessi
gildi í litlum hópum, og að því
loknu kosið um mikilvægustu
gildin.
Gögnum safnað
FRÉTTASKÝRING
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynurorri@mbl.is
MIKILL fjöldi var samankominn á
þjóðfundi sem haldinn var í Laug-
ardalshöll sl. laugardag. Forsvars-
menn fundarins telja að hátt í fjór-
tán hundrið einstaklingar hafi tekið
þátt.
Að sögn Lárusar Ýmis Ósk-
arssonar, eins skipuleggjenda þjóð-
fundarins, var markmið fundarins
að fá þjóðina til að ræða grunngildi
og framtíðarsýn.
Málin rædd í minni hópum
Fundurinn fór þannig fram að
gestum var raðað niður á um 160
borð, þar sem ýmis málefni voru
rædd og um þau kosið. Það fyrsta
sem þátttakendur gerðu er þeir
mættu til borðs var að skrá niður
þau þrjú grunngildi sem að þeirra
mati voru mikilvægust. Eftir það fór
fram umræða um gildin, og kaus
hvert borð svo þrjú gildi. Það gildi
sem langoftast var nefnt var heið-
arleiki, en jafnrétti, virðing og rétt-
læti voru einnig áberandi.
Næst ræddu gestir um þær
grunnstoðir sem gestir töldu að
byggja ætti íslenskt þjóðfélag á.
Menntamál, atvinnulíf, velferð, um-
hverfismál, stjórnsýsla, sjálfbærni,
fjölskyldan og jafnrétti voru þær
undirstöður sem oftast voru nefnd-
ar. Síðan var aftur raðað niður á
borð, og hafði hvert borð það hlut-
verk að kryfja eina stoð. Boðað var
til fundarins með slembiúrtaki, en í
úrtakinu voru 6.000 manns. Lárus
segir dreifingu þátttakenda eftir
aldri, kyni og búsetu hafa verið
þannig að niðurstaðan sé marktæk
um gildi og sýn þjóðarinnar.
Þó hafi þátttakan verið lökust í
elsta og yngsta aldurshópnum, en
gögnin séu merkt þannig að hægt sé
að vinna frekar með þau og m.a.
taka tillit til aldurs.
Að sögn Lárusar er vonast til
þess haldnir verði fundir á næstu
misserum, þar sem unnið verði
áfram með niðurstöður þjóðfund-
arins.
Efla gagnrýna hugsun
Gunnar Hersveinn rithöfundur er
einn þeirra sjálfboðaliða sem tóku
þátt í undirbúningi fundarins. „Í
mínum huga var markmiðið að efla
og styðja röklega og gagnrýna
hugsun,“ segir Gunnar. Vonast hann
til þess að fundurinn hafi þannig já-
kvæð áhrif á samfélagsumræðuna.
Aðspurður segir Lárus að reiknað
sé með því að útlagður kostnaður
vegna fundarins hafi verið um 10
milljónir, en allir reikningar verði
gerðir opinberir. Ókeypis afnot hafi
fengist af Laugardalshöllinni, og
verkið hafi verið unnið í sjálfboða-
vinnu.
Morgunblaðið/Kristinn
Mikil þátttaka Rúmlega tólf hundruð manns voru skráð á þjóðfundinn, en talið er að gestir hafi verið mun fleiri.
Grunngildin rædd
Talið er að allt að 1.400 gestir hafi verið á þjóðfundi
Hugmyndum var safnað um grunngildi og framtíðarsýn
Morgunblaðið/Kristinn
Rýnt í skipulagið Fundargestum var skipað niður á um hundrað og sextíu
borð, þar sem ýmis málefni voru krufin og um þau kosið.
Markmið þjóðfundar sem haldinn
var um helgina var að ræða
grunngildi og framtíðarsýn þjóð-
arinnar. Vonast er til að fund-
urinn hvetji fólk til umhugsunar
og umræðu um þessi mál.
Fréttir 9FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. NÓVEMBER 2009
Hlíðasmára 14
sími 588 2122
www.eltak.is
Eltak sérhæfir sig
í sölu og þjónustu
á vogum
Bjóðum mesta úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafðu samband
líðas ára 14
Sí i 588 2122
.eltak.is
Klappastíg 44 – Sími 562 3614
Mikið úrval af
piparkökumótum
Sænska jólavaran komin
„Þetta var frá-
bær upplifun,
og ég er stolt
yfir því að hafa
fengið að taka
þátt,“ segir
Erna Arnars-
dóttir, þátttak-
andi í Þjóðfund-
inum. „Það var
gaman að hitta
fólk úr ólíkum áttum, og finna að
við eigum heilmikið sameiginlegt.
Okkur langar öll til að byggja
landið okkar upp, og búa til
bjarta framtíð fyrir börnin. Nú er
bara að vona að það verði unnið
vel úr því sem kom fram. Ég hef
fulla trú á að þetta muni skila sér
með jákvæðum hætti út í þjóðfé-
lagið.“
Ólíkt fólk sem vill
vinna að þjóðarhag
Erna Arnarsdóttir
„Þetta var ágæt-
isfundur og
nauðsynlegur,“
segir Matthías
Björnsson um
þjóðfundinn.
„Það er svo
margt hrikalegt
að gerast í þjóð-
félaginu. Nú er
mikilvægast að
reyna að byggja upp réttlátt þjóð-
félag.“
Að mati Matthíasar er mik-
ilvægt að þjóðin hafi komið saman
til að ræða um siðferði, enda hafi
siðleysi viðgengist undanfarin ár.
„Þó hefði mátt tala meira um
sjálfstæði þjóðarinnar,“ segir
Matthías.
Siðleysi viðgengist
í þjóðfélaginu
Matthías Björnsson Stórfréttir
í tölvupósti