Morgunblaðið - 25.11.2009, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 25.11.2009, Blaðsíða 15
Daglegt líf 15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2009 Sem betur fer eru flest sambönd ungs fólkshamingjusöm og farsæl en því miður þekkistað sum þeirra séu ofbeldisfull. Ofbeldi í sam-böndum ungs fólks getur orðið mjög alvar- legt og hafa ber í huga að á þessum árum eru lífs- viðhorf að mótast. Flestir ofbeldismenn hófu feril sinn ungir og því er mikilvægt að grípa strax inn í ef slík hegðun kemur fram. Sá sem verður fyrir ofbeldi getur þurft að kljást við afleiðingar af ýmsum toga. Sem dæmi má nefna lágt sjálfsmat, þunglyndi, misnotkun áfengis eða vímuefna og áfallastreitu. Unglingur sem beitir aðra ofbeldi (í samböndum) þarf að fá aðstoð við að breyta hegðun sinni og átta sig á að slík hegðun verði ekki liðin. Meðal einkenna sem unglingur sem beitir ofbeldi getur verið að sýna eru erfiðleikar við að takast á við vonbrigði eða reiði, léleg félagsfærni, að nota ofbeldi eða hótanir til að leysa vandamál og slök sjálfsmynd. Hlutverk foreldra En hvað getum við foreldrar gert til þess að koma í veg fyrir að unglingarnir beiti ofbeldi? Við kennum börnum okkar ungum að það megi ekki slá aðra en þótt þau hafi lært það þá má ekki sofna á verðinum. Við verðum alltaf að vera að upp- færa þá þekkingu sem við miðlum til barnanna okkar (hver er t.d. ennþá með Word Perfect forritið í tölv- unni sinni?). Með því að ræða opinskátt um samskipti kynjanna og kynjaímyndir gefast tækifæri til að leið- rétta misskilning, miðla þekkingu og efla tengslin við hálfstálpuð börn okkar. Oft þarf að leyfa þeim að hafa frumkvæði; hver kannast ekki við ranghvolfd augu þegar spurt er: Hvernig var í skólanum í dag? Verum opin fyrir því þegar þau vilja ræða eitthvað. Samskipti og virðing Oft er undanfari ofbeldis einhvers konar sam- skiptavandi og þar ríður á að við séum góðar fyr- irmyndir. Getum við sjálf leyst vandamál án þess að grípa til hótana eða niðurlægjandi talsmáta? Við þurfum að kenna þeim virðingu í samskiptum og að þau geti krafist þess sama í samskiptum við aðra. Reiðist börnin okkar auðveldlega er hægt að kenna þeim að þekkja einkenni reiði og einfaldar aðferðir til að losa um hana, svo sem að telja upp að tíu eða yf- irgefa staðinn til að jafna sig. Við lausn vandamála þarf að læra að semja um hlutina og átta sig á að oft þarf maður að gefa eitt- hvað eftir. Samningar eiga ekki að vera þannig að annar aðilinn sigri. Hægt er að þjálfa samningagerð smátt og smátt, með því t.d. að leysa minniháttar vandamál og kenna börnunum að setja sig í spor ann- arra. Einnig er gott að geta sagt skýrt frá því hvers maður óskar sér, jafnvel þótt ekki sé hægt að verða við því. Við getum ekki gert ráð fyrir að fólk viti hvað það er sem við viljum ef við segjum ekki frá því! Vefsíðan umhuga.is er um sambönd ungs fólks og þar er margt gagnlegt fræðsluefni, jafnt fyrir for- eldra sem ungt fólk. hollráð um heilsuna | lýðheilsustöð Ofbeldi í samböndum ungs fólks Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Krepptur hnefi „Ofbeldi í samböndum ungs fólks getur orðið mjög alvarlegt og hafa ber í huga að á þessum ár- um eru lífsviðhorf að mótast.“ Nú liggja margir með svína-flensu. Davíð Hjálmar Har- aldsson frétti af einum: Liggja veit ég vesaling vælandi, með drullusting. Ástand sitt hann sýtir. Kaldsveittur, með hörund heitt, hugsar sljór því ei skilst neitt er hann rámur rýtir. Pétur Stefánsson yrkir mansöng að gefnu tilefni: Áður fyrr þá ortu menn í erg og gríð, oftast nær um dug og dáð, dyggðir, trú og heillaráð. Alltof fáir yrkja núna eins og þá. Kveða helst með kurt og pí um konur, sex og fyllirí. Einnig stefja ýmsir menn um efnahag, eða þessi Icesave-lög sem almenningur hræðist mjög. Sárafáir semja brag um sól og vor, en ljóða stíft um stjórnarfar og stöðug áhrif kreppunnar. Heilsulítill, hóstandi með höfuðverk. Ekki vantar í mig kjark. Upp skal hefja ljóðaþjark. VÍSNAHORN | pebl@mbl.is Af flensu og mansöng Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is É g ákvað einfaldlega að hætta að vera sú manneskja sem var alltaf að fá einhverjar hugmyndir en gerði ekkert í málunum,“ segir Bryndís Haraldsdóttir sem stofnaði í sumar fyrirtækið Góður dagur. Fyr- irtækið ber nafn með rentu því það sem ræður hvaða verkefni fá náð fyrir augum þess er hversu góður dagurinn er og hversu góð hug- myndin er. „Þetta byrjaði allt á því að Signý vinkona mín sagði mér að hún væri að skrifa þrautabókina Heilakrot fyrir börn. Hún var eitthvað að vandræðast með að hún gæti ekki gefið hana út, svo ég greip þetta á lofti og sagðist geta tekið að mér að sjá um útgáfuna. Heilakrotið kom á markað í sumar en þetta er svona bók sem hentar vel til að taka með í ferðalagið eða dunda sér við heimafyrir. Okkur fannst vanta efni fyrir börn þar sem þau þurfa að reyna svolítið á heilann, og fleirum hefur greinilega fundist það því bókin hefur fengið mjög góðar viðtökur.“ Danskt skipulag Verkefni númer tvö sem Bryndís tók að sér kom til þegar hún hitti góðan vin í barnaafmæli í haust. „Hann var nýfluttur heim frá Dan- mörku og við fórum að spjalla um ákveðna gerð af skipulagsdagatali sem við þekkjum frá Danmörku og eru mjög vinsæl erlendis. Við ákváðum að skella okkur í að gefa slíkt dagatal út á íslensku. Það kom út nýlega og hefur gengið mjög vel. Ég hélt að það væri erfitt að koma nýjum vörum að í búðum en það hefur komið skemmtilega á óvart hversu vel verslunareigendur hafa tekið mér. Kannski hefur þjóðfélagsástandið þau áhrif að fólk er opnara en áður fyrir öllu sem er íslenskt.“ Skipulags- dagatalið gefur fjölskyldunni tæki- færi til að halda utan um dagskrá allra í fjölskyldunni á einum stað. Í desember er svo skráð hvenær hvaða jólasveinn kemur til byggða og hvað aðventukertin heita. Nú er Góður dagur einnig að þróa nýja útfærslu á skipulags- dagatölum í samráði við fyrirtæki sem sinna heimahjúkrun og þjón- ustu við aldraða, þar sem sér- staklega er horft til þarfa þess hóps. Viljum ekki Disney-væðingu „Góður dagur leggur áherslu á að hafa það sem við gerum al- íslenskt, við höfum nefnilega fengið alveg nóg af Disney-væðingunni hér. Við viljum frekar hafa íslensk- an raunveruleika, íslensk dýr og fleira í þeim dúr. Núna erum við að vinna að þrautabók númer tvö en þar verða þrautir og annað tengt jólunum. Þessi vöruþróun er í sam- vinnu við jólasveininn, hann vill láta hanna íslenskt krefjandi af- þreyingarefni sem hann getur svo sett í skóinn hjá krökkum í desem- ber. Við erum líka að þróa umbun- ardagatal til að nota í barnauppeldi og til stendur að gefa út bók sem vinkona mín er að skrifa um getn- að, meðgöngu og fæðingu.“ Verður kannski kaffihús Nokkur verkefni eru í pípunum hjá Góðum degi og nægar eru hug- myndirnar, en Bryndís vill ekki rasa um ráð fram, segist vera hag- sýn húsmóðir sem tekur eitt skref í einu. „Svo kemur bara í ljós í hvaða átt þetta þróast. Þótt Góður dagur sé útgáfufyrirtæki núna, þá gæti það allt eins endað sem kaffihús. Ýmsar viðskiptahugmyndir hafa blundað lengi í hausnum á mér og aldrei að vita hverjar þeirra ég mun framkvæma,“ segir Bryndís sem er markaðsfræðingur og starf- aði um árabil hjá Impru nýsköp- unarmiðstöð við ráðgjöf fyrir frum- kvöðla. „Ég var alltaf að segja fólki að það ætti að ramma sig inn og halda sig á jörðinni með viðskipta- hugmyndir sínar, en nú langar mig til að brjóta sum af þessum hefð- bundnu lögmálum viðskiptafræð- innar, af því það er skemmtilegra.“ Athafnamóðirin Bryndís hefur verið heimavinnandi undanfarin tvö ár og á þrjú börn sem hún vill hafa tíma til að sinna. „En ég vil líka hafa einhver skemmtileg verk- efni til að vinna að. Ég vil að mín aðalbækistöð sé heima og að ég geti tekið á móti börnunum mínum eftir skóla og haft tíma til að sinna þeim, meðfram rekstri Góðs dags.“ Góður dagur hjá athafnamóður Allt sem Góður dagur gerir er alíslenkt. Fyrirtækið hennar Bryndísar varð til af því henni fannst kominn tími til að framkvæma eitthvað af öllum þeim hug- myndum sem hún fær í kollinn. Fyrstu verkefnin eru útgáfa á Heilabrotum og skipulagsdagatali. Morgunblaðið/Árni Sæberg Athafnamóðir Bryndís og Kara, hundur hennar, með fyrstu tvö verkefnin. J ó l a s ö f n u n Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur er hafin Oft var þörf en nú er nauðsyn Þeir sem vilja leggja nefndinni lið vinsamlega hafið samband á skrifstofutíma í síma 551 4349 eða á netfangið maedur@simnet.is. Einnig er hægt að leggja framlög inn á reikning nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119. Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Hátúni 12b.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.