Morgunblaðið - 31.12.2009, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 31.12.2009, Qupperneq 30
30 Stjórnmál MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2009 S íðustu misseri hafa verið lands- mönnum erfið. Engu er líkara en að örlaganornir hafi sameinast um að gera hlutskipti landsmanna sem erf- iðast, þótt líklegt verði að teljast að ástæður erfiðleikanna séu fremur af þessum heimi, en öðrum. Nánast allir eru áhyggjufullir, sumir örvænt- ingarfullir, flestir reiðir og margir ráðalausir. Eðlilegt er að mikill tími hafi farið í að átta sig á kringumstæðum og stöðu, bæði persónulegri stöðu einstaklinga sem hver skoðar fyrir sig og svo á stöðu þjóðarbúsins. Hvar sem menn eru staddir í því uppgjöri er hinsvegar ljóst að nauð- synlegt er að hefja endurreisn á mörgum sviðum, sem ekki hefur tekist hjá núverandi ríkisstjórn. Stjórninni hefur tekist margt illa, en hins veg- ar eru verkefnin tröllaukin og ráðherrum og rík- isstjórn nokkur vorkunn við lausn þeirra. Ég hef veitt þeim harða andstöðu í „Icesave-málum“ sem lengi hafa verið í meðförum þingsins og þeg- ar þetta er skrifað er óvíst með afgreiðslu máls- ins. Ég vil segja með skýrum hætti, þannig að ekki verði misskilið, að ég mun aldrei una því ranglæti sem í samningunum felst og berjast gegn þeim, hvenær og hvar sem ég fæ því við komið. Athygli vekur að mjög stór mál, Icesave og umsókn um ESB, hafa verið til afgreiðslu hjá rík- isstjórninni undir grunsemdum um að raunveru- legur þingmeirihluti sé ekki til staðar og mikil misklíð ríki milli stjórnarþingmanna. Kannanir sýna sömuleiðis andstöðu mikils meirihluta þjóð- arinnar við bæði málin. Umsókn um ESB er nú í umsóknarfarvegi og má búast við samningsniðurstöðum fyrst eftir eitt og hálft til tvö ár. Við framsóknarmenn höf- um sett mjög skýr skilyrði og fyrirvara sem við vonum að virtir verði í umsóknarferlinu og samn- ingunum og sannarlega verður þeim skilyrðum haldið skilmerkilega til haga þegar við leggjum mat á samningsdrögin um leið og metinn verður mögulegur ávinningur. Aldrei hefur verið mikilvægara en einmitt nú að halda fullum og óskertum yfirráðum yfir fiski- miðum okkar og fiskistofnum, en sjávarútvegur mun leika lykilhlutverk við uppbyggingu efna- hagslífsins. Landbúnaði má heldur ekki fórna í ESB-samningum, enda vorum við rækilega minnt á þýðingu hans og hlutverk þegar raunveruleg hætta skapaðist á því að innflutningur til landsins stöðvaðist snemma í kreppunni og fæðuöryggi okkar var ógnað. Landbúnaðurinn er sömuleiðis svo nátengdur sögu okkar, menningu, bók- menntum og lífsstíl að við höfum skyldur við hann og dreifbýlið í landinu. Þinghaldið hefur einkennst af djúpum skoðana- ágreiningi og hörðum deilum, ekki aðeins milli stjórnar og stjórnarandstöðu heldur einnig milli stjórnarliða. Lengi mun lifa í minningunni ræða Ögmundar Jónassonar gegn samþykkt Icesave og má spyrja sig hvort hann var ekki hinn raunverulegi tals- maður meirihluta þingflokks Vg. Þrátt fyrir þessar hörðu deilur er mikilvægt að þingmenn nái saman um mikilvæg verkefni sem óunnin eru og skipta munu sköpum um framhald og framvindu næstu ár. Framsóknarmenn eru til reiðu að vinna með öðrum stjórnmálaflokkum í öllum brýnum málum af heiðarleika og eindrægni. Ég vil nefna þrjú atriði sem enga bið þola. 1.Endurreisn trúverðugleika, trausts og sáttar í samfélaginu. Í samfélaginu ríkir reiði og tortryggni. Samfara efnahagslegu hruni hefur einnig hrunið traust á stjórnmálamönnum, stofnunum, stjórnsýslu og fjármálalífi. Endurnýjun trausts og trúverð- ugleika er brýn. Þá endurreisn verðum við að hefja á grunni skýrslu rannsóknarnefndar Alþing- is. Þingnefndin sem við henni tekur verður að skoða vandlega orsakir hrunsins og draga lærdóm af mistökum. Í framhaldinu þarf að bregðast við með hertum reglum og nýrri löggjöf eftir því sem við á. Þeir sem brotið hafa lög og reglur verða að svara til saka og þingnefndin verður að búa svo um hnúta að það gerist svikalaust. Enginn má njóta næðis fyrir viðskipta, vina- eða flokkstengsl, en forðast verður að ofsækja fólk fyrir sömu ástæður. Nauðsynlegt er að sæmileg sátt ríki í samfélag- inu en sátt er traustur grunnur bata og framfara. Skýrslan sem birt verður 1. febrúar mun ekki verða eins og allir vilja enda er slíkt útilokað. Óhjá- kvæmilega verður niðurstaðan umdeild en upphaf- ið að sáttinni þarf einhvers staðar að vera og ég sé ekki annað tækifæri betra. Vinnum vel úr skýrsl- unni og látum hana marka nýtt upphaf og endur- reisn með gagnsæi og heiðríkju í samfélaginu. 2.Endurreisn heimila Mörg heimili í landinu eru að sligast undir drápsklyfjum skulda og sum eru þegar komin á hliðina. Verst settar eru skuldugar barna- fjölskyldur, fólk á besta aldri sem stofnaði til skulda við kringumstæður og kjör sem hafa gjör- breyst vegna þróunar sem þetta fólk ber enga ábyrgð á. Margt af þessu fólki eygir enga von um að standa í skilum. Um er að ræða þúsundir fjöl- skyldna sem má telja kjarna samfélagsins. Fólk sem við verðum að treysta á að vinni landinu gagn um ókomin ár. Raunar er endurreisn og efnahags- bati óhugsandi án þessa fólks. Spyrja má hverjir eiga að standa undir hagvexti og uppbyggingu sem er okkur lífsnauðsynleg. Betri fjárfesting fyrir framtíðina finnst ekki en að leiðrétta skuldir þess- ara fjölskyldna og gera þeim kleift að standa í skil- um. Fórnarlömb kringumstæðna eiga ekki að þurfa að upplifa sig sem beiningafólk, þegar beð- ið er um réttláta leiðréttingu. Miklu fremur er um skipbrotsmenn að ræða, sem Íslendingar eru vanir að hlúa vel að. Flytji stór hluti þessa hóps úr landi til að flýja ósanngirnina verða framtíðarmöguleikar landsins okkar miklum mun lakari. Ekki fást þá heldur greiddar skuld- irnar sem fólkið skilur eftir, svo það er allra hag- ur að finna úrlausn og er það best gert með af- skrift og leiðréttingu lána eins og við framsóknarmenn höfum talað fyrir. Við munum fljótlega birta nýjar tillögur í þessu efni byggðar á fyrri hugmyndum. 3. Endurreisn atvinnulífs Ríkisstjórninni er að mistakast að mestu að blása nýju lífi í lamaðar atvinnugreinar lands- manna. Viðmót ríkisstjórnar gagnvart nýjum aðilum sem vilja fjárfesta er fjandsamlegt og ef þeir koma ekki að lokuðum dyrum þá mæta þeim tilkynningar um hækkaða skatta hvert sem litið er. Hagvöxturinn sem er undirstaða efnahagslegs bata og framfara er hvergi sjáan- legur. Eðlilega bankafyrirgreiðslu fyrir fyr- irtæki er erfitt að fá, jafnvel fyrir vel rekin fyr- irtæki í góðum rekstri. Engin heildarstefna finnst gagnvart atvinnulífinu og lafhræddum skilanefndum var látið eftir að sinna fyrir- tækjum, án hvatningar eða stefnumörkunar stjórnvalda. Nefndirnar þorðu fyrir vikið ekki að aðhafast nokkuð sem kallað gæti á gagnrýni og umræðu, því var lítið gert þegar mest lá við. Atvinnuleysi er enn mjög mikið og verður áfram nema fyrirtækin og atvinnulífið rétti úr kútnum. Skattastefna ríkisstjórnar gegn fólki og fyrirtækjum er glórulaus og einkennist af skiln- ingsleysi á einföldustu lögmálum efnahagsmála. Nauðsynlegt er að gera skipulegt átak við að koma atvinnulífinu í gang og það gerist ekki með ofursköttum, heldur með hvatningu í gegn um skattkerfið (styrkja – ekki kyrkja). Framsóknarflokkurinn er tilbúinn að vinna með öðrum stjórnmálaflokkum, jafnt í stjórn og stjórnarandstöðu, við að ná víðtækri sátt um brýnustu úrlausnarefnin. Látum verða kaflaskil á nýju ári og tökum saman höndum og göngum einbeitt og samstiga til móts við bjartari tíma. „Vilji er allt sem þarf“ – og þrautseigja. Ég óska landsmönnum öllum árs og friðar á nýju ári. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins Endurreisn Morgunblaðið/Kristinn Hvatning „Nauðsynlegt er að gera skipulegt átak við að koma atvinnulífinu í gang og það gerist ekki með ofursköttum, heldur með hvatningu í gegn um skattkerfið (styrkja – ekki kyrkja).“ Á rið sem er að renna sitt skeið hef- ur verið markað óvissu og ótta en er jafnframt ár sigra og breyttra áherslna sem þó rista ekki nægi- lega djúpt til að hér verði það uppgjör og uppstokkun sem almenningur kall- aði eftir í janúarbyltingunni. Mörg reginmistök hafa verið gerð vegna skorts á heildrænni yfir- sýn um hvert við ætlum að stefna sem þjóð. Sú ríkisstjórn sem stjórnar landinu hefur mörg góð gildi og verkefni á sinni stefnuskrá. En skjaldborgin um heimilin varð að gjaldborg um heimilin. Verkefni ríkisstjórnarinnar sem snúa að heimilunum í landinu og lýðræðisumbótum hafa fallið í skugga inngönguferlis í ESB, þau hafa fallið í skugga afskipta AGS af ríkisfjár- málum og stórkostlegri blóðtöku velferðarkerf- isins. Aldrei hefur nein ríkisstjórn svikið kjós- endur sína jafn rækilega og sú sem situr nú á valdastólum. Hvar er stjórnlagaþingið, per- sónukjörið, þjóðaratkvæðagreiðslurnar, opna stjórnsýslan, gegnsæið og skjaldborgin um heimili landsins? Ég auglýsi eftir hinni nor- rænu velferðarstjórn sem þjóðin kaus til að standa vörð um velferðarkerfið. Engar breytingar Þó að inn á þing hafi fylkt liði 27 nýir þing- menn hefur ekki neitt breyst. Þingið er enn al- gerlega valdalaus stofnun. Sú staðreynd að ekkert þingmannafrumvarp á möguleika á að fá hefðbundna þinglega afgreiðslu nema með samþykki ráðherra segir allt sem segja þarf, skiptir þar engu hvort það er þingmanna- frumvarp frá stjórnarþingmönnum. Það er ábyrgð allra þingmanna að endurheimta völdin frá framkvæmdavaldinu. Við búum ekki við þingræði heldur fullkomið ráðherraræði. Það er enginn munur á þeim leiðtogum sem nú ríkja og þeim sem sátu á valdastólum fyrir hrun. Fólk gengur inn í björg ráðuneyta og út koma umskiptingar. Kannski er eitthvað bogið við stjórnsýsluna. Kannski þarf að stokka upp í embættismannakerfinu áður en breytinga er að vænta. Þegar skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis verður birt í lok janúar næstkomandi eigum við að nota tækifærið til að gera víð- tækar breytingar á stjórnsýslunni. Þar hefur oft farið meira fyrir kunningja- og flokks- tengslum en fagmennsku. Endurreisa þarf Þjóðhagsstofnun og tryggja að þeir sem ábyrgð bera á hruninu með vítaverðu gáleysi eða vilja fái að axla ábyrgð á gjörðum sínum. Til þess að ráðamönnum takist það mikla verk er mikilvægt að þjóðin og fjölmiðlar veiti ráð- herrum og þingheimi stöðugt aðhald. Leynihjúpnum svipt burt Við í Hreyfingunni höfum leitast við að færa til hefðaþröskulda inni á þingi. Reynt eftir bestu getu að svipta burt leyndarhjúpnum sem hefur einkennt þingið fyrir hrun með því að fjalla á opinskáan hátt um þingstörfin. Það er mikilvægt að almenningur sé meðvitaður um hvernig hann getur átt aðkomu til áhrifa eins og sérhagsmunaaðilar hafa haft um langa hríð, til dæmis þegar kemur að nefndastörfum þingsins. Það voru meðal annars þessar furðu- legu hefðir sem komu okkur úr stöðu þess ríka, í stöðu þriðja heims ríkis á örskömmum tíma. Hefðir sem svæfa þingræðið og nánast öll þingmannafrumvörp. Frumvörpin vakna ekki til lífsins nema að þingmaðurinn verði ráðherra. Það verður að rjúfa tengslin á milli löggjafar- og framkvæmdavalds. Þingmenn eiga að afsala sér þingsæti þegar þeir taka við ráðherrastól. Okkur í Hreyfingunni hefur tek- ist að ná nokkrum mikilvægum áföngum í að breyta því hvernig þingið starfar eins og t.d. þegar það hafðist að fá í gegn samþykkt fyrir því að þingmannafrumvarp Eyglóar Harð- ardóttur um þak á verðtryggingu yrði tekið fyrir í febrúar 2010 sem hluti af samkomulagi um þinglok fyrir áramót. Í sumar tókst Hreyf- ingunni að hafa milligöngu um þverpólitíska samvinnu í kringum Icesave-fyrirvarana og við höldum fast í þá stefnu okkar að vinna út frá málefnum en ekki flokkslínum. Leyndarhyggja og tortryggni Sú launung og sá óheiðarleiki sem einkennt hefur eitt stærsta mál Íslandssögunnar hefur með sanni verið þinginu akkilesarhæll. Það hef- ur grafið undan því trausti sem almenningur sýndi nýrri ríkisstjórn sem tók við á vordögum. Svo virðist sem ríkisstjórnin hangi aðeins saman á óttanum um að Sjálfstæðisflokkurinn komist aftur til valda. Því má segja að Sjálfstæðisflokk- urinn stjórni enn landinu. Í því skjóli hefur nú- verandi ríkisstjórn komist upp með dæmalaus afglöp og kosningaloforðasvik sem um akkorð væri að ræða. Það er varla hægt að kalla rík- isstjórnina vinstristjórn nema af einskærri ósk- hyggju. Það er ekki hægt að framkvæma vinstristefnu undir handleiðslu Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins. Gjáin á milli þings og þjóðar hefur að- eins stækkað. Vantraustið á þingið eykst dag frá degi. Það er ekki langt í að upp úr sjóði. Til þess að traust skapist verður almenningur að upplifa að þeir sem ábyrgð bera á hruninu verði látnir axla ábyrgð áður en of langt um líður og að al- mannahagsmunir verði teknir framyfir sérhags- muni. Samábyrgð þingheims forsenda endurreisnar Á tímum sem þessum er mikilvægt að ráða- menn komi sér upp úr hefðbundnum skot- gröfum og vinni saman að úrlausnum. Við höf- um verið talsmenn þess að sett verði saman þjóðstjórn sem ynni saman út frá lista málefna sem forusta þjóðstjórnar kæmi sér saman um að væru grundvallaratriði til endurreisnar. Ef næsta ár á að verða í þágu endurreisnar verð- ur að endurskoða hvort þörf sé á áframhald- andi skuldsetningu með aðstoð AGS og vina okkar í norðri. Það þarf að endurskoða hvort þetta er rétti tíminn til að ganga í ESB. Við sem eigum að vera varðhundar almennings í þingsölum verðum að tryggja að samhæfðar aðgerðir til aðstoðar heimilunum í landinu verði að veruleika með því t.d. að leiðrétta stökkbreyttan höfuðstól lána. En það þarf líka að verða samkomulag um að standa vörð um það velferðarkerfi sem við búum við og tryggja að fyrirtæki verði ekki kæfð í flóknu og oft á tíðum óréttlátu skattakerfi. Það er kominn tími á að hugsa út fyrir rammann og skoða með heiðarleika og einurð hvernig samfélagi við viljum búa í eftir 10 ár. Skoða hvernig arfleifð okkar á að vera gagnvart komandi kynslóðum. Því þurfum við að passa upp á sameiginlegar auðlindir þjóðarinnar sem um fjöregg sé að ræða, því það er á tímum sem þessum sem hrægammarnir sveima og sæta færis ef við sýnum veikleika. Endurreisnin getur ekki orð- ið að veruleika nema við notum önnur vinnu- brögð en hafa einkennt yfirstandandi þing. Ábyrgð þjóðarinnar Ég á mér bernskan draum í brjósti, þann draum að meðal þjóðarinnar kvikni þörf og löngun til að taka þátt í að móta það samfélag sem hana dreymir um að búa í. Veruleikinn er sá að enginn annar er fær um að koma í fram- kvæmd draumum þeim er lifa innra með manni en sá sem dreymir. Það að afsala sér völdunum til að hafa áhrif á samfélagið nema á fjögurra ára fresti er ábyrgðarlaust og þessu hugarfari þarf að breyta. Það er markmið Hreyfingarinnar að skapa þær aðstæður með lagasetningu sem til þarf til að almenningur hafi betri verkfæri til að stjórna því hvernig samfélag hann býr við. Þjóðaratkvæða- greiðslur, persónukjör þvert á flokka og stjórnlagaþing er meginforsenda til þess. Síðan er það auðvitað þjóðarinnar að axla þá ábyrgð að nýta sér þau verkfæri og aðstoða okkur við að þrýsta á að af þessu verði sem allra fyrst, um þetta þarf að nást þverpólitísk sátt eigi síð- ar en strax. Birgitta Jónsdóttir, formaður þingflokks Hreyfingarinnar Hvar er norræna velferðarstjórnin? Morgunblaðið/Árni Sæberg Almenningur fái áhrif „Það að afsala sér völdunum til að hafa áhrif á samfélagið nema á fjögurra ára fresti er ábyrgðarlaust og þessu hugarfari þarf að breyta.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.