Morgunblaðið - 22.12.2009, Qupperneq 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór
Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
„RÁÐAMENN verða að sjá ljósið og
setja af stað arðbærar framkvæmdir.
Á bak við þann fjölda vinnuvéla sem
íslenskir verktakar eiga eru til dæmis
fjölskyldur sem eiga afkomu sína
undir því að hafist verði handa við
mikilvæg verkefni,“ segir Hilmar
Konráðsson, framkvæmdastjóri
Verktaka Magna.
Fjöldi verktaka ók í gær úr Hafn-
arfirði til Reykjavíkur þar sem efnt
var til mótmæla á Austurvelli. Þar
var fjárlaganefnd Alþingis afhent
áskorun um að ráðast þegar í stað í
arðbærar framkvæmdir.
Um 18 þúsund manns unnu við
verktakastarfsemi þegar best lét en í
dag aðeins um fjögur þúsund. Að
sögn Hilmars er mikilvægt að bregð-
ast við þessu og það hafi Reykjavík-
urborg gert á árinu með 920 millj. kr.
framlagi til gatnabóta. Vegagerðin
ráðgeri hins vegar engin útboð.
Hilmar segir hagstætt fyrir ríkið
að fara í stórframkvæmdir nú, enda
megi vænta hagstæðra tilboða. Bend-
ir Hilmar á að sitt fyrirtæki vinni nú
að framkvæmdum við Hlíðarfót í
Vatnsmýri og vinni verkið fyrir 380
milljónir eða aðeins 69% af kostn-
aðaráætlun.
Íslenskir verktakar horfa nú í vax-
andi mæli til þess að hasla sér völl er-
lendis. Nokkrir hafa þegar haldið yfir
höf með vélar sínar og mannskap og
aðrir eru í startholunum. Minnst
fimm verktakar hafa sent inn gögn í
forval vegna lengingar flugbrautar í
Vogum í Færeyjum. Mikilvægt er þó
að hafa í huga, segir Hilmar, að útrás-
in er komin til af því einu að verk-
efnastaðan hér heima sé bág og það
verði að breytast. sbs@mbl.is
Verktakar í útrás
Kreppa á verktakamarkaði Hávær mótmæli
Starfsmönnum fækkar mikið Leita verkefna ytra
Morgunblaðið/Ómar
Áfram Verktakar messuðu yfir fjárlaganefnd Alþingis og vilja framkvæmdir.
SNÖRP törn er nú á Alþingi en ráðgert er að
þingmenn komist í jólaleyfi um miðjan dag. Tíu
mál voru samþykkt sem lög í gær og í dag verða
fjárlög tekin til afgreiðslu. Þing kemur svo aftur
saman milli hátíða til lokaafgreiðslu á Icesave.
Mikil fundahöld voru í þingnefndum og fámennt í
þingsal þegar Unnur Brá Konráðsdóttir, þing-
maður Sjálfstæðisflokks, var í pontu og flokks-
bróðir hennar Pétur H. Blöndal eini áheyrandinn.
FÁMENNI Í FUNDARSALNUM
Morgunblaðið/Golli
„ÞETTA er sama óvissa og áður,“ segir Gunnþór Ingva-
son, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaup-
stað. Ekki er hægt að gera tillögu um upphafskvóta
loðnu, segir Hafrannsóknastofnun. Bergmálsmælingum
er nýlokið og fannst ungloðna vestan Kolbeinseyjar-
hryggjar að Grænlandsgrunni. Lóðningarnar voru þó
gisnar.
Í fyrrahaust fannst mikið af loðnuseiðum og var vonast
til að sá árgangur myndi skila sér sem fyrsta árs fiskur í
mælingunum sem var að ljúka. Sú varð þó ekki raunin,
ungloðnan er langt undir því að hægt sé að mæla með
upphafskvóta fyrir vertíðina 2010 til 2011.
Stórrar loðnu varð vart í litlu magni við og uppi á land-
grunninu norðan við landið. Veiðistofninn, tveggja til
þriggja ára fiskur, mældist um 140 þúsund tonn en 400
þús. tonn á að skilja eftir til hrygningar.
„Við höfum áður haldið jólin í svona óvissu. Fyrri mæl-
ingar hafa vissulega ekki gefið tilefni til að búast við
stórri vertíð á nýju ári en við reiknum með einhverri
loðnu þó,“ sagði Gunnþór. sbs@mbl.is
Lóðningar gisnar og
loðnuvertíðin í uppnámi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Loðnuskip Hér er fallegt þegar vel veiðist er stundum
sagt en núna er óvissa um hvort einhver verði vertíðin.
Erum óvissunni vanir, seg-
ir forstjóri Síldarvinnslunnar
Í GÆR var fyrsti hluti láns frá
Norðurlöndunum greiddur til Ís-
lands í tengslum við efnahags-
áætlun stjórnvalda og
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Kemur
þetta fram í tilkynningu frá Seðla-
bankanum, en um er að ræða 300
milljónir evra. Ísland hefur heim-
ild til að nýta alls 444 milljónir
evra fram að annarri endurskoðun
efnahagsáætlunarinnar sem áætl-
að er að fari fram um miðjan jan-
úar 2010.
Í tilkynningunni kemur fram að
ekki hafi verið talin þörf á frekari
notkun á lánsheimildinni að sinni
og flytjast því 144 milljónir evra
til næsta tímabils sem hefst að
lokinni annarri endurskoðun. And-
virði lánsins verður ávaxtað sem
hluti af gjaldeyrisforða Seðla-
banka Íslands.
Gjaldeyrisforði bankans er nú
um 458 milljörðum króna eða sem
nemur 2.495 milljónum evra.
Enn eru ódregin umsamin lán
að fjárhæð tæplega 2,3 milljarðar
evra frá Norðurlöndunum,
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Pól-
landi. bjarni@mbl.is
Fyrsti hluti
lánanna
greiddur
Seðlabankinn tekur
300 milljónir evra
ANNAR mannanna sem létust í um-
ferðarslysi á föstudagsmorgun á
Hafnarfjarðarvegi við Arnarnes hét
Björn Björnsson. Hann var á sex-
tugasta og þriðja aldursári og bú-
settur í Hafnarfirði. Hann lætur eft-
ir sig tvö börn og tvö uppeldisbörn.
Ekki er tímabært að greina frá
nafni hins mannsins sem lést. Sá
þriðji, sem var farþegi í öðrum bíln-
um, liggur enn á gjörgæsludeild
Landspítalans og er honum haldið
sofandi í öndunarvél.
Lést í um-
ferðarslysi
ALÞINGI samþykkt í gær frum-
varp fjármálaráðherra sem heim-
ilar einstaklingum að taka samtals
2,5 millj. kr. út af séreignarlífeyr-
issparnaði sínum. Áður var hægt að
fá 1,0 millj. kr greidda út en nú
verður hægt að fá 1,5 milljónir kr. í
viðbót. Útgreiðslutímabilið er allt
að 23 mánuðir og þeir sem vilja
nýta sér heimildina þurfa að sækja
um fyrir 1. apríl 2011.
Séreign er
áfram í boði
KOSTNAÐUR utanríkisráðuneyt-
isins vegna verktaka, styrkja og
sendinefnda í ár er orðinn 163,6
millj. kr. Þetta er umtalsvert meiri
kostnaður en undanfarin ár, en í
fyrra var þessi liður í rekstrinum
upp á tæplega 142 millj. kr. Í ár hef-
ur heimssýningin EXPO verið all-
stór liður, en til hennar hafa farið
rúmlega 40 milljónir króna.
Eyða miklu
í EXPO