Morgunblaðið - 22.12.2009, Side 41
Dagbók 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2009
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
VONANDI
EKKI
RIGNIR
ENNÞÁ?
KÆRI BLÝANTSVINUR,
VONANDI VAR HAUSTIÐ
ÁNÆGJULEGT...
ÞAÐ RIGNDI MIKIÐ
HEIMA HJÁ MÉR
VONANDI HEFUR
VETURINN VERIÐ GÓÐUR.
ÞINN VINUR, KALLI
P.S. HAFÐU ÞAÐ SEM
ALLRA BEST Í VOR
HANN Á
AFMÆLI
ÉG BIÐ
ALDREI UM
MAT VIÐ
MATARBORÐIÐ
ÉG NÆ
BARA Í HANN
SJÁLFUR
VIÐ EIGUM EKKI EFTIR
AÐ EIGNAST NEINA NÝJA
VINI Í GEGNUM ÞESSA SÍÐU
HÉRNA ER PAR SEM
VILL HITTA OKKUR. ÞAU
LEGGJA TIL AÐ VIÐ FÖRUM
SAMAN ÚT AÐ BORÐA
Á FÖSTUDAGINN
EF ÞAU KOMA EKKI
BRÁÐLEGA ÞÁ ER ÉG
HÆTTUR. ALLT ER
ÞEGAR ÞRENNT ER
VILJIÐ ÞIÐ
PANTA?
ÉG ER VISS UM AÐ
KÓNGULÓARMAÐURINN
HANDSAMAR
VULTURE...
ÉG Á ÞÓ EINN
AÐDÁANDA Í
FJÖLMIÐLUM
OG ÉG GET EKKI BEÐIÐ
EFTIR ÞVÍ AÐ HANN SAM-
ÞYKKI AÐ KOMA Í ÞÁTTINN
UH... ELSKAN?
NEI!
VIÐ GEFUMST EKKI
UPP EFTIR TVÖ SKIPTI
Tapað/fundið
KONA tapaði gylltu
Rado-úri að kvöldi 16.
desember á leið frá
veitingahúsinu Lauga-
ási að Laugarásbíói.
Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 898-9748.
Stoppum ballið
VAXANDI vandamál
er hvort þjóðin missi
tökin á örlagavaldi
sínu. Hvergi vantar að
dátt sé stiginn dansinn
í Hruna. Enn er ekki
fyrirséð um peninga-
mál þjóðarinnar í
neysluvenjum landsmanna þótt bú-
ast megi við að með pennastrikum
liðinna ára fari margur sokkurinn á
vitlausan fót.
Eftir á að hyggja finnst mér að
þjóðina skorti ekki aðhald af ágæt-
um ráðamönnum okkar, þar sem
spilastokkurinn myndast við að
halda tölu á of mörgum höndum sem
er ekki einvörðungu bundin við ósk-
hyggju pyngjuhandarinnar heldur
þann auð sem í henni er.
Veljum því betri veginn, sem er
eignarhald bóndans á landi sínu sem
og viðhald samskiptamála og tungu-
taks, vegna þess að hann munar ekki
um lóðarleiguhafaréttindin. Hjálp-
umst að við að halda þagnarmúrinn
yfir viðkomandi aðsókn erlendra yf-
irvalda án þess að knékrjúpa þeim
til handa.
Varðandi íshafsmálið er ekki ann-
að en að geyma það í kóki og klaka.
Frysting þess er ekk-
ert mál á illum vett-
vangi. Skiptir þá máli
hvort einhver Kleppur
eða Kumbaravogur sé
þar á ferð.
Björn S. Valagils.
Af jólahappa-
þrennum og lottói
ÞAÐ er ríkt í okkur Ís-
lendingum að taka
áhættu. Okkur hjón-
unum datt í hug að
sannreyna það sem við
höfðum heyrt, að það
væru litlir vinnings-
möguleikar í jólahappaþrennunum.
Við keyptum 30 þrennur á 150 kr.
stykkið sem gera 4.500 krónur.
Vinningarnir reyndust 900 krónur.
Á fyrstu 15 þrennurnar kom enginn
vinningur. Það kom einn 300 króna
vinningur og restin var 150 krónu
vinningar. Ég hringdi fyrir nokkrum
árum þegar mér fannst þetta sama
og fékk það svar að það væri örugg-
lega vinningur á 10. hverri þrennu.
Síðan tölunum var breytt í lottó-
inu safnast upphæðin ansi mikið og
hefur fólk sem hefur fengið hæstu
vinningana orðið hálfruglað og þurft
áfallahjálp. Það væri nær að dreifa
vinningunum, sérstaklega í þessu
árferði.
Jólakveðjur,
Erla.
Ást er…
… leynivopn
hverrar stúlku.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
ADHD-samtökin | Vefnaður kl. 9, jóga
og myndlist kl. 9.30 ganga kl. 10, jóga kl.
18.
Aflagrandi 40 | Opin vinnustofa kl. 9-
16.30, vatnsleikfimi í Vesturbæjarlaug kl.
10.50, postulínsmálun kl. 13, lestr-
arhópur kl. 14.
Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, handa-
vinna og smíði/útskurður kl. 9-16.30,
leikfimi kl. 9, boccia 9.45.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handavinna,
böðun, hárgreiðsla, kaffi/dagblöð, há-
degisverður.
Dalbraut 18-20 | Félagsvist fellur niður í
dag. Vinnustofa opin kl. 9-12, framsögn
kl. 14.
Dalbraut 27 | Handavinnustofa opin frá
kl. 8-16, myndbandssýning kl. 14.
Félagsheimilið Gjábakki | Jóga kl.
10.50. Nú eru síðustu forvöð að bóka sig
í Þorláksmessuskötuna á morgun kl. 12.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Matur kl. 12, Bónusrúta frá Jónshúsi kl.
14.45, kaffi.
Félagsstarf Gerðubergi | Félagsstarfið
opið virka daga kl. 9-16.30, í dag kl.
10.30 stafaganga. Veitingar í hádegi og
kaffi. Verðskrá velferðarsviðs, uppl. á
staðnum og í s. 5757720.
Hvassaleiti 56-58 | Félagsmiðstöðin er
opin virka daga kl. 8.30-16.30. Böðun
fyrir hádegi, fótaaðgerðir, hársnyrting,
hádegisverður kl. 11.30, helgistund kl. 14
í umsjón sr. Ólafs Jóhannssonar.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Kaffi og
vísnaklúbbur kl. 9.15, leikfimi kl. 11,
handverksstofa – ýmis verkefni kl. 11,
opið hús – brids/vist kl. 13, veitingar.
Vesturgata 7 | Aðstoð v/böðun kl. 9-12,
enska kl. 10.15, handavinna kl. 9.15-16,
matur, spurt og spjallað, leshópur, búta-
saumur og spilað kl. 13, veitingar. Óskar
Pétursson syngur kl. 14.30 og áritar ný-
útkominn geisladisk. Veitingar.
Þingmaðurinn Friðjón Þórðarsoner fallinn frá. Hann var einn af
mörgum ágætum hagyrðingum á
þingi, en í þingveislum er jafnan tal-
að í bundnu máli. Eitt sinn þegar far-
ið var að hausta varð honum að orði:
Haustsins komu kenna má
kólna raddir blíðar.
Nú er hún Esja orðin grá
ofan í miðjar hlíðar.
Ólafur G. Einarsson hefur haldið
utan um vísur úr þinginu og ég leit-
aði til hans eftir fleiri vísum úr sarpi
Friðjóns. Hann sagði mér að eftir
kosningarnar árið 1974 og vinstri-
stjórn Ólafs Jóhannessonar þá hefði
verið streðað við að mynda nýja rík-
isstjórn. Er ljóst var að ríkisstjórn
yrði mynduð undir forsæti Geirs
Hallgrímssonar kastaði Friðjón
fram hringhendu:
Léttist ok í óskabyr
eyðist þoka blekkinganna;
við höfum mokað flórinn fyrr
að ferðalokum vinstri manna.
Þegar Gunnar Thoroddsen mynd-
aði ríkisstjórn klofnaði þingflokk-
urinn og ekki var ætlast til að ráð-
herrarnir sætu þingflokksfundi, þó
að þeim leyfðist það. Gunnar mætti
sjaldan en Friðjón oftar. Þegar
„málefni stjórnarandstöðu“ voru
tekin á dagskrá fóru þeir af fundi.
Eitt sinn fékk Ólafur G. miða frá
Friðjóni í upphafi fundar – en þá var
Ólafur þingflokksformaður – og á
honum stóð:
Ég bið að heilsa heim í ríki þitt
er hnígur sól í vetrarskautið sitt,
þótt kuldinn næði enn um okkar land
mun aftur grænka túnið þitt og mitt.
Ólafur skrifaði aftan á miðann:
„Þingflokksformaður, kem ekki í
dag, 23.3.81“. Og önnur vísa er til
marks um hug Friðjóns:
Íhaldslista þulir þá
þinga byrstum rómi;
einn á kvisti una má
útivistardómi.
Eitt sinn voru Friðjón og Helgi
Seljan að kankast á og Helgi byrjaði:
Fáum hef ég fremri kynnst
fjári snjall og iðinn;
eini gallinn að mér finnst
íhaldssjónarmiðin.
Og Friðjón svaraði:
Helgi bindur brag í myndum
brestur hroka
eina syndin að hann blindar
austanþoka.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af þingvísum Friðjóns