Morgunblaðið - 22.12.2009, Page 42
42 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2009
HALLVEIG Rúnarsdóttir
sópransöngkona og Stein-
grímur Þórhallsson orgelleik-
ari halda kyrrðar- og íhug-
unartónleika í Neskirkju í
kvöld, þriðjudagskvöld. Til-
gangur tónleikanna er að fólk
geti sest niður við kertaljós og
fallega tónlist til að leitast við
að finna hinn sanna anda
jólanna.
Boðið verður upp á blöndu af
íslenskum jóla- og aðventulögum kryddað með
Maríutónlist og aríum eftir Händel. Frítt er á tón-
leikana en safnbaukur við inngang fyrir frjáls
framlög sem renna til Fjölskylduhjálpar og
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur.
Tónlist
Kyrrðar- og
íhugunartónleikar
Hallveig
Rúnarsdóttir
NÝLEGA var bókin Heilræði
fyrir unga menn í verzlun og
viðskiftum eftir George H. F.
Schrader endurútgefin með
nýjum formála Dr. Ásgeirs
Jónssonar.
Bókin var fyrst gefin út á
Akureyri árið 1913 í þýðingu
Steingríms Matthíassonar
læknis. Í bókinni vill Schrader
sýna ungu fólki í verslun og
viðskiptum hvernig það geti
grætt fé, en samt varar hann þó við því „að gjörast
þrælar peninganna“.
Í ítarlegum formála Ásgeirs reynir hann að
svipta hulinni af Schrader sem birtist á Akureyri
sumarið 1912 og eyddi þar síðustu árum sínum.
Bókmenntir
Heilræðakver
George Schrader
Ásgeir
Jónsson
ÚTÚRDÚR er ekki hefð-
bundin bókaverslun. Útúrdúr
var áður innan veggja Ný-
listasafnsins en hefur nú komið
sér fyrir í Austurstræti 6 með
versluninni Havarí.
Í kvöld, þriðjudagskvöld
klukkan 20.00, verður uppá-
koma í Útúrdúr þar sem spurt
er hvað bókin hafi með ljóð að
gera. Fjórum listamönnum
sem hafa unnið með ljóð í bók-
arformi er boðið að stíga þar fram og þjösnast á
ramma bókarinnar.
Listamennirnir eru Una Björk Sigurðardóttir,
Ragnhildur Jóhanns, Halldór Ragnarsson og
Bryndís Björnsdóttir.
Bækur og myndlist
Þjösnast á ramma
bókarinnar
Úr versluninni
Útúrdúr.
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
HELGI Jónsson er með afkastamestu rithöf-
undum, enda hefur hann skrifað vel á annan tug
bóka frá því sú fyrsta kom út fyrir tveimur áratug-
um. Samhliða því hefur hann rekið bókaútgáfuna
Tind og segir auðvelt að muna hvenær fyrsta bók-
in kom út, því þann dag, níunda nóvember 1989,
var heimsbyggðin upptekin af falli Berlínarmúrs-
ins.
Fram af því hafði Helgi starfað sem kennari og
þar kom sú hugmynd að fara að skrifa bækur fyrir
börn og unglinga.
„Ég hafði reyndar lengi gengið með það í mag-
anum að verða rithöfundur, allt frá því ég var tví-
tugur, og hafði meira að segja skrifað mikla bók
sem týndist sem betur fer,“ segir hann en fyrsta
bókin sem Tindur gaf út var unglingabókin Skotin
eftir hann sjálfan.
Samhliða útgáfunni starfaði Helgi enn sem
kennari og segir sér hafi blöskrað hvað lítið var til
af lesefni fyrir börn og unglinga sem áttu mörg í
lestrarerfiðleikum. „Bæði var svo lítið gefið út og
svo var dapurlegt úrval í skólabókasöfnum. Ég
ákvað því að skrifa sögu sem væri hæfilega löng
með góðu letri og líka svo spennandi og fram-
andleg að sá sem læsi hana myndi ekki leggja hana
frá sér fyrr en hún væri búin.“
Þetta var uppskriftin að fyrstu „Gæsahúðar“-
bókinni 1997, en af þeim hafa allmargar komið út –
sú fjórtánda nú um daginn, aukinheldur sem Helgi
er líka byrjaður á bókaflokki sem hann kallar
Gæsahúð fyrir eldri. Alls hafa bækurnar selst í um
50.000 eintökum og hann segir að þær séu enn vin-
sælli í útlánum á bókasöfnum því útlán á ári séu
um 30.000.
Helgi segir að vinsældirnar hafi komið sér nokk-
uð á óvart, en víst sé tilfinningin góð. Hann lætur
þó ekki þar við sitja, því hann hefur líka skrifað
bækur fyrir fullorðna; Blá birta kom út 2007 og nú
á þessu ári spennubókin Nektarmyndin.
Helgi lætur vel af sölunni fyrir þessi jól þó að
hún hafi farið seinna af stað en á síðasta ári. Hann
gefur færri bækur út á þessu ári en því síðasta,
segist vera með tíu bækur núna, en var með fjór-
tán á síðasta ári, enda hafi honum þótt skyn-
samlegt að draga úr útgáfunni þó að vel hafi geng-
ið í fyrra. Hvað næsta ár varðar er hann þegar
kominn með drjúgan lista yfir hugsanlegar útgáfu-
bækur, segist vera með tuttugu og fimm bækur á
lista, en síðan skeri hann niður af listanum eftir
áramót. „Það er fínt að ákveða útgáfu ársins þegar
maður er að fá yfirlit yfir sölu ársins á undan,“ seg-
ir hann og kímir.
Alls hefur Tindur gefið út ríflega 150 bókatitla
og fjórar plötur á þeim tuttugu árum sem fyr-
irtækið hefur starfað og ekkert lát á. Helgi segist
reyndar hafa heyrt það frá föður sínum að hann
hefði bara átt að halda sig við Gæsahúðina, þá væri
hann í fínum málum fjárhagslega, en það sé svo
gaman að gefa út. „Öðrum þræði var ég náttúrlega
að búa til starf fyrir mig og hætti að kenna 2004,
búinn með minn skammt. Það þarf þó hugsjón til
að standa í bókaútgáfu, þetta er ekki gróðafyr-
irtæki.“ Hann rekur útgáfuna frá Akureyri, en fer
hingað suður á vertíð, ef svo má segja. „Netið er
besti vinur landsbyggðarinnar og það hjálpar mér
við að hafa fyrirtækið fyrir norðan, en ég er síðan
fyrir sunnan í nóvember og desember enda dreifi
ég bókunum sjálfur.“
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Afkastamikill Helgi Jónsson hefur skrifað allmargar af þeim 150 bókum sem Tindur hefur gefið út. Hér er hann í bókalager Tinds – kominn suður á vertíð
til að dreifa bókunum en höfuðstöðvarnar eru á Akureyri. „Netið er besti vinur landsbyggðarinnar og það hjálpar mér við að hafa fyrirtækið fyrir norðan.“
Tindur er tvítugur
Vantaði spennandi les-
efni fyrir börn og unglinga
Með rithöfund í mag-
anum frá tvítugsaldri
Fyrsta skáldsagan
týndist – sem betur fer
Tindur gefur ekki bara út bækur fyrir börn og
unglinga eftir Helga Jónsson því nýlega kom út
bókin Drekahellir í Vatnajökli eftir Hafdísi Ósk
Sigurðardóttur með teikningum eftir Rósu Matt.
Af þýddum bókum koma út Temeraire – Hásæti
keisarans eftir bandaríska rithöfundinn Naomi
Novik og er framhald af Temeraire – keisari hans
hátignar sem kom út í fyrra, og Dagbók Kidda
klaufa eftir Jeff Kinney, sem selst hefur metsölu
vestan hafs og stendur til að kvikmynda á næstu
mánuðum.
Einnig gefur Tindur út bókina Algjört æði í
drykk og fæði eftir bandaríska næringarfræð-
inginn Esther Blum sem var metsölubók vestan
hafs, Heimkomuna eftir Björn Þorláksson, sem
segir frá því er Björn missti vinnuna í upphafi
kreppu og þurfti þá að endurskoða gildismat sitt
og að sumu leyti að læra að lifa upp á nýtt, Ís-
lenska knattspyrna 2009 eftir Víði Sigurðsson,
sem hefur að geyma upplýsingar um alla leiki
ársins, öll úrslit, öll mörk og alla markaskorara
og Harmleik í Héðinsfirði eftir Margréti Þóru
Þórsdóttur sem fjallar um mannskæðasta flug-
slys sem orðið hefur á Íslandi, þegar Douglas-vél
Flugfélags Íslands fórst í hlíðum Hestsfjalls í
Héðinsfirði 29. maí 1947.
Tindur gefur líka út plötuna Jahiliya með
hljómsveitinni Úlpu.
Fjölbreytt útgáfa
Smásagnasafn Birgis Sig-urðssonar, Prívat og per-sónulega, geymir sjö smá-sögur. Við lesturinn er ekki
ólíklegt að sú spurning leiti á les-
andann hvort hann sé að lesa skáld-
skap eða sögur úr raunveruleik-
anum því margt virðist þar byggt á
lífshlaupi höfund-
arins. Best er lík-
lega að sættast á
að sögurnar
byggist á
ákveðnum raun-
veruleika sem
höfundur hafi
sett í skáldlegan
búning.
Sögurnar eru
sagðar í fyrstu persónu og sögu-
maður virðist sá sami í þeim öllum,
nema kannski í sögunni „Nótt“. Þar
er freistandi að ætla að um allt ann-
an sögumann sé að ræða en þann
sem segir hinar sögurnar. Kannski
vegna þess að örlög hins veika
manns eru svo dapurleg að staða
hans sýnist nær vonlaus. En sá
tónn er ekki ríkjandi í hinum sög-
unum.
Rödd sögumannsins í öllum sög-
unum er sterk og býsna persónuleg
og gerir að verkum að lesandinn
nær mikilli nánd og tengingu við
söguefnið. Hann finnur vandlega
fyrir því að verið sé að segja honum
áhugaverðar sögur og hann verður
meira en fús að fylgja sögumanni.
Það er fallegur tónn í þessari bók
og þar skiptist á harmur og fyndni.
Endurtekningar setja svo visst
mark á stílinn.
Fyrir utan sögumann koma fjöl-
margar persónur við sögu og sumar
í fleiri en einni. Einna eftirminnileg-
ust er konan sem sögumaður á í
ástarsambandi við þegar hann er
fimmtán ára og hún hálfþrítug. Sú
frásögn er afar næmlega unnin og í
henni er sársauki sem hlýtur að
snerta lesandann. Sársauki er einn-
ig ríkjandi í sögunni „Nótt“, sem er
myrkasta saga bókarinnar og fjallar
um sjúkling sem hugsar til konu
sinnar. Þetta er kannski áhrifa-
mesta saga bókarinnar.
Af allt öðrum toga er sagan
„Verðlaunin“ sem segir frá dvöl
sögumanns og eiginkonu hans á rit-
höfundanámskeiði í Ameríku. Það
er mikill léttleiki í þeirri frásögn
sem er verulega fyndin. Eiginkonan
í þeirri sögu er bæði bráð-
skemmtileg og greind og ein-
staklega lifandi persóna.
Birgir hefur skrifað smásagna-
safn sem ánægja er að lesa enda er
það einkar vel skrifað. Sögurnar
eru fjölbreyttar og bregða upp
minnisstæðum myndum af alls kyns
fólki. Þetta er hin fínasta bók.
Næmleiki
og sársauki
Smásögur
Prívat og persónulega
bbbbn
Eftir Birgi Sigurðsson.
Yrkja ehf., 2009. 160 bls.
KOLBRÚN
BERGÞÓRSDÓTTIR
BÆKUR
Morgunblaðið/Ómar
Höfundurinn Birgir Sigurðsson.
Hljómur er góður,
spilamennska tipp-
topp og orkan tilfinnanleg.
48
»