Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.03.1960, Qupperneq 28

Skólablaðið - 01.03.1960, Qupperneq 28
- 116 - Ég ætlaði í sakleysi mínu að ganga örna minna og opnaði hurðina á klósett- inu. Allt í einu snarstanzaði ég. Fyrir framan þvottaskálina stóð feita kerlingin, ber að ofan. Hun var að þvo ser undir höndunum. Við það hristist fituskvapið á henni á viðbjóðslegan hátt. Ég stóð höggdofa í svo sem tvær sek- úndur og starði á þessa ógeðslegu mann- eskju. Svo snarsneri ég mér við, þaut út og skellti á eftir mér hurðinni. Ég get enn þann dag í dag brugðið þessari óhugnanlegu mynd upp í huga mér, nákvæmlega eins og ég sá hana í þessar tvær> eða þrjár sekúndur. Ég á engin orð til að lýsa þessu fyllilega. Ég fór burt af bænum þegar næsta dag. Ég gat ekki hugsað mér að vera lengur undir sama þaki og þessi manneskja. Gamlar, feitar kerlingar eru það hræði- legasta, sem ég veit. Og það er eins og þær viti af þessu og leggi sig þess vegna í líma við að ofsækja mig. Ég get varla hreyft mig án þess að einhver kerling sé komin og farin að spyrja mig, hvað klukkan sé, eða hvar Kleppurhrað- ferð stoppi eða eitthvað svoleiðis. Mig langar oft til að gefa þeim duglegt spark í aíturendann, þegar þær kjaga burt. Ég var búinn með sígarettuna, svo ég henti henni í nærliggjandi drullupoll, oj* stóð upp. Ég var glorhungraður, svo eg fór inn á Hressó, til að fá mér að éta. Maturinn var sæmilegur, og ég borðaði hægt til að drepa tímann. Þegar ég var búinn með hann, fékk ég mér kaffi og sígarettu, og hugsaði um hvað ég ætti að gera um kvöldið. Ég vissi, að það mundi verða fullt af fólki úr skólanum á Borginni, svo ég tók það ráð að fara þangað um níuleytið. Það var náttúrulega hræðilega leiðinle^t þar.eins'og venjulega, en maður fékk þó eitthvað að drekka. Ég var þarna í tvo tíma. Þá var ég búinn að fá nóg og gekk út. Það var byrjað að hellirigna, þegar ég kom út á götuna, svo ég bretti upp kragann á frakkanum til að vatnið rynni ekki niður hálsinn á mér. Ég gekk í stefnuleysi eftir Austurstræti og var staddur ein- hvers staðar í grennd við ísafold, þegar slegið var þéttingsfast á bakið á mér. Ef það er eitthvað, sem ég hata, þá eru það menn, sem slá á bakið á manni. Svo ég bjóst við því versta, þegar ég snéri mér við, til að kynna mer hver hér væri á ferð. Jesús, hugsaði ég með sjálfum mér, alltaf er ég jafn djöfull óheppinn. Aí hverju þurfti ég endilega að rekast á einmitt þenna.n mann. Ég hefði viljað skipta á honum og næstum því hverjum sem væri. Ég hefði getað þolað alla, nema hann. Þennan mann hataði ég. Mér varð óglatt. Hann hét Þormóður. Það er einmitt nafn, sem hæfir honum. Þormóður. Einmitt nógu asnalegt og óþolandi. Ég get ekki hugsað mér, að nokkur skemmti- legur maður heiti Þormóður. Það getur verið, að þeir séu til, en mér finnst það ólíklegt. Þormóður var horaður náungi, á að gizka þrír metrar á hæð, með gler- augu og allt. Hann var með hræðilega magrar hendur, fingurnir langir og beina- berir. Hann kallaði þetta listamanns- hendur. Mér fannst þær hræðilegar. Hann var með listakomplex. Hann hélt sig vera sjení. Mér er svosem alveg sama um það, en hann var sérstakt til- felli. Ég meina, mér er sama þó menn haldi þeir séu rithöfundar, eða málarar, eða eitthvað svoleiðis, þó þeir geti ekk- ert. En Þormóður, helvítis fíflið, helt hann væri kompónisti. Hann var alger- lega óþolandi. Eins og ég sagði, er mér sama um málara og rithöfunda. En ekki kompónista. Þormóður gekk um flautandi temu úr sinfóníum eftir sjálf- an sig. Þau voru öll hörmuleg og ílest stolin. Stundum gekk hann um með klarinett. Hann kom einu sinni með það heim til mín og spilaði einhverja fúgu a það. Það endaði með því að ég henti honum út, og hann talaði ekki við mig í mánuð. Ég var bara feginn. Svo gekk svínið um og breiddi það út, að ég væri barbari og kynni ekki að meta list. Og ég sem fer á alla konserta. "Nei, komdu blessaður, " sagði Þor- móður. "Sæll, " sagði ég, stuttur í spuna. "Hvað segirðu gott? " sagði Þormóð- ur. Ef það er eitthvað, sem fer í taug- arnar á mér, þá er það þessi spurning. í hvert skipti, sem ég heyri hana, sortn- ar mér fyrir augum og magavöðvarnir taka kipp. "Ekkert gott, " sagði ég. Ég var ein- mitt í skapi til að segja eitthvað ægilegt, svo ég hélt áfram : "Allt slæmt að

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.