Morgunblaðið - 31.12.2009, Side 8

Morgunblaðið - 31.12.2009, Side 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Agnesi Bragadóttur agnes@mbl.is RÁÐHERRANN var að vísa til eig- in frásagna um að hann hefði ekki haft undir höndum þau gögn sem til- greind væru í bréfi bresku lög- mannsstofunnar Mishcon de Reya. Samkvæmt samtölum við þing- menn á Alþingi í gær kom strax í fyrrakvöld fram sú afstaða fjöl- margra þingmanna, hvort sem var í stjórnarliði eða stjórnarandstöðu, að Svavar Gestsson, sem var formaður samninganefndar Íslands um Ice- save, hefði í raun gert hárrétt, þegar hann ákvað að lögmannsstofan breska myndi fjarlægja ákveðin gögn úr skýrslu sinni, áður en hún yrði afhent Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra hinn 31. mars sl. Það virðist vera staðföst sannfær- ing þeirra þingmanna og ráðherra sem starfað hafa með Össuri Skarp- héðinssyni í gegnum tíðina, að það sé afskaplega hæpinn leikur að trúa ráðherranum fyrir viðkvæmum upp- lýsingum, því hann eigi svo bágt með að þegja yfir slíkum upplýsingum. Dónaskapur Þingmenn sem rætt var við telja að það sé með miklum ólíkindum hvernig spilast hafi úr Icesave- deilum á þingi undanfarna daga. Svavar Gestsson hafi sýnt fjár- laganefnd dónaskap, þegar hann baðst undan að mæta á fund nefnd- arinnar og svara spurningum fjár- laganefndarmanna. Þess í stað hafi hann bitið hausinn af skömminni með því að senda nefndinni yfirlýs- ingu, þar sem segir m.a.: „Í bréfi lögmannsstofunnar Mishcon de Reya er fullyrt að ég hafi lagt svo fyrir sem formaður samninganefnd- arinnar að ekki mætti sýna utanrík- isráðherra Össuri Skarphéðinssyni hluta af kynningu lögmannsstof- unnar í Icesave-málinu þar sem mál- ið væri of viðkvæmt. Einhverjir hafa kosið að skilja þetta svo að ég hafi ekki treyst utanríkisráðherra. Ekk- ert er fjær sannleikanum og bið ég fjárlaganefnd í allri vinsemd að hug- leiða hvaða markmiðum ég hefði náð með því að leyna mikilvægum gögn- um fyrir utanríkisráðherra.“ Fjárlaganefndarmaður spurði mig í gær, hvers vegna Svavar segði ekki beinum orðum að hann hefði ekki lagt svo fyrir að gögnin væru fjarlægð. Hann svaraði spurningu sinni sjálfur með því að segja: „Vit- anlega gerði hann það ekki, vegna þess að hann getur ekki leyft sér að ljúga á prenti að nefndinni. Af sömu sökum hefur hann ekki treyst sér til þess að koma fyrir okkur í nefndinni og svara spurningum okkar og vit- anlega liggur það í augum uppi, að þessi gamli refur í pólitík, Svavar Gestsson, treystir Össuri ekki yfir þveran þröskuld og það vantraust byggir hann á áralangri reynslu.“ Svavar lagði áherslu á leynd Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á þingi í gær að í tölvupóstum kæmi fram að Svavar Gestsson, formaður Icesave- samninganefndarinnar, hefði lagt mikla áherslu á að það sem sneri að hugsanlegri málsókn gegn breska fjármálaeftirlitinu færi hljótt. „Það rímar ágætlega við það sem áður hefur komið fram að þetta atriði hafi verið tekið út úr kynningu um þetta mál í vor.“ „Hafði Svavar t.d. samráð um það við Steingrím J. Sigfússon fjár- málaráðherra að nauðsynlegt væri að leyna þessum viðkvæmu upplýs- ingum fyrir utanríkisráðherra?“ spurði stjórnarandstöðuþingmaður og velti því fyrir sér hvaða afleið- ingar það kæmi til með að hafa fyrir stjórnarsamstarfið, ef á daginn kæmi, að slíkt samráð hefði átt sér stað. Nú hlyti að hrikta í stoðum stjórnarsamstarfsins. Þá skellihló þingheimur allur  Þverpólitísk samstaða á Alþingi um að Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra sé illa treystandi fyrir viðkvæmum leyndarmálum  Því hafi Svavar Gestsson gert rétt í því að fjarlægja viðkvæm gögn Össur Skarphéðinsson utanrík- isráðherra uppskar bæði hlátra- sköll og framíköll úr þingsal í fyrrakvöld, þegar hann sagði úr ræðustól á Alþingi: „Ég hef alltaf sagt satt í þessu máli.“ FULLTRÚAR í sveitarstjórn Borgarbyggðar sem unnið hafa saman í svokall- aðri „þjóðstjórn“ undanfarna mán- uði ákváðu í dag að slíta því sam- starfi í ljósi þess að ekki hefur náðst samkomulag um áherslur við vinnu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2010. Þjóðstjórnin svokallaða var mynd- uð um samstarf Borgarlistans, Sjálf- stæðisflokks og Framsóknar. Að sögn Björns Bjarka Þorsteinssonar, oddvita D lista og forseta fráfarandi sveitarstjórnar, hefur samstarfið gengið vel hingað til en þegar kom að stórum ákvörðunum nú hafi of mikið skilið á milli til að unnt væri að halda samstarfinu áfram. Niður- skurður í menntamálum var ásteyt- ingarsteininn. „Það voru fyrst og fremst fræðslumálin, sem eru stærstu mál- in hjá okkur. Við höfum verið að ræða framtíð skólanna og ekki verið sammála um áherslur. Þegar það er komin þjóðstjórn á annað borð þá er mikilvægt að ná sem bestum takti og það tókst ekki í þessu máli svo þetta var niðurstaðan.“ Björn Bjarki vill ekkert segja um framhaldið en segir menn vera að hlera hver annan um stöðu mála og vonast sé til að það ráðist sem fyrst hvernig næsta stjórn verður mynd- uð. „Menn þurfa að geta starfað saman og það var ekki hægt lengur, en þetta var engin bomba, þetta var allt á rólegum nótum.“ „Þjóðstjórn“ Borgar- byggðar sprungin Borgarnes Þingmenn sem rætt var við sögðu að það væri kostulegt að skoða dagsetningar í sambandi við upp- ljóstranir Mishcon de Reya, því samkvæmt upplýsingum Bretanna hafi kynningarfundurinn, sem Öss- ur segist ekki hafa verið á, átt sér stað á hóteli Össurar í London hinn 31. mars sl. Gerð er grein fyrir yf- irlýsingu Mishcon de Reya í frétt hér í blaðinu í dag, en þar kemur m.a. fram að Kristján Guy Burgess, Svavar Gestsson og Gunnlaugur Erlendsson voru viðstaddir kynn- ingarfund lögmannsstofunnar á hóteli utanríkisráðherrans, ásamt Össuri Skarphéðinssyni, að sjálf- sögðu. Það var nákvæmlega einni viku eftir að Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður Vinstri grænna, kom fram í um- ræðuþættinum Zetunni á mbl.is þar sem efast var um að Svavar hefði nægilega reynslu af alþjóð- legum samningum til að stýra verkinu. Svör Steingríms voru skýr: „Ég treysti Svavari Gestssyni. Ég veit að hann er að gera góða hluti og ég lofa þér því að það er í sjón- máli að hann landi – og hans fólk – glæsilegri niðurstöðu fyrir okkur.“ Einn þingmaður sagði: „Það tók ráðherrann að vísu ekki marga daga að draga úr glæsileika þess samnings sem var þá í burðar- liðnum, en hann situr nú samt sem áður uppi með þessi ótrúlegu orð sín og þau verða lengi í minnum höfð.“ Ráðherrann sat kynningarfund Svavar Gestsson Össur Skarphéðinsson Steingrímur J. Sigfússon ÞAÐ er ekkert samræmi á milli frásagna lögmannsstofunnar Mishcon de Reya og Svavars Gestssonar, án þess þó að Svavar hafni því að hafa látið fjarlægja gögn úr skýrslunni áður en hún var afhent utanríkisráðherra. Hver segir satt? Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is BRESKA lögmannsstofan Mishcon de Reya sendi fjárlaganefnd Alþing- is nýtt bréf í gær. Fram kemur að á fundi í London 26. mars hafi verið Svavar Gestsson, sendiherra og for- maður Icesave-nefndarinnar, Hug- inn Þorsteinsson frá fjármálaráðu- neytinu, Áslaug Árnadóttir frá Innistæðutrygg- ingasjóði, lög- mennirnir Mike Stubbs og John Young frá Mis- hcon de Reya, einnig lögmenn- irnir Gunnlaugur Erlendsson og Rebecca Stubbs. „Á þessum fundi bað Svavar Gestsson, sem skjólstæðingur okkar, um að ákveðnar upplýsingar yrðu fjarlægðar úr endurbættri útgáfu af kynningu sem gera átti handa Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra fyrir fund hans með starfsbróður sínum, David Miliband, utanríkis- ráðherra Bretlands,“ segir í bréfinu. Össur hafi fengið kynninguna í hendur á hádegisverðarfundi í Rib Room á Jumeria Carlton Tower-hót- eli 31. mars. Viðstaddir hafi verið auk Össurar þeir Kristján Guy Burgess, aðstoðarmaður ráðherra, Svavar, Huginn Þorsteinsson, Stubbs og Gunnlaugur Erlendsson. Huginn segist hins vegar ekki hafa verið á þessum fundi. „Við vitum ekki hvort Svavar deildi einhverntíma innihaldinu í kynningu okkar (sem dagsett var 26. mars) með einhverjum öðrum en þeim sem viðstödd voru fundinn þennan dag,“ segir Mike Stubbs. „Það getum við ekki vitað en bend- um hins vegar á að í yfirlýsingu Svavars er ekkert sagt um það hvort hann hafi látið utanríkisráðherra þessar upplýsingar í té eða Alþingi.“ Ásakanir um lygar? Svavar hefur vísað frásögn Mish- con á bug og Stubbs var í símtali spurður hvort stofan gæti setið und- ir því að skjólstæðingur sakaði hana nánast um lygar. „Ég held að hann geri það ekki,“ svaraði Stubbs. „Ef þú lest vel það sem hann segir og það sem við segj- um er um tvennt ólíkt að ræða. Hann segir hvergi að hann hafi ekki gefið okkur fyrirmæli um að breyta gögn- unum. Fjórir lögmenn voru við- staddir þennan fund, tveir utanað- komandi og tveir frá okkar fyrirtæki. Við getum útvegað eið- svarinn vitnisburð frá þeim. Ég dreg ekki í efa heiðarleika Svavars og segi mjög skýrt að hann sagði ekki við mig að hann myndi halda þessum upplýsingum frá utan- ríkisráðherra. En hann vildi ekki að þær færu í kynninguna handa hon- um. Og hann sagðist vera eini mað- urinn sem væri með afrit af kynning- unni [frá 26. 3.], hann hefði ekki látið fleiri hafa þau. Ég gagnrýni hann ekki heldur virði hann fyrir þetta.“ Stubbs segir hins vegar að starfs- menn Mishcon álíti að bæði Huginn og Áslaug hafi tekið afrit af skjalinu. Lögmannsstofan stendur fast á sínu um fundinn með Svavari Rib Room Salurinn á Jumeria Carlton Tower-hótelinu í London þar sem fulltrúar Mishcon hittu Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra 31. mars. Sendiherra hælt fyrir þagmælsku um málshöfðun Mike Stubbs Mike Stubbs, fulltrúi bresku lög- mannsstofunnar Mishcon de Reya, fékk í gær skeyti frá starfsmanni Alþingis, honum var þakkað fyrir þau tölvuskeyti um Icesave-málið sem hann hefði þegar áframsent en síðan sagði: „Ég var að tala við forseta Alþingis og það hefur verið staðfest að við munum ekki fara fram á fleiri áframsend tölvuskeyti frá Mishcon de Reya.“ Rætt var við Stubbs í síma síð- degis í gær og hann spurður hvort lögmannsstofan væri búin að senda öll gögn sem tengdust Ice- save til fjárlaganefndar og hvað honum fyndist um skeytið frá Al- þingi. „Það er fínt, ég er bara lögmaður og fer bara eftir þeim fyrirmælum sem ég fæ. Við vorum beðnir á þriðjudag að útvega öll gögn okkar [um Iceasve] sem ekki væru á ís- lensku vefsíðunni [www.island.is],“ segir Stubbs. „Við gerðum það, strituðum þrjú við þetta og fundum alls 55 skjöl sem við sendum öll til Alþingis aðfaranótt miðvikudags.“ – Þannig að þau hafa fengið allt sem þið eigið sem snertir Icesave? „Nokkurn veginn. Ég get ekki fullyrt að allt sé í þessum gögnum en þau fengu svo sannarlega dá- góðan bunka af skjölum! Við fórum afar vandlega yfir þetta, bæði þau ráð sem við veittum og einnig skjöl sem við fengum frá íslensku samn- inganefndinni og hvort þau hefðu þegar birst á vefsíðunni.“ kjon- @mbl.is Alþingi vill ekki fleiri gögn frá Mishcon de Reya

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.