Morgunblaðið - 22.12.2009, Side 37

Morgunblaðið - 22.12.2009, Side 37
Minningar 37 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2009 ✝ Arnór Sigurðs-son fæddist í Ystahúsinu í Hnífs- dal 20. mars 1920. Hann andaðist sunnudaginn 13. des- ember síðastliðinn. Hann var sonur hjónanna Elísabetar Rósinkrönsu Jóns- dóttur, f. 15.3.1881, d. 5.5. 1930 og Sig- urðar Guðmunds- sonar, f. 9.7.1874, d. 4.10. 1955. Arnór var 3 yngstur 11 systkina hvar af 9 náðu fullorð- insaldri og er nú aðeins yngsti bróðirinn, Tómas, f. 10.4. 1922, eftir af systkinunum úr Ystahús- inu. Hin systkinin voru Kristján Guðmundur, f. 12.1. 1910, Sigríð- ur Hanna, f. 13.12. 1910, Jón Þorleifur, f. 10.4. 1912, Olga Sól- veig Aðalbjörg, f. 3.6. 1913, Kristjana, f. 6.3. 1915, Herdís Þóra, f. 2.12. 1916 og Bjarni, f. 16.4. 1921. Í frumbernsku létust þau Kristján Guðmundur (eldri) og Elísabet Sigríður. Arnór kvæntist árið 1944 Að- alheiði Septínu Jóhannesdóttur frá Hlíð í Álftafirði, f. 10.9. 1922, 15.10. 1959, sambýliskona Sigríð- ur Kristjánsdóttir, f. 12.5. 1967, dóttir þeirra er Guðrún Helga, f. 2006, og einnig eru hans börn Linda Ósk, f. 1979, Arnór Heið- ar, f. 1981 og Haraldur Björn, f. 1983. Arnór og Aðalheiður hófu bú- skap í Hnífsdal en fluttust síðan til Siglufjarðar vorið 1946 og þar bjuggu þau til 1964 er þau fluttu í Borgarnes. Starfaði Arnór með- al annars við húsvörslu í barna- skólunum á þessum stöðum. 1969 fluttu þau síðan til Reykjavíkur þar sem hann vann ýmis störf, m.a. hjá Skeljungi og síðar við næturvörslu í Samvinnubank- anum og endaði starfsævi sína sem gæslumaður bankahólfa þar árið 1987. Aðalheiður lést 23.3. 1984 eftir erfið veikindi. Árið 1986 kynntist Arnór Ragnheiði Stefánsdóttur, f. 6.10. 1926, ætt- aðri úr Mjóafirði og hófu þau bú- skap saman, fyrst í Sæviðarsundi en síðar í Þórðarsveig 1 í Reykjavík, allt þar til Arnór veiktist í mars 2008 og dvaldi eftir sjúkrahúsvist síðustu miss- erin við góðan aðbúnað á Dval- arheimilinu Felli við Skipholt í Reykjavík. Útför Arnórs fer fram frá Guð- ríðarkirkju í Grafarholti í dag, þriðjudaginn 22. desember, og hefst athöfnin kl. 11. d. 23.3. 1984. Börn þeirra Arnórs og Aðalheiðar eru: 1) Guðmunda Guðný, f. 13.9. 1945, gift Birni Ástmunds- syni, f. 23.10. 1945, þau eiga 4 börn, Ágústu og Arnór, f. 1968, Áslaugu, f. 1973 og Agnesi, f. 1979. Barnabörn þeirra eru nú 9 talsins. 2) Jón Sæv- ar, f. 5.8. 1947, d. 28.2. 1994. Jón var kvæntur Berghildi Gísladóttur, f. 28.12. 1954, þau áttu 2 börn, Að- alheiði, f. 1973 og Ragnar, f. 12.2. 1975, d. 10.2. 2002. Barna- börn Jóns og Berghildar eru nú 4. 3) Sigmar Einar, f. 28.4. 1953, d. 17.8. 1989. Sigmar var kvænt- ur Heiðrúnu Aðalsteinsdóttur, f. 28.1. 1955, þau eignuðust 4 börn, Daða Arnar, f. 1977, Dögg, f. 1980, Jóhannes Einar, f. 1982 og Kjartan Inga, f. 1985. 4) Mál- fríður Freyja, f. 3.7. 1958. Henn- ar börn eru Daníel Adam, f. 1976, Guðmundur, f. 1981 og Emma, f. 1989. Barnabörn Mál- fríðar eru 4. 5) Sigurður, f. Elsku fallegi afi minn. Í kvöld birtist stjarna á himnum, hún birtist þar undurskjótt hún mun bera þar af með skínandi geislum, hvíla svo vært og rótt yfir okkur mun hún svo vaka, vernda og blessa í senn er ég vakna þá situr hún hjá mér, er ég sofna hún situr þar enn. Hún mér segir að vera ei döpur, því líf- ið svo fagurt er það er ómetanlegt og þegar því ljúki, hún taki á móti mér. Að eilífu mun hún skína, björt hún tindrar nú ég sakna þín, elsku afi og mundu, mín fallega stjarna ert þú. Þín dótturdóttir, Emma Ævarsdóttir. Elsku afi minn. Nú hefur þú leikið síðasta lagið þitt á munnhörpuna. Hluti af jóla- haldinu var að líta til þín og óska þér gleðilegra jóla og iðulega dróstu upp munnhörpuna og spilaðir jólalög af innlifun fyrir mig og barnabarna- börnin. Nú er tónleikum þínum lok- ið, en líkt og með góða tónleika þá vill maður helst ekki að þeim ljúki. Slík ósk er auðvitað helber heimtu- frekja, því eðlilega verða menn lúnir og það varstu orðinn, afi minn. Ég þakka þér fyrir allar góðu sam- verustundirnar okkar og fyrir að veita mér þau forréttindi í lífinu að fá að vera lítil afastelpa fram á miðjan aldur. Fátt þótti mér betra en að koma í heimsókn og halda í sólbrúna og hlýja hönd þína, því þar gat mað- ur verið viss um að þrátt fyrir örar breytingar og firringu samfélagsins þá breyttist ekkert hjá þér. Oft sát- um við og rifjuðum upp gamla og góða tíma. Þú mundir tímana tvenna og ég fékk aldrei nóg af sögunum þar sem ættfræðiþekking þín naut sín í botn. Fyrir tíu árum, þegar þú varðst áttræður, áttum við saman gott spjall um æviferil þinn sem ég tók upp á spólu og hún er svo sannarlega ómetanlegur fjársjóður í dag. Ég þakka örlögunum fyrir að gefa mér tíma og tækifæri til að umgang- ast þig á þessum síðustu ævikvöldum þínum og finn svo í hjarta mínu hvað þeim tíma var vel varið. Eftir að amma dó á níunda ára- tugnum áttir þú mörg góð ár með henni Ragnheiði þinni og slíkt ber að þakka. Þótt erfitt sé þeim sem eftir sitja, þá er himnaríkið nú þitt og ég veit að það verða fagnaðarfundir þegar þú hittir ástvini þína þar efra eftir langan aðskilnað. Skilaðu kveðju frá mér og ég hlakka til end- urfunda þegar minn tími kemur. Hvíl í friði, ljúfastur. Ágústa Björnsdóttir. Elsku afi. Dagurinn, þegar ég sótti þig og við fórum og rúntuðum niður Laugaveg- inn og skoðuðum skemmtiferðaskip- in og fengum okkur ís, það er dagur sem fer beinustu leið í minningahólf- ið merkt „uppáhalds“. Þú varst svo mikið krútt afi, alltaf svo brúnn og sætur og spilandi á munnhörpuna þína. Ég er svo glöð í hjartanu að hafa getað knúsað þig og kysst og kvatt þig almennilega á spítalanum síðasta daginn. Það var samt miklu erfiðara en ég hefði nokkurn tímann getað ímyndað mér, en eins og Malla frænka sagði: „Hugsaðu hvað afi var glaður þegar þú sagðir honum að þú ættir von á barni, og þegar þú sýndir honum myndirnar af Hnúknum og fleira … mundu hann þannig.“ Og það er rétt hjá henni. Því þótt þú haf- ir kannski ekki orðið var við mig þeg- ar ég kom til þín á spítalann, þá veit ég að við eigum saman margar ynd- islegar minningar og ég vona svo sannarlega að þú vitir hversu vænt mér þykir um þig elsku afi. Ég veit að þú varst tilbúinn til þess að fara og að þín bíða endur- fundir við ömmu Heiðu, Nonna, Simma, Ragga frænda og aðra ætt- ingja og vini, en samt er erfitt að sleppa þér, eigingirnin ber alla rök- hugsun ofurliði á svona tímum. Þrátt fyrir það ætla ég að leyfa þér að fara í friði og ró, en ég mun aldrei gleyma þér. Hvíldu í friði afi minn. Agnes Björnsdóttir. Elsku afi minn, nú er komið að kveðjustund og þá minnist ég yndis- legrar æsku sem ég átti á heimili ykkar ömmu í Stigahlíðinni. Þar var ætíð glatt á hjalla og ekkert var skemmtilegra en þegar þú sast með okkur barnabörnin á hnjánum að spila á munnhörpuna og við að syngja með. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífs þíns nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði nú sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Með kærri þökk fyrir allt, elsku afi minn og mun ég geyma minninguna um þig í hjarta mínu alla tíð. Aðalheiður Jónsdóttir. Með þessum fátæklegu orðum langar mig að minnast tengdaföður míns. Arnór var alltaf kallaður afi á mínu heimili, jafnt af mér sem og börnunum mínum. Hann var samt ekki afi minn, heldur fyrrverandi tengdapabbi. Í mínum huga er afi bara fluttur og í dag hefst nýtt líf hjá honum. Nonni, Simmi, Raggi og amma Heiða njóta samvista hans núna, ásamt öllum þeim sem á undan eru farnir. Það er líka mín trú að núna sé gaman hjá afa, þarna hinum megin. Hann var nefnilega ekki mikið fyrir að vera lengi á sama stað og núna getur hann aldeilis ferðast að vild, frjáls og óháður. Afi var mjög lifandi maður. Þegar ég lít til baka, þá var hann alltaf að fara eitthvað, gera eitthvað, nú eða bara að leggja kapal við borðstofu- borðið. Honum þótti ákaflega gaman að dansa, ferðast um landið, að ógleymdu bingóinu og öllum styttri bíltúrunum. Hann naut þess í botn þegar hann fékk að spila á munn- hörpuna fyrir annað fólk, því ekki leiddist honum þegar athyglin beind- ist að honum. Sigrún Baldvinsdóttir. Arnór Sigurðsson ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför G. FRÍMANNS HILMARSSONAR frá Fremstagili, Skógargötu 17b, Sauðárkróki. Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól. Kolbrún J. Sigurjónsdóttir, börn, tengdabörn, afa- og langafabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýju vegna andláts föður míns, tengda- föður, afa og langafa, JÓNS HANNESSONAR rafvirkjameistara frá Bíldudal, síðast til heimilis að dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir til starfsfólks Grundar fyrir góða umönnun, virðingu og hlýju. Björn Jónsson, Hallfríður Kristinsdóttir, Hlynur Þór Björnsson, Jenny Björk Þorsteinsdóttir, Kristín Birna Björnsdóttir, Ingi Björn Jónsson, Margrét Ásdís Björnsdóttir og langafabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, sonar, tengdasonar og afa, AGNARS ÞÓRS HJARTAR, Heiðargerði 23, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar Landspítalans í Kópavogi. Guð gefi ykkur gleðileg jól og farsælt komandi ár. Guðrún Anna Antonsdóttir, Hörður Agnarsson, Haukur Agnarsson, Kolbrún Benediktsdóttir, Birna Björnsdóttir, Anna Katrín Jónsdóttir og barnabörn. ✝ Þökkum öllum þeim sem sýndu samúð og hlut- tekningu við andlát og útför FINNS KRISTINSSONAR, Kambavaði 1, sem lést föstudaginn 27. nóvember. Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól og farsælt komandi ár. Hörn Sigurðardóttir, Ragnar Auðun Finnsson, Jóhanna Ragnarsdóttir, Sigurður Kristinn Finnsson, Ragnheiður Torfadóttir, Stefán Agnar Finnsson, Ingibjörg María Pálsdóttir, Guðmundur Eggert Finnsson, Guðrún Þorvaldsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ✝ Alúðarþakkir til ykkar sem sýnduð okkur samúð og hlýju við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, dóttur, móður, tengdamóður og ömmu, LAUFEYJAR EINARSDÓTTUR, Kórsölum 1, Kópavogi. Sérstakar þakkir til Helga Sigurðssonar krabba- meinslæknis og starfsfólks á deild 11-B Landspítala. Hannes Ólafsson, Sigríður Benediktsdóttir, Hjalti Þór Hannesson, Kristín Guðmundsdóttir, Ómar Örn Hannesson, Sigríður Harpa Hannesdóttir, Halldór Freyr Sveinsson og barnabörn. ✝ Þökkum öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför okkar kæru UNNAR ÓLAFAR ANDRÉSDÓTTUR fyrrv. bónda, Móum, Kjalarnesi, Espigerði 2, sem lést á líknardeild Landspítala Landakoti fimmtudaginn 3. desember. Sérstakar þakkir til starfsfólks L5 fyrir hlýju og góða umönnun. Fyrir hönd aðstandenda, Andrés Svavarsson, Þóra Stephensen, Teitur Gústafsson, Katrín Guðjónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.