Morgunblaðið - 22.12.2009, Síða 6

Morgunblaðið - 22.12.2009, Síða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2009 Hágæða gólfbón fyrir flest gólfefni - einfalt og fljótlegt í notkun! Húsasmiðjan - Byko - Fjarðarkaup - Áfangar - Vélaleiga Húsavíkur - Nesbakki - Skipavík - SR byggingavörur - Eyjatölvur - Miðstöðin - Óskaþrif Hólmavík - Pottar og prik - Núpur - Litaver - Byggt og búið Heildsöludreifing: Ræstivörur ehf - Sími 567 4142 - www.raestivorur.is Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is MIKLAR breytingar urðu á skatta- málum í gær þegar Alþingi sam- þykkti bandorm um ráðstafanir í skattamálum og tekjuöflun ríkisins. Í breytingunum felst m.a. að á tug- ir gjalda af ýmsu tagi munu hækka, þ. á m. á áfengi og tóbak um 10%. Sömuleiðis mun bifreiðagjald hækka um 10%, olíugjald um 3% og bensín- gjald um 4%. Helsta breytingin er þó sú að virð- isaukaskattur mun um áramótin hækka um eitt prósentustig, úr 24,5% í 25,5%. Þar með eiga Íslend- ingar þann heiður að hafa hæsta virðisaukaskatt heims, en í staðinn var samþykkt að hætta við fyrirætl- anir um milliskattþrep með 14% vaski á veitingastarfsemi og sykr- aðar vörur. „Það var fallið frá því og í stað þess er efra þrepið hækkað um hálft pró- sent umfram það sem gert var ráð fyrir áður,“ segir Indriði H. Þorláks- son, aðstoðarmaður fjármálaráð- herra. Hækkunin upp í 25,5% skilar ögn lægri tekjum í ríkissjóð en þriðja skattþrepið hefði gert, en við endur- skoðun á tekjuáætlun var talið að tekjurnar væru meiri en áætlað var og breytir það því ekki heild- arniðustöðum um hvað áætlað er að náist inn að sögn Indriða. Samtök verslunar og þjónustu fagna því að fallið hafi verið frá hug- mundum um nýtt virðisaukaskatt- þrep. „Það var sama hvar borið var niður í þessu, okkar sjónarmið var alltaf að það bæri að falla frá [þrep- inu] og sem betur fer var það gert enda voru mjög sterk rök gegn því,“ segir Andrés Magnússon, fram- kvæmdastjóri SVÞ. Hann er hins- vegar þeirrar skoðunar að ráðlegra hefði verið að hækka lægra þrepið, sem er 7%, í stað þess hærra. Þá segir Andrés það alveg ljóst að þær breytingar sem verði á tekju- skatti muni leiða til aukinnar skatt- byrði einstaklinga og þar af leiðandi minnki ráðstöfunartekjur almenn- ings. „Fyrir atvinnugreinar eins og verslunina hefur það augljóslega mikil áhrif og er áhyggjuefni.“ SVÞ gjalda líka varhug við fjöl- þrepaskattkerfinu sem samþykkt var með lögum í gær og telja að með því sé verið að eyðileggja stað- greiðslukerfið. „Það sem við höfum sérstakar áhyggjur af er að það er verið að færa ábyrgðina á því að vera í réttu skatthlutfalli af launagreið- andanum yfir á launamanninn. 30.- 40.000 einstaklingar þiggi nú laun frá fleiri en einum launagreiðenda. „Ég er hræddur um að það verði freisting hjá sumum að gefa upp lægra hlutfall og síðan kemur bakreikningurinn með uppgjörinu.“ Gjörbreytt skattkerfi  Virðisaukaskattur verður sá hæsti í heimi  Fjölmörg opinber gjöld hækka  Ráðstöfunartekjur lækka  Launþegi ábyrgur fyrir réttu skatthlutfalli Aðeins eru sex vinnudagar, að Þor- láksmessu og gamlársdegi með- töldum, þar til hæsta þrep virð- isaukaskattsins hækkar úr 24,5% í 25,5% auk þess sem ýmsar breytingar verða á öðrum gjöldum og sköttum til ríkisins. Eydís Huld Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Hug- lausna, segir að fyrirtæki séu afar misvel í stakk búin til að breyta upplýsingum í tölvukerfum sínum. Eydís Huld bendir m.a. á að mörg fyrirtæki séu með afar um- fangsmiklar vöruskrár. Ekki séu þær í öllum tilvikum svo einfaldar að hægt sé að breyta virðisauka- skattþrepinu með einföldum hætti. Oft séu kerfin þannig að fara verður inn í þau og breyta upplýsingum fyrir hverja og eina vöru sem geti verið tímafrekt. Hennar fyrirtæki er að smíða bók- haldskerfi og þar er gert ráð fyrir hærri virðisaukaskatti, eins og ný- samþykkt lög gera ráð fyrir. Einar Ingi Ágústsson, sölu- og markaðsstjóri Kerfisþróunar, sem selur viðskiptahugbúnaðinn Stólpa, segir að fyrirtækið hafi verið búið að gera ráð fyrir að virðisaukaskattsþrepin yrðu þrjú, þ.e. að 14% virðisaukaskattsþrepi yrði bætt við. Nú væri búið að samþykkja einfaldara kerfi. „Breytingarnar koma seint en ég hugsa að flest hugbúnaðarhúsin hafi verið búin að undirbúa sig,“ segir hann. Það sé reyndar ekkert nýtt við að breytingar á sköttum komi seint fram. Breytingar samþykktar seint en það er ekki nýtt Morgunblaðið/Árni Sæberg Dýrara Hækkun leggst á flest. Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is GERT er ráð fyrir því að áfengi og tóbak hækki í verði um næstu ára- mót eftir að Alþingis samþykkti í gær hærri álögur á þessar vöruteg- undir. ÁTVR hefur reiknað út hverjar hækkanir verða um áramótin. Sam- kvæmt þeim útreikningum mun al- geng rauðvínsflaska hækka um rúmar 100 krónur, eða 5,3%. Þriggja lítra rauðvínskassi mun hækka um 381 krónu, eða 7,8%, hálfs lítra bjórdós um 19 krónur eða 5,7% og þriggja pela vodkaflaska um 373 krónur eða 8,5%. Sigrún Ósk Sigurðardóttir, að- stoðarforstjóri ÁTVR, segir að þessir útreikningur geri ráð fyrir að aðfangaverð frá birgjum verði óbreytt, þ.e. einungis verði breyting vegna áfengisgjalds og virð- isaukaskatts. ÁTVR kaupir áfengi frá inn- lendum birgjum en í innkaupsverði til ÁTVR eru áfengisgjöld innifalin. „Við sjáum ekki heildarbreyt- inguna fyrr en birgjar hafa tilkynnt til okkar ný aðfangaverð sem verður alveg á næstu dögum,“ segir Sigrún Verð á áfengi hefur áður hækkað tvívegis síðustu 12 mánuði. Fyrri verðhækkunin var í desember í fyrra þegar Alþingi samþykkti 12,5% hækkun á áfengisgjaldi. Seinni hækkunin varð í maí sl. þeg- ar Alþingi samþykkti 15% hækkun á gjöldum á áfengi og tóbaki. Kassi af rauðvíni mun hækka um 381 krónu Hækkanir á áfengi Núverandi Nýtt Hækkun Hækkun verð verð í kr. í % Rauðvín Magn: 750 ml Áfengi (%): 13,5% 1.898 1.999 101 5,3% Rauðvín / kassavín Magn: 3 ltr Áfengi (%): 13,5% 4.898 5.279 381 7,8% Bjór Magn: 500ml Áfengi (%): 5,0% 326 345 19 5,7% Vodka Magn: 700 ml Áfengi (%): 37,5% 4.394 4.767 373 8,5% 25,5% Almennur virðisauka- skattur eftir hækkun um eitt prósentustig. Virðis- aukaskattur á Íslandi er þar með sá hæsti í heimi. 14% Milliskattþrepið sem leggja átti á sykraðar vörur og veitinga- starfsemi. 4% Hækkun bensíngjalds um 2,50 kr. á hvern lítra. 3% Hækkun olíugjalds um 1,65 kr. á hvern lítra. 10% Hækkun bifreiðagjalds. 10% Hækkun áfengis- og tób- aksgjalds. Áætluð áhrif á smásöluverð eru mest á bjór en minnst á sterka drykki. 12,5% Rýrnun kaupmáttar launa frá því í janúar 2008.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.