Morgunblaðið - 31.12.2009, Side 42

Morgunblaðið - 31.12.2009, Side 42
42 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2009 ✝ Árnína Jenný Sig-urðardóttir fædd- ist á Klöpp, Kálfs- hamarsnesi, A-Hún., 1. júlí 1927. Hún and- aðist á hjúkr- unarheimilinu Garðv- angi í Garði 26. desember síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Sigurður Óli Sigurðarson, f. 1875, d. 1946, og Guðrún Oddsdóttir, f. 1903, d. 1976. Systkini Jenný- ar eru: Sigrún Pálína Húnfjörð, f. 1924, d. 1953, Ágústa Ingibjörg Sigurðardóttir, f. 1925, d. 2009, Ólafur Ingimar Ögmundsson, f. 1931, Jóhanna Sveinlaug Ög- mundsdóttir, f. 1932, María Guðrún Ögmundsdóttir, f. 1935, Lundfríður Sigríður Ögmundsdóttir, f. 1937, Oddbjörg Ögmundsdóttir, f. 1939, og Ragnheiður Margrét Ögmunds- dóttir, f. 1944, Valdimar Sigurð- arson, f. 1898, d. 1970, Magnína Sigríður Sigurðardóttir, f. 1901, d. 1901, Karitas Sigurðardóttir, f. 1905, d. 1924, Jóhannes Sigurð- arson, f. 1908, d. 1984, og Kristín Sigurðardóttir, f. 1912, d. 2009. Árið 1949 kvæntist Jenný Sum- arliða Lárussyni verkstjóra, f. 20. febrúar 1922, d. 7. október 2004. Börn Sumarliða og Jennýjar eru 1) Magnúsdóttir. Sonur þeirra Aron Atli. Jenný ólst upp í Kálfshamarsvík til ellefu ára aldurs en þá fluttist hún ásamt móður sinni, systkinum og stjúpföður, Ögmundi Björnssyni, f. 1894, d. 1970, til Sandgerðis, sem bjuggu lengst af í Stíghúsum. Hún fór ung að árum að vinna fyrir sér eins og algengt var meðal kvenna á þeim tíma, meðal annars fór hún í vist til Reykjavíkur. Ung kynntist hún lífsförunauti sínum, Sumarliða Lárussyni, og bjuggu þau lengst af á Túngötu 11 í Sandgerði. Húsið byggðu þau og bjuggu í því yfir hálfa öld. Lífsstarf hennar var hús- móðurhlutverkið sem henni fór af- ar vel úr hendi. Jenný var barngóð og auk þess að ala upp sinn stóra barnahóp sóttu önnur börn í henn- ar hlýja faðm. Jenný var mikil hannyrðakona, vandvirk og hug- myndarík. Einnig var hún ann- álaður kokkur og bakari. Þegar börnin komust á legg vann hún við fiskvinnslu og sem póstmaður til fjölda ára. Hún lauk prófi frá Póst- og símaskólanum 1979. Jenný var einnig félagi í Kvenfélagi Sand- gerðis í áratugi. Jenný verður jarðsungin frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði í dag, fimmtudaginn 31. desember, og hefst athöfnin kl. 12. Meira: mbl.is/minningar Ögmundur Rúnar matargerðarmaður, f. 22. júlí 1945. Börn Gunnar Páll, Jenný, Kristín, Elfar, Sum- arliði Örn og Laufar Sigurður. 2) Ingimar, útgerðamaður og skipstjóri, f. 2. nóv- ember 1948, maki Jolanta Janaszak. Börn Ingimars eru Ásdís Erna, Guðbjörg Lára, Guðgeir Bragi, Ingunn Heiða, Sum- arliði Páll, Klara Mar- grét og Ingimar Jenni. 3) Sólborg hjúkrunarfræðingur, f. 18. febrúar 1950, maki Gylfi Gunnarsson. Dæt- ur þeirra Ingunn og Sara. 4) Rut tækniteiknari, f. 15. ágúst 1953. Dætur Valdís og Védís Eva. 5) Árnína Guðbjörg, leik- og grunn- skólakennari, f. 17. júní 1955, maki Björn Halldórsson. Synir þeirra Salvar Halldór, Árni Björn og Egill Birnir. 6) Sigrún sjúkraliði, f. 6. júlí 1959, maki Sveinbjörn Sverrisson. Börn Sigrúnar eru Gunnar Adam, Jóhanna og Eva Björk. 7) Margrét, hárgreiðslumeistari, f. 6. júlí 1959, maki Guðbrandur Einarsson. Börn þeirra Davíð, Sólborg, Sigríður, Gunnar og Einar. 8) Sigurður Óli, pípulagningameistari, f. 9. nóv- ember 1961, maki Jóna Magnea „Flýði ég til þín, móðir mín, því mild- in þín grát og gleði skildi.“ Ég valdi þessar ljóðlínur eftir Örn Arnarson vegna þess hversu vel þær eiga við þig, mamma. Í þinn hlýja faðm gátum við sytkinin sótt huggun, umhyggju og ást. Mamma var fyrst og fremst móð- ir, eiginkona og húsmóðir, ákaflega heimakær, kletturinn í hafinu, allt- af til staðar og heimilishaldið í föst- um skorðum. Húsið okkar var hreint og fínt, góður matur á rétt- um tíma og alltaf til heimabakað meðlæti. Árum saman prjónaði mamma og saumaði föt á fjölskylduna og skreytti heimilið með útsaumi og þar kom vandvirkni hennar og natni vel fram. Sjálf sagði mamma að hún hefði viljað læra saumaskap og aðrar hannyrðir ef tækifæri hefðu gefist til á sínum tíma. Mamma var ósérhlífin og tók þarfir annarra fram yfir sínar eigin. Hún hafði heldur ekki mikinn tíma fyrir sjálfa sig, allt hennar líf sner- ist um fjölskylduna. Hún fylgdist vel með börnum sínum og fjölskyld- um þeirra en afkomendur hennar og pabba eru um 80 talsins. Það var oft gaman á Túngötunni og mikið hlegið. Ég man eftir því sem barn að hafa sofnað út frá smitandi hlátri mömmu, sem gat verið glettin og hnyttin í tilsvörum. Mamma var trygglynd og trúuð og það birtist best í umburðarlyndi hennar gagnvart fólki og því að hún var ekki dómhörð í garð annarra þrátt fyrir að hún sjálf hefði orðið fyrir fordómum þegar hún eignað- ist sitt fyrsta barn. Eftir að pabbi dó vildi mamma halda heimili ein og vera eins lengi heima og hún gat. Óhætt er að segja að hún hafi komið okkur systkininum á óvart með dugnaði sínum en það var ekki fyrr en hún var orðin fársjúk að hún fluttist á hjúkrunarheimilið Garðvang í Garði. Mig langar til að þakka Möggu systur og fjölskyldu hennar sér- staklega fyrir að hafa annast mömmu af einstakri alúð en mamma hefði ekki getað verið svona lengi heima ef þeirra hefði ekki notið við. Í starfi mínu sem kennari finn ég hversu lánsöm ég var að alast upp á góðu heimili, þar sem mamma var alltaf til staðar og hafði næga ást og hlýju að gefa. Í nútímasamfélagi hefur uppeldishlutverk heimilanna að mörgu leyti færst til hinna ýmsu stofnana og oft vill það verða svo að börnin fái afgangstíma foreldra sinna. Fyrir hönd okkar systkinanna færi ég starfsfólki hjúkrunarheim- ilisins Garðvangs kærar þakkir fyr- ir góða og kærleiksríka umönnun síðustu mánuðina sem mamma lifði. Elsku mamma, þakka þér fyrir allt sem þú gafst mér. Þín dóttir, Nína, Björn og synir. Elsku mamma, tengdamamma og amma. Nú ertu farin á braut og við kveðjum þig með söknuði. Takk fyrir allar samverustund- irnar sem við áttum með þér, heim- boðin og ferðalögin sem við áttum saman. Við vitum að þú ert nú kom- in við hlið pabba og líður vel. Við geymum minningu þína ávallt í hjörtum okkar. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Héðan skal halda heimili sitt kveður heimilisprýðin í hinsta sinn. Síðasta sinni sárt er að skilja, en heimvon góð í himininn. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Vald. Briem.) Sigurður Óli, Jóna og Aron Atli. Elsku amma mín, ég kveð þig nú með söknuði í hjarta mínu en ég veit að þú ert komin í góðar hend- ur, takk fyrir allt, elsku amma Jenna. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Kæru aðstandendur, ég votta ykkur samúð mína, guð blessi ykk- ur, Jenný Rúnarsdóttir. Árnína Jenný Sigurðardóttir ✝ Þökkum hlýjar vina- og samúðarkveðjur við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ARNÓRS SIGURÐSSONAR frá Hnífsdal, sem lést sunnudaginn 13. desember. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á deild 14G á Landspítala og starfsfólksins á dvalar- heimilinu Felli fyrir einstaka umönnun hans. Guðmunda Arnórsdóttir, Björn Ástmundsson, Málfríður Arnórsdóttir, Sigurður Arnórsson, Sigríður Kristjánsdóttir og fjölskyldur. ✝ Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför ástkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu, ERNU MATTHÍASDÓTTUR, Mánatúni 4. Loftur Þorsteinsson, Þorsteinn Loftsson, Hanna Lilja Guðleifsdóttir, Matthías Loftsson, Kolbrún Þorsteinsdóttir, Ingibjörg Loftsdóttir, Trausti Sigurjónsson, Páll Loftsson, Anna Pála Vignisdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir færum við þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát elskulegs eiginmanns míns, föður, stjúpföður, tengdaföður, afa og lang- afa, JÓHANNESAR J. BJÖRNSSONAR, Byggðavegi 90, sem lést fimmtudaginn 3. desember. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Bakkahlíðar fyrir hlýju og góða umönnun. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Fyrir hönd aðstandenda, Dagný Sigurgeirsdóttir. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför systur minnar, föðursystur og mágkonu, GUÐRÚNAR GUNNARSDÓTTUR frá Reykjum, Fnjóskadal, dvalarheimilinu Hvammi, Húsavík, sem lést mánudaginn 7. desember. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki dvalarheimilisins Hvamms á Húsavík fyrir hlýja og góða umönnun. Tryggvi Gunnarsson, Gunnar M. Guðmundsson, Þóra K. Guðmundsdóttir, Pálína Magnúsdóttir. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samhug og hlýju við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, ÁRNA JÓHANNSSONAR bónda, Teigi í Fljótshlíð. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki 13G á Landspítala og á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi fyrir góða umönnun. Sendum einnig okkar bestu óskir um gæfuríkt komandi ár. Jónína Björg Guðmundsdóttir, Hrafnhildur Árnadóttir, Páll P. Theódórs, Guðbjörn Árnason, Hlín Hólm og barnabörn. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, HERMANNS HELGASONAR, Hólmgarði 53, Reykjavík. Oddný Jónasdóttir, Sigríður Helga Hermannsdóttir, Ian David McAdam, Guðbjörg Edda Hermannsdóttir, Helga Solveig, Davíð Þór og Oddný Sjöfn. Minningargreinar sem birt- ast eiga mánudaginn 4. janúar og þriðjudaginn 5. janúar þurfa að berast í síðasta lagi á hádegi 2. janúar. Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðs- ins: mbl.is – Senda inn efni. Greinar sem berast blaðinu eftir skilafrest fara einungis á vefinn. Skil á minning- argreinum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.