Morgunblaðið - 31.12.2009, Side 52

Morgunblaðið - 31.12.2009, Side 52
52 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2009 Orð dagsins: Og hann sagði við þá: Hvíld- ardagurinn varð til mannsins vegna og eigi maðurinn vegna hvíldardagsins. (Markús 2, 27.) Nú er svo komið að helmingurskattgreiðenda þarf ekki leng- ur að fylla út skattframtalið sitt. Framtalið kemur tilbúið á netinu og það eina, sem framteljandinn þarf að gera, er að staðfesta það. Í raun ættu þetta að vera gleðitíðindi. Vík- verja hefur löngum þótt það með leiðinlegri verkefnum að fylla út skattframtalið. Venjulega hefur framtalskvíðinn hefur byrjað í upp- hafi árs og magnast er nær dregur skilafresti en að þessu sinni þarf engar áhyggjur að hafa af yfirvof- andi leiðindum. En hvers vegna er þá ekki allt í lukkunnar velstandi? x x x Víkverji er þeirrar hyggju að ein-staklingurinn eigi að fá að vera í friði fyrir ríkinu. Ríkið er til vegna einstaklingsins en ekki öfugt. Ríkið á ekki að vera stóri bróðir, heldur auðmjúkur þjónn. Það sem ein- staklingurinn aðhefst og ekki varðar við lög kemur ríkinu ekki við. Það eiga líka að vera takmörk fyrir því hvað ríkið býr yfir miklum upplýs- ingum um hvern einstakling. Ekki er hins vegar nóg með að ríkið, svo við persónugerum það, telji að það eigi sjálfsagðan rétt á að vita allt um hvern einstakling, heldur virðist virðing einstaklinga fyrir upplýs- ingum um sjálfa sig líka fara þverr- andi. Hver einstaklingur skilur á hverjum degi eftir sig rafræna slóð. Hægt er að rekja ferðir manna og athafnir af notkun kredit- og debet- korta, notkun farsíma og flakks á tölvunni. Eftirlitsmyndavélar eru um allar trissur. x x x Slík framtíðarsýn hefði vakið hrollhefði hún verið sett fram fyrir tuttugu árum, en nú yppa menn bara öxlum. Þessar hugsanir flæddu í gegnum kollinn á Víkverja á meðan hann las um fullbúin framtöl fyrir allt að helming framteljenda á næsta ári og hann komst að því að honum stæði alls ekki á sama. Og tilhugs- unin um að nú yrði hann laus við að þurfa kvíða framtalsgerðinni dugði ekki til að kæfa ónotatilfinninguna vegna gagnagrunns stóra bróður. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 hefur hönd á, 8 skaða, 9 tuskan, 10 kvíði, 11 girnd, 13 ýlfr- ar, 15 hristist, 18 sjá eft- ir, 21 blóm, 22 fljótið, 23 tóbaki, 24 farangur. Lóðrétt | 2 rándýrs, 3 streymi, 4 mauks, 5 lík- amshlutar, 6 sæti, 7 röskur, 12 ginning, 14 sefa, 15 vera viðeigandi, 16 örlög, 17 höfðu upp á, 18 erfiði, 19 kæns, 20 fædd. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 sópum, 4 eikur, 7 ljúft, 8 rytju, 9 trú, 11 maur, 13 hrat, 14 ískur, 15 hrak, 17 álag, 20 frú, 22 refur, 23 nagar, 24 kerið, 25 afræð. Lóðrétt: 1 selum, 2 prúðu, 3 mett, 4 edrú, 5 kutar, 6 raust, 10 rekur, 12 rík, 13 hrá, 15 horsk, 16 arfar, 18 lýgur, 19 gerið, 20 frið, 21 únsa. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Hrútur Þú ert í þeirri stöðu að velja lið fyrir tiltekið verkefni. Rómantíkin gæti kippt undan því fótunum. Ekki gera úlf- alda úr mýflugu í sambandi við ungling. (20. apríl - 20. maí)  Naut Í dag eru miklar líkur á að þú kaupir eitthvað skemmtilegt handa þér eða ein- hverjum sem þér er kær. Nýttu þér með- byrinn og neyttu allra ráða til að ljúka ákveðnu verkefni heima fyrir. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú færð frábæra viðskipta- hugmynd. Klipptu hárið, festu kaup á nýrri græju eða gefðu gömlu fötin þín, þú hefur staðið of lengi í stað. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Betur sjá augu en auga. Mundu bara að nota velgengnina sem hvata til að bæta þig en ekki sem afsökun til að slá slöku við. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Það er spenna í loftinu varðandi pen- inga og sameiginlegar eignir. Kynntu þér efnið vel og fáðu aðstoð ef þú ert í minnsta vafa um eitthvað. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þvílík heppni! Næstu vikur munu gjafir og greiðar koma streymandi til þín. Haltu þínu striki og þá mun allt fara vel. Þú ert komin á græna grein. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Ástvinur eltist við þig á óvenjulegan hátt. Horfurnar eru ekki ýkja góðar núna, en öðru máli gegnir um morgundaginn. Allt er í heiminum hverfult og þú þarft að taka til hendinni aftur. (23. okt. - 21. nóv.)  Sporðdreki Þú hefur verið svolítil eyðslukló undanfarið. Reyndu að skipu- leggja tíma þinn þannig að þú getir sinnt sjálfum þér. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Farðu í skemmtiferð eða nýttu þér kvikmyndir, myndbönd og íþróttir til að gera daginn ánægjulegan. Rétt er að nota tækifærið til að safna kröftum. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Taktu þér tíma í dag til að íhuga eigin stöðu, farðu í naflaskoðun. Reyndu að fá sem raunhæfasta mynd af stöðunni jafnvel þótt hún sé ekki eins og þú helst vildir hafa hana. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú þarft að kafa til botns í hverju máli í stað þess að skoða bara yf- irborðið og reyna að leysa málin með þeim hætti. Deildu ásetningi þínum og fáðu aðstoð við að gera hann að veruleika. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú þarft að skipuleggja starf þitt fram í tímann. Skjótt skipast veður í lofti og það sem þú taldir öruggt, er allt í einu ótryggt og snúið mál. Stjörnuspá 31. desember 1791 Skólapiltar í Hólavallaskóla í Reykjavík héldu áramóta- brennu, þá fyrstu sem skráðar sögur fara af hér á landi. 31. desember 1935 Vilhjálmur Þ. Gíslason, síðar útvarpsstjóri, flutti annál árs- ins í fyrsta sinn í Útvarpinu. Hann flutti slíkt áramóta- ávarp til 1967. „Mun ekkert dagskráratriði útvarpsins fyrr eða síðar eiga slíkum vinsæld- um að fagna,“ sagði Steinn Steinarr í Alþýðublaðinu 1956. 31. desember 2002 Undirritaðir voru samningar um kaup Samson ehf. á 45,8% hlut í Landsbankann á geng- inu 3,91 fyrir 12,3 milljarða króna. Morgunblaðið talaði um viðamestu einkavæðingu Íslandssögunnar. 31. desember 2008 Hætta þurfti útsendingu Kryddsíldar Stöðvar 2 þegar mótmælendur ruddust inn á Hótel Borg og eyðilögðu tækjabúnað. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Hjónin Theódóra Guðmunds- dóttir og Ragnar Ólafsson, Barma- hlíð 6, Reykjavík, eiga fimmtíu ára brúðkaupsafmæli í dag, 31. desem- ber. Þau verða með fjölskyldunni þennan dag. Gullbrúðkaup „MÉR finnst mjög spennandi að eldast, maður lær- ir svo mikið af því að lifa,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi formaður Samfylking- arinnar og ráðherra, sem er 55 ára í dag. Afmælið ber upp á gamlársdag en það segir Ingibjörg al- veg ágætt. „Sérstaklega þótti mér það ágætt þeg- ar ég var barn því ég túlkaði allt sprengjuregnið svo að það væri mér til heiðurs,“ segir Ingibjörg. Þá kveður hún fólk gjarna muna frekar eftir af- mælinu þar sem það ber upp á þennan dag. Ingibjörg segist munu halda í hefðir á afmæl- isdaginn en vinir hennar líta yfirleitt inn hjá henni eftir hentugleik yfir daginn og hún fær gesti í kvöldverð, gjarna gamla vini. Fagnaðinn segir hún þó alla jafna frekar vera helgaðan komandi ári en afmælinu. Ingibjörg segist ekki strengja áramóta- eða afmælisheit. „Það er hægt að gera það hvaða dag sem er ef maður vill vera í heitstreng- ingum,“ segir Ingibjörg og hlær. Hún segist taka á móti nýju ári með nokkurri eftirvæntingu því það sé venju fremur óráðið. „Óvissan hef- ur sjaldan verið eins mikil í mínu lífi og það er spennandi að takast á við það.“ skulias@mbl.is Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 55 ára Óvissa og eftirvænting Reykjavík Davíð Bragi fæddist 17. september kl. 8.14. Hann vó 3.205 g og var 52 cm langur. For- eldrar hans eru Anna Heiða Gunnarsdóttir og Gunnar Axel Davíðsson. Sudoku Frumstig 7 4 5 3 8 9 1 4 6 4 3 6 7 7 3 1 8 1 5 4 9 1 8 9 1 6 8 7 6 3 4 9 6 8 9 5 8 3 4 9 6 9 7 5 2 9 7 6 7 3 4 2 2 4 5 7 4 4 2 9 1 7 5 3 7 3 4 4 2 7 8 1 9 1 7 6 8 5 3 3 9 2 8 6 5 7 1 4 7 6 1 3 4 9 2 8 5 8 4 5 1 7 2 3 9 6 2 3 7 4 9 8 5 6 1 1 8 4 2 5 6 9 7 3 9 5 6 7 1 3 4 2 8 5 2 9 6 8 4 1 3 7 4 1 8 9 3 7 6 5 2 6 7 3 5 2 1 8 4 9 6 5 2 4 3 7 8 9 1 4 9 3 8 1 6 2 7 5 7 1 8 2 5 9 4 6 3 9 4 5 6 8 3 7 1 2 3 8 7 1 2 5 9 4 6 2 6 1 9 7 4 3 5 8 8 2 9 5 4 1 6 3 7 1 3 6 7 9 8 5 2 4 5 7 4 3 6 2 1 8 9 8 6 3 9 5 2 1 7 4 2 7 1 6 3 4 9 8 5 5 4 9 8 1 7 2 3 6 6 3 2 4 8 1 7 5 9 1 9 5 7 2 3 4 6 8 7 8 4 5 6 9 3 2 1 9 2 6 1 7 5 8 4 3 3 1 8 2 4 6 5 9 7 4 5 7 3 9 8 6 1 2 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig töl- urnar 1-9 og aldrei má tví- taka neina tölu í röðinni. Í dag er fimmtudagur 31. desember, 365. dagur ársins 2009 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. O-O b5 6. Bb3 Bc5 7. a4 Hb8 8. c3 d6 9. d4 Bb6 10. a5 Ba7 11. h3 O-O 12. He1 h6 13. Be3 Ha8 14. Rbd2 He8 15. Rf1 exd4 16. cxd4 Hxe4 17. d5 Bxe3 18. Rxe3 Re5 19. Rd4 Staðan kom upp á heimsbikarmóti FIDE sem lauk fyrir skömmu í Khanty- Mansiysk í Rússlandi. Spænski stór- meistarinn Alexey Shirov (2719) hafði svart gegn Sergei Fedorchuk (2619) frá Úkraínu. 19… Bxh3! 20. Bc2 svartur hefði svarað 20. gxh3 með 20…Hxd4!. Í framhaldinu var svartur einfaldlega tveim peðum yfir og með léttunnið tafl. 20…Hf4 21. Re2 Bg4! 22. Rxg4 Hxg4 23. Ha3 Dd7 24. Rd4 He8 25. Rf5 Hf4 26. Rg3 Rc4 27. Ha1 Hxe1+ 28. Dxe1 Rxd5 29. b3 Re5 30. Dd2 c6 31. Be4 Dg4 32. Bxd5 Hd4 og svartur innbyrti vinninginn skömmu síðar. Svartur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Mikið fjör. Norður ♠Á4 ♥Á9853 ♦D4 ♣KD92 Vestur Austur ♠G1098652 ♠K3 ♥KD742 ♥G10 ♦– ♦G10976 ♣6 ♣G854 Suður ♠D7 ♥6 ♦ÁK8532 ♣Á1073 Suður spilar 6♣. Einstaka sinnum eru sagnir og útspil svo upplýsandi að hægt er að draga upp mynd af öllum höndum í fyrsta slag. Norður opnar á 1G, suður krefur með 3♦ og vestur stekkur í 4♠. Sú sögn gengur ótrufluð til suðurs, sem meldar 5♣. En vestur er ekki af baki dottinn og meldar nú hliðarlitinn, segir 5♥. Norð- ur doblar og austur breytir í 5♠. Suður hleypir því til makkers, sem reynir 6♣. Allir pass og spaðatvistur út. Af sögnum af dæma er 7-5 skipting líkleg í vestur og útspilið er vísbending um leguna til hliðar – hinn örsmái ♠2 er greinilega viðleitni til að benda á eyðu í tígli. Ef sagnhafi reiknar með að skipting vesturs sé 7-5-0-1 spilar hann þannig: Drepur á ♠Á, spilar ♣K, hirðir háslagina þrjá á tígul og ♥Á, víxl- trompar loks upp í tólf slagi. Ótrúlega einfalt. Nýirborgarar Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.