Morgunblaðið - 22.12.2009, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2009
JÓLAGJÖFIN Í ÁR
FÆST Í MIÐASÖLUM
GJAFAKORT
SAMBÍÓANNA James Levine; Kathleen Kim, Anna Netrebko,Ekaterina Gubanova, Kate Lindsey, Joseph Calleja, Alan Held
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
„MÉR fannst bara svo leiðinlegt úr-
val af plötum á landinu og var orð-
inn þreyttur á að vera vælandi yfir
að það væri aldrei neitt til svo ég
ákvað að reyna að gera betur sjálf-
ur,“ segir Ingvar Geirsson sem opn-
aði í haust plötubúðina Lucky Re-
cords á Hverfisgötu 82. Plötusala
Ingvars hófst þó ekki þar því það
eru rúm tvö ár síðan hann byrjaði að
selja vínilplötur í Kolaportinu og
hefur hann staðið vaktina þar um
hverja helgi síðan. „Ég verð áfram
með plötur í Kolaportinu um helgar,
en ég ákvað að opna búð líka því ég
er bara með tólf sölutíma á helgi í
Kolaportinu,“ segir Ingvar. Hann
kaupir plöturnar aðallega frá
Bandaríkjunum og Bretlandi auk
þess að kaupa plötusöfn af fólki hér
heima.
„Ég er með tuttugu til þrjátíu þús-
und plötur í búðinni, gamlar og nýj-
ar. Ég var einmitt með einn hérna í
morgun til aðstoða mig við að fara í
gegnum allar jólaplöturnar og okk-
ur telst til að ég sé með um sex
hundruð jólaplötur til sölu. Þær
verða bara uppi í desember, fara í
geymslu hina mánuði ársins,“ segir
Ingvar.
Fleira er þó til sölu í Lucky Re-
cords en vínilplötur. „Ég er líka með
helling af notuðum og nýjum geisla-
og mynddiskum og plakötum.“
Geisladiskar óspennandi
Áhugi Ingvars á vínilplötum er
mikill og hefur geisladiskurinn aldr-
ei náð að fella hana af stalli.
„Mér fannst geisladiskarnir aldr-
ei spennandi eða eigulegir. Svo er
meiri stemning í því að setja vín-
ilplötu á fóninn, það er einhvers
konar athöfn. Það er líka oft mikil
hönnun í kringum hverja plötu og
gaman að skoða plötuumslögin sem
eru oft frábærlega vel gerð á tíma
þar sem ekki var tölvutækni eins og
nú,“ segir Ingvar sem hlustar sjálf-
ur aðallega á djasstónlist, sál, fönk,
hipphopp, reggí og heimstónlist.
Hann segir viðskiptavini búð-
arinnar á öllum aldri og að svo virð-
ist sem margir eigi plötuspilara
ennþá. „Það fást líka nýir plötuspil-
arar víða í raftækjabúðum, þeir eru
ekkert útdauðir,“ segir Ingvar og
hlær.
Morgunblaðið/Heiddi
Úrvalið Í búðinni eru mörgþúsund plötur af öllum gerðum.
Lukkulegur
vínilplötusali
Ingvar Geirsson selur gamlar og nýjar
vínilplötur á Hverfisgötunni
Aldrei fundist geisladiskar spennandi
Morgunblaðið/Heiddi
Lukkulegur Ingvar hefur selt vínilplötur í nokkur ár í Kolaportinu og opn-
aði í haust búð á Hverfisgötunni.