Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.03.1960, Qupperneq 13

Skólablaðið - 01.03.1960, Qupperneq 13
101 löngun. Hann las allt, sem hann komst höndum yfir. Eitt skáld varö honum sérlega hug- stætt. Það var Kristján Jónsson. Mörg af Ijóðum hans voru sem ort fyrir munn Jóhanns. Er hann kynntist frænda sínum Lárusi Halldórssyni, sem fékkst við skáldskap og varð síðar prestur og þekkt Ijóðskáld, vaknaði þrá hans til skáldskapariðkana. Fyrstu Ijóð hans voru barnaleg og klaufa- leg í sniðum, en bentu þó ótvírætt til þess, sem í honum bjó. 2. Árið 1897 var tímamótaár í lífi Jó- hanns í tvennum skilningi. Þá lézt faðir hans eftir erfiða sjukdóms- legu. Dauði hans er sem reiðarslag fyr - ir hinn unga son. Harmurinn sviptir hann allri hugarró, og hver dagur er skelfileg martröð. Hann á í tilefnislausu hugarstríði, sem er táknrænt fyrir hina ofur-viðkvæmu lund hans. Hann ásakarsjálfan sig fyrir, hve slæmur sonur hann var föður sínum. Hann tekur sárt dugnaðarleysi sitt til líkamlegra starfa og minnist þess, hve atorkumann- inum, föður hans, féll það þungt, þó ekki hefði hann mörg orð um það. Hann kvelst einnig af þeirri sjálfsásökun, að framkoma sín í garð föður síns hafi ekki verið mótuð af þeirri hlýju, sem hann verðskuldaði. Faðir hans, sem hafði borið hann á höndum sér og unnað honum framar öllu, er horfinn með skjótri svipan úr lífi hans, - eftir eru aðeins minningarnar, margar Ijúfar, en margar eins og þær ættu ekki að vera. Sonurinn stendur yfir moldum föður síns með þakklætisorðin ósögð, ástúðina ósýnda. En dagarnir lækna sálarmein hans, eins og flestra annarra. Ef til vill hefur honum tekizt að gera föður sínum skiljanlegar tilfinningar þær, sem hann ber í brjósti til hans, er hann sat við rúmstokk hans hinar hinztu stundir. Hann tjáir þessar hugrenningar í Ijóði: "Augun brostnu ástarnóg á mér síðast hvíldu þó. " í þessum orðum finnur hann sálu sinni frið og sættist við sjálfan sig. Og minningin um föður hans verður einn af dýrgripunum, sem hann lætur aldrei frá sér fara. Um hann yrkir Johann ein óbrotgjörnustu eftirmæli íslenzkra bókmennta: "Þú varst aldrei hafinn í heldri manna stétt. En aumt gaztu aldrei vitað og vildir gera rétt. Þú varst aldrei með þeim, sem mest kveður að, en aldrei var þar autt, sem þú áttir þér stað." Þetta Ijóð er jafnframt verðugur minnis- varði um hina óþekktu, íslenzku alþýðu- menn, sem langar og myrkar aldir hafa varðveitt það, sem þjóðinni er dýrmæt - ast, bæði af ytri og innri menningu. - Önnur mikil umskipti urðu á högum Jóhanns haustið 1897. Þá hóf hann nám í Stykkishólmi undir handarjaðri séra Sigurðar Gunnarssonar. Johann hugði á langskólanám og bjó sig undir það af kappi. Hann þreytti próf upp í Latínuskólann að vori og stóðst það með ágætum, því að hann var námsmaður í bezta lagi. í skóla gerðist hann skjótt eitt bezta og mikilvirkasta skáldið og reit bæði í bundnu máli og óbundnu. Hann birti ritsmíðar sínar í blöðum skólapilta, en þau voru tvö um þessar mundir. "Skinfaxi" nefndist annað þeirra og flutti óbundið mál. Hitt kallaðist " Kolbrún", og birtist þar allt, sem til féll í bundnu máli. Jóhann lagði einkum af mörkum til "Kol- brúnar". Jóhann lét sig miklu skipta menningar- og stjórnmál jafnframt skáldskapnum, og reyndist raunsær og þjoðhollur í hví- vetna. Þó að Johann kynni vel hinum miklu umbrotum í andlegum efnum með skóla- piltum, varð skólavistin honum ekki til gleði að öllu leyti. Námið veitti honum ekki þá svölun, sem hann hafði vænzt. Því voru settar þröngar skorður. Kennslan var oft og tíðum staglsöm og leiðinleg. Margir kennaranna voru kreddufullir og íhaldssamir, en ekki þeir frjálslyndu menntamenn, sem hann hafði vænzt. 3. Á námsárunum komst Johann í tæri

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.