Morgunblaðið - 31.12.2009, Qupperneq 24
24 Stjórnmál
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2009
Á
pólitíska sviðinu urðu
stórtíðindi á árinu þeg-
ar kom til stjórnar-
skipta eftir mikil og al-
menn mótmæli og
síðan á ný þegar hrein jafnaðar- og
félagshyggjustjórn hlaut braut-
argegni í kosningum og tók við
völdum í fyrsta sinn í sögu lýðveld-
isins. Ríkisstjórn Samfylkingar og
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs hefur unnið af einurð og
festu eftir heilsteyptri efnahags-
áætlun og ekki látið hnika sér af
markaðri braut þótt á ýmsu hafi
gengið. Jafnhliða þessu hefur
stjórnin verið einhuga um að hrinda
í framkvæmd miklum umbótum á
mörgum sviðum opinbers reksturs
og þjóðlífs.
Ríkisstjórnin hefur beitt sér fyrir
stefnubreytingu í skattamálum,
jafnréttismálum og umhverfis-
málum. Einnig hefur verið lögð
áhersla á bætt stjórnkerfi og skipu-
lag fjármálastofnana og nánara
samstarf ríkis og sveitarfélaga.
Ennfremur hefur Ísland sótt um að-
ild að Evrópusambandinu. Ársins
2009 mun því sannarlega verða
minnst sem árs umbreytinga við
stjórn landsins.
Við þessi áramót er mér hins-
vegar efst í huga þakklæti til al-
mennings í landinu. Styrkur ís-
lensks samfélags hefur komið vel í
ljós í skynsamlegum viðbrögðum
fólks við efnahagserfiðleikum í kjöl-
far gengishruns og falls bankanna.
Við erum ung þjóð sem býr að ríku-
legum auðlindum á landi og í sjó,
góðu mennta- og heilbrigðiskerfi og
við höfum sýnt fyrirhyggju með því
að leggja til hliðar í lífeyrissjóði og
séreignarsparnað. Við höfum því
fullt afl til þess að takast á við þá
tímabundnu erfiðleika sem við nú
erum að ganga í gegnum.
Ég fullyrði að á árinu 2009 hafa
verið unnin fjölmörg afrek í við-
brögðum við fjármálakreppunni – á
heimilum við að ná endum saman, á
vettvangi stjórnsýslunnar, við end-
urreisn föllnu bankanna, í fyrir-
tækjum sem eiga við ramman reip
að draga og hjá hjálparsamtökum
sem hafa létt undir með fólki í bráð-
um vanda. Í þessum afrekum er
meðal annars fólgin skýringin á því
að okkur hefur gengið mun betur á
árinu 2009 en spár gerðu ráð fyrir
um síðustu áramót þegar vanda-
málin virtust nánast óviðráðanleg.
Með samtakamætti þjóðarinnar
og vegna skynsamlegra og skil-
virkra aðgerða stjórnvalda blasir nú
við að efnahagssamdrátturinn verð-
ur ekki jafnmikill í ár og í fyrstu var
óttast. Útlit er fyrir að samdráttur-
inn verði nærri 7,5%, en ekki 10,6%
eins og spáð var. Þá var einnig spáð
yfir 10% atvinnuleysi en nú stefnir
það í að vera um 8%. Skuldir ríkis-
sjóðs vegna bankahrunsins verða
um 250 milljörðum króna minni en
spáð var og halli ríkissjóðs á árinu
verður umtalsvert minni en áður
var reiknað með. Þegar þetta er rit-
að hillir undir að Icesavedeilan, sem
hvílt hefur þungt á þjóðinni, verið
leidd til lykta en með því verður
lagður grunnur að endurnýjuðu
trausti Íslands á alþjóðavettvangi.
Allt eru þetta ánægjuleg merki
um að við séum á réttri leið og þrátt
fyrir að fyrstu mánuðir ársins 2010
verði erfiðir teljum við að örlað geti
á hagvexti að nýju strax upp úr
miðju næsta ári. Ég vil nefna hér
tíu atriði sem skipta miklu í þeim
árangri sem náðst hefur á árinu og
skila mun ávinningi á næstu miss-
erum:
1. Staðið hefur verið að endurreisn
bankanna á þann hátt að hægt hef-
ur verðið að koma til móts við líf-
vænleg fyrirtæki og bankastarfsemi
hefur verið haldið gangandi. Hefði
ríkið látið hina einkavæddu banka,
sem tekið höfðu að láni sexfalda
þjóðarframleiðslu Íslendinga, fara á
hausinn án opinberra afskipta hefði
það kallað yfir landsmenn miklar
hörmungar. Þegar ný stjórn tók við
voru kallaðir til verka innlendir og
erlendir sérfræðingar til að stjórna
viðræðum stjórnvalda við kröfu-
hafa. Sátt hefur náðst við kröfuhaf-
ana og mun eiginfjárframlag rík-
isins til nýju bankanna nema 135
milljörðum króna. Upphaflega var
gert ráð fyrir að þetta framlag yrði
385 milljarðar króna og er það því
250 milljörðum minna en ætlað var.
Skuldir ríkissjóðs munu minnka
sem þessu nemur og ríkissjóður þar
af leiðandi spara veruleg vaxtagjöld
sem ella hefðu fallið til.
2. Dregið hefur verið verulega úr
skuldaaukningu ríkissjóðs. Um síð-
ustu áramót var hallareksturinn 218
milljarðar en fjárlög ársins 2010
gera ráð fyrir 99 milljarða halla.
Fjárlögin sem Alþingi hefur sam-
þykkt eru í fullu samræmi við þá
stefnu ríkisstjórnarinnar að skila af-
gangi árið 2013. Þá verður hafist
handa við að greiða niður skuldir
ríkissjóðs.
3. Samkeppnishæfni innlendrar
framleiðslu hefur batnað verulega
og það hefur gefið sjávarútvegi,
ferðaþjónustu og hátæknifyrir-
tækjum færi á að halda sjó og jafn-
vel sækja fram og afla mikilvægra
gjaldeyristekna. En ávinningur af
lágu gengi krónunnar er skamm-
góður vermir og á komandi árum
þarf að tryggja atvinnulífi og heim-
ilum efnahagslegan stöðugleika
sem hægt er að reiða sig á. Umsókn
Íslands að Evrópusambandinu er
skref í þá átt.
4. Ríkisstjórnin opnaði fyrir þann
möguleika að fólk gæti tekið út sér-
eignarsparnað sinn og nýtt hann í
yfirstandandi þrengingum. Lands-
menn hafa leyst til sín um 15 millj-
arða króna úr séreignarsparnaði
eftir skatta. Þetta er um 1% af
landsframleiðslu og er sambærileg
fjárhæð og ríkissjóðir ýmissa ann-
arra landa hafa veitt út í atvinnu-
lífið til að örva hagkerfin.
5. Ríkisstjórnin hefur beitt virkum
vinnumarkaðsúrræðum þar sem
m.a. hefur verið lögð mikil áhersla á
að fólk noti tímann meðan spurn
eftir vinnuafli er lítil til þess að
endurhæfa sig og stunda bóknám
eða starfsnám. Lánasjóður náms-
manna hefur m.a. verið efldur í því
skyni.
6. Aðgerðir vegna skuldavanda
heimila og fyrirtækja, ekki síst
greiðslujöfnun, greiðsluaðlögun og
frystingar á uppboðum hafa komið
mörgum til góða. Enn er þó talið að
um 12% heimila eigi við erfiðan
skuldavanda að etja. Framlög til
vaxtabóta voru einnig aukin um 4,5
milljarða króna á árinu.
7. Seðlabankinn hefur frá því í
mars lækkað stýrivexti sína úr 18%
niður í 10% og hafa þeir ekki verið
lægri í fjögur ár. Líklegt er að vext-
ir og verðbólga haldi áfram að
lækka til hagsbóta fyrir almenning
og atvinnulíf. Skuldatryggingarálag
á ríkið hefur á árinu fallið úr 1.000
punktum niður í 400 og segir það
sína sögu.
8. Stöðugleikasáttmálinn frá miðju
sumri hefur tryggt vinnufrið og
markvissa samvinnu við úrlausn
verkefna á vinnumarkaði, ekki síst
til þess að auka vinnu og efla vel-
ferð.
9. Skuldir þjóðarbúsins út á við eru
vissulega miklar að vöxtum eða um
320% af landsframleiðslu í lok árs-
ins 2010. Þar af eru um 260% skuld-
ir einkaaðila sem ekki eru á ábyrgð
ríkisins. Erlendar skuldir ríkis og
sveitarfélaga, sem nema um 60% af
landsframleiðslu, munu fara hratt
minnkandi á næstu árum og það
ræður úrslitum.
10. Skattabreytingar ríkisstjórnar-
innar fela það í sér að snúið er frá
forréttindastefnu fyrri ára og jöfn-
unaráhrif skatta- og bótakerfisins
eru þess í stað aukin verulega.
Óhjákvæmilegt er að hækka skatta
samhliða því sem umsvif hins opin-
bera verða minnkuð til þess að ná
tökum á vanda ríkissjóðs. Það er
sláandi að auknar skattaálögur á
einstaklinga nema sambærilegri
upphæð og vextir og verðbætur af
framlagi ríkissjóðs vegna þeirra
mistaka sem gerð voru í Seðlabank-
anum í aðdraganda bankahrunsins.
Á stjórnartíma Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks, frá 1995 til
2006, var skattbyrðin flutt í stórum
stíl af hærri tekjuhópum yfir á
lægri tekjuhópa og meðaltekju-
hópa. Þetta, ásamt frystingu skatt-
leysismarka og rýrnun barnabóta
og vaxtabóta, dró stórlega úr tekju-
jöfnunarhlutverki skatta- og bóta-
kerfisins og jók ójöfnuðinn í sam-
félaginu. Nú hefur stefnunni verið
snúið við.
Ég þakka landsmönnum fyrir
dugnað og þrautseigju á árinu 2009
og óska þeim árs og friðar. Megi
árið 2010 verða ár uppgjörs, rétt-
lætis og sátta, upphafsár nýrrar
sóknar til sjálfbærra og stöðugra
lífskjara eins og þau gerast best.
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar
Þjóðin sýnir styrk sinn
Nægur kraftur „Styrkur íslensks samfélags hefur komið vel í ljós í skynsamlegum viðbrögðum fólks við efnahags-
erfiðleikum í kjölfar gengishruns og falls bankanna,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
– meira fyrir áskrifendur
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/S
A
L
48
08
9
11
.0
9
Sunnudagsmogginn er borinn út með
Morgunblaðinu á laugardögum
og kemur þér strax í sunnudagsskap.
Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift
eða í síma 569 1122
Sunnudagur
tvo daga í röð