Morgunblaðið - 22.12.2009, Page 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2009
Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðu-sambands Íslands, bloggar um
það að gera eigi kröfu um að Björg-
ólfur Thor Björgólfsson fái ekki að
taka þátt í fjárfestingu Verne Hold-
ing hér á landi, að því er virðist þar
sem í henni felist
skattaafsláttur.
Þegar hann erspurður álits
á því hvort annar
viðskiptajöfur,
Jón Ásgeir Jó-
hannesson, eigi að
fá að eignast
Haga á nýjan leik
með þeim af-
skriftum skulda sem því fylgir vefst
honum tunga um tönn.
Þegar spurt er um hugsanlegendurkaup Jóns Ásgeirs á Hög-
um, sem óhjákvæmilega myndu fela í
sér tugmilljarða afskriftir skulda sem
Jón Ásgeir hefur sjálfur stofnað til,
þá telur Gylfi ekki jafn einfalt að
svara eins og þegar Björgólfur Thor
á í hlut.
Þegar spurt er um Jón Ásgeirkoma fram einhver undarleg
sjónarmið um það að mikilvægt sé að
hann fái að eiga Haga áfram því að
þá verði að minnsta kosti til ein-
hverjar eignir og verðmæti sem hægt
yrði að ganga að, ef til skaðabóta-
skyldu kæmi í kjölfar rannsóknar á
hruninu.
Það þarf hins vegar ekkert aðspyrja um Björgólf Thor, um
hann er bloggað óumbeðið og því
haldið fram að hann megi ekki koma
með fjármagn inn í landið. Jón Ásgeir
má hins vegar fá afskrifað og eignast
á ný það sem hann hefur misst.
Víst má telja að til að skilja svonamálflutning þurfi að setja upp al-
veg sérdeilis sterk Samfylkingargler-
augu. Er ekki full ástæða til að forseti
ASÍ taki ofan þau gleraugu sín og
reyni að horfa á mannlífið út frá sjón-
arhóli hins almenna vinnandi manns.
Gylfi
Arnbjörnsson
Forseti ASÍ og auðmennirnir
SÍÐASTLIÐINN föstudag var nýtt tölvusneið-
myndatæki tekið í notkun á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja í Keflavík.
Um er að ræða nýtt svokallað átta sneiða tæki
sem keypt var frá General Electric sem mun gjör-
breyta möguleikum til sjúkdómsgreiningar á ýms-
um sjúkdómum um leið og ferðum sjúklinga og
skjólstæðinga mun fækka verulega til Reykjavík-
ur.
Kaupfélag Suðurnesja gaf stofnuninni 30 millj-
ónir króna að gjöf fyrir tveimur árum til kaupa á
tækinu, en með vaxandi starfsemi hefur þörf fyrir
slíkt tæki orðið enn brýnni. Á árinu 2007 var ekk-
ert húsnæði fyrir hendi sem hægt var að nýta fyrir
tækið. Á haustdögum 2009 varð unnt með aðkomu
Fasteigna ríkissjóðs að breyta og endurhanna
herbergi á röntgendeildinni til að unnt væri að
koma sneiðmyndatækinu fyrir.
Guðjón Stefánsson, fyrrverandi kaupfélags-
stjóri Kaupfélags Suðurnesja og formaður sjóðs
sem stofnaður var í kringum gjöfina, kveikti form-
lega á nýja sneiðmyndatækinu við mikinn fögnuð
viðstaddra. Á myndinni er Guðjón ásamt Stellu M.
Thorarensen yfirgeislafræðingi og Magnúsi Har-
aldssyni (liggjandi), sem var einnig fulltrúi gef-
enda við athöfnina. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
ásamt Suðurnesjabúum öllum á Kaupfélaginu
mikið að þakka, segir í tilkynningu.
Nýtt sneiðmyndatæki í notkun
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík -2 skýjað Lúxemborg -1 skýjað Algarve 17 skýjað
Bolungarvík -1 skýjað Brussel 1 skýjað Madríd 2 súld
Akureyri -4 snjókoma Dublin 1 léttskýjað Barcelona 5 skúrir
Egilsstaðir -4 snjóél Glasgow 1 léttskýjað Mallorca 13 alskýjað
Kirkjubæjarkl. -3 heiðskírt London 2 skúrir Róm 9 skúrir
Nuuk -4 léttskýjað París 2 heiðskírt Aþena 8 heiðskírt
Þórshöfn 2 skýjað Amsterdam -2 alskýjað Winnipeg -16 skýjað
Ósló -12 snjókoma Hamborg -2 heiðskírt Montreal -9 skýjað
Kaupmannahöfn -4 léttskýjað Berlín -1 skýjað New York 1 skýjað
Stokkhólmur -8 skýjað Vín -7 þoka Chicago -2 alskýjað
Helsinki -12 snjókoma Moskva -10 snjókoma Orlando 12 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
22. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3.30 1,0 9.48 3,5 16.09 1,0 22.12 3,2 11:23 15:31
ÍSAFJÖRÐUR 5.22 0,6 11.35 1,8 18.11 0,5 23.59 1,6 12:10 14:53
SIGLUFJÖRÐUR 2.01 1,0 7.47 0,4 14.10 1,1 20.26 0,2 11:55 14:34
DJÚPIVOGUR 0.33 0,5 6.48 1,8 13.13 0,5 19.07 1,6 11:02 14:51
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á miðvikudag
(Þorláksmessa)
Norðlæg átt, víða 8-13 m/s og
él, en úrkomulítið S-lands.
Frost 1 til 10 stig, minnst syðst.
Á fimmtudag
(aðfangadagur jóla)
Norðaustan strekkingur með
snjókomu á Vestfjörðum, ann-
ars hægari og él, en bjart S-
lands. Frost 2 til 12 stig.
Á föstudag (jóladagur),
laugardag (annar í jólum)
og sunnudag
Útlit fyrir austlæga átt með
snjókomu eða slyddu S- og A-
lands, éljum fyrir norðan, en
annars úrkomulítið. Hlýnar
heldur í bili.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Norðan 8-15 m/s, hvassast úti
við austurströndina. Snjókoma
eða él norðan og austan til á
landinu en annars yfirleitt létt-
skýjað. Frost 0 til 8 stig, minnst
syðst.
UM miðjan desember var búið að
bólusetja 76.842 Íslendinga við
svínainflúensu og sama dag höfðu
verið fluttir inn 112.500 skammtar
af bóluefni. Um 18% þeirra sem
hafa verið bólusettir eru undir tví-
tugu og þar af eru 533 ungbörn á
fyrsta ári.
36,7% bólusettra eru á aldrinum
20-50 ára og 28,5% á aldrinum 50-
70 ára. Tæp 17% bólusettra eru yfir
sjötugu. Fram kemur í nýjasta hefti
Farsóttafrétta frá embætti Land-
læknis, að 4. desember höfðu Lyfja-
stofnun borist 65 tilkynningar um
atvik í tengslum við bólusetn-
inguna. Flest atvikin voru væg, en
hjá einum einstaklingi komu fram
alvarleg ofnæmisviðbrögð skömmu
eftir bólusetninguna. Fullyrt er að
öryggi svínaflensubóluefnisins sé
engu minna en annarra bóluefna.
Tæp 77 þúsund bólusett