Morgunblaðið - 31.12.2009, Qupperneq 40
40 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2009
✝ Hrefna Her-mannsdóttir
fæddist á Ysta-Mói í
Fljótum 25. júní
1918. Hún lést á
Heilbrigðisstofnun
Siglufjarðar 19. des-
ember sl.
Foreldrar hennar
voru hjónin Elín Lár-
usdóttir, f. 27.2.
1890, d. 1980, og
Hermann Jónsson, f.
12.12. 1891, d. 1974.
Hrefna var fimmta í
röðinni af níu systkinum, þau eru:
Halldóra Margrét, f. 11.10. 1912,
d. 2007, Lárus, f. 4.3. 1914, d.
2007, Níels Jón Valgarð, f. 27.7.
1915, d. 1997, Rannveig Elísabet,
f. 12.11. 1916, d. 1981, Sæmundur
Árni, f. 11.5. 1921, d. 2005, Har-
aldur, f. 22.4. 1923, búsettur á
Sauðárkróki, Georg, f. 24.3. 1925,
d. 2009, og Björn Valtýr, f. 16.6.
1928, búsettur í Reykjavík.
Eiginmaður Hrefnu var Jónas
mann, f. 27.5. 1957, maki Ingi-
björg Halldórsdóttir, börn þeirra
eru a) Helga, maki Jón Salmanns-
son, börn þeirra eru Hermann
Ingi og Rut. b) Halldór, unnusta
Jóhanna Gunnarsdóttir.
Hrefna ólst upp á Ysta-Mói og
gekk í skóla í Haganesvík. Hún
fór síðar í Húsmæðraskólann Ósk
á Ísafirði og var eftir það í vist
hjá Jóni Gunnarssyni fram-
kvæmdastjóra og Sigurlínu
Björnsdóttur. Hún minntist veru
sinnar hjá þeim hjónum alla tíð
með mikilli hlýju. Hrefna og Jónas
bjuggu allan sinn búskap í Siglu-
firði, fyrst á Hvanneyrarbraut 2
og síðan Hverfisgötu 8, þar til þau
fluttu í Skálarhlíð 1992. Hrefna
var það sem kallað var heimavinn-
andi húsmóðir, en saltaði síld öll
sumur á síldarárunum. Hún var
öflugur liðsmaður verkalýðshreyf-
ingarinnar og gekk ung í Fram-
sóknarflokkinn. Hún var varabæj-
arfulltrúi og sat í ýmsum nefndum
fyrir flokkinn og var öflugur tals-
maður hans alla tíð.
Útför Hrefnu verður gerð frá
Siglufjarðarkirkju laugardaginn
2. janúar, og hefst athöfnin kl. 14.
Björnsson frá Siglu-
firði, f. 25.10. 1916,
d. 9.9. 1993. Þau
giftu sig 31.3. 1945.
Börn Hrefnu og Jón-
asar eru: 1) Björn, f.
4.6. 1945, fyrri maki
Guðrún Margrét
Ingimarsdóttir, f. 4.3.
1945, d. 30.4. 1976,
barn þeirra Rakel,
maki Thomas Flec-
kenstein, börn þeirra
eru María Lísa og
Björn. Seinni maki
Ásdís Kjartansdóttir, f. 4.1. 1948
frá Bakka á Seltjarnarnesi. 2)
Guðrún, f. 25.2. 1948, barn hennar
er Jóna Hrefna, sambýlismaður
Böðvar Jónsson. 3) Halldóra Ing-
unn, f. 2.5. 1955, maki Gunnar
Trausti Guðbjörnsson, börn þeirra
eru a) Edda Rósa, maki David Jar-
ron, synir þeirra eru Adam og
Andri. b) Bettý, maki Óðinn Gúst-
afsson, dætur þeirra eru Arna
Mjöll, Freyja og Embla. 4) Her-
Hinn 12. desember sl. benti ekk-
ert til annars en að Hrefna tengda-
mamma myndi halda sín jól í faðmi
ættingjanna á Sigló. Fjölskyldan
var samankomin til að kveðja bróður
hennar Georg. Kistulagning og jarð-
arför frá Siglufjarðarkirkju og jarð-
setning á Barði í Fljótum. Hrefna
var þarna í essinu sínu umkringd
ættingjum, gerði að gamni sínu og
tók gullhömrum frá ungum frænk-
um sínum. „Við ætlum að verða eins
og þú þegar við verðum gamlar.
Okkur finnst þú ekkert hafa breyst
frá því við sáum þig fyrst.“ „Finnst
ykkur ég alltaf hafa verið svona
gömul og ljót?“ Þetta var dýrðar-
dagur og ekki skemmdi veðrið fyrir.
Hrefna var eins og drottning í ríki
sínu. En um kvöldið kenndi hún sér
þess meins er dró hana til dauða.
Ég var 18 ára gamall slarksamur
togarajaxl þegar ég hóf að draga
mig eftir Dóru dóttur hennar og
gerði henni barn ári seinna við lítil
fagnaðarlæti húsfreyjunnar. En
mér var í fyrstu tekið eins og hverju
öðru hundsbiti en með dótturinni
Eddu Rósu tókst mér að brjóta allar
varnir á bak aftur og vinna mig að
hjarta þessarar stórmerku konu og
manns hennar Jónasar Björnssonar
og öðlast vináttu þeirra og vonandi
virðingu.
Við Hrefna háðum marga hildina í
pólitísku þrasi en gátum alltaf tekist
í hendur að loknum deilum. Hún
hafði ríka réttlætiskennd og gat
skammað sína framsóknarmenn
þegar þurfa þótti í þröngum hópi þó
að ekki væri það eins oft ég hefði
viljað! Jónas var aftur sjálfstæðis-
maður af gamla skólanum og þegar
eldrauður allaballinn blautur á bak
við eyrun kastaði sínum sprengjum
varð oft kátt í kotinu.
Þau bjuggu sér glæsilegt heimili
fyrst á Hvanneyrarbraut 2 og síðar
Hverfisgötu 8 og þar bjuggum við
Dóra fyrsta æviár dóttur okkar. Eft-
ir að við fluttum frá Sigló árið 1977
styrktust böndin enn frekar og dótt-
urdæturnar voru sendar til sumar-
dvalar á Sigló. Í kringum Hverfis-
götu 8 er alltaf sólarbirta í
minningunni og margs er að minn-
ast. Þau Jónas fluttu á Skálarhlíð ár-
ið 1992 og bjó Hrefna þar af mynd-
arskap eftir lát bónda síns árið 1993.
Ég vil nota þetta tækifæri að þakka
umhyggju þeirra í garð móður
minnar Binnu Jóns sem oft dvaldi
hjá þeim á Hverfisgötunni.
Hrefna var félagsvera og undi sér
best í glöðum hópi og var yfirleitt
hrókur fagnaðarins. Henni þótti
gaman að spila og er ég viss um að
hennar verður sárt saknað úr brids-
félaginu á Skálarhlíð. Hún smitaði
dætur okkar af spilaáhuganum sem
linntu ekki látunum eftir dvölina á
Sigló fyrr en við höfðum spilað við
þær rommý, ólsen og vist eins og
amma Hrefna.
Tengdamóðir mín vann óeigin-
gjarnt starf fyrir Kvenfélagið Von
og Slysavarnafélagið. Hún starfaði
fyrir Framsóknarflokkinn á Siglu-
firði og var varafulltrúi hans í bæj-
arstjórninni og sat í nefndum á hans
vegum um árabil.
Hrefna og Jónas gengu í hjóna-
band árið 1945 og nú 4 börnum, 6
barnabörnum og 9 barnabarnabörn-
um síðar er komið að kveðjustund.
Ég vil þakka Hrefnu samfylgdina,
tryggðina og rausnarskap í vináttu
og veitingum og velgjörð við mín
börn og barnabörn.
Gunnar Trausti.
Föðuramma mín Hrefna Her-
mannsdóttir, sterk og falleg kona, er
látin. Hún var 91 árs. Amma Hrefna
var alltaf svo hress að maður hafði
lítið sem ekkert leitt hugann að því
hvernig lífið yrði þegar hennar nyti
ekki lengur við. Því kom fréttin af
veikindum hennar hinn 12. desem-
ber sl. eins og reiðarslag en nú þeg-
ar hún hefur ákveðið að kveðja
þennan heim þá er okkur sem eftir
stöndum efst í huga þakklæti fyrir
öll árin sem við fengum að vera með
henni og þakklæti fyrir að hún
skyldi ekki þurfa að þjást. Hjá
ömmu var lífið annaðhvort „on“ eða
„off“ og þannig fékk hún líka að
kveðja.
Fyrstu æviár mín bjuggu amma
Hrefna og afi Jónas á Hverfisgöt-
unni á Siglufirði og ég með mömmu
og pabba á Háveginum. Ég gat horft
út um stofugluggann heima og
fylgst með lífinu á Hverfisgötunni
og ef ég hafði valfrelsi um það hvort
ég vildi frekar vera þar en heima hjá
mér þá var valið yfirleitt Hverfisgöt-
unni í vil. Fyrstu átta árin var ég
eina barnabarnið og eina samkeppn-
in sem ég háði þá um athygli ömmu
og afa var við Hermann föðurbróður
minn sem var átta árum eldri en ég.
Árið 1975 greindist móðir mín með
krabbamein sem varð hennar bana-
mein og amma stóð við hlið hennar
og okkar pabba eins og klettur.
Amma lofaði mömmu að hún myndi
gæta mín og amma stóð við sín lof-
orð. Heimili ömmu og afa varð mitt
annað heimili. Amma stóð vörð um
sitt fólk.
Síðasti dagurinn sem amma var
keik og uppistandandi var laugar-
dagurinn 12. desember, daginn sem
hún fylgdi Georg, bróður sínum, til
grafar í Fljótunum. Þennan dag,
sem jafnframt var fæðingardagur
pabba hennar, var hún umkringd
ættmennum sínum í gullfallegu
veðri í Fljótunum og hefur hlýr koss
á kinn og faðmlag frá Mósurunum
án efa verið henni gott veganesti inn
í það sem hennar beið. Þá um kvöld-
ið veiktist hún og viku síðar var hún
öll.
Amma átti yndislegt líf og sam-
heldna og góða fjölskyldu. Hennar
verður sárt saknað og vinkonur
hennar í Skálarhlíð eiga án efa eftir
að sakna góðs félaga. Amma hafði
það mjög gott í Skálarhlíð og var
dugleg að taka þátt í öllu félagsstarfi
eldri borgara, hvort sem um var að
ræða vatnsleikfimi, bingó, spil eða
botsía, enda konan Siglufjarðar-
meistari í botsía með pomp og pragt
90 ára gömul og í framhaldinu valin
„maður mánaðarins“. Hún missti
aldrei úr þátt af Leiðarljósi og fylgd-
ist með bæjarmálum og pólitík alla
tíð. Dyggari stuðningsmann Fram-
sóknarflokksins var erfitt að finna.
Landsfrægar smákökur, laufa-
brauð, soðið brauð, kleinur, Þorláks-
messuskata, sandwich, jólaís (ekki
með sérríi!), jólakisan – svo margs
er að minnast. Við sem eftir stönd-
um reynum eftir mætti að miðla
áfram til okkar barna þeim siðum
ömmu sem við mátum svo mikils.
Sofðu vel, amma mín, ég veit að
þú ert í góðum höndum. Ég kveð þig
í dag með söknuði en fyrst og fremst
Hrefna Hermannsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Lífsins ganga liðin er
ljúft er þig að muna.
Elsku Hrefna þakka þér
þíða samveruna.
Nanna frænka.
✝
Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langa-
langafi,
GRÍMUR BJARNI BJARNASON
fyrrv. stöðvarstjóri Pósts og síma,
Ólafsfirði,
lést á Hornbrekku, Ólafsfirði, miðvikudaginn
23. desember.
Útför hans verður frá Ólafsfjarðarkirkju mánu-
daginn 4. janúar kl. 14.00.
Hrafnhildur J. Grímsdóttir,
Grímur Grímsson, Valgerður S. Ebenesardóttir,
Sigurpáll Grímsson, Ingibjörg K. Geirmundsdóttir,
Bjarni Kr. Grímsson, Brynja V. Eggertsdóttir,
Sigurður Egill Grímsson, Katrín B. Bergmundsdóttir
og fjölskyldur.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
MARÍA ÓLÍNA KRISTINSDÓTTIR,
Árskógum 6,
Reykjavík,
lést á jóladag á Landspítalanum í Fossvogi.
Gunnlaugur K. Hreiðarsson, Kolbrún Guðmundsdóttir,
Helgi Már Hreiðarsson, Guðrún Ólöf Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
ÓLAFUR BENÓNÝ GUÐBJARTSSON,
Mánagötu 27,
Grindavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi
sunnudaginn 27. desember.
Jarðarförin fer fram frá Grindavíkurkirkju þriðju-
daginn 5. janúar kl. 14.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hans er bent á Björgunarsveitina Þorbjörn, Grindavík.
Anna M. Kjartansdóttir,
Heiðbjört Ólafsdóttir, Páll Ólafsson,
Ómar Davíð Ólafsson, Berglind Benónýsdóttir,
Alda, Anna Dís, Harpa Lind, Ólafur Reynir og Bríet María.
✝
INGA HREFNA BÚADÓTTIR
hjúkrunarkona,
Lynghaga 14,
Reykjavík,
lést þriðjudaginn 22. desember.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 5. janúar kl. 13.00.
Hafsteinn Bjargmundsson,
Ingibjörg Eir Einarsdóttir,
Björn Einarsson,
Kjartan Einarsson,
Hrefna Einarsdóttir
og fjölskyldur.
✝
Ástkær faðir okkar, sonur, fóstursonur, bróðir,
mágur og frændi,
DAÐI HREIÐARSSON,
lést á líknardeild Landspítalans, Kópavogi,
miðvikudaginn 30. desember.
Anton Örn Daðason,
Viktor Guðni Daðason,
Daðey Steinunn Daðadóttir,
Birgir Tómasson,
Gerður Hreiðarsdóttir, Sigurður Ingi Sigurðsson,
Hanna Kristín Birgisdóttir,
Fjóla Björk Birgisdóttir,
Daðey Steinunn Sigurðardóttir,
Sóley María Sigurðardóttir,
Sigurður Kristinn Sigurðsson,
Birgir Sigur Sigurðsson.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÞÓRUNN SÓLVEIG KRISTJÁNSDÓTTIR
hjúkrunarfræðingur,
sem lést sunnudaginn 27. desember, verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn
4. janúar kl. 13.00.
Júlíus K. Björnsson, Elín G. Stefánsdóttir,
Sigurveig Björnsdóttir, Jón Einar Haraldsson,
barnabörn og barnabarnabarn.