Morgunblaðið - 31.12.2009, Side 32

Morgunblaðið - 31.12.2009, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2009 Það verðurekki umárið 2009 sagt að það hafi verið með öllu viðburðasnautt. Ríkisstjórn sprakk á limminu í upphafi árs, þótt allur vindur hafi ver- ið úr henni farinn miklu fyrr. Forsetinn, með flokkssystkinum sínum í stjórnarflokkunum tveim- ur, samþykkti skipun minnihlutastjórnar án þess að leita fyrst að starfhæfri meirihluta- stjórn, eins og honum bar þó venjuhelguð skylda til. Sú stjórn starfaði í skjóli Framsóknarflokks og mis- notaði það skjól frá fyrsta degi, eins og fram hefur komið hjá formanni þess flokks. Hrein vinstristjórn komst til valda í kosn- ingum sem fram fóru þeg- ar kjósendur voru enn í losti vegna þeirra atburða sem orðið höfðu haustið áður. Eingöngu við slík skilyrði er grundvöllur fyrir slíkri stjórnarmynd- un. Það hefur sagan sýnt og staðfest. Talsmenn þeirrar stjórnar hafa réttilega bent á að þeir hafi fengið flókin og vandasöm úrlausnarefni í fangið. Það er hverju orði sannara. En þeir hafa gert þau úrlausnarefni verri með hverjum degi sem stjórnin hefur starf- að. Strauss-Khan, fram- kvæmdastjóri Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins, stað- festi í bréfi í upphafi árs, sem fyrir liggur, að áætl- un stjórnvalda um endur- uppbyggingu gengi vel og óskaði þeim sem hlut áttu að máli sérstaklega til hamingju með það. Hann staðfesti jafnframt að annar áfangi áætlunar- innar yrði samþykktur í febrúar. Svo kom vinstri- stjórnin í tveimur áföng- um og hófst handa um að- gerðir sem tafið hafa þær áætlanir mánuðum saman. Jafnframt var anað í plat- samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, þótt vitað væri að fyrir þeim væri ekki raunveru- legur meirihluti á Alþingi og alls ekki með þjóðinni. Samn- ingstilburðir um Icesave eru eitt- hvert versta klúður sem sést hefur í samskiptum Ís- lands við önnur ríki og eru þau vinnubrögð, kjarkleysi og ótti við að gæta hagsmuna sinnar eigin þjóðar orðin dýrt spaug og sést þó enn að- eins í toppinn á þeim ís- jaka. Stofnað hefur verið til tveggja nýrra banka á rústum hinna föllnu og veit enginn í raun hverju þar var klambrað upp. Þó blasir við að þeir sem eiga að hafa mest forsvar sem eigendur þar eru ekki að- ilar sem nokkur þjóð önn- ur myndi vilja hafa í slík- um hlutverkum. Svona mætti lengi áfram telja. Fall íslensku bankanna var auðvitað mikil raun fyrir þjóð sem hefur haft skamman tíma til að byggja upp sitt innra kerfi og efnislega auðlegð. Þó hafði þannig verið í haginn búið að hún hafði burði til að bregðast við. En hún hefur verið ein- dæma óheppin með þá leiðsögn, sem hún hefur fengið þegar mest lá við. Það hefur aukið vanda hennar mjög og verður til þess að endurreisnin mun taka lengri tíma og verða þjóðinni þungbærari en þurfti. En nýtt ár mun þó fela í sér ný tækifæri. Allir góð- ir menn, konur og karlar – og þá er verið að vísa til þorra þessarar þjóðar – munu leggjast á eitt að rétta af kúrsinn, og vinna þjóðinni það sem þeir mega. Matthías Johannessen orti ljóð sitt Hrunadans- inn fyrir þremur árum. Lokaerindið er svona: Og þar sem völvan situr sé ég rísa í sjónhending þá jörð sem hvarf í mar og meðan nóttin fæðir ljós sem lýsa upp langan dag sem blæs í kulnað skar þá finnur þjóðin vonum sínum vísa vegferð inn í draum sem bíður þar, þá kemur fugl og flýgur þangað inn sem faðmur guðs er sól við náttstað þinn. Gleðilegt ár! Horft er til komandi árs sem tækifæris, árs sem færir von- unum viðspyrnu.} Vegferð vona F ringe heitir þáttur sem sýndur er á Stöð 2. Ég hef haft ótrúlega gam- an af því að horfa á hann, ekki af því að snilldar söguþráður hans hafi gripið mig heldur vegna þess hversu góð persónusköpunin er. Einvalalið leikara fer þarna með hlutverk fólks sem er, ja, yfirleitt, meira eða minna skringilega þenkj- andi, svo ekki sé meira sagt. Fringe hefur verið þýtt upp á íslensku Á jaðrinum. Víst er um það að söguþráðurinn jaðrar við að vera þess eðlis að venjulegt fólk geti ekki horft á þættina. Því- líkt endemis bull að það hálfa væri of mikið. Þess vegna er persónusköpunin svo mikilvæg. Ef áhorfandinn getur látið heillast af persónun- um er líklegra að hann horfi aftur og aftur. Einn samstarfsmaður minn sagði nýlega og andvarpaði um leið: Ef Steingrímur J. verður ekki kosinn maður ársins þá veit ég ekki hvað! Þvílíkur dugnaður í manninum. – Þessum orðum fylgdu síðan vangaveltur um hvers vegna svo lítið sæist til Jóhönnu okk- ar Sigurðardóttur forsætisráðherra. Þau tvö eru vissulega í stórum hlutverkum í því sjónarspili sem dynur yfir Íslend- inga af Alþingi þessa dagana. Persónusköpunar er auðvitað ekki þörf þegar horft er til daglegs lífs fólks. Þar eru raun- verulegar persónur á ferðinni. Svo er aftur spurningin hvort þessar persónur heilla þjóðina svo að hún endist til að fylgjast með sjónleiknum, styðja þá gjörninga sem framdir eru, hvað þá kjósa aðalleikarana mann/menn ársins. Stundum hefur flögrað að mér á þessu ári að gaman gæti verið að sjá hvernig Geir H. Haarde, fyrr- verandi forsætisráðherra og formaður Sjálf- stæðisflokksins, og Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, hefðu tekið á þeim málum sem hafa verið í brennidepli hjá okkur. Og, já, reyndar bara heyra hvað þeim finnst um það sem er að gerast þessa dagana. Nei eða já, af eða á? Jafnframt er gaman að velta því fyrir sér hvernig menn myndu hegða sér ef skipt yrði um hlutverk. Setjum Steingrím J. og Jóhönnu snöggvast í stjórnarandstöðu. Bara í huganum að sjálfsögðu. Hvað myndu þau segja ef þau væru í þeim sporum sem þingmenn Fram- sóknarflokks, Sjálfstæðisflokks, Hreyfingar og einn óháður eru? Og á sama hátt, smellum stjórnarandstöðuflokkunum í ríkisstjórn. Mér býður í grun að nákvæmlega sama staða væri uppi, nema hvað skipt hefði verið um persónur í aðalhlutverkunum. Á jaðrinum heitir raunveruleikaþátturinn sem sendur er út frá Alþingi þessa dagana og á jaðrinum er það sem borið er á borð fyrir þjóðina. Spurningin er bara: Lætur þjóðin heillast nógu mikið af aðalleikurunum til að vilja taka þátt í leiknum? Nei eða já, af eða á? Ég hef ekki hugmynd um það. Er afskaplega fegin að þurfa ekki að taka þessa ákvörðun. Ekki vildi ég vera í sporum aðalleikaranna, hvorki stjórn- ar né stjórnarandstöðu. Gleðilegt ár. sia@mbl.is Sigrún Ásmundar Pistill Á jaðri hins raunverulega Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Þrengingarnar hafa mikil áhrif á neysluna FRÉTTASKÝRING Eftir Skúla Á. Sigurðsson skulias@mbl.is M iðhópurinn, fólk milli þrítugs og fimm- tugs, er hlutfalls- lega að sækja í sig veðrið,“ segir Þór- arinn Tyrfingsson, framkvæmda- stjóri meðferðarsviðs sjúkrahússins Vogs. Hann kveður yngra fólk og eldra fólk nú minna hlutfall þeirra sem leita sér meðferðar á sjúkrahús- inu. Telur Þórarinn að efnahags- ástandið hafi sitt að segja um þessa breyttu dreifingu. „Þeir virðast vera undir meira álagi, aðstæður þeirra eru verri en oft áður því þeir sjá fram á eða hafa orðið fyrir fjárhagslegum áföllum,“ segir Þórarinn. Hann segir andlegan styrk margra hafa beðið hnekki eins og verða vill þegar harðnar í ári. „Þeir sem eru yngri eru svo ekki eins mikið að djöflast, þeir hafa ekki eins mikið af peningum milli hand- anna þannig að það er ekki eins mik- ið partí í þjóðfélaginu og var.“ Úr kókaíni í amfetamín í rítalín Áfengi hefur að sögn Þórarins verið í meiri sókn en önnur vímuefni. Hin sterkari efni telur hann ekki hafa haslað sér frekari völl á árinu. Árið 2008 sótti kókaín mjög á og náði nýjum hæðum en Þórarinn seg- ir það nú hafa vikið fyrir öðrum efn- um. „Menn virðast hafa fært sig úr þeirri neyslu yfir í amfetamín og þaðan yfir í rítalín. Fjárhagslegar aðstæður knýja fólk í annars konar neyslu þótt það neyti enn örvandi efna,“ segir Þórarinn en segir aukið álag á Vogi þó koma fyrst og fremst til af því að þeir sem eru í mikilli harðri neyslu hafi það verra en áður. Þrátt fyrir að lögregla hafi lagt hald á mikið af kannabisefnum í ár segir Þórarinn að á árinu hafi þeir sem áttu við kannabisfíkn að stríða ekki verið óvenjumargir. Verð á kannabisefnum hafi meira en tvö- faldast og ungt fólk, sem helst neytir efnanna, hafi hreinlega ekki efni á að verða sér úti um þau. „Og sam- kvæmt öllum sólarinnar merkjum ætti það að leiða til fækkunar nýrra kannabisfíkla.“ Eðlisbreytingar á þjónustunni Harðni enn frekar á dalnum á nýju ári má samkvæmt framanrit- uðu ætla að álag á sjúkrahúsið Vog og aðrar meðferðarstofnanir aukist enn frekar. Er því mikilvægt að stofnanirnar geti sinnt störfum sín- um og veitt þeim sem til þeirra leita þá meðferð sem þeir þarfnast. Frekar en aðrar stofnanir innan heilbrigðiskerfisins fer Vogur ekki varhluta af niðurskurðarhníf fjár- laga. Er fyrirséð að Vogi verði snið- inn þrengri stakkur en verið hefur og mun það hafa töluverð áhrif á starf sjúkrahússins. Ekki hefur enn verið útfært hvernig niðurskurð- inum verður mætt. „Við munum þurfa að gera eðlis- breytingar á okkar starfi, þjónustan breytist verulega og minnkar líka,“ segir Þórarinn. Segir hann að þetta sé óhjákvæmilegt en reynt verði eft- ir megni að veita þá þjónustu sem nauðsynleg er og leitast verði við að fara þær leiðir sem komi sjúkling- unum best. Morgunblaðið/Heiddi Vogur Sjúkrahúsið Vogur er stærsta meðferðarstofnun landsins og hefur allt frá því það hóf störf árið 1984 verið þungamiðjan í meðferðarstarfi SÁÁ. Á sama tíma og til stendur að skera niður fjárframlög til Vogs þarf fleira fólk á besta aldri að leita sér hjálpar. Efnahags- ástandið leggst þungt á eitur- lyfjafíkla og áfengissjúka. EKKI eru allir á eitt sáttir um for- varnagildi þess að auka álögur á áfengi og hækka þannig verð þess. Fyrstu ellefu mánuði þessa árs dróst áfengisneysla Íslendinga saman um 1,8% miðað við sömu mánuði ársins 2008. Má leiða líkum að því að þetta komi til af hærra áfengisverði og auknum álögum ríkisins. Síðast voru áfengisgjöld hækkuð hinn 22. desember og nam sú hækkun 10%. Gjarna er því haldið fram að áfengis- og vímuefnaneysla aukist í efnahagserfiðleikum og er oft bent á reynslu Finna af þessu upp úr 1990. Þá harðnaði á dalnum þar í landi og neyslan jókst. Því getur verið að lítil minnkun áfengisneyslu þýði ekki endilega að hækkanirnar hafi ekki forvarnagildi í sjálfu sér þar sem áhrif efnahags þjóðarinnar vegi upp þann neyslusamdrátt sem þær komi til leiðar. ÁLÖGUR TIL GÓÐS? ››

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.