Morgunblaðið - 25.11.2009, Síða 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2009
GUÐMUNDUR Pét-
ursson hæstaréttar-
lögmaður andaðist síð-
astliðinn föstudag, 92
ára að aldri.
Guðmundur fæddist
í Reykjavík 25. júlí
1917. Foreldrar hans
voru Þórunn Ingi-
björg Guðmundsdóttir
húsfreyja og Pétur
Magnússon hrl.,
bankastjóri, alþing-
ismaður og ráðherra.
Guðmundur varð stúd-
ent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík
árið 1938 og lauk lagaprófi frá Há-
skóla Íslands árið 1947. Hann varð
héraðsdómslögmaður 1948 og
hæstaréttarlögmaður 1958.
Guðmundur varð fulltrúi á mál-
flutningsskrifstofu Einars B. Guð-
mundssonar og Guðlaugs Þorláks-
sonar árið 1947.
Árið 1948 gerðist hann meðeig-
andi að stofunni. Málflutnings-
stofan hefur starfað
óslitið frá árinu 1907,
stofnuð af Sveini
Björnssyni, og er
elsta starfandi lög-
mannsstofa landsins.
Hún heitir nú Logos.
Guðmundur starf-
aði við málflutnings-
störf fram að áttræðu,
eða í um 50 ár. Alls
flutti hann yfir 1.000
mál fyrir dómstólum
á sínum lögmanns-
ferli.
Síðasta málið sem
Guðmundur flutti var
jafnframt fyrsta málið sem flutt
var í hinu nýja húsi Hæstaréttar
við Lindargötu.
Guðmundur lætur eftir sig eig-
inkonu, Sigríði Ingibjörgu Níels-
dóttur, og þrjá syni.
Útför hans verður gerð frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn
30. nóvember nk. og hefst hún
klukkan 13.
Andlát
Guðmundur Pétursson
RÚMLEGA 10 milljarðar fara í vaxtabætur á næsta ári,
en ekki 7,7 milljarðar eins og gert var ráð fyrir í fjárlaga-
frumvarpinu. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráð-
herra segir að fjármagn til þessa málaflokks hafi verið
tryggt með auðlegðargjaldi, en tillaga um það mun koma
fram á þingi í tengslum við afgreiðslu fjárlagafrum-
varpsins.
Samkvæmt fjárlögum þessa árs áttu 7.770 milljónir að
fara í vaxtabætur á árinu, en ríkisstjórnin ákvað hins
vegar í mars að hækka vaxtabætur um 25% til að koma
til móts við fjölskyldur sem skulda mikið í húsnæði. Ekki
var gert ráð fyrir þessari viðbót í fjárlagafrumvarpi fyrir
næsta ár.
Ríkisstjórnin hefur hins vegar ákveðið að svipuð upp-
hæð verði greidd í vaxtabætur á næsta ári og á þessu ári
eða rúmlega 10 milljarðar. egol@mbl.is
10 milljarðar í vaxtabætur á næsta ári
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
DANMÖRK er það land sem orðið
hefur fyrir valinu hjá flestum brott-
fluttum Íslendingum það sem af er
árinu. Alls hafa 1.338 Íslendingar
flutt til Danmerkur á fyrstu 9 mán-
uðum ársins, en Noregur fylgir fast
á eftir því þangað fluttu 1.123 Ís-
lendingar á sama tíma skv. Hagstof-
unni.
Þúsund fleiri til
Noregs en áður
Mikil sprenging hefur orðið í vin-
sældum Noregs, því frá janúar og
fram í september hafa rúmlega fjór-
um sinnum fleiri Íslendingar flutt
þangað en allt árið í fyrra.
Síðustu 10 árin hafa að meðaltali
um 325 Íslendingar flutt til Noregs
árlega og stefnir því í að 1.000 fleiri
Íslendingar flytji þangað í ár en tíðk-
ast hefur. Fjöldi brottfluttra Íslend-
inga til Danmerkur hefur hinsvegar
verið á svipuðu róli síðustu árin, um
1.410 að meðaltali og virðist kreppan
ekki hafa haft sérstök áhrif á straum
Íslendinga þangað, hann er alltaf
jafnmikill, óháð góðæri eða kreppu.
Allt í allt hefur hinsvegar ekki ver-
ið meiri brottflutningur af landinu
en nú síðustu tæpu 50 árin, en tölur
Hagstofunnar ná ekki lengra aftur
en til 1961. Frá janúar til september
hafa þannig 4.021 íslenskur ríkis-
borgari flutt burt en tæplega helm-
ingi færri, eða 2.072 flutt aftur heim.
Metárið síðustu hálfa öldina var
áður 1995, þegar aðeins 1.029 Ís-
lendingar sneru heim á móti 3.566
sem yfirgáfu landið á miðju sam-
dráttarskeiði í efnahagnum.
315 fleiri karlar
en konur burt
Töluverðar sveiflur eru á mismun
aðfluttra og brottfluttra síðustu 20
árin en topparnir eru árin 1989 þeg-
ar 1.148 fleiri fluttu burt, 1995 eins
og áður segir, 2002 þegar 1.020 fleiri
fluttu á brott og loks árið í ár þar
sem mismunurinn er mestur.
Þau lönd sem koma næst á eftir
Noregi og Danmörku eru m.a. Sví-
þjóð, Bandaríkin og Bretland.
Ef litið er til aldursdreifingar sést
að síðustu 20 árin er aldurshópurinn
20-27 ára almennt langfjölmennast-
ur þeirra sem flytja til útlanda. Hlut-
fallið á milli kynja er almennt nokk-
uð jafnt þótt í ár hafi ívið fleiri karlar
farið, eða 2.168 á móti 1.853 konum.
Brottflutningur íslenskra ríkisborgara
4.500
4.000
3.500
3.000
2.500
2.000
1.500
1.800
1.600
1.400
1.200
1.000
800
600
400
200
0
Aðfluttir og brottfluttir íslenskir ríkisborgarar Brottfluttir eftir löndum janúar–september 2009
Brottfluttir alls
(Þar af ísl. ríkisborgarar)
Flutt til:
NO DK FI SE FO CA US PL NL UK
1.186
(1.123)
1.454
(1.338)
57
(24)
655
(567)
47
(0)
88
(44)
232
(154)
1.714
(44)
44
(23)
212
(156)
2.883
1.735
3.566
1.929
2.817
3.294
1989 2009*
(*jan.-sept.)
1.637 brottfluttir
umfram aðflutta
(1995)
1.947 brottfluttir
umfram aðflutta
(2009*)
Fleiri flytjast til útlanda
en nokkru sinni fyrr
Flestir brottfluttir til Danmerkur 1.947 fleiri Íslendingar
fluttu burt af landinu en til þess fyrstu níu mánuði ársins
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
www.noatun.is
KJÖTFARS
NÝTT
KR./KG399
VERÐ
FRÁBÆRT
Ódýrt
og gott
fyrir alla
49%
afsláttur
779
BBESTIR
Í KJÖTI
ÚRKJÖTBOR
ÐI
ÚR
KJÖTBORÐI
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
UNGUR maður sem leitaði sér að-
hlynningar á slysadeild Landspítala
aðfaranótt sunnudags reyndi að
stilla til friðar þegar til áfloga kom
á biðstofunni. Hann uppskar pip-
arúða lögreglu í andlitið, án viðvör-
unar að eigin sögn. Geir Jón Þór-
isson, yfirlögregluþjónn hjá
lögreglu höfuðborgarsvæðisins, seg-
ir að farið verði yfir málið svo hægt
sé að læra af því.
Ungi maðurinn leitaði á slysa-
deildina ásamt félaga sínum eftir að
ráðist var á þá í miðborginni. Hann
segir árásina hafa verið með öllu
tilhæfulausa. Ekki voru áverkanir
miklir en þó þannig að betra var að
láta líta á þá.
Þegar komið var á biðstofu slysa-
deildarinnar sáu þeir þar mann sem
félaginn kannaðist við. Skömmu síð-
ar kom inn á deildina annar maður.
Tóku út stærsta manninn
Ungi maðurinn var við af-
greiðsluborðið þegar hann heyrði
að maðurinn sem kom inn var að
rífast við þann sem fyrir var á bið-
stofunni. Fyrr en varði hófust áflog
og reyndi félagi hans að stilla til
friðar. Þegar hann fór að fá högg
gekk maðurinn sjálfur á milli. Það
næsta sem hann vissi var að lög-
reglumaður sprautaði piparúða í
andlitið á honum. Kveður hann
magnið hafa verið óheyrilegt.
„Það var alveg greinilegt að taka
átti út stærsta manninn fyrst,“ seg-
ir maðurinn sem er þrekvaxinn og
um tveir metrar á hæð. Félagi hans
fékk einnig úða í augun.
Þar sem hann stóð við salernið
hljóp hann til og undir vatnsbunu.
Hann segir lögreglumann hafa
öskrað á sig: „Mér var sagt að vera
bara undir vatninu því ég myndi
hvort eð er ekki jafna mig næsta
klukkutímann.“
Hann var síðar færður af biðstof-
unni og inn á sjúkrastofu. Viðkvæði
lögreglumannanna var þá annað og
betra. Þegar hann loksins gat opn-
að augun, um 45 mínútum síðar,
báðu lögreglumenn hann afsökunar
á framferði sínu. Þeir hefðu séð af
öryggismyndavélum hvers kyns
var. Einnig upplýstist þá að hann
og félagi hans urðu verst úti en
áflogahundarnir sluppu við piparúð-
ann.
Maðurinn segir nóttina þá verstu
sem hann hafi upplifað. Fyrir það
fyrsta hafi verið ráðist á hann í
miðborginni og svo aftur á biðstof-
unni. Eftir að yfir lauk hafi hann
verið uppgefinn og helst þráð faðm-
lag.
Í fjölmiðlum hefur komið fram að
flestir sem tóku þátt í slagsmál-
unum hafi verið undir áhrifum örv-
andi vímuefna. Maðurinn segir það
alls ekki eiga við um sig né félaga
sinn, enda hafi lögreglumenn ekki
séð ástæðu til að athuga með það.
Gagnrýni mannsins beinist fyrst
og fremst að því að lögreglumað-
urinn hafi ekki gefið viðvörun áður
en hann sprautaði úr úðabrúsanum.
Hann hefði verið fljótur að bakka
enda ekki haft neinna hagsmuna að
gæta. Þá þykir honum undarlegt að
einn lögreglumaður sé á vakt og í
stöðu til að taka á slagsmálum ef
þau koma upp.
Farið yfir atvik næturinnar
Geir Jón segir það brot á vinnu-
reglum hafi lögreglumaðurinn ekki
varað fólkið við áður en hann úðaði.
Þegar lögreglumaður lítur svo á að
hann haldi ekki utan um ástandið
getur það þó gerst að hann nái ekki
að vara við.
Geir Jón fundar með starfsfólki
slysadeildarinnar á morgun þar
sem farið verður yfir atvikin, m.a.
viðbrögð lögreglumannsins. „Við
sjáum svo hvað betur mátti fara og
lærum af reynslunni.“ Farið verður
yfir gæsluna á slysadeild um helgar
og hvort fjölga þurfi þar lög-
reglumönnum.
Varð verst úti þrátt
fyrir að hafa reynt
að stilla til friðar
Áflogahundar
fengu ekki yfir
sig varnarúða
Morgunblaðið/ÞÖK
ÚTSENDINGARTÍMI Mbl
frétta á SkjáEinum breytist
frá og með deginum í dag.
Fréttatími dagsins fer í loftið
kl. 18.15 og er svo endur-
sýndur klukkan 19.30. „Við
ákváðum í kjölfar þess að
SkjárEinn er nú í læstri dag-
skrá að breyta útsending-
artíma. Það var tæknilega erf-
itt að halda gamla
endursýningartímanum í
miðri læstri dagskrá,“ segir
Hlynur Sigurðsson fréttastjóri
sjónvarpsfrétta mbl.is.
„Breytingin þýðir að við er-
um fyrsti sjónvarpsfréttatími
dagsins klukkan 18.15. Við-
tökurnar hafa verið ótrúlega
góðar, það er greinilega
markaður fyrir snarpar og já-
kvæðar fréttir,“ segir Hlynur.
Fréttirnar verða sem fyrr
aðgengilegar á mbl.is, bæði
fréttatíminn í heild og hvert
innslag. sbs@mbl.is
Mbl-fréttir verða
fyrsti sjónvarps-
fréttatími kvöldsins