Morgunblaðið - 25.11.2009, Qupperneq 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2009
Sími 551 3010
Hárgreiðslustofan
Morgunblaðið/Golli
Breyta í krónur Margir hafa látið
breyta erlendum lánum sínum.
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynurorri@mbl.is
HAGSMUNASAMTÖK heimilanna
hvetja þá sem breyta lánum úr er-
lendum gjaldeyri yfir í íslenskar
krónur til að setja fyrirvara í nýja
lánasamninga um breytingin gangi
til baka ef lán í erlendum gjaldeyri
verða úrskurðuð ólögmæt.
Samtökin taka undir ábendingu
Kristínar Snæfells Arnþórsdóttir,
sem á heimasíðu sinni hefur varað
við því að með skilmálabreytingum
sé í raun verið að semja um nýtt lán,
og því sé mikilvægt að gera um-
ræddan fyrirvara til að fara ekki á
mis við rétt til niðurfellingar verði
erlend lán úrskurðuð ólögmæt.
Ekki hefur þó í öllum tilfellum
reynst þrautalaust að setja fyr-
irvara inn í breytta lánasamninga.
Kristín segist vita um sjö tilfelli þar
sem einstaklingar fóru að hennar
ráðum en hafi fyrir vikið ekki verið
leyft að breyta lánum sínum.
Gísli Tryggvason, talsmaður
neytenda, segir fyrirtæki hafi laga-
legan rétt til að neita að taka við
umræddum fyrirvara, enda sé í
raun um nýjan samning að ræða
þegar fyrirvara sem þessum er
bætt við. „Hins vegar myndi ég
segja að það væri ósanngjarnt
gagnvart neytendum og gagnrýni
ég það.“
Hann segir sjálfsagt að reyna á
það að setja inn fyrirvarann, enda
margt óljós varðandi hvaða reglur
gilda ef gjaldeyrislánin verða úr-
skurðuð ólögmæt.
Guðjón Rúnarsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka fjármála-
fyrirtækja, segir að miðað við það
sem hann hafi heyrt sé ekkert því
til fyrirstöðu að fólk fái að gera um-
rædda fyrirvara við lánabreyt-
ingar. Hins vegar segist hann ekki
gera ráð fyrir að þörf sé á fyrirvör-
unum enda hljóti hið sama að ganga
yfir alla sem tóku erlent lán ef þau
verða úrskurðuð ólögmæt.
Gera fyrirvara við breytingu lána
Fjármálafyrirtæki ekki í öllum tilfell-
um tilbúin að taka við fyrirvörunum
OPINN íbúa-
fundur um
menntamál og
íþrótta- og tóm-
stundamál í
Breiðholti verð-
ur haldinn í
Leiknishúsinu
við Austurberg í
dag, miðviku-
daginn 25. nóv-
ember kl. 17.30.
Frummælendur verða þeir Kjart-
an Magnússon, formaður mennta-
ráðs og íþrótta- og tómstundaráðs
og Helgi Kristófersson, formaður
íbúasamtaka Breiðholts. Fund-
arstjóri verður Lilja Dögg Al-
freðsdóttir, varaformaður mennta-
ráðs.
Fjallað verður um skólahald,
íþróttir og tómstundamál og farið
yfir stöðuna í uppbyggingu skóla-
og íþróttamannvirkja í hverfunum.
Þá verður kynnt vinna við mótun
nýrrar menntastefnu á vegum
Reykjavíkurborgar. Að loknum
inngangserindum verða umræður
með þátttöku íbúa, fulltrúa úr
menntaráði og íþrótta- og tóm-
stundaráði ásamt fulltrúum
íþróttafélaga í hverfinu.
Opinn íbúa-
fundur í
Breiðholti
Kjartan
Magnússon
Á NORRÆNNI ráðstefnu sem
haldin verður hér á landi á morg-
un er ætlunin að varpa ljósi á
áhrif alþjóðlegu fjármálakrepp-
unnar á húsnæðismarkaði nor-
rænu ríkjanna og á velferðarkerfi
þeirra út frá ýmsum sjónar-
hornum. Ráðstefnan hefst á Hotel
Hilton Nordica fimmtudaginn 26.
nóvember kl. 9.00 með ávarpi
Árna Páls Árnasonar félagsmála-
ráðherra.
Ráðstefnan er skipulögð af fé-
lags- og tryggingamálaráðuneyt-
inu með stuðningi norrænu ráð-
herranefndarinnar, þar sem Ísland
fer nú með formennsku.
Aðalfyrirlesari er víðkunnur
fræðimaður á hinu alþjóðlega
fræðasviði húsnæðisrannsókna,
Gwilym Pryce, prófessor í borg-
arhagfræði og félagslegri tölfræði
við Háskólann í Glasgow. Þá munu
sérfræðingar frá öllum norrænu
þjóðunum flytja erindi.
Ýmsar brennandi spurningar
verða til umfjöllunar. Til dæmis
verður leitað svara við því hvernig
þróunin hefur verið frá upphafi
fjármálakreppunnar og hvaða af-
leiðingar hún hefur haft fyrir bú-
setuskilyrði heimilanna á Norð-
urlöndunum. Hvaða ályktun er
hægt að draga af nýfenginni
reynslu, og hvernig er hægt að
nýta hana til framtíðarstefnumót-
unar landanna í húsnæðismálum?
Markhópur ráðstefnunnar er að-
allega kjörnir fulltrúar, stjórn-
endur, fræðimenn og aðrir fag-
aðilar á sviði húsnæðis- og skipu-
lagsmála á Norðurlöndunum.
Velferðarkerfið rætt
á ráðstefnu á Hilton
Amilía ekki Arnilía
Því var ranglega haldið fram í
blaðinu í gær að mannanafnanefnd
hefði heimilað kvenmannsnafnið
Arnilía. Um var að ræða misritun, en
rétt útgáfa nafnsins var nefnd síðar í
sömu frétt en það er Amilía. Beðist
er velvirðingar á þessum mistökum.
LEIÐRÉTT
TÓLF Íslendingar hver úr sinni áttinni rifja upp
jólaminningar sínar í samnefndri bók sem kom
út í gær. Jónas Ragnarsson er höfundur bókar-
innar en elsti viðmælandi hans er liðlega hundr-
að ára og sá yngsti er rúmlega fertugur. Útgáfu
Jólaminninga var fagnað í gær á formlegum út-
gáfudegi bókarinnar. Þeir sem rætt er við í bók-
inni eru Gissur Ó. Erlingsson, Jenna Jensdóttir,
Salome Þorkelsdóttir, Ingibjörg Þorkelsdóttir,
Vigdís Finnbogadóttir, Ragnar Bjarnason, Ómar
Ragnarsson, Ragnheiður Ásta Pétursdóttur,
Karl Sigurbjörnsson, Ólöf Kolbrún Harðar-
dóttir, Geir Jón Þórisson og Magnús Scheving.
Þau eiga eins og aðrir sínar góðu og ljúfu minn-
ingar um samveru fjölskyldunnar, kyrrð, epla-
lykt, kertaljós og jólalög og þau sem heiman-
gengt áttu veittu bókinni viðtöku við athöfn í
gær.
Fögnuðu útgáfu bókarinnar Jólaminninga
Morgunblaðið/RAX
Eplalykt, kertaljós og jólalög
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Hlý peysa í jólapakkann
Frábært úrval –15% afsláttur
LAGERSALA
Grensásvegi 8 - 108 Reykjavík
Allar upplýsingar í síma 517-2040
Mikið úrval af ódýrum skóm á alla fjölskylduna
Opið virka daga 12:00 - 18:00 - laugardaga 12:00 - 16:00
dömuskór stærðir 36-42herraskór stærðir 39-47
Eddufelli 2, sími 557 1730
Bæjarlind 6, sími 554 7030
www.rita.is
Dömubuxur 4.900 kr.
Svartar og brúnar
Mikið
úrval í
str. 36-56
Ný sending
Dömublússur 7.900 kr.