Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.03.1960, Síða 17

Skólablaðið - 01.03.1960, Síða 17
- 105 - þessa félagslífs-þjarka, sem eru alveg staðraGnir í því, að hér skuli vera mik- ið félagslíf án nokkurs tillits til að- stæðna. " "Álítur þú það ohjákvæmilegt, að sjöttubekkingar dragist út úr félagslíf- inu? " "Ja, sjöttubekkingar í ár eru löglega afsakaðir, því að þeir hafa víst flestir verið útilokaðir frá íþöku. En annars held ég, að það sé talsvert til í því, sem ýmsir hafa sagt, að busar boli þeim burt. Þegar negrarnir í Ameríku undir- leggja heil hverfi, flýja hvítu mennirnir venjulega þaðan fljétt. " "En hvað álítur þú um þá viðleitni, að stofna listafélag hér í skóla?" "Ég álít eiginlega ekkert um það. Þetta er félag listsnobba. Annars sýnir forsetinn þrautseigju mikla. " "Álítur þú, að listunnendur skólans séu snobbar ? " "Það er kannske full mikið að segja svo. Þetta eru ekki snobbar, heldur menn fullir af viðleitni. Þeir vilja verða listunnendur á þessari öld listanna, og sumir reiða plötur heim í þverpokum hvern miðviku- og laugardag. Tonlistin er auðveldust viðureignar, almennust og tekur minnstan tíma. Annars er sjálf- sagt. hægt að ala músikalitet upp í sér." "Hvað heldur þú að valdi því, hve fáir sækja listkynningar ? " "Tónsmekkur vors ágæta "forseta" er langt fyrir ofan smekk almennings og nöfn sumra tónskáldanna, sem kynnt eru, virðast heldur fælandi. Svo verða menn latir, þegar þeir hafa lítið að gera. Vinnan fyllir út í tímann, eins og sá vísi Parkinson segir. Menn nenna því ekki að sækja listkynningar, þótt góðar séu. " "En fyrst við erum nú komnir inn á þessar brautir, vildir þú ekki segja nokkur orð um jassinn í tilefni af því að hér er búið að stofna jassklúbb?" "Mér finnst of mikið úr viðurkenndum verkum gert. Tónlistin er til þess gerð, að hún hafi áhrif á menn á einhvern hátt, og Hound dog getur eins vel þjónað því markmiði og fimmta symfónía Beethov- ens. Stöðnun er sama og afturför. Þess vegna er jassinn ájjætur, hann get- ur þróast og haft áhrif a "æðri" tón- skáld, samanber t. d. Rhapsody in Blue eftir Gershwin. Það er hættulegt, þegar menn staðna og hætta loks að greina kjarnann frá hisminu, listaverkið frá rammanum. jónas Hallgrímsson vann því þarft verk, þegar hann hristi upp í rímnaskáldunum, þótt Sigurður Breið- fjörð væri hið bezta þeirra. " "Hvað heldur þú um menningaráhug- ann hér í skólanum? " "Ég held, að hann sé hvorki meiri né minni en annars staðar. " "En borið saman við skóla eins og verzlunarskólann? " "Maður spyr ekki um menningaráhuga í dýragarði. " HEREANÖTT, frh, af bls. 92. bróður hennar geti átt við hana. Hin mæðusama og vesala þjónustu- stúlka Bessie, var hér leikin af Guðrúnu Friðfinnsdóttur. Leikur hennar er mjög skemmtilegur á köflum, en svipbrigði nokkuð ýkt og framsögn óskýr. Síðast en ekki sízt ber að geta frá- bærs leiks Steindórs Haarde sem Mr. Cleghorn. Hann er sannarlega réttur maður á réttum stað í þessu hlutverki, þéttur á velli, valdsmannslegur og hrjúf- ur en þó viðfelldinn, og ýkir í engu. Skyldi enginn trúa, að þetta væri fyrsta viðfangsefni hans á leiksviði. Leikstjórn annaðist Helgi Skúlason að þessu sinni, og er það í fyrsta sinn, sem hann stjórnar Herranótt. Helgi er mjög góður leiðbeinandi og lagar sig vel eftir hæfni hvers einstaks leikanda. Heildarsvipur leikritsins er því mjög góður, staðsetningar hnitmiðaðar, en framsögn sums staðar nokkuð ábótavant, og fyrir vikið misstu margar hnyttnar setningar marks. Leiktjöld eru góð undir öruggum pensli Lárusar Ingólfssonar og jafnör- uggum smíðatólum þeirra Brynjólfs Ingvarssonar og Tómasar Zoega. Andlitsförðun Haraldar Adólfssonar var yfirleitt góð. Þýðinguna gerði okkar ágæti söng- kennari Hjörtur Halldórsson, og var hún ágætlega af hendi leyst, svo sem væntamátti. Starfsmenn og leikarar Herranætur, ykkar scarf hefur verið ómetanlegt og hefur ugglaust veitt ykkur jafnmikla ánægju og okkur, sem á hlýddum. Ég óska ykkur til hamingju og þakka kærlega fyrir skemmtun-

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.