Morgunblaðið - 25.11.2009, Síða 21
Minningar 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2009
frænka mín. Á Víðimelinn þar sem
hún bjó með Magga sínum og fal-
legu dætrunum þeirra, Siggu og
Ollu, þótti heimasætunni að norðan
gaman að koma í heimsókn. Gunna
var alltaf í góðu skapi, hló sínum
dillandi hlátri og bauð alla vel-
komna með fádæma rausn og
myndarskap.
Hún hafði líka einstakt lag á að
setja sig inn í og skilja hinar ýmsu
tilfinningar sem bærast með ungum
stúlkum. Ég á henni mikið að þakka
og fannst hún alla tíð vera eins og
mín önnur móðir eftir að ég flutti
suður. Gunna var góð vinkona og
saman áttum við margar góðar
stundir, þar var ekkert kynslóðabil
að trufla okkur.
Á Hrafnistu rifjaði hún upp
gamla daga eins og gömlu fólki er
tamt. Hún talaði um æsku þeirra
systkina á Seltjarnarnesinu og
hvernig líf þeirra var á þeim tíma
rétt eftir aldamótin, ekki alltaf auð-
velt eða þægilegt en samt svo
áhugavert fyrir fólk sem aldrei hef-
ur búið við annað en besta atlæti og
þægindi. Undir það síðasta var hug-
ur hennar oft í Vestmannaeyjum
þar sem hún vann í búðinni hjá frú
Gunnlaugsson.
Magnús Ó. Ólafsson, maðurinn
hennar, var líka Vestmannaeyingur.
Stóra ljósmyndin af tengdaföður
hennar, Ólafi lækni, þar sem hann
er með afastelpurnar Siggu og Ollu,
vakti alltaf með Gunnu bros og hlýj-
ar endurminningar.
Gunna bjó fjölskyldu sinni fallegt
heimili og var jafnramt stoð og
stytta Magnúsar í hans fyrirtæki,
ferðaðist með honum í viðskipta-
ereindum og tók á móti viðskipta-
vinum á heimili þeirra. Þegar
Magnús lést hélt hún rekstrinum
áfram, ásamt meðeiganda hans, þar
til hún varð áttræð. Þar var ekki
höndlað með tau og tölur eins og hjá
frú Gunnlaugsson heldur skip og
veiðarfæri.
Gunna átti því láni að fagna að
hafa góða heilsu og geta notið sam-
vista við sitt fólk lengi. Afkomend-
urnir eru orðnir fjölmargir og send-
um við systurnar, dætur Ingu, þeim
öllum samúðarkveðjur.
Guð blessi minningu Gunnu
frænku.
Sigríður Guðmundsdóttir.
Guðrún Ó. Karlsdóttir lést í hárri
elli, 102 ára, á Hrafnistu í Hafn-
arfirði. Hún var móðir bestu vin-
konu minnar, Ólafar Silvíu eða Ollu,
en við kynntumst þegar foreldrar
okkar byggðu saman hús á Faxastíg
1 í Vestmannaeyjum. Fjölskylda
þeirra flutti svo til Reykjavíkur og
við það var mikil sorg, en Olla kom
til Eyja á hverju sumri og ég fékk
að fara til Reykjavíkur á móti. Vin-
skapur foreldra okkar hélst alla tíð.
Guðrún var mjög glæsileg kona,
teinrétt og tignarleg, ávallt smekk-
lega klædd og hafði góða nærveru.
Hún var frábær húsmóðir og kokk-
ur, gestgjafi af guðs náð og harð-
dugleg. Hún bar hag náungans fyrir
brjósti, var trygglynd og hafði ríka
réttlætiskennd. Hún var mér mikil
fyrirmynd. Síðustu fimm árin voru
henni erfið en samt hélt hún upp á
100 ára afmælið sitt með miklum
glæsibrag. Þar sat hún eins og
drotting í faðmi fjölskyldu og vina.
Guðrún lifði fyrir börnin sín og þau
elskuðu hana og dáðu. Hún fylgdist
náið með því hvernig þeim öllum
vegnaði í lífinu. Fjölskyldan var
henni allt og Guðrún uppskar síðar
það sem hún sáði.
Guðrún varð ekkja 60 ára. Þau
Magnús höfðu rekið fyrirtæki í
Reykjavík sem seldi vélar í báta og
skip og aðra hluti því tilheyrandi.
Þegar Magnús lést rak hún fyrir-
tækið áfram með glæsibrag.
Guðrún hefur reynst mér sér-
staklega vel og fjölskylda hennar
hefur alltaf verið partur af minni
fjölskyldu. Mig langar að þakka
Guðrúnu, eða ömmu Gunnu eins og
hún var kölluð á mínu heimili, fyrir
alla þá tryggð sem hún sýndi mér
og minni fjölskyldu. Við sendum
okkar innilegustu samúðarkveðjur
til Ollu og Siggu og fjölskyldna
þeirra.
Kristín Björnsdóttir
og fjölskylda.
Elsku amma mín,
nú er komið að kveðjustund. Mig
langar að minnast þín með nokkr-
um fátæklegum saknaðarorðum.
Þú varst mikil húsmóðir þó þú
hafir líka unnið úti. Alltaf var
heimabakað bakkelsi á borðum og
svo tókst þú slátur og börn þín og
barnabörn hjálpuðu til. Þú varst
mjög flink saumakona og saumaðir
föt á sjálfa þig og einnig á mig áður
en ég lærði að gera það sjálf. Þú
varst alltaf svo fín og vel til höfð.
Það var alltaf gott að koma í heim-
sókn til þín og afa. Í seinni tíð þegar
barnabarnabörnin voru komin varst
þú alltaf svo ánægð að fá þau í
heimsókn.
Hver minning dýrmæt perla að
liðnum lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug
þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Við kveðjum þig, elsku amma, þú
munt ávallt verða í minningu okkar
og hjarta.
Berglind, Guðmundur,
Snæfríður Sól og
Sölvi Snær.
Barðaströnd 1923. Á Út-Strönd-
inni, fyrir vestan Haga, er reykur
frá 19 torfbæjum.
Þrjár til fjórar kynslóðir í hverj-
um.
Þegar sú elsta kveður er fjöldi
þeirrar yngstu tveggja stafa tala.
Á miðri Út-Ströndinni er bærinn
Hrísnes.
Þar búa Guðbjörg Guðmunds-
dóttir frá Hvammi og óðalsbóndinn
Vigfús Vigfússon.
Í byrjun fyrra stríðs skrifaði
hann henni suður að nú yrði hún að
koma vestur aftur en hætta að
þurrka saltfisk hjá Thor. Hann væri
tekinn við Hrísnesinu af móður
sinni. Þeim fæðist stúlka þetta ár.
„Hvað á barnið að heita?“ spyr
sr. Bjarni Símonarson á Brjánslæk.
Föðurömmurnar hétu Valgerður
og Helga og þau hlaut barnið. Að
skírn lokinni var dreginn fram for-
láta postulínsbolli með undirskál,
„prestabollinn“. Hvort tveggja fag-
urlega skreytt rauðum rósum og
bendir nafnið til að óvígðum hafi
ekki verið boðinn bollinn sá. Hefur
Helga
Vigfúsdóttir
✝ Helga Vigfús-dóttir fæddist í
Hrísnesi á Barða-
strönd 3. október
1923. Hún lést á Dval-
ar- og hjúkr-
unarheimilinu Selja-
hlíð 8. nóvember
síðastliðinn.
Útför Helgu fór
fram frá Fella- og
Hólakirkju 16. nóv-
ember 2009.
Meira: mbl.is/minningar
bollaparið ugglaust
verið sótt á bátskel-
inni Haka til vinar-
ins, kaupfélagsstjór-
ans Sigfúsar Berg-
mann, í Flatey eins
og annað sem sækja
þurfti í kaupstað.
Helga ólst upp við
tóvinnu, fráfærur,
heimaslátrun, mó-
tekju, búfjáráburð,
ljá, hrífu og full-
vinnslu mjólkuraf-
urða.
En breytingar
voru á næsta leiti í sveitinni með
stofnun búnaðarfélags sem Hrís-
nessbóndinn átti hvað stærstan
hlut að. Hann var framfara- og fé-
lagsmálamaður og hefði ekki haft
á móti ráðahag Helgu, dóttur
sinnar, sem giftist 1944 fyrsta bú-
fræðingi sveitarinnar, Hólasvein-
inum Ólafi Kristni Þórðarsyni frá
Innri-Múla, síðar kennara.
Helga og Ólafur bjuggu fyrst í
nálægum þorpum þar sem störf
voru fyrir búfræðing og kennara
en frá 1952 bjuggu þau í Hrísnesi
og var Ólafur jafnframt farkenn-
ari á Ströndinni.
Í sveit var Helga á „heimavelli“
og kunni til allra verka sem flest
voru þau sömu og verið höfðu í
1000 ár.
Kýrin Skrauta var föl í Dýra-
firði. Hún kom á sjó að Bíldudal og
var teymd yfir Fossheiði til
Barðastrandar og mjólkaði eftir
það á við Búkollu enda átti hún
svipaða göngu að baki! Þar með
þurftu sonurinn Skarphéðinn og
sumarstrákurinn Lússi ekki leng-
ur að sækja mjólk fótgangandi til
næstu bæja en dóttirin, Kolbrún,
mátti hjálpa Helgu inni í bæ og
gæta yngri bróður síns, Þórðar
Gísla. Tæki voru öll til sjálfsþurft-
arbúskapar þess tíma svo sem
skilvinda, strokkur, skyr- eða
sýruker sem og prjónavél og bæj-
arlækurinn var „ísskápur“ sem
geymdi rjómann þar til strokkað
var og bútunginn síðasta sólar-
hringinn áður en hann fór í pott-
inn.
Þessi verk vann Helga ýmist
sjálf eða sagði fyrir um hvenær og
hvernig unnin skyldu.
Símanúmerið var tvær stuttar
og tvær langar og ekki búið að
finna upp persónuvernd.
Ísafold og Vörður komu hálfs-
mánaðarlega.
Þegar börnin þrjú uxu úr grasi
varð ljóst að framtíðin yrði ekki
Hrísnes. 1961 fluttist fjölskyldan
til Reykjavíkur og hefur því átt
þar heima meiri hluta ævinnar
nema Skarphéðinn, sem ávallt
hefur búið á Vestfjarðakjálkanum.
Barnið sem Helga tók að sér sum-
ar eftir sumar í Hrísnesi – og eign-
aðist þess vegna þá dýrmætu til-
finningu að tengjast fortíð sem
einhvers virði er – þakkar nú
henni móðursystur sinni þá gjöf.
Glúmur Gylfason.
✝
Eiginkona mín, systir, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
GRETA LIND KRISTJÁNSDÓTTIR,
Einimel 9,
Reykjavík,
sem lést föstudaginn 20. nóvember, verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 27. nóvember kl. 13.00.
Sverrir Hermannsson,
Elísabet Kristjánsdóttir,
Bryndís Sverrisdóttir, Guðni A. Jóhannesson,
Kristján Sverrisson, Erna Svala Ragnarsdóttir,
Margrét K. Sverrisdóttir, Pétur S. Hilmarsson,
Ragnhildur Sverrisdóttir, Hanna Katrín Friðriksson,
Ásthildur Lind Sverrisdóttir, Matthías Sveinsson,
Greta Lind Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Eiginkonan mín, móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
MAGNEA THOMSEN,
Lundi 1,
Kópavogi,
áður til heimilis að Ennishlíð 4,
Ólafsvík,
lést sunnudaginn 15. nóvember.
Útförin fer fram frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn
28. nóvember kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á slysavarnardeildina Sumargjöf í Ólafsvík.
Guðmundur J. Sveinsson,
Sigurður Sveinn Guðmundsson, Guðrún Jenný Sigurðardóttir,
Anna Margrét Guðmundsdóttir, Unnar Freyr Bjarnason,
Tómas Guðmundsson, Sonja Erna Sigurðardóttir
og barnabörn.
✝
Elskuleg systir okkar og mágkona,
GUÐRÚN HALLGRÍMSDÓTTIR
frá Grafargili í Valþjófsdal,
Önundarfirði,
er látin.
Útförin fer fram í kyrrþey, en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Sunnuhlíð hjúkrunarheimili
aldraðra í Kópavogi.
Guðmundur Hallgrímsson,
Valborg Hallgrímsdóttir, Kristján Guðmundsson,
Anna Ingibjörg Hallgrímsdóttir,
Hjálmfríður Hallgrímsdóttir.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
METÚSALEM BJÖRNSSON
húsasmíðameistari,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn
21. nóvember.
Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju föstudaginn
27. nóvember kl. 11.00.
Linda Metúsalemsdóttir, Sigurður Örn Sigurðsson,
Birna Metúsalemsdóttir, Guðmundur Erlendsson,
Björn V. Metúsalemsson, Sjöfn Gunnarsdóttir
og barnabörn.
✝
Elskulegur faðir okkar og afi,
GUÐMUNDUR B. GARÐARSSON
frá Nýborg,
Fáskrúðsfirði,
Aðalstræti 9,
Reykjavík,
lést föstudaginn 20. nóvember.
Hann verður jarðsunginn frá Aðventkirkjunni
mánudaginn 30. nóvember kl. 15.00.
Garðar Lund, Marie Lund,
Guðbjörg Erlín Guðmundsdóttir, Helgi Þór Helgason,
Brynhildur Ósk Guðmundsdóttir, Kári Kolbeinsson
og barnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
GUÐFINNUR SIGURÐUR SIGURÐSSON
fyrrv. lögregluvarðstjóri og forvarnarfulltrúi,
Hátúni 12,
Reykjavík,
sem lést miðvikudaginn 18. nóvember, verður
jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn
27. nóvember kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent
á Hjartavernd.
Helen Sigurðsson,
Sigurður Kr. Guðfinnsson, Aldís Hugbjört Matthíasdóttir,
Stefán Birgir Guðfinnsson, Rositsa Slavcheva Guðfinnsson,
Sveinn Hjörtur Guðfinnsson,
Helga Björg Guðfinnsdóttir, Ingólfur Marteinn Jones,
barnabörn og barnabarnabarn.