Morgunblaðið - 31.12.2009, Page 43
Minningar 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2009
✝ Agnes LáraMagnúsdóttir
fæddist á Ísafirði 18.
október 1915. Hún
andaðist 19. desem-
ber síðastliðinn, 94
ára að aldri.
Foreldrar hennar
voru Guðrún Gests-
dóttir, f. 1879, d.
1923, og Magnús
Hannibalsson, f.
1874, d. 1963.
Alsystkini Láru
Klara Fanney, f.
1902, d. 1979, Guð-
rún Jóhanna, f. 1903, d.1992,
Vilma Hermína, f. 1910, d. 1977,
Magnús Hannibal, f. 1913, d.
2001, tvíburasystir Helga Kristín,
f. 1915, d. 1953. Samfeðra, Ester
Lára, f. 1917, d. 2002, Trausti
Breiðfjörð, f. 1918, Vilborg, f.
1920, d. 1928, Emma Breiðfjörð, f.
1921, d. 2000. Lára
giftist Þorgilsi
Árnasyni, f. 25.
febrúar 1915, d. 27.
desember 1991. Á
19 árum eignuðust
þau 10 börn:
Ágústa, f. 1936,
Ragnheiður, f. 1937,
Árni Kristinn, f.
1940, Magnús, f.
1941, Ásbjörn Valdi-
mar, f. 1944, Gunn-
laugur, f. 1946, d.
1988, Valdís, f.
1948, Hjördís, f.
1951, Helga Lára, f. 1952, d. 1996,
Þorgils, f. 1955. Barnahópurinn
þeirra telst um 100 í dag. Lára og
Gísli bjuggu saman á Ísafirði.
Útför Láru fer fram frá Ísa-
fjarðarkirkju nk. laugardag, 2.
janúar, og hefst athöfnin kl. 11.
Meira: mbl.is/minningar
Okkur langar í fáeinum orðum
að minnast elskulegrar móður og
tengdamóður okkar, Láru. Jón
kynntist Láru fyrir meira en 40
árum. Tók hún honum vel strax í
upphafi og hefur gert allar götur
síðan.
Lára var alla tíð virkilega dug-
leg, vann ætíð mjög mikið en
aldrei kom til þess að hún kvart-
aði yfir því. Lára og maður henn-
ar Gísli höfðu gaman af því að
ferðast jafnt innanlands sem er-
lendis. Lára hafði sérstaklega
gaman af því að ferðast í bíl. Hún
fór í allar þær ferðir sem í boði
voru á vegum Rauða krossins á
meðan hún gat og fór hún meira
að segja með okkur til Krítar að
verða 92 ára gömul og hafði gam-
an af.
Við gætum sagt frá svo mörg-
um samtölum okkar í gegnum tíð-
ina, treg var hún þó til að segja
okkur frá uppeldi sínu hjá fóstur-
foreldrunum sínum. Við ræddum
því mikið um pólitík og alla skap-
aða hluti og var hún mjög fróð á
flestum sviðum þrátt fyrir að ekki
hafi mikið farið fyrir skólagöngu í
hennar tíð. Þess í stað var hún
dugleg að hlusta á útvarpið og
fræðast um hin ýmsu málefni þar.
En nú er komið að leiðarlokum
og við viljum þakka þér fyrir allt,
elsku Lára, og þá sérstaklega þá
hugulsemi sem þú sýndir börnum
okkar, barnabörnum og tengda-
börnum.Við gætum ekki hugsað
okkur betri mömmu og tengda-
mömmu.
Ég kveð þig, hugann heillar minn-
ing blíð,
hjartans þakkir fyrir liðna tíð,
lifðu sæl á ljóssins friðar strönd,
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Þín dóttir Hjördís
og tengdasonur Jón.
Elsku amma. Þú varst einstök
kona, við höfum aldrei kynnst
fyrr eða síðar svona konu eins og
þér. Þú varst alltaf svo lífsglöð,
það var alveg sama hvað gekk á í
þínu lífi, alltaf gastu fundið já-
kvætt við lífið og það er eins og
það hafi fylgt þér, afa og þínum
börnum. þessi mikla gleði og
finna húmor í öllu sem lífið hafði
upp á að bjóða. Þú horfðir alltaf
fram, aldrei til baka, og þú vildir
aldrei ræða fortíðina, sagðir alltaf
við okkur: Það er liðið. þér var
alltaf svo umhugsað um alla í
kringum þig og þó þú værir orðin
94 ára minntir þú son þinn 67 ára
á að taka lyfin sín.
Ég, Agnes Lára, gleymi aldrei
sumarið 2007 þegar ég var á leið-
inni í Evrópuferð á húsbílnum, og
kom til þín, þú vildir sko fara á
rúntinn með okkur, ég var í vafa
um hvort þú kæmist upp í bílinn,
jú þú vippaðir þér upp í hann eins
og tvítug stúlka, og sagðir svo
með bros á vör „Agga mín, eigum
við ekki að fara og fá okkur
pylsu?“ Ég er viss um að ef ég
hefði boðið þér með okkur í Evr-
ópuferðina hefðir þú sagt, já
Agga mín, ég kem með, því það
sumar fórstu í sólarlandaferð með
dóttur þinni Hjördísi og tengda-
syni Jóni, sem hafa reynst þér
sem gullmolar, eins og þú sagðir
oft við mig.
Við eigum svo góðar minningar
um þig sem við geymum og deil-
um til allra. Þó er stærsta minn-
ingin og reynsla sú að lifa lífinu
lifandi eins og þú gerðir, elsku
amma okkar. Amma, við vitum að
þér líður vel núna, afi Gísli, Helga
og Gulli hafa tekið vel á móti þér.
Þú hefur verið okkar fyrirmynd í
lífinu
Þín barnabörn,
Agnes Lára Magnúsdóttir,
Jón Guðbjarni Magnússon,
Magni Fannberg Magnússon.
Agnes Lára
Magnúsdóttir
Minningar á mbl.is
Agnes Lára
Magnúsdóttir
Höfundar: Eva og Ásbjörn,
Djúpavík
Árnína Jenný Sig-
urðardóttir
Höfundur: Valdís
Erla Havsteen Þor-
steinsdóttir
Höfundur: Guðrún Jónína
Magnúsdóttir
Gísli Guðmundsson
Höfundar: Áslaug
Guðmundur Æ. Jóhannsson
Auður
Gísli Steinar Ingólfsson
Margeir
Arna Gerður
Gísli Hólmar
Vilhjálmur Kristinn
Sigurðsson
Höfundur: Guðmundur Leó
(Brósi)
Meira: mbl.is/minningar
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Bækur
Almanak
Þjóðvinafélagsins 2010
Höfundar: Þorsteinn Sæmundsson og
Heimir Þorleifsson. Ritið er tvískipt:
Almanak 2010 og Árbók Íslands
2008. Í Almanakinu er t.d. að finna
upplýsingar um gang himintungla,
messur kirkjuársins og sjávarföll. –
Í Árbókinni er fjallað um stórviðburði
ársins svo sem landgöngu hvíta-
bjarna, Suðurlandsskjálfta og „hrun-
ið“. – Fjöldi mynda er í ritinu.
Fæst í bókaverslunum um land allt.
Dýrahald
Dvergschnauzer!
Gullfallegir Dvergschnauzer hvolpar
leita að góðum framtíðarheimilum.
Tilbúnir til afhendingar. Ættbók frá
HRFÍ. Frekari uppl. í s. 699 0108 eða
http://sankti-ice.bloggar.is
Gisting
Sumarhús til leigu miðsvæðis á
Akureyri- Þrjú svefnherbergi (78 fm).
Rúm fyrir sjö. Verönd og heitur pottur.
Glæsilegt útsýni yfir Pollinn. Frítt net-
samband. Uppl. á www.saeluhus.is
eða í 618-2800.
AKUREYRI
Höfum til leigu 50, 85 og 140 fm
sumarhús 5 km frá Akureyri, öll
með heitum potti og flottu útsýni yfir
Akureyri. Bjóðum einnig upp á íbúðir
á Akureyri. www.orlofshus.is
Leó, s. 897- 5300.
Hljóðfæri
Dúndurtilboð!!!!
Kassagítarar: 1/4 stærð kr.
10.900 pakkinn með poka,
strengjasetti og stilliflautu.
4/4 stærð 15.900.- Rafmagns-
gítarpakkar frá kr. 39.900.
Þjóðlagagítarpakkar frá 19.900.-
Hljómborð frá kr. 8.900.-
Trommusett kr. 79.900.- með öllu.
Gítarinn, Stórhöfða 27,
sími 552 2125.
www.gitarinn.is
Húsnæði óskast
Íbúð í Álaborg Danmörku
Óska eftir eignarskiptum á
höfuðborgarsvæði og í Álaborg.
Íbúðin er 105 fm og skuldlaus.
Rólegur staður og hægt er að ganga í
miðbæ. Sími 861 7062.
Atvinnuhúsnæði
Fasteignafélag til sölu
Fjórar litlar verslunareiningar í 105
Reykjavík, allar í útleigu. Öll skipti
skoðuð. Upplýsingar í síma 695 0495.
Ártúnshöfði
Til leigu 76 fm á götuhæð við
umferðargötu. Stórir gluggar,
snyrtilegt húsnæði, flísalagt. Leigist
með hita, rafmagni og hússjóði.
Uppl. í síma 892-2030.
BÆJARLIND 14-16
Til leigu verslunar- eða skrifstofu-
húsnæði í Bæjarlind 14-16 á jarðhæð
(neðstu) – norðurendi, 2-400 m².
Innkeyrsludyr, næg bílastæði og góð
aðkoma. Hagstæð leiga. Upplýsingar
í síma 895-5053.
Bílskúr
Flash 2 Pass fjarstýringar
Fjarstýringar f. bílskúrshurðaopnara.
Virkar með ljósabúnaði bílsins eða
mótorhjólsins. Kynntu þér málið.
www.orkuver.is
Sími: 534-3435. Sumarhús
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratugareynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Iðnaðarmenn
Tilboð í klæðningarvinnu
Vantar að fá tilboð í að klæða
einbýlishús, állistar og flísar, límdar.
benony@flug.is eða s: 695 3336.
Verslun
Ágætu viðskiptavinir, góðir
landsmenn - Óskum ykkur gleði,
hvíldar og andlegrar næringar yfir
hátíðarnar svo takast megi á við kom-
andi tíma. Megi allar góðar vættir
fylgja ykkur og styrkja á ári komanda.
ERNA, Skipholti.
Húsviðhald
Tökum að okkur að leggja PVC
dúk á þök og bílskúra. Þjónum lands-
byggðinni einnig. Erum líka í
viðgerðum. Uppl. í síma 659-3598.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
JÓNA VALDIMARSDÓTTIR,
dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi,
lést sunnudaginn 20. desember.
Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Starfsfólki Höfða eru færðar þakkir fyrir góða og
hlýja umönnun.
Guðni Þórðarson, Sjöfn Guðmundsdóttir,
Gylfi Þórðarson, Marta Ásgeirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Alúðarþakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærs
föður míns, tengdaföður og afa okkar,
BIRGIS BJÖRNSSONAR,
Egilsgötu 8,
Borgarnesi.
Jón Marinó Birgisson, Herdís Rós Kjartansdóttir,
Kjartan Jónsson og Heiðdís Erla Jónsdóttir.
✝
Okkar kæra
SOFFÍA THEODÓRSDÓTTIR,
Ljósvallagötu 20,
lést á Landspítala Landakoti miðvikudaginn
23. desember.
Útför hennar fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
6. janúar kl. 15.00.
Systkin og frændsystkin.
✝
Elskulegur eiginmaður,
HARALDUR ÁRNASON,
Laugarvegi 33,
Siglufirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar þriðjudaginn 29. desember.
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Karólína F. Hallgrímsdóttir.