Morgunblaðið - 22.12.2009, Síða 46
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2009
Áhugafólk um myndlist geturglaðst yfir óvenjumörgumbókum sem skolar á land
með þessu flóði. Tvær þessara bóka
fjalla um menn sem grípa inn í um-
hverfið með listsköpun sinni,
reyndar á afar ólíkan hátt. Ann-
arsvegar er þetta bók um Pál á
Húsafelli og hinsvegar bók um Dav-
íð Örn Halldórsson. Páll hefur
klappað ásjónur á björg en bak-
grunnur Davíðs Arnar er í vegg-
málverkinu. Þetta eru ólíkir menn,
nær tuttugu ár á milli þeirra, en list
beggja hefur notið talsverðrar hylli
á liðnum árum.
Bókin um Pál á Húsafelli er gefinút í tilefni fimmtugsafmælis
hans í mars, en þá var haldin um-
fangsmikil sýning á portrettum
hans í Reykjavík Art Gallery. Páll
er sannkallað náttúrubarn, eins og
glögglega birtist í list hans. Bæj-
argilið í Húsafelli, þar sem björgin
stór og smá liggja á víð og dreif, er
hluti af vinnustofu hans á staðnum.
Bæjargilið er í bókinni sagt „goð-
orð“ Páls og er það vel til fundið,
enda hefur hann klappað ófáar
myndir út úr þessum björgum, og
margar gefur að líta þar á staðnum.
Eins og sæmir yfirlitsriti má sjá
allar tegundir listsköpunar Páls í
bókinni; auk höggmyndanna eru
þarna málverk, mörg af sveit-
ungum hans, þrykk og teikningar.
Einnig myndir af Páli með vinum
og kunningjum, til að mynda hljóm-
sveitinni Sigur Rós að leika á
steinahörpu listamannsins.
Forvitnilegt er að skoða myndir í
bókinni sem sýna hvernig Páll vinn-
ur verk úti í samræðu við umhverf-
ið. Í Draugaréttinni á Húsafelli, þar
sem séra Snorri á Húsafelli á að
hafa kveðið niður 71 draug, gægj-
ast ásjónur nokkurra þeirra upp. Í
Bæjargilinu eru þeir hlið við hlið
þríhöfða þurs og nafnlaus söngvari,
og á Kaldadal hjó Páll ásjónu Bachs
í gráan stein eftir að þeir félagar
hann og Thor Vilhjálmsson höfðu
verið þar uppljómaðir á ferð.
Á meðal Páll á Húsafelli vinnurúti í náttúrunni rekur Davíð
Örn Halldórsson annars konar
fleyga í umhverfi sitt. Bókin með
verkum hans nefnist Ofhlæði og í
henni eru birt málverk eftir Davíð
Örn, sem kom fram sem listamaður
fyrir áratug, en einnig myndir af
verkum sem hann hefur unnið á
byggingar heima og erlendis, auk
áhugaverðra ljósmynda sem sýna
hvernig málverk listamannsins fara
inni á heimilum og skrifstofum.
Báðir listamennirnir vinna á
áhugaverðan hátt með inngrip í
umhverfið. Davíð Örn segir að
formin „flæði áfram,“ en hann not-
ar lakkbrúsa og pensla og formin
vella fram í oft áhrifaríku „of-
hlæði.“ Efniviðurinn setur Páli oft
meiri skorður enda annað að
höggva í grjót en úða litnum á
veggi eða viðarplötur. Báðir eru þó
listamennirnir á áhugaverðri og
persónulegri braut eins og bæk-
urnar um þá sýna.
efi@mbl.is
Listaverkin felld inn í umhverfið
»Efniviðurinn seturPáli oft meiri skorður
enda annað að höggva í
grjót en úða litnum á
veggi eða viðarplötur.
Steinsmiður Páll á Húsafelli við eitt verka sinna með Bæjargilið í baksýn.
AF LISTUM
Einar Falur Ingólfsson
Rozamira festival Veggverk eftir
Davíð Örn í Moskvu, 2007.
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
SÝND Í REGNBOGANUM SÝND Í HÁSKÓLABÍÓISÝND Í REGNBOGANUM
HHHH
„Ein magnaðasta
mynd ársins”
S.V. - MBL
HHHH
Roger Ebert -
Chicago Sun-Times
HHHH
„Þrekvirki!”
- HS, Mbl
ÍSLENSKT TAL
JÓLAMYNDIN 2009
Missið ekki af þessari byltingarkenndu stórmynd
frá James Cameron leikstjóra Titanic.
TILNEFNINGAR
TIL GO LDEN GL OBE VERÐLAUNA
BESTA MYND - BESTI LEIKSTJÓRI - BESTA TÓNLIST - BESTA LAG
BÍÓUPPLIFUN ALDARINNAR!
SÝND Í SMÁRABÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI
Avatar 2D kl. 5 - 6:45 - 8:30 - 10:10 B.i.10 ára
Saw 6 kl. 8 - 10 B.i.16 ára
Bad Lieutenant kl. 5:30 - 10:30 B.i.16 ára
Julie and Julia kl. 5:20 - 8 LEYFÐ
Avatar kl. 6 - 8 - 10 B.i. 10 ára
9 kl. 6 B.i. 10 ára
Avatar 3D kl. 2:40 (950kr) - 6 - 9:20 B.i.10 ára
Avatar 2D kl. 2:40 - 6 - 9:20 B.i.10 ára
Anvil kl. 4 - 6 B.i.7 ára
Whatever Works kl. 5:50 - 8 B.i.7 ára
A Serious Man kl. 3:30 - 10:10 B.i.12 ára
Desember kl. 8(700kr) - 10(700kr) B.i.10 ára
600 kr.
Gildir ekki
á 3D né í L
úxus
600 kr.
600 kr.
600 kr.
600 kr.
LANGSTÆRSTA
BÍÓOPNUN ÁRSINS!
Þú færð 5%
endurgreitt
í Háskólabíó
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og HáATH. ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIÐ GILDIR EKKI Í BORGARBÍÓI, LÚXUS, 3-D MYNDIR OG ÍSLENSKAR MYNDIR