Morgunblaðið - 22.12.2009, Síða 8

Morgunblaðið - 22.12.2009, Síða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2009 Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is KOSTNAÐUR Reykjavíkurborgar vegna afnota af Egilshöllinni, gervi- grasvöllum norður af Egilshöll og af Íþrótta- og sýningahöllinni í Laug- ardal er samtals 430 milljónir á þessu ári. Leigan á Egilshöll er mun hærri eða 265,2 milljónir á ári en leigan á Laugardalshöll er um 164,4 milljónir. Innifalið í þessum kostnaði er öll þjón- usta, þrif, rafmagn, hiti, fast- eignaskattar, viðhald og fleira. Íþróttastarf var í hættu Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks og formaður íþrótta- og tómstundaráðs, segist ekki viss um að samningurinn um Egilshöll hafi verið borginni hagstæður. „Ég held að það hefði verið hagstæðara að byggja Egilshöll og reka hana sjálf heldur en að leigja með þessum hætti,“ segir hann. Á þessum tíma, á árunum 2000- 2001, hafi R-listinn breytt stefnu borgarinnar sem fram til þessa hafði byggt sjálf og farið meira út í að leigja byggingar af einkaaðilum. Meirihluti D- og B-lista framlengdu í sumar samning við eigendur Egilshallar en Kjartan segir að borgin hafi í raun ekki haft annan kost því ella hefði öllu íþróttastarfi sem fram fer í höllinni verið stefnt í stórhættu. Samning- urinn var gerður til eins árs og því þarf að semja að nýju í sumar. Laugardalshöllin, bæði sú nýja og gamla, eru í eigu félags í eigu Reykja- víkurborgar og Samtaka iðnaðarins. Kjartan segir að sá samningur, sem einnig var gerður í tíð R-listans, sé mun betri en samningurinn um Egils- höllina. Tónlistarhúsið versta dæmið En þótt samningurinn um Egilshöll sé slæmur segir Kjartan að versta dæmið um slíkt sé þó samningurinn um Tónlistar- og ráðstefnuhúsið. Heildarskuldbinding Reykjavíkur og ríkis vegna þess stefni nú í um 30 milljarða króna. Samkvæmt upplýsingum frá Íþrótta- og tómstundasviði borg- arinnar koma um 4-5.000 manns á æf- ingar og mót í Egilshöll í viku hverri og 14 íþróttafélög fá þar aðstöðu. Í fyrra komu 250.000 gestir í Laug- ardalshöll, þar af 190.000 á íþrótta- æfingar, sýningar og fundi, 12.000 á íþróttaviðburði og 48.000 á tónleika. Tæplega 20 íþróttafélög halda æfing- ar í Höllinni. Tvær hallir kosta 430 milljónir á ári Morgunblaðið/ÞÖK Hált Skautamenn í Egilshöll hafa um annað að hugsa en leiguna. Hefði verið hagstæðara að byggja UMSÓKNIR um úthlutun frá jólaaðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar, Reykja- víkurdeildar RKÍ og Mæðrastyrksnefndar, eru nú orðnar um 500 fleiri en í fyrra og er áætlað að þær verði um 3.900 í ár. Ef miðað er við að meðal- fjölskyldustærð sé 2,7 einstaklingar gæti úthlutun nú náð til yfir 10.000 einstaklinga eða um 3% þjóðarinnar. Í fréttatilkynningu segir m.a. að miklu fleiri karlar en konur séu meðal umsækjenda. Morgunblaðið/Ómar 3.900 SÆKJA UM AÐSTOÐ Íþrótta- og tómstundasviði Reykjavík- urborgar er ætlað að hagræða um 303 milljónir á næsta ári og á lang- stærstur hlutinn að nást með því að lækka ferðastyrki, hætta að verðbæta húsaleigustyrki og hagræðingarkrafa er gerð á þjónustusamninga, íþrótta- sali, íþróttamannvirki og skóla. Þá verða byggingastyrkir lækkaðir. Frímann Ari Ferdinandsson, fram- kvæmdastjóri Íþróttabandalags Reykjavíkur, segir erfitt að segja til um hvaða áhrif þessi hagræðing hafi á íþróttafélögin í borginni. Í fyrra hafi borgin hætt að verðbæta samninga við íþróttafélögin, en í samningum við félögin hafi verið kveðið á um verðbætur. Skerðingin á næsta ári leggist ofan á þau áhrif sem verð- bólgan hafi. Íþróttafélögin verði að sníða sér stakk eftir vexti. Einhver félög hafi skorið niður launakostn- að. Félögin reyni eftir mætti að halda í horfinu varðandi barna- og unglingastarf. Mjög hafi dregið úr framlögum til afreksflokka og laun leikmanna lækkuð. „Það er allt gert til að halda áfram sömu starf- seminni. Auðvitað munar mikið um þetta,“ segir hann. ÍTR er ætlað að hagræða um 303 milljónirGEORG JENSEN DAMASK Àrmùla 10 108 REYKJAVIK Sími 5 68 99 50 www.duxiana.is www.damask.dk SJÓSUNDSFÉLAG sem verið er að stofna í Reykjavík vill lagfæra og byggja áfram upp aðstöðuna í Nauthólsvík. Framtíðarmarkmiðið er að byggja þar upp alþjóðlega sjósunds- og sjóbaðsaðstöðu. Mikil aukning hefur verið í sjó- sundinu undanfarin tvö ár. Nokkur hundruð manns stunda sjósund reglulega í Nauthólsvík yfir vet- urinn. Mjög hefur fjölgað í hópnum. Skráðir gestir í vetrarsjósundi voru 3.300 á síðasta ári en nú er útlit fyr- ir að um tólf þúsund verði í ár. Al- mennir gestir Ylstrandarinnar sem þangað koma til að njóta veðurblíð- unnar og umhverfissins á sumrin eru ekki taldir með. Aðstaða í þjónustumiðstöðinni „Þessi mikla aukning hefur gert það að verkum að aðstaðan er að springa utan af okkur. Svo finnst okkur tími til kominn að setja eitt- hvert andlit á hópinn,“ segir Árni Þór Árnason sem unnið hefur að undirbúningi Sjósunds- og sjóbaðs- félags Reykjavíkur. Stofnfundur félagsins verður haldinn á Rúbín í Keiluhöllinni á nýársdag, þegar menn hafa lokið við að þreyta hið víðfræga Nýárssund. Heiti potturinn í Nauthólsvík er þétt setinn þá daga sem opið er yf- ir veturinn. Árni segir að áhugi sé á því að stækka pottinn eða útbúa annan. Þá þurfi að bæta búnings- aðstöðu. Það megi gera í ónýttri aðstöðu í þjónustumiðstöðinni. Þar væri einnig upplagt að koma upp gufubaði að finnskri fyrirmynd. „Draumurinn er að gera þarna virkilega flotta aðstöðu til fram- tíðar,“ segir Árni Þór og vísar til hugmynda sem hafa komið upp um að dýpka sjóinn við enda grjót- garðsins og koma þar upp betri að- stöðu til sjósunds. helgi@mbl.is Nýr pottur og gufubað á óskalista Sjósunds- og sjóbaðsfélag Reykjavíkur vill koma upp alþjóðlegri sjósundsaðstöðu í Nauthólsvík Morgunblaðið/Ómar Heilsurækt Þátttaka í vetrarsjósundinu í Nauthólsvík hefur margfaldast. ÍBÚAR í Húna- þingi vestra og Bæjarhreppi sem keyptu stofnfé í Sparisjóði Húna- þings og Stranda fyrir sameiningu við Sparisjóðinn í Keflavík hafa fengið frest fram í maí til að greiða lán sem tekin voru í Landsbankanum og átti að greiða eða endurfjármagna í þessum mán- uði. Verða lánin þá á gjalddaga á svipuðum tíma og lán Sparisjóðsins í Keflavík sem fjármagnaði hinn hluta stofnfjárkaupanna. Talið er að um fimmta hvert heimili í Húnaþingi vestra og Bæj- arhreppi standi frammi fyrir alvar- legum fjárhagsvanda eða persónu- legu gjaldþroti vegna kaupa á stofnfjárbréfum þar sem skuldirnar hafa hækkað en bréfin orðið lítils virði. Algengt er að einstaklingar skuldi frá fimmtán og upp í 40 milljónir kr. og dæmi um að fjöl- skyldur skuldi á annað hundrað milljónir. Stofnuð hafa verið Samtök stofn- fjáreigenda í fyrrum Sparisjóði Húnaþings og Stranda. Reimar Marteinsson formaður segir að reynt verði að ná samningum við Sparisjóðinn í Keflavík um að koma til móts við íbúana þannig að fólk verði ekki gert eignalaust eða gjaldþrota. helgi@mbl.is Reynt að semja um stofnfjárlánin Fá frest á greiðslu fram í maí UMFERÐARSLYSUM á höfuðborg- arsvæðinu hefur fækkað mikið milli ára, að sögn Kristjáns Óla Guðnason- ar, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lög- reglu höfuðborgarsvæðisins. Hann segir að umferðarslysum á höfuðborg- arsvæðinu fyrstu sjö mánuði ársins hafi fækkað um 34% og sú þróun hafi haldist áfram. „Við erum mjög sáttir við það hvernig umferðin hefur gengið á höf- uðborgarsvæðinu núna síðasta árið,“ segir Kristján en bætir við: „Hins vegar var þetta afleitleg helgi, bæði þessi eftirför og svo banaslysið á Hafnarfjarðarvegi sem var hörmu- legt.“ Umferðaróhöpp sem rakin eru til ölvunaraksturs það sem af er árinu eru rúmlega 26% færri en á sama tímabili í fyrra. Ef skoðuð eru þau til- felli þar sem lögregla stöðvar öku- mann vegna gruns um ölvun á fyrstu tuttugu dögum desembermánaðar allt aftur til ársins 2006 kemur þó í ljós að þeim fjölgar um rétt rúm 17%. Mikil fækkun umferðarslysa í höfuðborginni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.