Morgunblaðið - 22.12.2009, Síða 43

Morgunblaðið - 22.12.2009, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2009 Skotveiði í máli og myndumgeymir safn greina, frá-sagna, dagbókarbrota ogviðtala við skotveiðimenn í ritstjórn Guðmundar Guðjóns- sonar. Einnig er í bókinni gnótt ljósmynda frá ýmsum tímum sem sýna skotveið- ar og skot- veiðimenn. Guðmundur hefur langa reynslu af um- fjöllun um veiðar, einkum þó stangveiðar. Hann þekkir vel hvernig hjarta veiðimanna slær og kann þá eðlu list að segja veiðisög- ur. Veiðihvötin stendur flestum nærri þótt menn fái útrás fyrir hana með ólíkum hætti eins og raunar kemur fram í skemmti- legum pistli eftir Sigmar B. Hauks- son, formann Skotveiðifélags Ís- lands, fremst í bókinni. Guðmundur hefur víða leitað fanga í efnisöflun. Það er vel til fundið að endurbirta sígildar grein- ar um skotveiðar úr tímaritum á borð við Veiðimanninn. Einnig frá- sagnir Björns J. Blöndal veiðibóka- höfundar og sögur Vilhjálms Lúð- víkssonar af Stefáni Jónssyni frétta- og veiðimanni og kafla eftir Stefán. Þá má einnig nefna frásögn af skotveiðum breska hershöfðingj- ans R.N. Stewarts hér á landi árið 1912 sem sýnir hve miklar breyt- ingar hafa orðið á skotveiðum til dagsins í dag. Ritstjóri bókarinnar hefur einnig skrifað nokkur viðtöl, meðal ann- ars við reynslubolta á borð við Ein- ar Pál Garðarsson og Ásgeir Heið- ar sem segja frá veiðiferðum hér heima og erlendis. Dagbókarfærslur Axels Krist- jánssonar hæstaréttarlögmanns af hreindýraveiðum allt frá árinu 1963 eru skemmtilegar og merki- leg heimild. Einnig skreyta bókina margar ómetanlegar – og óborg- anlegar – myndir úr safni Axels. Við lestur bókarinnar fékk ég á tilfinninguna að hún hefði verið unnin í miklum flýti. Aðeins meira nostur hefði gert góða bók enn betri. Til dæmis nefni ég fyrr- greindar dagbókarfærslur Axels. Það hefði gert lesturinn auðveldari að skipta út skammstöfunum sem skrásetjari notar um vini sína og samferðamenn og setja í staðinn nöfn þeirra. Eins hefði að skað- lausu mátt fella ýmislegt út sem verður að teljast aukaatriði fyrir almenna lesendur. Þannig hefðu frábærar veiðisögur Axels notið sín enn betur. Einnig saknaði ég ítarlegri myndatexta, einkum í myndasöfn- um sem birt eru fremst og aftast í bókinni. Þar hefði þurft að nafn- greina fólk og staði á mörgum myndanna. Það hefði aukið heim- ildagildi þeirra til mikilla muna. Ég áttaði mig heldur ekki á því hvað réð röðun mynda í bókinni. Ég hafði gaman af að lesa þessa bók. Hún verður kærkomin lesning mörgum sem áhuga hafa á veiðum og útivist og hittir þar beint í mark. Morgunblaðið/Einar Falur Ritstjórinn Guðmundur Guðjónsson, sem togast hér á við lax, ritstýrir bók- inni. „Hann … kann þá eðlu list að segja veiðisögur.“ Skotveiðisögur Skotveiði í máli og myndum. bbbnn Eftir Guðmund Guðjónsson. Litróf 2009. GUÐNI EINARSSON BÆKUR Hittir í mark Í takt við tímann kr.998 Grillaðu r kjúkl ingur, 2 l Pep si eða P epsi Ma x KJÚKLING A TILBOÐ Aðsóknin að jólatónleikumKammersveitar Reykja-víkur á sunnudag var slíkað opna varð inn í hliðarsal fyrir aukasæti, er kann að hafa deyft annars fína kammerheyrð Áskirkju- skipsins. En það var líka eini teljandi mínusinn. Tónleikarnir mörkuðu að því leyti tímamót í merkri 36 ára sögu KSR að forystumaður hennar frá upphafi, Rut Ingólfsdóttir, hættir nú sem leiðari og konsertmeistari, og geta ugglaust fáir núlifandi hljómlist- armenn horft aftur á áþreifanlegri ár- angur í uppbyggingu tónlistarlífs á þessu landi. En vitanlega löðuðu ekki sízt sígild- ar gersemar Johanns Sebastians í concerto grosso-formi, þ.e. nr. 2, 4 og 5 af sex konserta röð hans frá Köth- enskeiðinu 1717-23, enda þótt sumir kunni að hafa nýtt eldra efni. Raunar er hlálegt til þess að hugsa, að þá ný- viðtekinn dátakóngurinn í Berlín, fað- ir Friðriks mikla, skyldi hvorki hafa sinnt verkunum né greitt fyrir þau, þótt ættu eftir að uppljóma nafn Brandenborgar um alla tíð. Fengu Prússar þar sannarlega mikið fyrir lítið, því konsertarnir hafa reynzt með endingarbeztu hljóm- sveitarverkum barokksins fram á þennan dag. „Léttasta hliðin á Bach“ leynir nefnilega á sér og viðheldur óhögguðum ferskleika án þess að verka á neinn hátt gamaldags – sama hvað synir hans þóttust geta afskrifað gömlu hárkolluna. Hún átti eftir að hlæja síðast – og bezt. Líkt og með síðustu sjö sinfóníur Beethovens liggur stakt „konsept“ að baki hverjum Brandenborgarkonsert. Einkum í áhöfn, því þar eru engar tvær eins. Í nr. 2, fyrsta atriði kvölds- ins, leikur einleikarahópur trompets, flautu, óbós og fiðlu á móti strengja- sveitinni. Tvær flautur og fiðla eru í nr. 4, en semball, flauta og fiðla í nr. 5. Aðalhasar nr. 2 hvað flutnings- frammistöðu varðar felst í trompetp- artinum. Sá kvað enn talinn með því svínslegasta sem lagt hefur verið á munn trómetista, og ku að sama skapi margir hlustendur bíða eftir dauða- hrapi þeytarans í álíka annarlegu of- væni og þegar horft er á loftfimleika án öryggisnets. Því merkilegra var að upplifa glæsilega frammistöðu SÍ- leiðarans Ásgeirs Steingrímssonar á litla F-leikfangalúðurinn. Að vísu ekki 100% örðulausa, en því sem næst; með blekkjandi þokka og fágaðri dýnamík þrátt fyrir tvítungubrjótandi háloftaflúrið. Að ólastaðri túlkun Nar- deau-feðga á flautu og óbó ásamt ljóð- rænni fiðlu Rutar í einkum II. þætti. Í líklega bjartasta konserti þeira allra, nr. 4, má nefna svo til síams- samlynt hjónadúó Martials og Guð- rúnar á þýzkar þverflautur og lauf- létta vélbyssuhríð Unu á fiðlu í sópandi „concertante“-fúgu fínalsins, er að mínu viti ber af flestum öðrum hljómsveitarfúgum þessa óskoraða konungs pólýfónískra forma. Fimman bauð sömuleiðis upp á inn- lifaðan hópsamleik á móti lipru sóló- framlagi spænska sembalistans í for- grunni. Aðeins kom spánskt fyrir sjónir að hljóðfærið var haft loklaust, í stað þess að beina veikum hljómi þess út í sal. Hefði sízt veitt af því, þrátt fyrir fáskipaða 11 manna strengja- sveit. Sígilt bar- okk á sóp- andi flugi Áskirkja Kammertónleikar bbbbn J.S. Bach: Brandenborgarkonsertar nr. 2, 4 og 5 í F, G og D BWV 1046, 1049 og 1050. Kammersveit Reykjavíkur. Ein- leikarar: Ásgeir Steingrímsson trompet, Martial Nardeau flauta, Guðrún Birg- isdóttir flauta, Matthías Nardeau óbó, Rut Ingólfsdóttir fiðla, Una Sveinbjarn- ardóttir fiðla og Javier Núnes semball. Sunnudaginn 20. desember kl. 17. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON TÓNLIST

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.