Morgunblaðið - 22.12.2009, Síða 34

Morgunblaðið - 22.12.2009, Síða 34
34 Minningar MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2009 ✝ Magnús PéturGuðmundsson pípulagningameistari fæddist í Reykjavík 3. ágúst 1946. Hann lést 11. desember sl. For- eldrar hans voru Fjóla Norðfjörð Reimarsdóttir hús- móðir, f. 24.3. 1915, d. 22.10. 1984, og Guð- mundur Björgvin Jónsson pípulagn- ingameistari, f. 21.6. 1917, d. 2.9. 1996. Systkini Magnúsar eru: 1) sammæðra, Sverrir Kr. Bjarnason, f. 1940, maki Sóley Björk Ásgrímsdóttir. Þau eiga fjög- ur börn og þrjú barnabörn. 2) Gunn- ar Eggert, f. 1945, maki Lisbeth Glittum, þau eiga tvo syni. Fyrri kona Gunnars (skilin) er Torild Joh- ansen. Dætur þeirra eru tvær og barnabörnin fjögur, öll búsett í Nor- egi. 3) Kristinn Karl, f. 1951, maki Þuríður Guðmundsdóttir. Saman eiga þau tvær dætur og fyrir átti Þuríður einn son. Af fyrra hjóna- bandi með Oktavíu Guðmunds- dóttur á Kristinn tvo syni og þrjú barnabörn. 4) Kristín Jóna, f. 1952. Með fyrrum eiginmanni, Helga Björnssyni, á Kristín einn son og dóttur sem lést 2007 frá ungum syni. 5) Sigríður Jenny, f. 1956, maki Ragnar Sigurðs- son, þau eiga þrjá syni. Magnús kvæntist Britt Fagén árið 1978. Bjuggu þau í Svíþjóð. Þau skildu árið 1982. Þótt Magnús ætti ekki börn, hændust þau að honum, eink- um systkinabörnin og var það gagnkvæmt. Magnús ólst upp í miðbæ Reykjavíkur og gekk í Miðbæjar- skólann og í Hlíð- ardalsskóla í Ölfusi. Hann fór nokk- ur sumur í Vatnaskóg og var auk þess kappsamur skáti. Hann byrjaði sinn starfsferil sem sendill í verslun Náttúrulækningafélagsins, en síðan lá leið hans á sjó, þar sem hann var m.a. háseti á skipum Eimskipa- félagsins. Inn á milli vann hann svo við pípulagnir með föður sínum. Hann starfaði um tíma við byggingu Búrfellsvirkjunar en 1969 lá leiðin til Stokkhólms og síðar til Noregs. Magnús fluttist síðan heim til Ís- lands eftir rúmlega 20 ár á erlendri grund. Hann lærði iðn sína í Svíþjóð og stundaði hana til hinsta dags. Útför Magnúsar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, þriðju- daginn 22. desember 2009, og hefst athöfnin kl. 13. Elsku Maggi bróðir, ég vil þakka fyrir allt, einkum fyrir að fá að hafa þig hjá mér síðustu 6 mánuði sem var bæði létt og ljúft þrátt fyr- ir að við værum bæði döpur í hjarta en við gátum sýnt hvort öðru ást og umhyggju í orði og verki og ég veit að þér var mjög annt um mig. Þú léttir mér lífið mikið og þessi tími okkar saman gefur birtu sem varir, þú varst mér ljúflingur. Ég veit að þú saknaðir fólksins þíns og hugsaðir hlýtt til allra. Þú tókst mistökin öll á sjálfan þig en eygðir ekki von um endurreisn, sagðist gamall og lúinn og róðurinn þungur. Við Nelson söknum þín og ég veit að margir aðrir gera það en ég þakka Guði fyrir þig, elsku bróðir minn. Ég veit að Drottinn er þinn hirð- ir og í hans húsi, þar sem ríkir kærleiki, gleði, fyrirgefning og friður, munt þú búa langa ævi með ástvinum þínum. Ég kveð þig með þessu broti úr passíusálmum: Gegnum Jesú helgast hjarta í himininn upp ég líta má. Guðs míns ástar birtu bjarta bæði fæ ég að reyna og sjá. Hryggðarmyrkrið sorgar svarta sálu minni hverfur þá. (Hallgrímur Pétursson.) Þín systir, Kristín Jóna (Stína.) Þremur árum eftir að ég eign- aðist Magga frænda tók pabbi mynd af eldri bróður sínum í Sig- öldu. Bræðurnir unnu langar tarnir og þénuðu mánaðarlaun mömmu á sólarhring. Í kjölfarið var hægt að fjárfesta í eigin húsnæði og Maggi ákvað að reisa hús handa ungri ís- lenskri stúlku sem hann hafði kynnst í Svíþjóð og bjó þar enn. Á þeim tíma var hann mikið hjá okk- ur á Eiríksgötunni. Maggi var álit- legur maður, sjarmerandi, smart klæddur og gladdi ófá kvenmanns- augu. Væru menn hins vegar að gefa ástkonu Magga auga var hann ekki lengi að hjóla í þá. En áður en húsið var fullklárað hafði stóra ást- in í lífi hans kynnst öðrum manni. Maggi fluttist aftur til Svíþjóðar og mig rámar í fagran sumardag árið 1978 þegar hann og Britt héldu brúðkaupsveislu í garði nokkrum í Stokkhólmi. Maggi, sem gat ekki sjálfur eignast börn, gekk fimm ára syni hennar í föðurstað og var góð- ur við hann eins og öll önnur börn sem hann umgekkst. Hjónabandið varði þó ekki lengi og þegar við heimsóttum Magga í Malmö nokkr- um árum síðar sagði hann mér þær sorgarfréttir að hjónin á bak við fyrstu plötuna sem ég eignaðast, ABBA, væru líka skilin. Maggi hughreysti mig með því að elda makalausa rússneska rauðrófusúpu og kenna mér að skjóta með tívol- íriffli. Og ég man eftir annarri heim- sókn til Málmeyjar þegar pabbi var að hjálpa Magga úr einhverju klandri sem hann hafði komið sér í, enda víngefinn. Eftir að við vorum öll flutt aftur til Íslands og ég var að íhuga að læra ljósmyndun gaf Maggi mér atvinnumyndavél og sá til þess að myrkraherbergið í Þing- holtsstrætinu fengi vatnslögn. Á þessum árum var afi farinn að eld- ast nokkuð og ég man að Maggi var mikið hjá honum. Einhvern tíma fór svo sambandið hjá systkinunum af ólíkum ástæðum í hnút og í kjöl- farið hitti ég hann ekki í rúman áratug. Það þurfti fjölskylduharm- leik til þess að aftur gæfist tæki- færi til að hitta Magga frænda. Ég heyrði síðan aftur í honum símleið- is í sumar þegar ég bauð honum að koma að fagna nýjum frænda, en fjölskylduflækjurnar voru sem fyrr til staðar og Maggi lét því nægja að senda gjöf. Þegar mér varð fyrir skömmu ljóst að eitthvað hefði komið fyrir í föðurfjölskyldunni var undirmeð- vitundinni strax hugsað til Magn- úsar þótt ég hefði enga hugmynd um það hvernig fyrir honum væri komið, að hann væri búinn að missa bæði atvinnu og húsnæði. Hann hafði fengið húsaskjól hjá Stínu frænku, sem hann hafði haldið sam- bandi við, en virðist ekki hafa fund- ið hjá sér kraft til að þrauka eftir þeim degi þegar birta tekur á ný. Það eina sem ég á nú eftir af Magga frænda eru því minningarn- ar góðu. Davíð. Mínar minningar frá samveru- stund með þér eru aðallega byggð- ar á ljósmyndum því við lékum okk- ur víst mikið saman þegar ég var bara smábarn. Barnsminnið er ein- staklingsbundið en þó afar tak- markað og því ekki við að búast að ég muni mikið. En þessar stundir voru í þínu minni ferskari og fékk ég að heyra alls kyns sögur af okk- ar leik og ferðalögum í fjölskyldu- samkvæmum á seinni árum. En þessi örfáu skipti sem ég hitti þig eru mér minnisstæð. Ég samdi lítið ljóð kvöldið sem ég frétti af andláti þínu. Minningarnar mæta vel man ég um þig frændi ei þó margar þær ég tel barnsminnið þeim rændi Hvíl í friði Maggi frændi Ragnheiður Elísabet. Magnús Pétur Guðmundsson Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 ✝ Ástkær frændi okkar, VILHJÁLMUR KRISTINN SIGURÐSSON fyrrv. póstvarðstjóri, Lindargötu 57, Reykjavík, lést á heimili sínu miðvikudaginn 16. desember. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 29. desember kl. 13.00. Aðstandendur. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐLAUGUR EYJÓLFSSON, Árskógum 8, Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn 19. desember. Útförin fer fram frá Seljakirkju miðvikudaginn 30. desember kl. 13.00. Margrét S. Jónsdóttir, Helga Eygló Guðlaugsdóttir, Reynir Garðarsson, Jón S. Guðlaugsson, Þórkatla Þórisdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, INGIBJÖRG VILHJÁLMSDÓTTIR, síðast til heimilis í Lækjarsmára 4, Kópavogi, lést föstudaginn 18. desember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Guðfinna Þorvaldsdóttir, Elías Pálsson, Guðmundur Hafþór Þorvaldsson, Helga Margrét Gígja, Vilhjálmur Birgir Þorvaldsson, Elínborg Ögmundsdóttir, Sigríður Ragna Þorvaldsdóttir, Ólafur Árnason, Sumarliði Þorvaldsson, Sigríður R. Helgadóttir, Þorvaldur Hannes Þorvaldsson, Ólafía Ingibjörg Þorvaldsdóttir, Steinar Garðarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, KRISTRÚN JÓHANNA ÁSGEIRSDÓTTIR, Hanna, Kjarrhólma 22, Kópavogi, lést sunnudaginn 20. desember. Útför hennar fer fram frá Digraneskirkju þriðjudaginn 29. desember kl. 13.00. Guðný Ásgerður Sigurðardóttir, Þorkell Jóhann Sigruðsson, Gróa Halldórsdóttir, Hrönn Sigurðardóttir, Ægir Björgvinsson, Brynja Sigurðardóttir, Gunnar Sigurðsson, Guðrún Margrét Einarsdóttir, Hörður Sigurðsson, Ingibjörg Jóhannesdóttir, Sigurður Þór Sigurðsson, Sigrún Inga Magnúsdóttir, Hallfríður Sigurðardóttir, Ómar Elíasson, Elías Sigurðsson, Emilía Bergljót Ólafsdóttir, Jóhanna Sigríður Sigurðardóttr, Finnur Einarsson, Ásgeir Sigurðsson, Svala Steina Ásbjörnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, JÓN KRISTINN HANSEN kennari, Sóleyjarima 9, Reykjavík, lést á heimili sínu laugardaginn 19. desember. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 30. desember kl. 11.00. Ingibjörg Júlíusdóttir, Kristín Jónsdóttir, Pálmi Erlendsson, Hildur Jónsdóttir, Steindór S . Guðmundsson, Gerður Jónsdóttir, Hannes Helgason og barnabörn. ✝ Ástkær móðir, tengdamóðir, amma og langamma okkar, ÁSTA JÓNSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni sunnudaginn 20. desember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Óskar Sigurðsson, Brynja Kristjánsson, Hörður Sigurðsson, Svala Birgisdóttir, Gunnar Sigurðsson, Anne-Marie Sigurðsson, Marta Guðrún Sigurðardóttir, Magnús Sigsteinsson, Jón Sigurðsson, Margrét Einarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HREFNA HERMANNSDÓTTIR, Skálarhlíð, Siglufirði, lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar laugardaginn 19. desember. Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 2. janúar kl. 14.00. Björn Jónasson, Ásdís Kjartansdóttir, Guðrún Jónasdóttir, Halldóra Jónasdóttir, Gunnar Trausti Guðbjörnsson, Hermann Jónasson, Ingibjörg Halldórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.