Morgunblaðið - 25.11.2009, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 2009
YFIR 32.000 GESTIR
SÝND Í ÁLFABAKKA
SPRENGHLÆGILEG
GAMANMYND
MEÐ FRÁBÆRUM
LEIKURUM
JÓLAMYNDIN Í ÁR
SÝNDÍÁLFABAKKAOGSELFOSSI
EKKI VIÐ HÆFI
UNGRA BARNA
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR EVENT HORIZON
ÞETTA SÖGÐU LESENDUR Á KVIKMYNDIR.IS
“FANTA GÓÐ MYND MÆLI MEÐ HENNI”
“MEGASNILLD. FÍLAÐI HANA Í BOTN.”
“SNILLDAR SCI FI”
HHH
“HRÖÐ, SPENNANDI... OG SNARKLIKKUÐ MYND
FRÁ A-Ö... EKTA AFÞREYINGARBÍÓ!”
T.V - KVIKMYNDIR.IS
HHHH
„STÓRKOSTLEGT SJÓNARSPIL“
- ROGER EBERT
„MEISTARAVERK, JIM CARREY
ER HREINT STÓRKOSTLEGUR“
M.S.A – CBS TV
JIM CARREY
Sýnd með
íslensku og
ensku tali
Frá Robert Zemeckis, leikstjóra
“Forrest Gump” og “Back to
the Future” myndanna kemur
hið klassíska jólaævintýri
Charles Dickens.
STRANGLEGA
BÖNNUÐ BÖRNUM
„STÓRKOSTLEG
UPPLIFUN“
- C.G - AAS
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
JIM CARREY
fer gersamlega
á kostum
HHHH
„JÓLASAGA Í FRÁBÆRRI, NÝRRI
ÞRÍVÍDD SEM SLÆR ÚT ANNAÐ
ÁÐUR HEFUR SÉST“
„CARRY ER ENGUM LÍKUR...“
– S.V – MBL
SÍÐAS
TA SÝ
NING
ARHE
LGI
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI
A CHRISTMAS CAROL m. ensku tali kl. 8 7
2012 kl. 8 - 10:10 10
COUPLES RETREAT kl. 10:55 12
THE TWILIGHT 2 NEW MOON kl. 5:30 - 8 - 10:40 12
A CHRISTMAS CAROL m. ísl. tali kl. 6 7
A CHRISTMAS CAROL m. ensku tali kl. 8 7
PANDORUM kl. 10 16
A CHRISTMAS CAROL m. ensku tali kl. 8 7
2012 kl. 8 - 10:10 (Powersýning) 10
THE INFORMANT kl. 11 L
Eftir Kristrúnu Karlsdóttur
og Helga Snæ Sigurðsson
MEGAS kemur fram með þekkt-
um hljóðfæraleikurum í Bústaða-
kirkju 4. og 5. desember nk. og
flytur „Jesúrímur“ eftir Tryggva
Magnússon, sem Helgi Hóseasson
safnaði saman og gaf út. „Þetta er
mjög forvitnilegt efni, Jesúrím-
urnar eru mjög langar og verða
ekki allar fluttar í heilu lagi. Svo
verður annað athyglisvert efni
flutt með, en það má nú ekki gefa
allt upp, sumt verður að fá að
koma á óvart,“ segir Rúnar Birg-
isson, umboðsmaður Megasar.
„Þarna kveður við svolítið ann-
an tón en það sem Senuþjófarnir
hafa verið að vinna að, enda er
þetta svona hliðarverkefni Megas-
ar.“ Þeir sem koma fram með
Megasi eru Hörður Bragason org-
anisti, Birgir Bragason bassaleik-
ari, Hjörleifur Valsson fiðluleikari,
Kormákur Geirharðsson trommari
og Kristinn Árnason gítarleikari.
Ágústa Eva Erlendsdóttir verður
einnig með og fleiri gætu bæst í
hópinn.
Þjóðinni þjónað
– Er hægt að kalla þetta jóla-
tónleika?
„Þetta eru falleg lög, sem henta
við þær aðstæður sem við búum
við núna, svona dempuð kirkjuhæf
tónlist. Það má segja að þetta séu
aðventutónleikar eða „aðdragandi
að jólum“-tónleikar. Megas hefur
ekki verið þekktur fyrir að halda
jólatónleika en okkur finnst það
vera skylda listamanna að þjóna
þjóðinni og reyna að vera andleg
lyftistöng án þess að vera mjög
hátíðlegir.“
Rúnar segir hljómburðinn í
kirkjunni einstakan. „Markmið
okkar er að bjóða fólki upp á
skemmtilega og notalega stund.
Það kemur eitthvað óvænt upp úr
kössunum, en á stað sem þessum
verður ekki flutt hvaða tónlist sem
er. Þó að hægt sé að gera ým-
islegt, þá eru ákveðin takmörk
sem listamaður setur sér, í virð-
ingu við þennan stað sem tónleik-
arnir eru haldnir á.“
Ferlinum gerð skil á tónleikum
Rúnar segir þá Megas stefna að
því að halda tónleika í Laug-
ardalshöll á næsta ári, þ.e. tón-
leika þar sem farið er yfir tónlist-
arferil meistarans. Þá sé einnig
stefnt að því að gefa út Megas-
arheftin, þrjú hefti með textum,
nótum og teikningum sem Megas
gaf út 1968, 1970 og 1973 og hétu
Megas I, Megas II og Megas III,
sem og bókina Textar sem kom út
1991 og geymdi safn dægurlaga-
texta Megasar.
„Þessi hefti hafa verið ófáanleg
um áratuga skeið. Fólk hefur ver-
ið að selja þetta á uppsprengdu
verði. Þar af leiðandi finnst okkur
kominn tími til að auka framboðið,
svo fleiri geti notið þessara hefta,“
segir Rúnar. Nú ætla þeir Megas
að vinna að nýrri textabók og mun
hún spanna allt frá upphafi ferils-
ins að útgáfudegi. „Þetta er mikil
vinna. Til viðbótar við þetta tel ég
vera öruggt að það komi sólóplata
út, jafnvel með Senuþjófunum.
Fluttir verða Passíusálmar um
næstu páska, þannig að það er
ennþá kraftur í kallinum, hann
hefur eiginlega aldrei verið betri.
Erum hérna fyrir fólkið
Þetta krefst náttúrlega mikillar
skipulagningar. Þetta er meira
fyrrihluta ársins, en svo getur
margt fleira komið til. Aðalatriðið
er að við erum hérna fyrir fólkið.
Megas hefur alltaf viljað vera fyr-
ir fólkið, vill blása mönnum anda í
brjóst.
Við reynum að taka á því sem á
hefur gengið í samfélaginu með
fallegri tónlist og beittum textum
og vera í takt við fólkið, hvetja
það til að taka á hlutunum á já-
kvæðan hátt. Þannig er líklegt að
við náum að vinna okkur út úr
þessu, efla leikgleðina.“
„Hann hefur eiginlega aldrei verið betri“
Megas flytur Jesúrímur á aðventutónleikum í Bústaðakirkju Umboðsmaður hans segir stefnt að
ferilstónleikum og endurútgáfu Megasarhefta Unnið að nýrri textabók sem spannar allan ferilinn
Morgunblaðið/Heiddi
Rúnar og Megas Meistari Megas verður í Bústaðakirkju í desember.