Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.03.1960, Qupperneq 3

Skólablaðið - 01.03.1960, Qupperneq 3
Hinn 8. febrúar síðastliðinn frumsýndi Herranótt enn í Iðnó. að þessu sinni gamanleikinn "Óvænt úrslit" ( The Chiltern Hundreds ) eftir William Douglas Home. Margir hafa deilt á val þessa leikrits, og ber komandi leiknefndum að sjálfsögðu að taka það til athugunar. Á hinn bóginn verður þessi sýning fyrir- sjáanlega góð tekjulind til þess að standa straum af tapi á nokkr- um klassiskum leiksýningum, og er því mjög æskileg og nauðsynleg. William Douglas Home er mjög þekkt leikritaskald í heima- landi sínu og víðar. Hann er af gamalli og gróinni skozkri aðals- ætt, bróðir Robins þess Douglas Home, píanóleikara, sem árangurs- laust gerði hosur sínar grænar fyrir Margreti Svíaprinsessu forðum daga. En nóg um það. Verk hans bera vott um mikla ( enska ) kýmni, hugmyndaauðgi og góða þekkingu á þeim stéttum, sem hann tekur tilmeð- ferðar. Leikrit Home hafa engan sérstakan boðskap að flytja, þau eru létt, þægileg og skemmtileg - og þar með er tilganginum nað. Margir hafa séð frægasta leikrit hans "Tengdasonur óskast" ( The^ Reluctant Debu- tante ) í Þjóðleikhúsinu, sem er öðrum þræði kýmin satíra á lifnaðarhætti og lífsviðhorf brezkrar yfirstéttar. Hið sama má segja um "Óvænt úrslit".

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.