Morgunblaðið - 16.11.2009, Page 21

Morgunblaðið - 16.11.2009, Page 21
Dagbók 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. NÓVEMBER 2009 Sudoku Frumstig 2 3 1 6 9 4 5 2 7 8 9 6 3 1 1 6 8 9 7 8 2 4 1 3 5 7 2 4 6 5 3 1 3 5 4 9 8 5 2 1 7 6 1 8 6 3 9 3 1 7 4 4 2 9 1 7 5 3 7 3 4 4 2 7 8 1 9 1 7 6 8 5 3 7 5 4 2 9 6 3 8 1 9 1 2 8 5 3 7 4 6 3 8 6 1 7 4 5 9 2 8 2 5 4 3 7 6 1 9 6 9 3 5 8 1 4 2 7 1 4 7 6 2 9 8 5 3 5 3 1 9 6 8 2 7 4 2 6 9 7 4 5 1 3 8 4 7 8 3 1 2 9 6 5 6 8 3 7 2 5 1 4 9 1 4 9 3 6 8 2 5 7 7 5 2 4 1 9 6 8 3 8 9 6 2 5 7 4 3 1 4 2 7 1 9 3 5 6 8 3 1 5 8 4 6 9 7 2 2 7 1 6 8 4 3 9 5 5 6 8 9 3 2 7 1 4 9 3 4 5 7 1 8 2 6 2 4 5 9 7 8 6 1 3 3 1 6 2 5 4 9 7 8 9 7 8 3 6 1 5 2 4 4 2 9 7 3 6 8 5 1 7 5 3 8 1 2 4 9 6 8 6 1 5 4 9 2 3 7 1 3 2 6 8 5 7 4 9 5 8 4 1 9 7 3 6 2 6 9 7 4 2 3 1 8 5 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er mánudagur 16. nóvember, 320. dagur ársins 2009 Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönnum misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yð- ar himneskur fyrirgefa yður. (Matt. 6, 14.) Fyrir helgi keypti Víkverji snyrti-vörur fyrir dömurnar sínar tvær, það er konuna og dótturina, og brá þegar hann sá upphæðina. Jú, vissulega kostar þetta, sagði af- greiðslumaðurinn, en eins og konan sagði þá tuða karlmenn yfirleitt ekki yfir bensínverðinu þegar þeir láta fylla á tankinn á jeppanum. x x x Víkverji á ekki jeppa en þykir nógum að þurfa að borga um 20 þúsund krónur í bensín á mánuði. Það er þó ekkert í samanburði við hvað hann þarf að leggja út fyrir blekhylkjum í prentara heimilisins. Fyrrnefndar dömur eru báðar í námi og þurfa að skila mörgum verkefnum. Fyrir vikið þarf að nota prentarann þó nokkuð mikið. Gamli prentarinn gaf sig og þá var keyptur nýr á tilboði á rúmlega sex þúsund krónur með blekhylkjum. Þau dugðu skammt og undanfarnar vikur hefur þurft að kaupa hylki vikulega. Um helgina kostaði litahylki, sem dugar í viku, 4.986 krónur í Eymundsson í Austurstræti. Hylkið með svarta litnum kostaði 3.890 krónur. 8.876 krónur á viku. Það gera 35.504 krón- ur á fjögurra vikna fresti eða 451.552 kr. á ári. Reyndar eru hylkin ódýrari í Griffli. Þar kostaði litahylkið 3.890 kr. og svarti liturinn 2.990 kr. Um tvö þúsund krónu munur á viku sem þýðir um 100 þúsund króna sparn- aður á ári. Flesta munar um minna. x x x En bíðið þið við. Hvernig stendurá því að blekhylki í auman prentara eru svona dýr? Það virðist vera ódýrara að kaupa prentara á tilboði með hylkjum heldur en hylk- in ein og sér. Fjögur hundruð og fimmtíu þúsund krónur á ári í blek- hylki er auðvitað bara rugl. x x x Fyrst Víkverji er í þessum gír máhann til með að segja frá því að fyrir skömmu keypti hann sér bjór á Hótel Sögu. Lítil flaska af léttum bjór kostaði 800 kr. sem þýðir að hálfur lítri kostar þar 1.200 krónur. Það er dýrasti bjór sem Víkverji hef- ur keypt. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 þáttur, 4 blása, 7 illkvittin, 8 grefur, 9 hagnað, 11 peninga, 13 bylur, 14 liprar, 15 málm- ur, 17 öldugangur, 20 tímgunarfruma, 22 snák- ur, 23 hamagangurinn, 24 mál, 25 heimskingjar. Lóðrétt | 1 fisks, 2 útlim- ur, 3 kvendýr, 4 rola, 5 trú, 6 ákveð, 10 lofar, 12 kraftur, 13 garmur, 15 hali, 16 greinin, 18 áfanginn, 19 ránfugls, 20 vaxa, 21 óða. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 trúhræsni, 8 banar, 9 ildis, 10 fús, 11 tjara, 13 tuska, 15 gróft, 18 hratt, 21 ern, 22 tjáði, 23 ýtinn, 24 steikinni. Lóðrétt: 2 renna, 3 horfa, 4 ærist, 5 nadds, 6 ábót, 7 assa, 12 ref, 14 urr, 15 geta, 16 ófátt, 17 Teiti, 18 hnýti, 19 alinn, 20 tonn. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. c4 c5 2. Rc3 Rc6 3. Rf3 g6 4. e3 Bg7 5. d4 d6 6. d5 Re5 7. Rxe5 Bxe5 8. Bd3 Bxc3+ 9. bxc3 e5 10. e4 Bd7 11. f4 Dc7 12. O-O f6 13. a4 O-O-O 14. fxe5 dxe5 15. a5 Kb8 16. Be3 h5 17. Db3 Hh7 18. Da3 Hc8 19. Hab1 Dd6 20. Hb2 Be8 21. Hfb1 Hf7 Staðan kom upp í opnum flokki á heimsmeistaramóti unglinga (20 ára og yngri) sem lauk fyrir skömmu í Puerto Madryn í Argentínu. Stór- meistarinn Eduardo Iturrizaga (2605) frá Venesúela hafði hvítt gegn rússneska kollega sínum Ivan Popov (2582). 22. Hb6! Df8 23. d6 Bc6 24. Bxc5 De8 25. Ha6! f5 26. Hxa7 og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Vafasamt siðferði. Norður ♠K1098 ♥ÁK2 ♦653 ♣K96 Vestur Austur ♠43 ♠52 ♥108765 ♥943 ♦Á7 ♦D9842 ♣DG108 ♣Á54 Suður ♠ÁDG76 ♥DG ♦KG10 ♣732 Suður spilar 4♠. Útspilið var ♦Á. Sagnhafi þakkaði fyrir blindan og sneri sér að austri: „Spilið þið út ás frá ás-kóng?“ Áður en austur fékk tækifæri til að svara hafði vestur spilað tígli áfram í öðrum slag. Það kom sagnhafa vel og hann tók tíu slagi. „Keppnisstjóri!“ Málið fór upp allt dómstigið. A-V vildu meina að sagnhafi hefði beitt svívirði- legri kaffihúsabrellu til að lokka vestur til að spila tígli, en suður varðist af fullri hörku: „Austur vísaði tíglinum frá, en samt hélt vestur áfram með litinn. Hann verður sjálfur að bera ábyrgð á því að nýta sér utanaðkomandi upplýsingar.“ Frank Vine og Edgar Kaplan ræddu þetta dæmi og fleiri skyld á síðum The Bridge World á áttunda áratugnum. Um það má lesa í nýrri bók um Frank Vine. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú átt að geta glaðst yfir vel- gengni annarra. Röð og regla eru í góðu lagi en verra er að festast í sama farinu. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú átt von á upplýsingum sem þú þarft að vega og meta. Stattu á rétti þín- um þegar að honum er sótt. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú munt eiga árangursríkar samræður um sameiginlegt eignarhald. Fjallið virðist bara sátt við að þurfa að koma til Múhameðs, ef svo má segja. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Það er ákaflega leiðinlegt þegar gamall vinur er í sífellu að segja þér hvernig þú eigir að haga lífi þínu. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Rómantík, ástarævintýri, orlof og skemmtanir verða ofarlega á baugi fyrir ljónið á næstu misserum. Líttu til barnanna, þau kunna svo vel að koma til- finningum sínum á framfæri. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Náinn vinur reynist kaldrifjaðri en þú hefur nokkurn tímann getað gert þér í hugarlund. Samningar sem þú gerir í dag geta fært þér hagnað í framtíðinni. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Það er sjálfsagt að hlaupa undir bagga með öðrum, þegar tóm er til. Vertu opinn og þú gætir rekist á nýja hlið á sjálfum þér. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Ef allir leggjast á eitt og vinna saman gengur allt betur. Nú er tími til þess að endurnýja kynnin við góða félaga og endurlifa gamlar minn- ingar. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Það er nauðsynlegt að velta fyrir sér öllum hliðum þegar að fjármál- unum kemur. Gömul ágreiningsmál munu sennilega koma upp í samskiptum þínum við systkini þín og nágranna. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú ert með frábæra hugmynd. Veltu henni vandlega fyrir þér og reyndu að forðast mistök annarra sem þú hefur heyrt af. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú þarft að læra að nýta þér þann eiginleika sem fær fólk til þess að opna hjarta sitt fyrir þér. Gerðu öðrum ljóst að þögn sé ekki sama og samþykki. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þótt allt hljómi vel skaltu kynna þér smáa letrið til hins ýtrasta svo ekk- ert komi í bakið á þér. Það er engin ástæða að draga sig í hlé þótt hugmyndir þínar slái ekki í gegn. Stjörnuspá 16. nóvember 1907 Stytta af Jónasi Hallgríms- syni var afhjúpuð í tilefni þess að hundrað ár voru liðin frá fæðingu skáldsins. Stytt- an er eftir Einar Jónsson og var sú fyrsta sem hér var sett upp eftir Íslending, ann- an en Thorvaldsen. Hún var fyrst við Amtmannsstíg í Reykjavík en var flutt í Hljómskálagarðinn árið 1947. 16. nóvember 1913 Thorvaldsensfélagið hóf sölu á jólamerkjum til ágóða fyrir barnauppeldissjóð sinn. Hvert merki kostaði tvo aura. Á fyrsta merkinu var teikning Benedikts Gröndal Svein- bjarnarsonar af Fjallkonunni. 16. nóvember 1917 Danskir verktakar afhentu bæjaryfirvöldum mannvirki Reykjavíkurhafnar og telst það stofndagur hennar. 16. nóvember 1931 Til landsins komu „þrjú dýr af marðartegund sem „mink“ nefnist,“ eins og sagði í Morgunblaðinu. Fljótlega sluppu dýr úr búrum og minkarækt var bönnuð 1951 en leyfð aftur 1970. 16. nóvember 1957 Nonnahús á Akureyri var opnað sem minjasafn þegar hundrað ár voru liðin frá fæðingu Nonna, Jóns Sveins- sonar rithöfundar og prests. Hann fór ungur til útlanda og kom tvisvar heim, 1894 og 1930. Bækur hans voru prentaðar í fimm milljónum eintaka. 16. nóvember 1996 Dagur íslenskrar tungu var í fyrsta sinn haldinn hátíðleg- ur, efnt var til málrækt- arþings og verðlaun Jónasar Hallgrímssonar veitt. Þau hlaut Vilborg Dagbjarts- dóttir. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… VÉLSTJÓRANEMINN Benedikt Kristján Magn- ússon fagnar tvítugsafmæli sínu í dag. Þar sem afmælið ber upp á mánudag og hann hafði um helgina ekki aldur til að sækja skemmtistaði eða fá afgreiðslu í Vínbúðinni, segist Benedikt ætla að skála í „einum köldum“ með hádegismatnum í tilefni af áfanganum. Benedikt segist ekki hafa verið nógu iðinn við að halda upp á afmæli sitt undanfarin ár, en ætl- ar að bæta um betur að þessu sinni og blæs hann til mannfagnaðar á heimili sínu um komandi helgi. Vinum og vandamönnum er boðið en veisl- an verður að sögn Benedikts óhefðbundin að því leyti að hún verður í rólegri kantinum. Ætlunin er að gestir verði afvelta af ljúfum kaffiveitingum og heitu súkkulaði. Líkt og áður segir leggur Benedikt stund á vélstjóranám og það í Véltækniskólanum, sem er aftur hluti af Tækniskólanum. Með vinnu starfar hann svo á verkstæði Olíudreifingar, sem hann segir nýtast sér vel í náminu. Benedikt stefnir á útskrift í vor og segir framtíð- ina bjarta, enda atvinnuástand vélstjóra betra en hjá mörgum. Benedikt Kristján Magnússon er tvítugur í dag Einn kaldur í hádeginu Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.