Morgunblaðið - 25.11.2009, Side 1
Tilboð frá eig-
endum 1998 ehf.,
erlendum fjár-
festum og stjórn-
endum félagsins
um fjárhagslega
endur-
skipulagningu
hefur ekki verið
lagt fyrir stjórn
Arion banka, að sögn Ernu Bjarna-
dóttur, stjórnarformanns bankans,
sem sagðist af þeim sökum ekki
geta tjáð sig um það.
„Ekki hefur verið boðaður
stjórnarfundur hjá bankanum.
Bankinn hefur hins vegar mikilla
hagsmuna að gæta í málinu og telj-
um við rétt að vanda til verka og
taka okkur þann tíma sem okkur
þykir nauðsynlegur.“ »2
Mál 1998 ehf. ekki verið
lagt fyrir stjórn Arion
M I Ð V I K U D A G U R 2 5. N Ó V E M B E R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
316. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
mbl.is
«GAGNRÝNI
UNGIR LESTRARHEST-
AR SKRIFA UM BÆKUR
«SUND
Fullur skólastyrkur
í Bandaríkjunum
96
ára
AKUREYRINGAR eru margir komnir í jólaskap ef marka má þær skreyt-
ingar sem þegar eru komnar upp. Fyrsti „jólasveinninn“ sem kemur til
byggða í höfuðstað Norðurlands er alla jafna Ragnar Sverrisson, kaupmaður
í JMJ og formaður Kaupmannafélags Akureyrar, og hann gerði ekki und-
antekningu í ár. Marglitar perur eru í trjám Ragnars og runnum og á húsinu
sjálfu, og komast líklega ekki fleiri fyrir. Sara virti dýrðina fyrir sér í gær.
JÓLIN TIL AKUREYRAR
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
ALLAR bætur sem Tryggingastofnun greiðir fara í
gegnum lögheimilisskráningu sem er í umsjón þjóð-
skrár. Tryggingastofnun reynir með aðstoð þjóð-
skrár að stuðla að því að fólk sé skráð með rétt lög-
heimili, þ.e. á þeim stað sem það býr á.
„Þjóðskrá hefur heimild til að leita til lögreglu,
en hún notar hana ekki. Við erum ekki farin að
kæra fólk til lögreglunnar en það hlýtur að koma
að því,“ segir Halla Bachmann, lögfræðingur hjá
Tryggingastofnun ríkisins.
Stofnuninni er ekki heimilt að stöðva greiðslur til
fólks nema henni takist að færa sönnur á að lög-
heimilið sé rangt skráð.
Þjóðskrá má kalla í lögreglu
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
MÖRG dæmi eru um að fólk eigi
saman fjögur börn án þess að hafa
nokkru sinni verið skráð í sambúð.
Þetta fólk fær bætur frá Trygg-
ingastofnun ríkisins á þeirri for-
sendu að foreldrarnir séu einstæð-
ir. Lögheimili annars foreldrisins
er þá skráð annars staðar, oftast
hjá foreldrum. Dæmi er um að mað-
ur sem á nokkur börn með barns-
móður sinni sé skráður með lög-
heimili hjá „fyrrverandi tengda-
foreldrum“.
Halla Bachmann Ólafsdóttir, lög-
fræðingur og forstöðumaður eftir-
litssviðs Tryggingastofnunar, segir
að bótasvik í tryggingakerfinu sé
mikið vandamál. „Við eru með hóp
fólks sem grefur stöðugt undan
kerfinu sem á að styðja við fólk sem
sannarlega þarf á því að halda.“
Hún segir augljóst að þegar fólk
eigi saman nokkur börn án þess að
hafa nokkru sinni verið skráð í sam-
búð sé það að gefa rangar upplýs-
ingar um búsetu. Foreldrarnir búi í
reynd saman þó að annar aðilinn sé
skráður með lögheimili annars
staðar. Halla segir að það veki
a.m.k. grunsemdir þegar fólk sem
segist ekki búa saman eignist sam-
an stöðugt fleiri börn.
Tryggingastofnun greiðir bætur
á grundvelli upplýsinga um lög-
heimili. Í þessum tilvikum skráir
fólk lögheimili oftast hjá foreldrum
sínum, en dæmi eru um að það sé
skráð hjá vinum. Halla segir ótrú-
legt siðferði hjá foreldrum að taka
þátt í bótasvikum barna sinna með
þessum hætti.
„Í einu tilviki var fólk að auglýsa
trúlofun sína á Netinu með mynd-
um af trúlofunarhringjum með
nöfnum og öllu á sama tíma og það
fékk greiddar bætur frá Trygginga-
stofnun.“
Halla segir að Tryggingastofnun
reyni að afla upplýsinga um raun-
verulega búsetu fólks þegar grunur
vaknar um bótasvik. Hún segir að
fólk sem stundi bótasvik lifi í reynd
tvöföldu lífi og foreldrarnir aðstoði
börn sín við að svíkja fé úr sameig-
inlegum sjóðum landsmanna.
Trygginga-
bótasvik mik-
ið vandamál
Margra barna faðir skráði lögheimili hjá
fyrrverandi tengdaforeldrum sínum
Í HNOTSKURN
» Samkvæmt lögum berfólki að skrá lögheimili á
þeim stað sem það býr.
» Þegar fólk gefur rangarupplýsingar til TR getur
það fengið heimilisuppbót,
mæðralaun, barnabætur, með-
lag og niðurgreitt leikskóla-
gjald sem það á í reynd ekki
rétt á að fá.
Íslandsbanki
tilkynnti í gær
að 49% hlutur
bankans í Skelj-
ungi og tengd-
um félögum yrði
boðinn út í opnu
söluferli. Er þar
um svipað ferli
að ræða og
bankinn kynnti á dögunum í
kringum sölu á hlut í Steypustöð-
inni.
Söluferlið verður opið öllum
áhugasömum fjárfestum sem upp-
fylla skilyrði til þess að geta talist
fagfjárfestar samkvæmt lögum,
einstaklingum sem hafa veru-
legan fjárhagslegan styrk og við-
eigandi þekkingu, auk fyrirtækja
sem höfðu yfir 100 milljónir í eig-
in fé um áramótin. ivarpall@mbl.is
Íslandsbanki selur Skeljung
og tengd félög í opnu ferli
„Við erum í
vítahring,“ segir
Þór Saari, þing-
maður Hreyfing-
arinnar. Tekju-
skattsgreiðslur
79 þúsund Ís-
lendinga þarf til
þess að standa
undir vaxta-
greiðslum vegna
Icesve-samninganna, samkvæmt
því sem Þór upplýsti á Alþingi í
gærkvöldi. Hann segist miða við að
árlegar greiðslur séu 36 til 37 millj-
arðar kr. á ári. Hugsanlega geti svo
farið að tekjuskatt fleiri þurfi til
þess að borga það sem á ríkinu
lendir vegna Icesave, haldi land-
flótti og tekjufall áfram. sbs@mbl.is
Skatta 79.000 manns þarf
til að borga vexti af Icesave
Þór Saari
www.ostur.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
9
-1
9
9
1
Hátíðlegir
um jól in