Morgunblaðið - 22.12.2009, Side 22
22 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2009
Tilkynning til viðskiptavina
Rúmfatalagersins
Rúmfatalagerinn vill vekja athygli viðskiptavina sinna á því að NIKA kojur
sem seldar voru í verslunum félagsins eru með of lágu öryggishliði sem
þarf að lagfæra. Þeir viðskiptavinir sem hafa keypt þessa gerð af koju eru
vinsamlega beðnir um að hafa samband við starfsmenn Rúmfatalagersins í
síma 510-7055, eða með því að koma við í verslunum okkar að
Korputorgi eða Glerártorgi, til að fá nánari upplýsingar.
Rúmfatalagerinn vill vekja athygli viðskiptavina sinna á því að ATLANTIS
kojur sem seldar voru í verslunum félagsins eru með gölluðum festingum
sem þarf að lagfæra. Þeir viðskiptavinir sem hafa keypt þessa gerð af
koju eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við starfsmenn
Rúmfatalagersins í síma 510-7055, eða með því að koma við í verslunum
okkar að Korputorgi eða Glerártorgi, til að fá nánari upplýsingar.
TIL átaka kom milli lögreglumanna og mótmælenda
eftir að klerkurinn Hoseyn Ali Montazeri var borinn til
grafar í borginni Qom í Íran í gær. Fregnir hermdu að
tugir þúsunda manna hefðu safnast saman á götunum
til að fylgja Montazeri til grafar. Ekki var vitað hversu
alvarleg átökin voru eða hversu margir tóku þátt í mót-
mælum eftir útförina þar sem erlendum fréttamönnum
var meinað að fylgjast með útförinni.
Reuters
ÁTÖK EFTIR ÚTFÖR MONTAZERIS
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
ÍRANSKI klerkurinn Hoseyn Ali
Montazeri, sem var borinn til grafar
í gær, var einn af áhrifamestu mönn-
unum í sögu Írans eftir íslömsku
byltinguna árið 1979 og virtasti and-
ófsmaðurinn úr röðum íranskra
klerka. Hann hafði verið tilnefndur
arftaki Ruhollah Kkomeinis erki-
klerks sem æðsti leiðtogi Írans áður
en hann féll í ónáð skömmu áður en
erkiklerkurinn lést árið 1989.
Montazeri, sem var 87 ára þegar
hann lést á laugardag, var einn af
helstu höfundum stjórnarskrár ísl-
amska lýðveldisins og var formlega
tilnefndur eftirmaður Khomeinis
1985. Samband þeirra tók þó að
versna síðar þegar andstæðingar
Montazeris litu á hugmyndir hans
um þróun íslamska lýðveldisins sem
gagnrýni á Khomeini. Montazeri
hvatti m.a. til þess að stjórn-
málaflokkar yrðu heimilaðir með
ströngum skilyrðum og að fram færi
opinská umræða um það sem miður
hefði farið í stjórnmálum landsins
eftir byltinguna. Khomeini var lítt
hrifinn af þessum hugmyndum en
það sem réð úrslitum var gagnrýni
Montazeris á klerkastjórnina fyrir
að taka þúsundir pólitískra fanga af
lífi í júlí 1988 þegar stríðinu við Írak
var að ljúka. Seinna gagnrýndi
Montazeri trúarlega tilskipun erki-
klerksins, svonefnda „fatwa“, þess
efnis að rithöfundurinn Salman
Rushdie skyldi teljast réttdræpur
vegna skrifa hans um Múhameð spá-
mann í bókinni „Söngvar satans“.
Í stofufangelsi í hálft sjötta ár
Khomeini reiddist þessari gagn-
rýni og lýsti því yfir í mars 1989 að
Montazeri hefði sagt af sér. Þegar
Khomeini dó í júní sama ár varð Ali
Khamenei fyrir valinu sem æðsti
leiðtogi klerkastjórnarinnar í Íran.
Montazeri naut þó alltaf mikillar
virðingar í landinu og fylgismenn
hans hafa dregið í efa að Khamenei
sé verðugur þess að vera æðsti
trúarleiðtogi sjíta.
Deilur Khameneis og Montazeris
náðu hámarki í október 1997 þegar
Montazeri var dæmdur í stofufang-
elsi fyrir að gagnrýna mikil völd
æðsta leiðtogans. Hann var í stofu-
fangelsi í hálft sjötta ár, eða þar til í
janúar 2003, þegar hann var 81 árs.
Talið var að klerkastjórnin hefði lát-
ið hann lausan af ótta við að götu-
mótmæli blossuðu upp ef hann bæri
beinin í stofufangelsi.
Átti að verða eftir-
maður Khomeinis
Montazeri var virtasti andófsmaðurinn úr röðum
klerka í Íran Var um tíma þekktasti pólitíski fangi landsins
Reuters
Andófsmaður Montazeri árið 2003
þegar hann losnaði úr stofufangelsi.
Í HNOTSKURN
» Montazeri hafði lengigagnrýnt mikil völd æðsta
leiðtoga landsins og beitt sér
fyrir breytingum á stjórn-
arskránni til að minnka þau.
» Klerkurinn gagnrýndi oftstefnu Mahmouds Ahmad-
inejads forseta, meðal annars
framgöngu hans í deilunni við
Vesturlönd um kjarnorku-
áætlun Írana.
» Montazeri hélt því framað yfir 30.000 pólitískir
fangar hefðu verið teknir af
lífi í Íran í júlí 1988.
lögur hans um breytingar á heilbrigðiskerf-
inu verði að veruleika en þær miða að því að
tryggja að allir njóti lágmarkstrygginga, eins
og reglan er í Vestur-Evrópu. Nú eru um 30
milljónir Bandaríkjamanna án allra sjúkra-
trygginga.
Hljóti hugmyndirnar brautargengi þarf að
samræma þær svipuðum tillögum sem þegar
hafa verið samþykktar í fulltrúadeildinni.
Gæti það tekið nokkurn tíma en gera þurfti
margvíslegar málamiðlanir áður en meiri-
hluti náðist í fulltrúadeildinni. kjon@mbl.is
BARACK Obama Bandaríkjaforseti vann
mikilvægan áfangasigur í öldungadeild þings-
ins snemma í gærmorgun þegar samþykkt
var með 60 atkvæðum gegn 40 að ljúka um-
ræðum um heilbrigðistillögur stjórnarinnar.
Eykur það líkurnar á að tillögurnar verði
bornar undir atkvæði fyrir jól.
Repúblikanar óttast að með tillögunum sé
verið að þenja út ríkisumsvif í anda sósíalisma
og höfðu sumir hótað að beita málþófi en
þeirri hótun virðist nú hafa verið hrundið.
Obama hefur lagt geysilega áherslu á að til-
Tillögur Obama þokast áfram
Talið að atkvæðagreiðsla um heilbrigðistillögur forsetans
geti farið fram fyrir jól í öldungadeildinni
Barack Obama
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
HART er nú deilt
á forsætisráð-
herra Danmerkur,
Lars Løkke
Rasmussen, og
ráðgjafa hans
vegna frammi-
stöðu hans á lofts-
lagsráðstefnu
Sameinuðu þjóð-
anna. Er ráð-
herrann einkum
sakaður um að hafa verið illa undirbú-
inn en einnig er hann sagður hafa
gengið erinda Bandaríkjamanna.
Rasmussen tók við stjórninni af
Connie Hedegaard, fráfarandi lofts-
lagsmálaráðherra, síðustu daga ráð-
stefnunnar, að sögn vegna þess að við
hæfi þótti að stjórnmálaleiðtogi væri í
forsæti þegar yfir hundrað leiðtogar
komu saman í Kaupmannahöfn undir
lokin til að reyna að leysa hnútinn. En
ljóst var að Rasmussen ruglaðist
Gagnrýna
Rasmussen
Danski forsætisráðherrann sagður hafa
staðið sig illa á loftslagsráðstefnunni
stundum í ríminu og var ekki nógu vel
að sér um verklagsreglur á fundunum.
Ljóst er að útspil Dana sem gekk út
á að ná fram lausn á deilunum um sam-
drátt í koldíoxíðslosun þar sem ekki
var minnst á Kyoto-bókunina frá 1997
[sem Bandaríkin eiga ekki aðild að]
misheppnaðist. Fóru tillögurnar illa í
talsmenn margra þróunarríkja sem
fannst Danir hugsa aðallega um hags-
muni ríkra þjóða.
Svefnlaus og þreyttur
Ráðherrann varði sig í sjónvarpsvið-
tölum, viðurkenndi að hann hefði
stundum verið afar þreyttur enda ekki
náð að sofa nema fimm stundir síðustu
þrjá sólarhringana. Og sagðist hefðu
fengið betri einkunn ef hann hefði ver-
ið hlýlegri við Stanislaus Lumumba,
sendiherra Súdans hjá SÞ, sem var
harðskeyttur aðalfulltrúi þjóðar sinnar
í viðræðunum. En margir álíta að
Lumumba hafi með óbilgirni sinni í
reynd verið að reka erindi Kínverja
sem eiga geysimikil viðskipti við Súd-
ana.
Lars Løkke
Rasmussen