Morgunblaðið - 16.11.2009, Side 32

Morgunblaðið - 16.11.2009, Side 32
MÁNUDAGUR 16. NÓVEMBER 320. DAGUR ÁRSINS 2009 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana FÓLK Í FRÉTTUM» Heitast 5°C | Kaldast 0°C Þurrt sunnan- og suðvestanlands, annars víða snjókoma eða slydda, en rigning austast » 10 Rithöfundurinn og myndlistarmaðurinn Björk Bjarkadóttir, sem er búsett í Osló, hefur sent frá sér nýja barnabók. »23 BÓKMENNTIR» Vald barna- bókanna BÓKMENNTIR» Mikael Torfason veldur ekki vonbrigðum. »25 Flugan gerði ekki endasleppt heldur hristi hanastél, saug í sig suðnorræna hljóma og leit inn á tískusýningu. »24 FLUGAN» Menningar- flögr KVIKMYNDIR» Lauren Bacall fékk heið- ursverðlaun. »30 TÓNLIST» Suðrænir straumar í Norræna húsinu. »27 Menning VEÐUR» 1. Seldu veitingahúsi mannakjöt 2. Logandi af áhuga 3. Lýst eftir vitnum 4. Krefjast prestskosninga »MEST LESIÐ Á mbl.is  Sífellt bætist í umtal og eft- irvæntingu hvað hina mikilhæfu Ólöfu Arnalds varðar vestur í Bandaríkjunum. Stærsta „Hvað er í gangi?“ rit New York-borgar, Time Out, setti þannig tónleika hennar í Rockwood Music Hall, sem fóru fram í síðustu viku, í efsta sæti yfir þá tónleika sem fólk ætti alls ekki að missa af. Ólöf var í algeru öndvegi í dálk- inum, greinargerðin prýdd stórri ljósmynd en listamenn eins og Le- von gamli Helm, Peter Bjorn and John og Wolfmother máttu láta sér lynda stuttaralegri texta. Ný plata Ólafar, sem hefur fengið heitið Ókídókí, kemur út á næsta ári og kemur í kjölfar Við og við, sem fékk einróma lof gagnrýn- enda. TÓNLIST Ólöf Arnalds sjóðandi heit vestur í Bandaríkjunum  NÝVERIÐ var rithöfundurinn Thor Vilhjálms- son heiðraður af sendinefnd frá ítölskum yfirvöld- um sem stödd var hér á landi. Thor var veitt heiðursorða og -skjal frá Dante Alighieri félaginu fyrir ötult starf við kynningu á ítalskri menn- ingu. Eru stjórnvöld þar Thor mjög þakklát fyrir hlutverk hans sem „menningarsendiherra“ og þá kynn- ingu sem hann hefur sinnt á ítölsk- um skáldsögum, ljóðum og ítalskri tónlist. BÓKMENNTIR Ítalir veita Thor Vilhjálms- syni heiðursorðu  Aron Krist- jánsson, þjálfari handboltaliðs Hauka, vonast til þess að fá íslenska mótherja í 16 liða úrslitum EHF- bikarsins eftir að hafa slegið Ungverjana í PLER út á dramatískan hátt í gær. Haukar gætu mætt Alexander Peterssyni í Flensborg, Ragnari Óskarssyni í Dunkerque, Loga Geirssyni og Vigni Svavarssyni í Lemgo, Björg- vini Páli Gústavssyni í Kadetten eða þeim Guðmundi Þ. Guðmundssyni og Ásgeiri Erni Hallgrímssyni í GOG Svendborg. Öll þessi lið eiga góða möguleika á að komast í 16 liða úrslitin en það skýrist endanlega um næstu helgi. HANDBOLTI Aron vill mæta Íslendingum í næstu Evrópuumferð Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is HÖFUÐBORGARBÚAR halda áfram að rækta líkamann í kreppunni og eru forsvarsmenn lík- amsræktarstöðva almennt sammála um að fólk nýti kortin sín vel. Lóðum sé lyft í gríð og erg í tækjasölunum og góð mæting í opna tíma. „Það er stappað og hefur ekki verið svona mikil mæting í mörg ár,“ sagði Linda Péturs- dóttir framkvæmdastjóri Baðhússins og for- svarsmenn annarra stöðva tóku í sama streng. „Fólk er greinilega tilbúið að eyða í líkamann og heilsuna,“ sagði Þröstur Jón Sigurðsson, einn eigenda Sporthússins þar sem viðskipta- vinum hefur fjölgað um tæpan helming á sl. tveimur árum – úr um 5.000 í tæp 10.000. „Reksturinn var slakur þegar við tókum við, en vöxturinn hefur líka verið ævintýralegur.“ En þó menn séu duglegir að mæta í ræktina þýðir það ekki að ekki sé horft í peninginn. All- ir sem rætt var við voru nefnilega sammála um að menn borguðu ekki lengur fyrir kort sem þeir ekki nýttu. „Styrktarfélagarnir eru horfn- ir,“ sagði Þröstur Jón um þennan hóp. „Þetta er náttúrlega sú þróun sem við viljum sjá,“ sagði annar, en sá þriðji benti á að það munaði vissulega um „styrktarfélagana“, aukinni notk- un á tækjum fylgdi nefnilega meira slit sem færri greiddu fyrir. Dregur úr aðsókn á dýrari námskeið Og menn virðast líka horfa í aurinn þegar fjárfest er í líkamsræktinni. Jón Þórðarson, eigandi líkamsræktarstöðvarinnar Hress í Hafnarfirði, bendir þannig á að fólk skipti nú frekar greiðslum eða nýti sér mánaðarlega áskrift frekar en að taka tilboðum um árskort, jafnvel þó eingreiðslan geti verið hagstæðari. Hjá dýrari stöðvum virðast menn hins vegar skuldbinda sig frekar í skemmri tíma en áður. Víða hefur líka dregið úr áhuga á lokuðum námskeiðum, t.d. svo nefndum átaksnámskeið- um, enda eru þau yfirleitt dýrari en venjuleg kort. Sumar stöðvar hafa því fækkað slíkum námskeiðum en aðrar, eins og Hreyfing, hafa brugðist við með því að bjóða upp á styttri og þar með ódýrari námskeið. Jón bendir á að markaðurinn með lokuð nám- skeið sé nú að lifna aðeins við aftur eftir að hafa dregist mikið saman í kjölfar hrunsins. „Ég myndi segja að þetta væri eðlileg þátttaka núna. Um tíma var hún mjög óeðlileg, fólk var að greiða fullt verð fyrir námskeið sem það mætti svo jafnvel ekki á.“ Styrktarfélagarnir horfnir Líkamsræktarkortin vel nýtt í kreppunni Morgunblaðið/Kristinn Á fullri ferð Betri mætingu í líkamsrækt- arstöðvar fylgir aukið slit á tækjum. „ÉG skildi, að orð er á Íslandi til um allt, sem er hugsað á jörðu.“ Svo kvað skáldjöfurinn Einar Benediktsson. Dagur ís- lenskrar tungu er haldinn há- tíðlegur í dag, 16. nóvember, á fæðingardegi annars jöfurs, listaskáldsins góða, Jónasar Hallgrímssonar. Ýmsar stofn- anir og aðilar munu halda dag- inn hátíðlegan með einum eða öðrum hætti og birtir Morgun- blaðið greinargott yfirlit yfir helstu viðburði. Margir eru þeir, sem elskir eru að okkar ástkæra, ylhýra máli og fékk Morgunblaðið aukinheldur nokkra þeirra til að draga úr pússi sínu íslenskan texta sem væri þeim sérstaklega hug- stæður, hvort sem væri úr skáldsögum, ljóðum eða laga- textum. | 28 Íslenskan er okkar mál Dagur íslenskrar tungu er í dag Frjór Nokkur af nýyrðum Jónasar Hallgrímssonar. Þroskahamlaðir stóðu fyrir dragkeppni í Hinu húsinu síðastliðinn föstudag og var mikið um dýrðir. Á mynd- inni sést Lóa Ármannsdóttir faðma kynninn Barböru að sér þegar ljóst var að hún hafði hafnað í þriðja sæti með túlkun sinni á hinu vinsæla lagi Ingós og Veðurguð- anna, „Bahama“. Einlæg gleðin leynir sér ekki. | 26 GLEÐIN HREIN OG TÆR Morgunblaðið/Heiddi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.