Morgunblaðið - 22.12.2009, Blaðsíða 44
FÓLK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2009
Andlát Hollywoodleikkonunnar
ungu, Brittany Murphy, sem var
aðeins 32 ára, hefur verið mikið til
umfjöllunar á netinu eftir að greint
var frá því á sunnudaginn. Murphy
fékk hjartaáfall og var flutt á
sjúkrahús þar sem hún var úr-
skurðuð látin. Eins og við mátti bú-
ast tóku bloggarar fljótt við sér, ís-
lenskir sem erlendir. Á Mogga-
bloggi tjá sig nokkrir, flestir af
smekksemi. Ekki eru menn eins
hófstilltir á Eyjunni. Í gær mátti
þar lesa 34 ummæli við frétt um
andlát leikkonunnar en flest sner-
ust þau um fréttamat. Hafa þar
margir út á það að setja að færðar
séu fréttir af andláti leikkonunnar
og deila hart við þá sem eru á þeirri
skoðun að færa eigi slíkar fréttir.
Virðast helstu rök þeirra sem eru á
móti birtingunni þau að leikkonan
hafi ekki verið nógu þekkt á Ís-
landi. Þó fjalla allir stærstu frétta-
miðlar heims um þetta, þannig að
einhver hefur frægðin verið.
Hörð skoðanaskipti
vegna andláts Murphy
Fólk
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
„SÍÐASTA plata var frekar lágstemmd og einföld
en þessi er stuðkennd og poppuð - það er meiri
leikur í henni mætti segja.“
Svo svarar Elíza Newman þegar hún er beðin
um að bera saman nýjustu plötu sína, Pie in the
Sky, sem út kom í haust saman við síðasta afrek á
sólósviðinu, plötuna Empire Fall, sem út kom 2007.
„Þetta eru þessar tvær hliðar á Elízu,“ segir
söngkonan og brosir í gegnum símann frá Bret-
landi, þar sem hún er í mastersnámi.
„Stundum er maður í myrkari pælingum, en svo
fer maður líka út í galsa og fíflalæti!“
Plötuna vann hún með Gísli Kristjánssyni og
Sigurði Kristni Sigtryggssyni, Sigga Sadjei,
en þau eru öll búsett í London en Elíza fluttist
þangað í haust.
„Platan varð gáskafyllri einfaldlega vegna
þess að það var svo gaman að vinna með
þeim. Það var stuð allan tímann og þeir
göldruðu fram það besta úr lögunum.“
Elíza segir að vinsældir lagsins „Ukulele
song for you“ og störf hennar með Trúbatrix
hópnum í ár hafi veitt henni innblástur og árið
hafi verið einkar gott og annasamt.
„Ég vonast svo til að koma plötunni út hérna í
Bretlandi næsta vor. Ég er búin að setja saman
band og við erum að bóka tónleika í febrúar og
mars. Útgáfutónleikar á Íslandi verða svo 9.
febrúar.“
Skýjum ofar
Hljómsveitin Árstíðir hefur verið
áberandi þetta árið hvað hljóm-
leikahald varðar og lög sveitarinnar
hafa fengið allnokkra spilun á út-
varpsstöðvum landsmanna. Á Þor-
láksmessukvöld efnir hljómsveitin
til hátíðartónleika í Fríkirkjunni í
Reykjavík. Hún flytur lög af nýút-
kominni breiðskífu sinni í nýjum út-
setningum auk vel valinna jólalaga í
félagi við góða vini en mörgum eru í
minni hátíðartónleikar Árstíða á
sama stað fyrir fyrir ári. „Allt er
hljótt“, nýtt jólalag Árstíða, verður
frumflutt á tónleikunum.
Árstíðir halda tónleika
í Fríkirkjunni
Sigríður Thorlacius & Heið-
urspiltar og Moses Hightower leiða
saman hesta sína á tónleikum á
Batteríinu í Hafnarstræti í kvöld.
Sigríður og Heiðurspiltar sendu
frá sér plötuna Á ljúflingshól á
árinu og verða þetta líklegast síð-
ustu tónleikar þeirra í dágóðan
tíma.
Kvartettinn Moses Hightower
var stofnaður vorið 2007 og sam-
anstendur af þeim Andra Ólafssyni,
Daníel Friðriki Böðvarssyni, Magn-
úsi Tryggvasyni Eliassen og Stein-
grími Karli Teague. Drengirnir
hafa lengi unnið hörðum höndum
að sinni fyrstu breiðskífu og er hún
væntanleg á markað á næsta ári.
Tónleikarnir í kvöld hefjast
klukkan 22 og er miðaverð 1.000
krónur.
Sigríður og Moses
Hightower á Batteríinu
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
JÓHANN Ævar Grímsson er ekki
eins þekktur og þeir Ólafur Ragnar,
Daníel og Georg Bjarnfreðarson en
þeir þekkjast þó býsna vel. Jóhann
hefur skrifað handritið að öllum
Vaktar-þáttaröðunum um þá félaga,
með leikstjóra og aðalleikurum, þ.e.
Næturvaktinni, Dagvaktinni og
Fangavaktinni og einnig kvikmynd-
inni Bjarnfreðarsyni sem verður
frumsýnd á annan í jólum. Bjarn-
freðarson er lokakaflinn í hinni
tragíkómísku sögu af kommúnist-
anum stórmennskubrjálaða, Georg
Bjarnfreðarsyni, sem Jón Gnarr hef-
ur túlkað með miklum tilþrifum, og
vinnufélögum hans. Í þeirri mynd er
kafað dýpra í sálarlíf Georgs, út-
skýringa leitað á því af hverju hann
er eins og hann er.
Af VHS-kynslóðinni
Blaðamaður sló á þráðinn til Jó-
hanns og spurði hann fyrst að því
hvenær áhugi hans fyrir hand-
ritaskrifum hefði kviknað.
„Ég er af þessari VHS-kynslóð,
vídeóleigan var barnfóstran mín.
Svo fattar maður þegar maður eldist
að það er fólk sem gerir þetta, býr til
þessi verk. Mig langaði til þess að
verða hluti af því,“ svarar Jóhann.
– Nú hafa þættirnir um vaktirnar
slegið rækilega í gegn. Vinsældirnar
hljóta að hafa farið fram úr vonum?
„Algjörlega og sérstaklega hvað
við höfum náð að gera stóra sögu
saman. Í blaðsíðum talið er þetta
rétt rúmlega þúsund blaðsíður, þ.e.
Næturvakt, Dagvakt, Fangavakt og
Bjarnfreðarson. Þegar við byrjuðum
átti þetta að vera ein sería en þökk
sé frábærum viðtökum hefur þetta
vaxið og vaxið.“
Jóhann segir handritaskrifin hafa
farið þannig fram að þeir Ragnar
hafi skrifað fyrsta uppkast að hand-
riti og svo kasti þeir og leikarar á
milli sín hugmyndum, reyni að eiga
nægilega mikið efni að moða úr. Allt
saman sé lesið yfir og það mörgum
sinnum, handritið slípað til þar til
allir eru sáttir við söguþráðinn. Eftir
það taki við spunaferli leikstjóra og
leikara og allt endi svo í handriti.
Plús, mínus og einhver á milli
Ragnar átti upphaflegu hugmyndina
að Næturvaktinni, að leiða saman
þessar þrjár ólíku persónur. „Það er
einn kommúnisti, einn kapítalisti og
svo einhver í miðjunni,“ útskýrir Jó-
hann. Persónurnar hafi svo mótast í
samstarfi við leikarana.
– Nú eru þetta býsna kunnuglegir
karakterar, jafnvel klisjukenndir.
„Það er ofsalega þægilegt að
vinna út frá klisjunni, alla vega að
mínu mati. Það er miklu skemmti-
legra að skoða klisjuna, taka hana og
fara með hana eins langt að kjarn-
anum og þú getur og gefa henni
betri og meiri dýpt. Þannig færðu
persónur sem er auðveldara að
tengja við en á sama tíma þurfa þær
ekkert að vera tvívíðar eða einfald-
ar,“ segir Jóhann. Georg og Ólafur
séu tvær ólíkar öfgar og unnið út frá
því. Plús og mínus með jafnvægi á
milli, þ.e. hinum lífsleiða Daníel.
– Af hverju er Georg þungamiðjan
í kvikmyndinni?
„Hann er dýnamískasti karakter-
inn og ótrúlega margar baksögur
sem við áttum um hann, þökk sé
Jóni Gnarr að stærstum hluta,“ seg-
ir Jóhann. Georg hafi verið þunga-
miðja þáttaraðanna.
„Ég held að það sé fullt til af Ólöf-
um og Georgum einhvers staðar,“
svarar hann, spurður að því hvort
Georg og Ólafur séu séríslenskar
manngerðir.
Úr Bjarnfreðarsyni Maðurinn sem þjóðin elskar að hata, túlkaður af Jóni Gnarr, með Ólafi Ragnari, sem Pétur Jóhann Sigfússon leikur.
Inn að kjarna klisjunnar
Sögunni af Georg, Ólafi Ragnari og Daníel lýkur í kvikmyndinni Bjarnfreðarson
Georg er dýnamískasti karakterinn að sögn eins handritshöfunda
Jóhann Ævar Grímsson Sjálfmenntaður í handritaskrifum og vel skólaður
eftir að hafa skrifað þrjár þáttaraðir um Georg og félaga og eina kvikmynd.
Morgunblaðið/Heiddi
Jóhann er sjálfmenntaður
í handritaskrifum, fór að
stunda þau á mennta-
skólaárunum en eldskírn-
ina hlaut hann þegar hann
skrifaði handritið að
Astrópíu með Ottó Geir
Borg. Ragnar Bragason,
leikstjóri Vaktar-
þáttaraðanna og Bjarn-
freðarsonar, átti upp-
haflega að leikstýra
Astrópíu en á endanum var það
Gunnar B. Guðmundsson sem leik-
stýrði henni. Samstarf Ragnars og
Jóhanns hefur hins vegar
verið afar farsælt og
þættirnir um Georg og fé-
laga notið afar mikilla
vinsælda hér á landi. Jó-
hann hefur einnig skrifað
handrit fyrir gamanþætt-
ina Stelpurnar og Ára-
mótaskaupið 2007. Það
má því segja að Jóhann
sé orðinn ágætlega skól-
aður í að skrifa gam-
ansöm handrit, þó svo dramatík sé
vissulega að finna í harmsögunni
af Georg Bjarnfreðarsyni.
Astrópía var eldskírnin
Ragnhildur Stein-
unn í Astrópíu.
Gaman Elíza naut þess að vinna nýju plötuna sína.
44 Menning