Morgunblaðið - 22.12.2009, Síða 4

Morgunblaðið - 22.12.2009, Síða 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2009 Faxafeni 5 S. 588 8477 • Hitajöfnun 37°C • Hannað af NASA • 100% hreinn gæsadúnn • Astma- og ofnæmisprófað • Hægt að þvo á 60°C Mjúkir pakkar ! Hitajöfnunarsæng 140x200 cm Kr. 29.900,- FRÉTTASKÝRING Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is ICESAVE samningurinn er hvorki skýr né sanngjarn að mati bresku lögfræðistofunnar Mishcon de Reya, sem telur þó ekki heillavænlegt að hafna honum alfarið. Slíkt geti vald- ið frekari deilum, málaferlum með ófyrirséðri útkomu, eða kröfu breskra og hollenskra yfirvalda um tafarlausa endurgreiðslu Icesave skuldarinnar. Heillavænlegra sé væntanlega fyrir íslensk stjórnvöld að taka aftur upp viðræður við hollensk og bresk stjórnvöld um Icesave saminginn, á þeim forsendum að verið sé að fá á hreint þau atriði sem ekki eru skýr. „Þetta mætti kynna (og vera séð) sem nánari útskýringar ýmissa smærri atriða samningsins og væri þannig ekki jafn umdeilt og pólitískt viðkvæmt og bein synjum eða til- raun til að hefja umræður að nýju frá grunni,“ segir í skýrslunni. Skýr takmörk, verkskrá og mark- mið séu nauðsynleg í slíkum samn- ingaviðræðum – sérstaklega eigi niðurstaðan að vera skýr, pólitískt ásættanleg og efnahagslega raun- hæf. Hafni Bretar og Hollendingar því að taka upp viðræður að nýju getur komið upp erfið þráteflisstaða sem kunni að hafa pólitískar, diplómat- ískar, efnahagslegar og lagalegar af- leiðingar. Dómsmál geti sömuleiðis reynst tímafrek, auk þess sem ómögulegt sé að spá fyrir um niður- stöðuna. Það gæti því reynst tvíeggj- að sverð að vísa málinu til dómstóla. Byggt á miskilningi? Mishcon de Reya mælir því með að stjórnvöld fái „lagalega vissu á nákvæmri merkingu og áhrifum þeirra hugtaka sem nú eru á borðinu í ljósi þeirrar óvissu og ósamkvæmni sem sé í samningnum.“ Lögfræðistofan geti ekki lagt mat á það hvað sé pólitískt viðunandi fyr- ir Alþingi, en rök séu færð fyrir því í lögfræðiálitinu, að samkomulagið sem Alþingi er nú að fjalla um, sé hvorki skýrt né réttlátt. Það sé sömuleiðis skilningur lögfræðistof- unnar, þótt hún hafi ekki gert sér- staka útreikninga, að samkomulagið kunni einnig að verða Íslendingum ofviða. Leggja þurfi mat á greiðslu- getu og áhrif afborgana á aðrar skuldbindingar Íslendinga og þarfir þjóðarinnar. Gera megi ráð fyrir að bresk og hollensk stjórnvöld hafi tekið þessa þætti með í reikninginn er þau hófu viðræðurnar við Íslendinga. Segir lögfræðistofan að ef þessar ályktanir séu réttar þá megi draga þá ályktun að núverandi Icesave- samningur, eða a.m.k. hlutar hans, byggist á einhverjum misskilningi. Slíkt stangist hins vegar á við þá ályktun lögfræðistofunnar að bresk og hollensk stjórnvöld líti á samn- inginn nú sem endanlega niðurstöðu. Líka viðkvæmt í Bretlandi Mishcon de Reya segir viðkvæma stöðu Icesave málsins á Íslandi bæði pólitískt og efnahagslega vel kunna. Málið búi hins vegar einnig yfir möguleikanum á að verða að póli- tískt viðkvæmu máli í Bretlandi. Opnar pólitískar deilur hjálpi þó í engu við að ná lendingu í málinu. Trúnaður gefist oft betur. „Við telj- um að trúnaður hvað varðar aðkomu og innihald gæfist vel og sé mögu- lega nauðsynlegur eigi að enduropna viðræður við bresk og hollensk stjórnvöld.“ Óskýr og ósanngjarn  Breska lögfræðistofan Mishcon de Reya telur heillavænlegast að Icesave-samningurinn verði hafður skýrari  Tímafrekt að vísa málinu til dómstóla og gæti líka reynst tvíeggjað sverð Morgunblaðið/Kristinn Upphaf Helgi Áss Grétarsson lögfræðingur, Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Páll Þórhallsson lögfræðingur kynntu Icesave-samkomulagið á blaðamannafundi 18. október. Mishcon de Reya mælir með að stjórnvöld fái lagalega vissu á nákvæmri merkingu og áhrifum hugtaka í samningnum. Í HNOTSKURN »Skýr takmörk, verkskráog markmið eru nauðsyn- leg í frekari samninga- viðræðum um Icesave málið, eigi niðurstaðan að vera skýr, pólitískt ásættanleg og efna- hagslega raunhæf. »Ómögulegt er að spá hverniðurstaða dómsmála yrði. „Það er ekki hægt að líta framhjá þeim alvarlegu varn- arorðum sem þarna eru sett fram,“ segir Steingrímur J. Sigfússon forsætisráðherra um hugmyndir lögmanns- stofanna Ashurst og Mishcon de Reya um hvað gerist ef Alþingi hafnar Icesave-samningunum. „Þegar menn heyra þetta frá einhverjum öðrum en mér, sem hefur verið sakaður um hræðsluáróður og hótanir, þá kannski leggja menn við hlustir.“ Hann segir álitin tvö ekki breyta neinu um grundvall- aratriði málsins. „Það má halda því fram að þau styrki allt eins málflutning þeirra sem telja þetta ásættanlega samninga eins og hinna sem gera það ekki.“ Steingrímur segir að athugasemd Mishcon de Reya þess efnis að samn- ingurinn sé ekki nægilega skýr, stafi að sögn lögfræðinga ráðuneytisins að hluta af því að lögmannsstofan hafi ekki skoðað hliðarsamninga í málinu. hlynurorri@mbl.is Ekki hægt að líta framhjá varnarorðunum „Það sem stendur upp úr í áliti Mishcon de Reya er að fyrirvarar Alþingis frá því í sumar eru að engu orðnir, það hallar gríðarlega á hagsmuni Íslands, það er ekkert jafnvægi á milli samningsaðila, og það er fjallað um hina lagalegu skyldu á þann veg að hún sé í reynd ekki til staðar,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf- stæðisflokks. Álitið staðfesti því málfutning stjórnarand- stöðunnar í meginatriðum. Um álit Ashurst segir Bjarni að aðdragandinn að því sé heldur einkennilegur. „Þegar ljóst var að þingið ætlaði að kalla eftir áliti, rýkur ríkisstjórnin til og kallar eftir öðru áliti. En málið er á forræði þingsins, ekki ríkisstjórnarinnar.“ Álitunum tveimur verði ekki heldur saman jafnað. „Álit Ashurst er pólitískt og fjallar um að menn eigi enga aðra valkosti en að ganga frá þessum samningum. Við þurfum ekki lög- fræðilegt álit til að segja okkur hverjir pólitískir valkostir okkar séu.“ hlynurorri@mbl.is Staðfestir málflutning minnihlutans „Ég hef verið þeirrar skoðunar að það sé eðlilegt að ljúka þessu máli og afgreiða það og að kostirnir séu ásættanlegir. Það er ekkert í þessu áliti frá Mishcon de Reya sem breytir þeirri skoðun minni og alls ekk- ert í álitinu frá Ashurst,“ segir Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar. Hann segir að sumt af því sem fram kemur í áliti Mishcon de Reya hefði verið gott að vita áður og að ef verið væri að hefja samningaviðræður í dag yrði ef- laust margt gert öðruvísi – án þess að vera tilbúinn að sinni að nefna dæmi um slík atriði. Þá segir hann annað sem fram kemur í álitinu vera byggt á misskilningi, svo sem það að ósamræmi sé á milli samninganna við Breta annars vegar og Hollendinga hins vegar og eins það að samn- ingarnir séu óskýrir. Loks skipti sumt sem kemur fram í álitunum engu máli. hlynurorri@mbl.is Álitin breyta engu um skoðun Guðbjarts „Það eru náttúrlega ekki boðleg vinnubrögð,“ segir Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, um þann tíma sem fjárlaganefnd fær til að fjalla um álit lögmannsstofanna. Fundur var í nefndinni í gærkvöld og er ætlunin sú að afgreiða Icesave-málið úr nefndinni í dag. „Það hefði þurft að fara miklu betur yfir þessi álit. Þetta er breskur lagatexti, og hann er mjög tyrfinn. Best hefði náttúrlega verið að fá hann þýddan yfir á íslensku.“ Þór segir álitin ekki breyta miklu um heildarmyndina. Ýmislegt sé í báðum álitum sem mæli með Icesave- samningunum og ýmislegt sem mæli gegn þeim. Mishcon de Reya virðist heldur mótfallið samningunum eins og þeir eru, segir Þór, og álit stof- unnar styrkir ekki málflutning ríkisstjórnarinnar. „Álit Ashurt gerir það hins vegar kannski að vissu marki, en þeir hafa náttúrlega verið ríkis- stjórninni til ráðgjafar í þessu máli. Þannig að það er kannski ekki við öðru að búast frá þeim.“ hlynurorri@mbl.is Óboðlegt að ræða ekki álitin í nefnd „Við vorum öll furðu lostin þegar þetta Ashurst-álit kom því við töldum okkur hafa samið sérstaklega um að ekki yrði leitað til Ashurst,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. Ástæð- an fyrir því að stjórnarandstaðan vildi ekki álit frá As- hurst var sú að lögmannsstofan hafði komið að gerð Icesave-samningsins, og hljóti því að áliti Sigmundar að teljast vanhæf. „En þetta er ekki í fyrsta skipti sem stjórnin fer þessa leið því þegar bent var á að [Icesave] frumvarpið kynni að stangast á við stjórnarskrá var leitað til þeirra sem sömdu frumvarpið til að kanna hvort sú væri raun- in.“ Þá segir Sigmundur að það verði forvitnilegt að sjá hvað ríkisstjórnin geri í sambandi við stofnun nýs innistæðutryggingasjóðs, enda kemur fram í áliti Mishcon de Reya að samkvæmt Icesave-samningnum megi ekki stofna nýjan sjóð. „Það var gríðarlegt áhersluatriði hjá ríkisstjórn- inni að stofna nýjan sjóð fyrir áramót en nú hefur komið fram að það væri samningsrof. Þannig að ég veit ekki hvernig hún ætlar að leysa það.“ hlynurorri@mbl.is Ríkisstjórnin leitar álits vanhæfra aðila „MÉR finnst að lögfræðilegt álit frá aðila, sem ver- ið hefur að vinna að samningsgerð- inni með fulltrú- um íslenskra stjórnvalda, hafi ekki sama vægi og álit sem aflað er frá aðilum sem hafa verið ótengd- ir málinu,“ segir Ragnar Hall hæsta- réttarlögmaður um álitið frá Ashurst. Ýmsir hafa bent á að álit stofunnar sé heldur vinsamlegra Icesave- samningnum en álit Mishcon de Reya, en Ashurst hafði komið með beinum hætti að málinu á fyrri stig- um þess. Jafnframt segir Ragnar að sér finnist „spurningarnar sem lagðar voru fyrir Ashurst, eins og þeim er lýst í álitinu, ekki vera mjög bein- skeyttar“. Álit Ashurst hefur ekki mikið vægi Ragnar Hall

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.