Morgunblaðið - 25.11.2009, Side 7
Fréttir 7INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2009
Í FYRRADAG voru tveir styrkir
veittir úr Styrktarsjóði Ingibjargar
R. Magnúsdóttur til doktorsnema í
hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum.
Styrkhafarnir eru dr. Helga Gott-
freðsdóttir, ljósmóðir og lektor við
hjúkrunarfræðideild Háskóla Ís-
lands, og doktorsneminn Þorbjörg
Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og
lektor við Háskólann á Akureyri.
Heildarupphæð styrksins er
750.000 kr. Þetta er í annað sinn
sem úthlutað er úr sjóðnum. Mark-
mið hans er að efla rannsóknir í
hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum.
Ingibjörg R. Magnúsdóttir, hjúkr-
unarfræðingur og stofnandi sjóðs-
ins, er fyrrverandi námsbrautar-
stjóri í hjúkrunarfræði við Háskóla
Íslands og einn ötulasti talsmaður
þróunar hjúkrunarmenntunar á Ís-
landi.
Styrkur Ingibjörg og styrkþegar.
Rannsóknastyrkir
Í DAG, miðvikudag, kl. 20.30-22
standa Græna netið og Samfylking-
arfélagið í Reykjavík fyrir fundi um
loftslagsmál í tilefni af loftslags-
ráðstefnunni í Kaupmannahöfn sem
hefst í næsta mánuði.
Málshefjendur á fundinum eru
þau Árni Finnsson, formaður Nátt-
úruverndarsamtaka Íslands, og
Þórunn Sveinbjarnardóttir, alþing-
ismaður og fyrrverandi umhverf-
isráðherra. Fundarstjóri verður
Mörður Árnason, formaður Græna
netsins.
Fundurinn fer fram í húsi Sam-
fylkingarfélagsins á Hallveigarstíg
1, 2. hæð, og eru allir velkomnir.
Fundur um
loftslagsráðstefnu
Í DAG, miðvikudag, er alþjóða-
dagur Sameinuðu þjóðanna um af-
nám ofbeldis gegn konum. Dag-
urinn markar upphaf 16 daga átaks
gegn kynbundnu ofbeldi.
Í tilefni dagsins standa mannrétt-
indasamtök og Kvennahreyfingin á
Íslandi fyrir ljósagöngu til að vekja
athygli á ofbeldi gegn konum og
hvetja til aðgerða. Lagt verður af
stað frá Þjóðmenningarhúsinu kl.
19 og gengið niður að Sólfarinu þar
sem friðarsúla verður tendruð kl.
19.45. Yoko Ono sendir friðar-
kveðju í tilefni dagsins og ljósa-
göngunnar, en þetta er í fyrsta
skipti sem ljós Friðarsúlunnar er
tileinkað sérstöku málefni; alþjóða-
degi um afnám ofbeldis gegn kon-
um.
Ljósaganga í kvöld
UNIFEM á Ís-
landi fagnar 20
ára afmæli sínu í
dag.
Efnt verður til
afmælishátíðar í
Þjóðleikhúskjall-
aranum frá kl.
17. Jóhanna Sig-
urðardóttir for-
sætisráðherra
ávarpar gesti,
konur úr Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands spila, Ólína Þorvarðadóttir
kveður rímur, trúðurinn Gjóla
varpar ljósi á kvennasáttmála SÞ,
Auður Jónsdóttir skáldkona flytur
ljóð, Lina Mazar segir frá reynslu
sinni í flóttamannabúðum í Írak,
Ellen Kristjánsdóttir og dætur taka
lagið og einnig verður rætt við
stofnendur UNIFEM. Veislustjóri
er Eva María Jónsdóttir og boðið
verður upp á léttar veitingar.
UNIFEM heldur
afmælisfagnað
Jóhanna
Sigurðardóttir
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
REFASKYTTUR vilja að ríkið haldi
áfram að endurgreiða sveitar-
félögum vegna veiða á ref og mink
enda sé það akkur fyrir alla.
„Okkur finnst þessi ákvörðun
mjög aulaleg,“ segir Guðbrandur
Sverrisson, bóndi á Bassastöðum í
Steingrímsfirði og refaskytta, um
tillögu umhverfisráðherra þess efnis
að fella niður fyrrnefndar greiðslur.
Hann bendir á að með ákvörðuninni
spari ríkið ekki eina einustu krónu
og ljóst sé að það hagnist á refaveið-
um vegna þess að það fái meira í
sinn snúð í formi skatta en það borgi
fyrir skottin enda greiði það aðeins
30% gjaldsins. Auk þess sé mikil-
vægt að grisja stofninn jafnt um allt
land til að vernda fuglastofna.
Misræmi
Guðbrandur segir að misræmi sé
á milli útgjalda sveitarfélaga vegna
refaveiði og það sé eitt helsta vanda-
málið. Stærri sveitarfélög greiði
ekkert, önnur greiði skottaverðið en
smærri sveitarfélögin sitji uppi með
mesta kostnaðinn. Þetta geri það að
verkum að veiðimenn leiti meira í
þau sveitarfélög sem greiði fyrir
skottin og kerfið sé því óréttlátt.
Guðbrandur segir að umræða um
dýrbít hafi aukist á ný undanfarin
fimm ár og þar sem sé meira um ref
eins og á Hornströndum sé nánast
ekkert mófuglalíf. Mófuglinn komi á
vorin og syngi fallega fyrir ferða-
menn og verpi, refurinn hirði fugla
og egg og allt þagni. Mikilvægt sé
því að refastofninn fari ekki upp fyr-
ir um 7.000 dýr, en hann hafi tekið
kipp eftir að líffræðingur kom í
stöðu veiðistjóra.
Refaskyttur segja ríkið græða á refaveiðum
Vilja samræmdar aðgerðir um allt land
til þess að halda fjölda refa í skefjum
Ær Illa farin eftir dýrbít.