Morgunblaðið - 25.11.2009, Page 18

Morgunblaðið - 25.11.2009, Page 18
18 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2009 ÞAÐ VAR fátt um svör frá Arion- [borið fram; ari-jon] banka við erindi Þjóðarhags um opið og gegnsætt söluferli smásöluversl- anakeðjunnar Haga. Spurt var hvers vegna hluturinn hefði ekki verið boðinn hæstbjóðanda, og vís- uðu stjórnendur bank- ans í verklagsreglur, þar sem segir að áframhaldandi þátttaka eigenda og stjórnenda byggist á því að þeir njóti trausts og þyki mikilvægir fyrir framtíð fyr- irtækisins. Jón Ásgeir er dæmdur maður, og má ekki sitja í stjórnum fyrirtækja. Jón Ásgeir hefur einnig valdið þús- und milljarða tjóni hjá hluthöfum í fjölmörgum skráðum almennings- hlutafélögum í Kauphöll Íslands með innkomu sinni. Til að nefna nokkur almenningsfyrirtæki utan við bankana þrjá eru það: Baugur, Mósaík, Teymi, FL Group og Dags- brún. Ekki þarf að spyrja að leiks- lokum þessara fyrirtækja sem liggja í fyrirtækjakirkjugarði Baugsfeðga. Hagar eru í 100% eign Arion- banka. Af hverju er Jón Ásgeir lát- inn fara og finna fjárfesta? Kann bankinn ekki lengur til verka? Er betra að einokun Baugsfeðga á smá- söluverslun á Íslandi verði leppuð í gegnum Breta? Jón Ásgeir og hans bresku vinir eru þá loksins komnir með fyrirtæki sem hefur ríkisábyrgð að hluta til og meðeigendur skatt- greiðenda. Eða er þetta bara allt saman einn leikþáttur? Ef ekkert verður afskrifað af 60 milljarða skuldum 1998 ehf. bitnar það á vöruverðinu sem kemur til með að hækka til muna í landinu til áratuga og lýsa sér í aukinni verð- bólgu. Bara vextirnir af þessari 60 milljarða skuld 1998 ehf. eru 7,5 til 10 milljarðar á ári. Jóhannes Jónsson og Sigurjón Pálsson sitja tveir í stjórn Haga, þeir taka ákvörðun fyrir ríkið, hvar eigi að fjárfesta, auglýsa o.s.frv. Þetta er ömurleg staðreynd gagn- vart fólkinu í landinu, öðrum kaup- mönnum og öðrum fjölmiðlum. Al- menningur borgar auglýsingar fyrir Haga. Ríkið er komið í samkeppni við kaupmanninn á horninu. Það er ekki komin út ársskýrsla fyrir síðastliðið ár. Birta þarf árs- reikning innan sex mánaða frá lok- um síðasta uppgjörsárs og því átti félagið að birta reikning í lok júní. Framtíðarsýn Haga sem gagnast Íslandi: 1. Hagar yrðu gerðir að íslensku almenn- ingshlutafélagi 2. Hagar yrðu brotnir upp í þrjú eða fleiri íslensk félög 3. Hagar yrðu með 25- 30% markaðs- hlutdeild á íslensk- um matvörumarkaði 4. Bónus héldi sama vöruverði um allt Ís- land 5. Hámarksprósentueignarhald hvers íslensks hluthafa, svo fyr- irtækið komist aldrei aftur í svona stöðu. Það mun ekki gleðja þá aðila sem standa á bak við hugsanlegt tilboð í Haga og allan þann fjölda fólks í landinu sem hefur skráð sig í áhugamannahópinn www.þjóð- arhagur.is. Hugur þessa fólks gæti sveiflast á móti Arion-banka, og fólk og fyrirtæki færðu sín viðskipti ann- að. Þögnin í þessu þjóðþrifamáli að brjóta upp fákeppni og einokun á Íslandi er pólitísk. Það er með ólík- indum að verkalýðsfélög, alþing- ismenn og ráðherrar virðast lítinn áhuga hafa á þessu máli. Eina skýr- ingin virðist vera sú að þessir sömu aðilar séu hræddir við Baugsfeðga og fjölmiðlaveldi þeirra. Ekkert ríki sem vill kalla sig sið- menntaða þjóð getur sætt sig við að einn aðili hafi yfir 60% hlutdeild á matvörumarkaði. Jóhannes í Bónus skýrði þetta sjálfur ágætlega út í viðtali við Tímann í mars 1991: „Það er afar óhollt í kapítalísku þjóðfélagi, að eitt fyrirtæki verði svo stórt að það nái kannski 30-40% markaðshlutdeild. Það á sér hvergi hliðstæðu í nágrannalöndum okkar að eitt fyrirtæki nái slíkum tökum. Það eru rosaleg völd fólgin í því að vera smásali. Náir þú góðum tökum á smásölumarkaði, þá nærðu líka kerfisbundið tökum á ákveðnum iðnaði. Það er mjög hættulegt bæði framleiðendum og innflytjendum verði einn smásali mjög stór … Svona er unnið hér í þjóðfélaginu þegar völdin komast á stórar hend- ur. Fyrir þessu verða menn í smá- iðnaði. Það er bara snúið upp á hendurnar á þeim og þeir eiga ekki annarra kosta völ en að hækka vör- urnar sínar, til þess að geta veitt þeim stóru sérkjör.“ Mundi einhverjum detta það fá- ránlega í hug að bankastjóri Nýja Landsbankans kæmist upp með að selja Björgólfsfeðgum Nýja Lands- bankann, eftir afskriftir skulda og endurskipulagningu, þeir ættu að reyna að gera það. Ég efast stórlega um að þjóðin myndi samþykkja það. Þetta Hagamál er sambærilegt. Baugsfeðgar virðast fá að valsa um fyrirtækjakirkjugarð ríkisins eins og útfararstjórar og velja sér bestu bitana með dyggri hjálp ým- issa huldumanna. Hér á Íslandi verður kreppa um margra áratuga skeið ef þessi vinnubrögð verða viðhöfð. Í von um réttláta og sanngjarna viðskiptahætti: Stöndum vörð um samkeppni í verslun í landinu og brjótum upp einokun Baugsfeðga og þeirra bresku meðreiðarsveina á Íslandi. Þjóðarhagur eða „bresk“ einokun? Eftir Guðmund Franklín Jónsson »Ef ekkert verður af- skrifað af 60 millj- arða skuldum 1998 ehf. bitnar það á vöruverð- inu sem kemur til með að hækka til muna í landinu til áratuga og lýsa sér í aukinni verð- bólgu. Guðmundur Franklín Jónsson Höfundur er viðskiptafræðingur. „ORÐ SKULU standa“ er þáttur um íslenskt mál og er fluttur síðdegis á laugardögum. Hér á síðum Morgunblaðs- ins hefur komið til orðaskipta milli mín og stjórnanda þátt- arins, Karls Th. Birg- issonar. Tilefnið var hendingin „nú er upp- haf nóvember“, sem Karl hafði varpað fram í fyrri hluta. Þessi samsetningur meiddi málvit- und mína og þótti mér skárra að bæta eignarfalls-essinu við, nóv- embers. Enginn segir „nú er upp- haf árs“ heldur „í upphafi árs“. Málvenja er að segja í lok nóv- ember en ekki nóvembers. Júnís segir enginn maður og maís er korntegund. Ég hef verið unnandi ferskeytl- unnar síðan ég man eftir mér. Bjarni afi minn kenndi mér vísu Látra-Bjargar „róðu betur, kær minn karl“, og Halldór Vigfússon hringhend- una: Nú er hlátur nývakinn, nú er grátur tregur. Nú er ég kátur, nafni minn, nú er ég mátulegur. Í endurminningunni hef ég gaman af að rifja upp, að ég var far- inn að stálpast þegar ég áttaði mig á, að ný- vakinn var lýsingarorð en ekki ávarpsliðurinn nýva-kinn sbr. silki-hlín, en þannig þóttu mér áherslurnar vera, þegar nafni minn fór með stökuna. Þessi vísnaáhugi olli því, að ég hljóp yfir fyrrihlutana og botnana í „orðum skulu standa“ sem birtust í Mbl. á laugardag. Þar stendur: „Síðustu helgi var fyrriparturinn þessi í tilefni dags íslenskrar tungu: Merkilegt hvað þraukar þó þjóðartungan okkar. Í þættinum botnaði Hlín Agnars- dóttir: En með nesti og nýja skó á Næslandinu skokkar.“ Og síðar segir: „Úr hópi hlust- enda botnaði Rúnar Ármann mjög við hæfi: Alveg er það ýkt, you know! Alheimstungan rokkar!“ Fastir þættir helgaðir ferskeytl- unni hafa oftsinnis verið í ríkis- útvarpinu og minnist ég Sigurðar frá Haukagili sérstaklega í því sam- bandi. En þeir gera því aðeins gagn að til þeirra sé vandað og rétt farið með stuðla og höfuðstafi. Og við erum greinilega ólíkir menn, ég og Karl Th. Birgisson. Við erum ólíkir menn Eftir Halldór Blöndal Halldór Blöndal »En allt er þetta auð- vitað spurning um smekk og uppeldi, hvað menn telja gott mál eða frambærilega vísu. Höfundur er fyrrverandi forseti Alþingis. SÍÐUSTU daga hafa fjölmiðlar, ég segi bjargað því að níu ára drengur var ekki tekinn af ömmu sinni og sendur í burtu. Barátta ömmu sem elskar sín barna- börn út af lífinu og myndi fórna öllu fyrir þau. Sjálf hef ég reynsluna af að vera tekin í burt frá foreldrum mínum, send á Silungapoll, Reykjahlíð og að lokum á Kumbaravog þar sem ég dvaldi í tæpan áratug. Ef ein- hver hefði spurt mig hefði ég ekki verið lengi að svara að ég hefði viljað fá að vera hjá ömmu minni. Nei, það datt engum í hug þá að spyrja mig. Ég gleymi aldrei þeim degi er faðir minn heitinn keyrði mig og bróður minn á Kumbaravog. Án skýringa og sennilega til að verja sjálfan sig þeim sársauka að þurfa að skilja okkur eftir þarna keyrði hann burt án þess að kveðja og ég hljóp eins og fætur toguðu á eftir bílnum þar til ég gafst upp og sá að ég myndi ekki ná honum. Ég hef oft spurt sjálfa mig eftir að ég varð fullorðin: Af hverju tók amma mig ekki? Ég sem var skírð í höfuðið á henni og afi og amma voru vel stæð. Amma dó þegar ég var 18 ára og á þeim tíma hefði ég aldrei talað um þetta né spurt hana. Ég strauk burt um 16 ára aldur og þá var ég mikið með ömmu og hændist mjög að henni og enn þann dag í dag sakna ég hennar mjög mikið. Afasystir þessara drengja er fóstursystir mín. Hún og bróðir hennar Einar heitinn voru tekin burt af barnaverndarnefnd en tveir bræður þeirra máttu vera heima. Móðir þeirra barðist og barðist í mörg ár fyrir að fá þessi tvö börn til sín aftur, án árangurs. Henni var sko tilkynnt það hvar börnin yrðu í framtíðinni (en það féll aldrei neinn dómur). Hún hafði engan með sér í baráttunni, það voru ekki fjölmiðlar þá sem gripu inn í aðstæður og hjálpuðu til. Afi þessarra drengja má svo upplifa þessa martröð aftur núna að það eigi að fara að hrófla við afa- drengjunum hans. Ég bið alla þá sem koma að þessu máli og hafa þau völd að ráðskast með drengina að gera sér grein fyrir því að börn vilja vera hjá ættingjum sínum þar sem þau fá ást og hlýju. Það er betra fyrir barnið að fá ást og hlýju heldur en mat og húsaskjól en enga ást. Annað mál er það líka að móðir drengjanna hefur staðið sig vel og hefur íbúð og vinnu. Hennar mark- mið í lífinu er að standa sig svo hún geti einn góðan veðurdag ver- ið með börnin sín, vanvirðum ekki þann vilja hennar eins og gert var við ömmu hennar sálugu. Hún á föður og móður sem standa með henni og hugsum líka um hana og hvaða afleiðingar það hefði fyrir hana að taka drengina í burt, hún sem á ættingja sem standa með henni eins og klettar. Látum söguna ekki endurtaka sig, virðum barnið og spyrjum það hvað það vill, þessir drengir eru það stálpaðir og vita nákvæmlega hvar þeir vilja vera. Virðum það og sýnum í verki. Hlustum á barnið Eftir Maríu Haraldsdóttur María Haraldsdóttir » Látum söguna ekki endurtaka sig, virðum barnið og spyrj- um það hvað það vill. Höfundur er skrifstofustjóri. OFT er það svo að fyrirtæki elska ekki kúnnana sína heldur peningana þeirra. Þetta virðist einnig geta átt við líf- eyrissjóði ef marka má ummæli frá þeim; að skárra sé að lagður verði á þá fjármagnstekjuskattur en að líf- eyrir sé skattlagður við inngreiðslu í sjóðina. Mismunurinn á þessum leiðum er sá að skattlagningin hefur ekki áhrif á greiðslu til sjóðfélaga, en minnkar umsvif líf- eyrissjóðanna veru- lega, fjármagns- tekjuskatturinn aftur á móti minnkar umsvifin miklu minna, en rýrir greiðslu til sjóðsfélaga. Í núverandi kerfi má segja að ríkið eigi hlut- deild í lífeyrissjóð- unum, framlag þess er eftirgjöf á skatti af líf- eyrisgreiðslum, sem það fær greitt til baka í skatti lífeyrisþega þeg- ar greitt er út úr sjóðnum. Ávöxt- unin á þessu fé verður sú sama og hjá sjóðsfélögum. Þetta gæti verið eins góð fjárfesting fyrir ríkið og hver önnur ef það ætti peninga til fjárfestinga, en þegar það þarf að taka lán fyrir þessu framlagi sínu gegnir öðru máli enda varla þörf á að ríkið leggi fyrir til „elliáranna“ eins og einstaklingar. Ég leyfi mér að koma með út- færslu á því hvernig mætti standa að þessu sem hefur þann kost að hafa engin áhrif á greiðslur til lífeyr- isþega. Lífeyrissjóðunum verði skipt í tvo hluta. Annars vegar eign sjóðsfélaga og hins vegar eign ríkisins (t.d. 25%). Sjóðirnir héldu áfram að ávaxta „sinn“ hluta, en ríkið fengi sín 25%. Síðan yrði lagður 25% flatur skattur á allan lífeyri. Þegar greitt yrði úr líf- eyrissjóðunum legði ríkið fram „sinn“ hlut aftur (þ.e. 33,3% ofan á greiðslu úr lífeyrissjóðunum) og þetta samanlagt yrði síðan skattlagt eins og nú er gert. Með þessu móti þyrftu lífeyrissjóðirnir ekki einu sinni að breyta upphæðinni sem stendur á seðlunum um áunnin líf- eyrisréttindi, það þyrfti aðeins að taka fram að þetta væri með fram- lagi ríkisins. Kostirnir við þetta eru eftirfarandi: Ríkið fær í upphafi um 400 milljarða. Þetta yrði að vísu ekki í lausu fé, en hægt að losa það á næstu árum til að minnka láns- fjárþörfina. Meðan inngreiðslur í líf- eyrissjóðina eru hærri en út- greiðslur yrðu einnig skatttekjur verulega meiri en nú er. Lánshæf- ismat ríkissjóðs myndi batna vegna minni skulda með tilheyrandi bata á lánskjörum. Ef þetta fé er fyrst og fremst notað til að draga úr lánum ríkissjóðs er þetta ekki flutningur á greiðslubyrði milli kynslóða, eins og sumir hafa haldið fram. Hærri lán yrðu ennþá þyngri fyrir komandi kynslóðir. Skattlagning lífeyris Eftir Harald Sveinbjörnsson » Í núverandi kerfi má segja að ríkið eigi hlutdeild í lífeyrissjóð- unum … Haraldur Sveinbjörnsson Höfundur er verkfræðingur. flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.