Morgunblaðið - 22.12.2009, Side 14

Morgunblaðið - 22.12.2009, Side 14
14 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2009 www.noatun.is Opið til kl. 22.00 í kvöld Allt fyrir skötu- veisluna STELLU RÚGBRAUÐ KR./STK. 187 ORA, 630 G JÓLASÍLD KR./STK. 678 STÓRUVALLA HAMSATÓLG KR./STK. 335 SALTFISKS- HNAKKASTYKKU KR./KG 1798 F ÚRFISKBOR ÐI ÚR FISKBORÐI ERSKIR Í FISKI FS KÆST SKATA KR./KG 1395 Morgunblaðið birtir fram til jóla upplýsingar um einhverja þeirra viðburða sem eru á dagskrá vítt og breitt um landið. 2 dagar til jóla Á aðfangadag kl. 15 verður haldin dönsk hátíðarguðs- þjónusta í Dómkirkjunni í Reykjavík. Prestur er sr. Þórhallur Heimisson og organisti Marteinn H. Friðriksson. Danska sendiráðið á Íslandi hef- ur veg og vanda af guðsþjónust- unni. Danska jólaguðsþjónustan hefur um langt árabil verið fjöl- sótt. Hana sækja gjarnan Danir og aðrir Norðurlandabúar hér á landi, en einnig fjölmargir Íslend- ingar sem eiga tengsl við Norð- urlönd og þá Danmörku sér- staklega. Allir eru hjartanlega velkomnir. Dönsk guðsþjónusta á aðfangadag Bókaforlagið SALKA og versl- unir Eymundssonar stóðu fyrir vettlingasöfnun fyrir mæðra- styrksnefndir í haust. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og vettling- arnir streymdu inn. Og enn eru þeir að berast. Nýlega komu í Sölku leikskólakennarar úr leik- skólanum Reykjakoti í Mosfellsbæ með alls 55 gullfalleg vett- lingapör. Þeir höfðu hist utan vinnutíma og prjónað fyrir söfn- unina. Þá lögðu foreldrar nokk- urra leikskólabarna þeim lið við prjónaskapinn. Enn eru að berast fallegir vettlingar Orkuveita Reykjavíkur hefur að vanda verulegan viðbúnað til þess að tryggja góða þjónustu við við- skiptavini um jólin. Vakt er á Varðstofu Orkuveit- unnar allan sólarhringinn alla daga ársins, en um hátíðarnar er fjölgað á vöktunum og fleiri í viðbragðs- stöðu. Á aðfangadag og fram á jólanótt verður vakt í kerfisstjórn Orkuveit- unnar og sjö viðbragðsteymi úti í hverfum tilbúin að grípa inn í ef eitthvað kemur upp á. Teymin verða á Kjalarnesi og í Mosfellsbæ, í Árbæjarhverfi, í Kópavogi og Garðabæ, í Breiðholts- hverfi, í Grafarvogi, í Vesturbæ og á Seltjarnarnesi og í Sunda- og Vogahverfi. Þá eru bakvaktir um jólin fyrir heitt og kalt vatn á athafnasvæði Orkuveitunnar á Suðurlandi og Vesturlandi og bakvaktir fyrir raf- magn á Akranesi. Sími á bilanavakt Orkuveitu Reykjavíkur er 516 6200. Morgunblaðið/ÞÖK Fjölgað á vöktum Orkuveitunnar Eftir Albert Kemp Fáskrúðsfjörður | Nemendur Grunn- skóla Fáskrúðsfjarðar hafa frá því í haust æft leiksýningu undir stjórn Ástu Hlínar Magnúsdóttur, sem jafnframt samdi verkið. Ásta er tvítugur Fáskrúðsfirð- ingur og lauk hún námi úr mennta- skóla síðastliðið vor, en hefur starf- að á heimaslóðum síðan. Leikritið byggist á sögu frönsku sjómann- anna og lífi þeirra. Megintilgangur verksins er að tengja nám og sögu byggðarinnar á Fáskrúðsfirði við þá menningu sem hér var á nítjándu öldinni. Upp úr þessari vinnu spratt svo fram leikritið, sem heitir Fagur fiskur úr sjó. Inn í sýninguna fléttast tónlist og gamlar ljósmyndir frá því um 1910. Nemendur fengu aðstoð við fram- burð á frönskum orðum hjá frönsk- um gestakennara sem starfað hef- ur við skólann frá því í haust. Að sýningunni koma tuttugu nemendur auk starfsmanna grunn- skólans og tónlistarskólans. Leik- ritið er tilraun til að gera sögulær- dóm skemmtilegan fyrir bæði áhorfendur og leikara og að kynna þá sögu sem tengd er Fáskrúðsfirði og hefur skapað skemmtileg tengsl við Frakkland. Námið tengt við menningu Fáskrúðsfjarðar Yfir hafið Verkið Fagur fiskur í sjó fjallar um líf frönsku sjómannanna sem komu til veiða við Íslandsstrendur á skútum. Morgunblaðið/Albert Kemp Sögumaðurinn Í verkinu rifjar afi upp árin við Ísland með barnabörnunum. Í HNOTSKURN »Búnaður hins nýja salar ískólamiðstöðinni er vel fallinn til leiksýninga. »Valdimar Másson, skóla-stjóri tónlistarskólans, sá um tónlist og ljósabúnað. »Sagan gerist í Frakklandiárið 1970 þar sem gamall sjómaður er að tala við barna- börn sín um veru sína á franskri skútu við Ísland. »Verkið er frumraun ÁstuHlínar, en hún vann verkið í sjálfboðavinnu. Tvítug stúlka samdi leikverk og leikstýrði LÖGREGLUMÖNNUM sem lokið hafa lögregluskólanum og eru við störf á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki fækkað frá því embættin á svæðinu voru sameinuð árið 2007. Á hinn bóginn verður enginn lögregl- unemi við störf á næsta ári og því er heildarmannafli liðsins minni. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir að auð- vitað muni um lögreglunemana. Á hinn bóginn verði að líta til þess að þeir hafi aðeins verið við störf hluta ársins og séu ekki fullþjálfaðir. Sú fækkun sem hafi orðið í liðinu sé m.a. vegna þess að yfirmönnum fækkar því ekki er ráðið í stöður þeirra þegar þeir láta af störfum. Á næsta ári fækki yfirmönnum um fimm sem spari um 32 milljónir á ársgrundvelli. Stefán segir að öll hagræðing miði að því að viðhalda grunnþjónustunni og það hafi tekist. runarp@mbl.is Fámennara lið en meiri menntun  Fækkar í lögregluliðinu þegar yfirmenn láta af störfum  Á næsta ári verða jafnmargir menntaðir lögreglumenn og árið 2007 en nemarnir eru horfnir á braut Fjöldi lögreglumanna hjá LRH (lok árs) 2007 2008 2009 2010 (áætl.) Alls lögreglumenn 347 333 315 304 Þar af nemar -36 -6 -12 0 Þar af fæðingarorlof -16 -6 -8 -9 Þar af veikindi -17 -4 -4 -4 Fullmenntaðir lögreglumenn að störfum 278 317 291 291

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.