Morgunblaðið - 31.12.2009, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 31.12.2009, Blaðsíða 24
24 Stjórnmál MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2009 Á pólitíska sviðinu urðu stórtíðindi á árinu þeg- ar kom til stjórnar- skipta eftir mikil og al- menn mótmæli og síðan á ný þegar hrein jafnaðar- og félagshyggjustjórn hlaut braut- argegni í kosningum og tók við völdum í fyrsta sinn í sögu lýðveld- isins. Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs hefur unnið af einurð og festu eftir heilsteyptri efnahags- áætlun og ekki látið hnika sér af markaðri braut þótt á ýmsu hafi gengið. Jafnhliða þessu hefur stjórnin verið einhuga um að hrinda í framkvæmd miklum umbótum á mörgum sviðum opinbers reksturs og þjóðlífs. Ríkisstjórnin hefur beitt sér fyrir stefnubreytingu í skattamálum, jafnréttismálum og umhverfis- málum. Einnig hefur verið lögð áhersla á bætt stjórnkerfi og skipu- lag fjármálastofnana og nánara samstarf ríkis og sveitarfélaga. Ennfremur hefur Ísland sótt um að- ild að Evrópusambandinu. Ársins 2009 mun því sannarlega verða minnst sem árs umbreytinga við stjórn landsins. Við þessi áramót er mér hins- vegar efst í huga þakklæti til al- mennings í landinu. Styrkur ís- lensks samfélags hefur komið vel í ljós í skynsamlegum viðbrögðum fólks við efnahagserfiðleikum í kjöl- far gengishruns og falls bankanna. Við erum ung þjóð sem býr að ríku- legum auðlindum á landi og í sjó, góðu mennta- og heilbrigðiskerfi og við höfum sýnt fyrirhyggju með því að leggja til hliðar í lífeyrissjóði og séreignarsparnað. Við höfum því fullt afl til þess að takast á við þá tímabundnu erfiðleika sem við nú erum að ganga í gegnum. Ég fullyrði að á árinu 2009 hafa verið unnin fjölmörg afrek í við- brögðum við fjármálakreppunni – á heimilum við að ná endum saman, á vettvangi stjórnsýslunnar, við end- urreisn föllnu bankanna, í fyrir- tækjum sem eiga við ramman reip að draga og hjá hjálparsamtökum sem hafa létt undir með fólki í bráð- um vanda. Í þessum afrekum er meðal annars fólgin skýringin á því að okkur hefur gengið mun betur á árinu 2009 en spár gerðu ráð fyrir um síðustu áramót þegar vanda- málin virtust nánast óviðráðanleg. Með samtakamætti þjóðarinnar og vegna skynsamlegra og skil- virkra aðgerða stjórnvalda blasir nú við að efnahagssamdrátturinn verð- ur ekki jafnmikill í ár og í fyrstu var óttast. Útlit er fyrir að samdráttur- inn verði nærri 7,5%, en ekki 10,6% eins og spáð var. Þá var einnig spáð yfir 10% atvinnuleysi en nú stefnir það í að vera um 8%. Skuldir ríkis- sjóðs vegna bankahrunsins verða um 250 milljörðum króna minni en spáð var og halli ríkissjóðs á árinu verður umtalsvert minni en áður var reiknað með. Þegar þetta er rit- að hillir undir að Icesavedeilan, sem hvílt hefur þungt á þjóðinni, verið leidd til lykta en með því verður lagður grunnur að endurnýjuðu trausti Íslands á alþjóðavettvangi. Allt eru þetta ánægjuleg merki um að við séum á réttri leið og þrátt fyrir að fyrstu mánuðir ársins 2010 verði erfiðir teljum við að örlað geti á hagvexti að nýju strax upp úr miðju næsta ári. Ég vil nefna hér tíu atriði sem skipta miklu í þeim árangri sem náðst hefur á árinu og skila mun ávinningi á næstu miss- erum: 1. Staðið hefur verið að endurreisn bankanna á þann hátt að hægt hef- ur verðið að koma til móts við líf- vænleg fyrirtæki og bankastarfsemi hefur verið haldið gangandi. Hefði ríkið látið hina einkavæddu banka, sem tekið höfðu að láni sexfalda þjóðarframleiðslu Íslendinga, fara á hausinn án opinberra afskipta hefði það kallað yfir landsmenn miklar hörmungar. Þegar ný stjórn tók við voru kallaðir til verka innlendir og erlendir sérfræðingar til að stjórna viðræðum stjórnvalda við kröfu- hafa. Sátt hefur náðst við kröfuhaf- ana og mun eiginfjárframlag rík- isins til nýju bankanna nema 135 milljörðum króna. Upphaflega var gert ráð fyrir að þetta framlag yrði 385 milljarðar króna og er það því 250 milljörðum minna en ætlað var. Skuldir ríkissjóðs munu minnka sem þessu nemur og ríkissjóður þar af leiðandi spara veruleg vaxtagjöld sem ella hefðu fallið til. 2. Dregið hefur verið verulega úr skuldaaukningu ríkissjóðs. Um síð- ustu áramót var hallareksturinn 218 milljarðar en fjárlög ársins 2010 gera ráð fyrir 99 milljarða halla. Fjárlögin sem Alþingi hefur sam- þykkt eru í fullu samræmi við þá stefnu ríkisstjórnarinnar að skila af- gangi árið 2013. Þá verður hafist handa við að greiða niður skuldir ríkissjóðs. 3. Samkeppnishæfni innlendrar framleiðslu hefur batnað verulega og það hefur gefið sjávarútvegi, ferðaþjónustu og hátæknifyrir- tækjum færi á að halda sjó og jafn- vel sækja fram og afla mikilvægra gjaldeyristekna. En ávinningur af lágu gengi krónunnar er skamm- góður vermir og á komandi árum þarf að tryggja atvinnulífi og heim- ilum efnahagslegan stöðugleika sem hægt er að reiða sig á. Umsókn Íslands að Evrópusambandinu er skref í þá átt. 4. Ríkisstjórnin opnaði fyrir þann möguleika að fólk gæti tekið út sér- eignarsparnað sinn og nýtt hann í yfirstandandi þrengingum. Lands- menn hafa leyst til sín um 15 millj- arða króna úr séreignarsparnaði eftir skatta. Þetta er um 1% af landsframleiðslu og er sambærileg fjárhæð og ríkissjóðir ýmissa ann- arra landa hafa veitt út í atvinnu- lífið til að örva hagkerfin. 5. Ríkisstjórnin hefur beitt virkum vinnumarkaðsúrræðum þar sem m.a. hefur verið lögð mikil áhersla á að fólk noti tímann meðan spurn eftir vinnuafli er lítil til þess að endurhæfa sig og stunda bóknám eða starfsnám. Lánasjóður náms- manna hefur m.a. verið efldur í því skyni. 6. Aðgerðir vegna skuldavanda heimila og fyrirtækja, ekki síst greiðslujöfnun, greiðsluaðlögun og frystingar á uppboðum hafa komið mörgum til góða. Enn er þó talið að um 12% heimila eigi við erfiðan skuldavanda að etja. Framlög til vaxtabóta voru einnig aukin um 4,5 milljarða króna á árinu. 7. Seðlabankinn hefur frá því í mars lækkað stýrivexti sína úr 18% niður í 10% og hafa þeir ekki verið lægri í fjögur ár. Líklegt er að vext- ir og verðbólga haldi áfram að lækka til hagsbóta fyrir almenning og atvinnulíf. Skuldatryggingarálag á ríkið hefur á árinu fallið úr 1.000 punktum niður í 400 og segir það sína sögu. 8. Stöðugleikasáttmálinn frá miðju sumri hefur tryggt vinnufrið og markvissa samvinnu við úrlausn verkefna á vinnumarkaði, ekki síst til þess að auka vinnu og efla vel- ferð. 9. Skuldir þjóðarbúsins út á við eru vissulega miklar að vöxtum eða um 320% af landsframleiðslu í lok árs- ins 2010. Þar af eru um 260% skuld- ir einkaaðila sem ekki eru á ábyrgð ríkisins. Erlendar skuldir ríkis og sveitarfélaga, sem nema um 60% af landsframleiðslu, munu fara hratt minnkandi á næstu árum og það ræður úrslitum. 10. Skattabreytingar ríkisstjórnar- innar fela það í sér að snúið er frá forréttindastefnu fyrri ára og jöfn- unaráhrif skatta- og bótakerfisins eru þess í stað aukin verulega. Óhjákvæmilegt er að hækka skatta samhliða því sem umsvif hins opin- bera verða minnkuð til þess að ná tökum á vanda ríkissjóðs. Það er sláandi að auknar skattaálögur á einstaklinga nema sambærilegri upphæð og vextir og verðbætur af framlagi ríkissjóðs vegna þeirra mistaka sem gerð voru í Seðlabank- anum í aðdraganda bankahrunsins. Á stjórnartíma Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, frá 1995 til 2006, var skattbyrðin flutt í stórum stíl af hærri tekjuhópum yfir á lægri tekjuhópa og meðaltekju- hópa. Þetta, ásamt frystingu skatt- leysismarka og rýrnun barnabóta og vaxtabóta, dró stórlega úr tekju- jöfnunarhlutverki skatta- og bóta- kerfisins og jók ójöfnuðinn í sam- félaginu. Nú hefur stefnunni verið snúið við. Ég þakka landsmönnum fyrir dugnað og þrautseigju á árinu 2009 og óska þeim árs og friðar. Megi árið 2010 verða ár uppgjörs, rétt- lætis og sátta, upphafsár nýrrar sóknar til sjálfbærra og stöðugra lífskjara eins og þau gerast best. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar Þjóðin sýnir styrk sinn Nægur kraftur „Styrkur íslensks samfélags hefur komið vel í ljós í skynsamlegum viðbrögðum fólks við efnahags- erfiðleikum í kjölfar gengishruns og falls bankanna,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. – meira fyrir áskrifendur ÍS L E N S K A /S IA .I S /S A L 48 08 9 11 .0 9 Sunnudagsmogginn er borinn út með Morgunblaðinu á laugardögum og kemur þér strax í sunnudagsskap. Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift eða í síma 569 1122 Sunnudagur tvo daga í röð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.