Morgunblaðið - 31.12.2009, Síða 40

Morgunblaðið - 31.12.2009, Síða 40
40 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2009 ✝ Hrefna Her-mannsdóttir fæddist á Ysta-Mói í Fljótum 25. júní 1918. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar 19. des- ember sl. Foreldrar hennar voru hjónin Elín Lár- usdóttir, f. 27.2. 1890, d. 1980, og Hermann Jónsson, f. 12.12. 1891, d. 1974. Hrefna var fimmta í röðinni af níu systkinum, þau eru: Halldóra Margrét, f. 11.10. 1912, d. 2007, Lárus, f. 4.3. 1914, d. 2007, Níels Jón Valgarð, f. 27.7. 1915, d. 1997, Rannveig Elísabet, f. 12.11. 1916, d. 1981, Sæmundur Árni, f. 11.5. 1921, d. 2005, Har- aldur, f. 22.4. 1923, búsettur á Sauðárkróki, Georg, f. 24.3. 1925, d. 2009, og Björn Valtýr, f. 16.6. 1928, búsettur í Reykjavík. Eiginmaður Hrefnu var Jónas mann, f. 27.5. 1957, maki Ingi- björg Halldórsdóttir, börn þeirra eru a) Helga, maki Jón Salmanns- son, börn þeirra eru Hermann Ingi og Rut. b) Halldór, unnusta Jóhanna Gunnarsdóttir. Hrefna ólst upp á Ysta-Mói og gekk í skóla í Haganesvík. Hún fór síðar í Húsmæðraskólann Ósk á Ísafirði og var eftir það í vist hjá Jóni Gunnarssyni fram- kvæmdastjóra og Sigurlínu Björnsdóttur. Hún minntist veru sinnar hjá þeim hjónum alla tíð með mikilli hlýju. Hrefna og Jónas bjuggu allan sinn búskap í Siglu- firði, fyrst á Hvanneyrarbraut 2 og síðan Hverfisgötu 8, þar til þau fluttu í Skálarhlíð 1992. Hrefna var það sem kallað var heimavinn- andi húsmóðir, en saltaði síld öll sumur á síldarárunum. Hún var öflugur liðsmaður verkalýðshreyf- ingarinnar og gekk ung í Fram- sóknarflokkinn. Hún var varabæj- arfulltrúi og sat í ýmsum nefndum fyrir flokkinn og var öflugur tals- maður hans alla tíð. Útför Hrefnu verður gerð frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 2. janúar, og hefst athöfnin kl. 14. Björnsson frá Siglu- firði, f. 25.10. 1916, d. 9.9. 1993. Þau giftu sig 31.3. 1945. Börn Hrefnu og Jón- asar eru: 1) Björn, f. 4.6. 1945, fyrri maki Guðrún Margrét Ingimarsdóttir, f. 4.3. 1945, d. 30.4. 1976, barn þeirra Rakel, maki Thomas Flec- kenstein, börn þeirra eru María Lísa og Björn. Seinni maki Ásdís Kjartansdóttir, f. 4.1. 1948 frá Bakka á Seltjarnarnesi. 2) Guðrún, f. 25.2. 1948, barn hennar er Jóna Hrefna, sambýlismaður Böðvar Jónsson. 3) Halldóra Ing- unn, f. 2.5. 1955, maki Gunnar Trausti Guðbjörnsson, börn þeirra eru a) Edda Rósa, maki David Jar- ron, synir þeirra eru Adam og Andri. b) Bettý, maki Óðinn Gúst- afsson, dætur þeirra eru Arna Mjöll, Freyja og Embla. 4) Her- Hinn 12. desember sl. benti ekk- ert til annars en að Hrefna tengda- mamma myndi halda sín jól í faðmi ættingjanna á Sigló. Fjölskyldan var samankomin til að kveðja bróður hennar Georg. Kistulagning og jarð- arför frá Siglufjarðarkirkju og jarð- setning á Barði í Fljótum. Hrefna var þarna í essinu sínu umkringd ættingjum, gerði að gamni sínu og tók gullhömrum frá ungum frænk- um sínum. „Við ætlum að verða eins og þú þegar við verðum gamlar. Okkur finnst þú ekkert hafa breyst frá því við sáum þig fyrst.“ „Finnst ykkur ég alltaf hafa verið svona gömul og ljót?“ Þetta var dýrðar- dagur og ekki skemmdi veðrið fyrir. Hrefna var eins og drottning í ríki sínu. En um kvöldið kenndi hún sér þess meins er dró hana til dauða. Ég var 18 ára gamall slarksamur togarajaxl þegar ég hóf að draga mig eftir Dóru dóttur hennar og gerði henni barn ári seinna við lítil fagnaðarlæti húsfreyjunnar. En mér var í fyrstu tekið eins og hverju öðru hundsbiti en með dótturinni Eddu Rósu tókst mér að brjóta allar varnir á bak aftur og vinna mig að hjarta þessarar stórmerku konu og manns hennar Jónasar Björnssonar og öðlast vináttu þeirra og vonandi virðingu. Við Hrefna háðum marga hildina í pólitísku þrasi en gátum alltaf tekist í hendur að loknum deilum. Hún hafði ríka réttlætiskennd og gat skammað sína framsóknarmenn þegar þurfa þótti í þröngum hópi þó að ekki væri það eins oft ég hefði viljað! Jónas var aftur sjálfstæðis- maður af gamla skólanum og þegar eldrauður allaballinn blautur á bak við eyrun kastaði sínum sprengjum varð oft kátt í kotinu. Þau bjuggu sér glæsilegt heimili fyrst á Hvanneyrarbraut 2 og síðar Hverfisgötu 8 og þar bjuggum við Dóra fyrsta æviár dóttur okkar. Eft- ir að við fluttum frá Sigló árið 1977 styrktust böndin enn frekar og dótt- urdæturnar voru sendar til sumar- dvalar á Sigló. Í kringum Hverfis- götu 8 er alltaf sólarbirta í minningunni og margs er að minn- ast. Þau Jónas fluttu á Skálarhlíð ár- ið 1992 og bjó Hrefna þar af mynd- arskap eftir lát bónda síns árið 1993. Ég vil nota þetta tækifæri að þakka umhyggju þeirra í garð móður minnar Binnu Jóns sem oft dvaldi hjá þeim á Hverfisgötunni. Hrefna var félagsvera og undi sér best í glöðum hópi og var yfirleitt hrókur fagnaðarins. Henni þótti gaman að spila og er ég viss um að hennar verður sárt saknað úr brids- félaginu á Skálarhlíð. Hún smitaði dætur okkar af spilaáhuganum sem linntu ekki látunum eftir dvölina á Sigló fyrr en við höfðum spilað við þær rommý, ólsen og vist eins og amma Hrefna. Tengdamóðir mín vann óeigin- gjarnt starf fyrir Kvenfélagið Von og Slysavarnafélagið. Hún starfaði fyrir Framsóknarflokkinn á Siglu- firði og var varafulltrúi hans í bæj- arstjórninni og sat í nefndum á hans vegum um árabil. Hrefna og Jónas gengu í hjóna- band árið 1945 og nú 4 börnum, 6 barnabörnum og 9 barnabarnabörn- um síðar er komið að kveðjustund. Ég vil þakka Hrefnu samfylgdina, tryggðina og rausnarskap í vináttu og veitingum og velgjörð við mín börn og barnabörn. Gunnar Trausti. Föðuramma mín Hrefna Her- mannsdóttir, sterk og falleg kona, er látin. Hún var 91 árs. Amma Hrefna var alltaf svo hress að maður hafði lítið sem ekkert leitt hugann að því hvernig lífið yrði þegar hennar nyti ekki lengur við. Því kom fréttin af veikindum hennar hinn 12. desem- ber sl. eins og reiðarslag en nú þeg- ar hún hefur ákveðið að kveðja þennan heim þá er okkur sem eftir stöndum efst í huga þakklæti fyrir öll árin sem við fengum að vera með henni og þakklæti fyrir að hún skyldi ekki þurfa að þjást. Hjá ömmu var lífið annaðhvort „on“ eða „off“ og þannig fékk hún líka að kveðja. Fyrstu æviár mín bjuggu amma Hrefna og afi Jónas á Hverfisgöt- unni á Siglufirði og ég með mömmu og pabba á Háveginum. Ég gat horft út um stofugluggann heima og fylgst með lífinu á Hverfisgötunni og ef ég hafði valfrelsi um það hvort ég vildi frekar vera þar en heima hjá mér þá var valið yfirleitt Hverfisgöt- unni í vil. Fyrstu átta árin var ég eina barnabarnið og eina samkeppn- in sem ég háði þá um athygli ömmu og afa var við Hermann föðurbróður minn sem var átta árum eldri en ég. Árið 1975 greindist móðir mín með krabbamein sem varð hennar bana- mein og amma stóð við hlið hennar og okkar pabba eins og klettur. Amma lofaði mömmu að hún myndi gæta mín og amma stóð við sín lof- orð. Heimili ömmu og afa varð mitt annað heimili. Amma stóð vörð um sitt fólk. Síðasti dagurinn sem amma var keik og uppistandandi var laugar- dagurinn 12. desember, daginn sem hún fylgdi Georg, bróður sínum, til grafar í Fljótunum. Þennan dag, sem jafnframt var fæðingardagur pabba hennar, var hún umkringd ættmennum sínum í gullfallegu veðri í Fljótunum og hefur hlýr koss á kinn og faðmlag frá Mósurunum án efa verið henni gott veganesti inn í það sem hennar beið. Þá um kvöld- ið veiktist hún og viku síðar var hún öll. Amma átti yndislegt líf og sam- heldna og góða fjölskyldu. Hennar verður sárt saknað og vinkonur hennar í Skálarhlíð eiga án efa eftir að sakna góðs félaga. Amma hafði það mjög gott í Skálarhlíð og var dugleg að taka þátt í öllu félagsstarfi eldri borgara, hvort sem um var að ræða vatnsleikfimi, bingó, spil eða botsía, enda konan Siglufjarðar- meistari í botsía með pomp og pragt 90 ára gömul og í framhaldinu valin „maður mánaðarins“. Hún missti aldrei úr þátt af Leiðarljósi og fylgd- ist með bæjarmálum og pólitík alla tíð. Dyggari stuðningsmann Fram- sóknarflokksins var erfitt að finna. Landsfrægar smákökur, laufa- brauð, soðið brauð, kleinur, Þorláks- messuskata, sandwich, jólaís (ekki með sérríi!), jólakisan – svo margs er að minnast. Við sem eftir stönd- um reynum eftir mætti að miðla áfram til okkar barna þeim siðum ömmu sem við mátum svo mikils. Sofðu vel, amma mín, ég veit að þú ert í góðum höndum. Ég kveð þig í dag með söknuði en fyrst og fremst Hrefna Hermannsdóttir HINSTA KVEÐJA Lífsins ganga liðin er ljúft er þig að muna. Elsku Hrefna þakka þér þíða samveruna. Nanna frænka. ✝ Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langa- langafi, GRÍMUR BJARNI BJARNASON fyrrv. stöðvarstjóri Pósts og síma, Ólafsfirði, lést á Hornbrekku, Ólafsfirði, miðvikudaginn 23. desember. Útför hans verður frá Ólafsfjarðarkirkju mánu- daginn 4. janúar kl. 14.00. Hrafnhildur J. Grímsdóttir, Grímur Grímsson, Valgerður S. Ebenesardóttir, Sigurpáll Grímsson, Ingibjörg K. Geirmundsdóttir, Bjarni Kr. Grímsson, Brynja V. Eggertsdóttir, Sigurður Egill Grímsson, Katrín B. Bergmundsdóttir og fjölskyldur. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, MARÍA ÓLÍNA KRISTINSDÓTTIR, Árskógum 6, Reykjavík, lést á jóladag á Landspítalanum í Fossvogi. Gunnlaugur K. Hreiðarsson, Kolbrún Guðmundsdóttir, Helgi Már Hreiðarsson, Guðrún Ólöf Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, ÓLAFUR BENÓNÝ GUÐBJARTSSON, Mánagötu 27, Grindavík, lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi sunnudaginn 27. desember. Jarðarförin fer fram frá Grindavíkurkirkju þriðju- daginn 5. janúar kl. 14.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Björgunarsveitina Þorbjörn, Grindavík. Anna M. Kjartansdóttir, Heiðbjört Ólafsdóttir, Páll Ólafsson, Ómar Davíð Ólafsson, Berglind Benónýsdóttir, Alda, Anna Dís, Harpa Lind, Ólafur Reynir og Bríet María. ✝ INGA HREFNA BÚADÓTTIR hjúkrunarkona, Lynghaga 14, Reykjavík, lést þriðjudaginn 22. desember. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 5. janúar kl. 13.00. Hafsteinn Bjargmundsson, Ingibjörg Eir Einarsdóttir, Björn Einarsson, Kjartan Einarsson, Hrefna Einarsdóttir og fjölskyldur. ✝ Ástkær faðir okkar, sonur, fóstursonur, bróðir, mágur og frændi, DAÐI HREIÐARSSON, lést á líknardeild Landspítalans, Kópavogi, miðvikudaginn 30. desember. Anton Örn Daðason, Viktor Guðni Daðason, Daðey Steinunn Daðadóttir, Birgir Tómasson, Gerður Hreiðarsdóttir, Sigurður Ingi Sigurðsson, Hanna Kristín Birgisdóttir, Fjóla Björk Birgisdóttir, Daðey Steinunn Sigurðardóttir, Sóley María Sigurðardóttir, Sigurður Kristinn Sigurðsson, Birgir Sigur Sigurðsson. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRUNN SÓLVEIG KRISTJÁNSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, sem lést sunnudaginn 27. desember, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 4. janúar kl. 13.00. Júlíus K. Björnsson, Elín G. Stefánsdóttir, Sigurveig Björnsdóttir, Jón Einar Haraldsson, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.