Morgunblaðið - 31.12.2009, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 31.12.2009, Qupperneq 58
Íslenskar plötur 1. Narodna Muzika – Narodna Muzika Haukur Gröndal tileinkar sér balkantónlist- ina af ástríðu og einlægni. Kætir mig í hvert skipti sem ég hlusta. 2. Egill S – Egill S Plata sem kemur á óvart við hverja hlustun. Öll fjölskyldan hefur tekið plötuna upp á arma sína og það ekki að ástæðulausu. Þrefalt húrra! 3. Stereo Hypnosis – Hypnogogia Frábært stykki frá feðgunum Pan og Óskari tekið upp við rætur Snæfellsjökuls. Tónleikar þeirra á Sódómu voru einnig af þeim bestu á árinu sem leið. Erlendar plötur 1. Tyft – smell the difference Hljómsveitin Tyft hefur aldrei hljómað jafn- skörp og spennandi. Plata sem vex og vex rétt eins og hljómsveitin sjálf. 2. Major Lazer – Hold The Line Fríkuð og skemmtileg plata. Lifandi og húmorískur sýrudansrússíbani. 3. Animal Collective – Merryweather Post Pavillion Inspírerandi tónlist sem sækir á mann í þögninni. Hlakka til næstu plötu. Arnljótur Sigurðsson 58 Menning MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2009 Íslenskar plötur 1. Anna Guðný Guðmundsdóttir – Vingt regards sur l’enfant-Jésus Það er afrek út af fyrir sig að hafa tekið upp verkið í heild sinni, en það er algjör sigur að hafa flutt það í þokkabót með svo miklu næmi og þessari dýpt. Unaðsleg tónlist og frábær flutningur. 2. Hjálmar – IV Það eru einfaldlega öll lög þessarar plötu vel samin, vel flutt og skemmtileg áheyrnar. Og til að kóróna allt er sungið á góðri og vandaðri ís- lensku! 3. Víkingur Heiðar Ólafsson – Debut Víkingur sendir frá sér nokkuð djarfa de- butplötu með krefjandi verkum, en hann stendur fyllilega undir henni með vönduðum og spennandi flutningi. Frábær diskur og eigulegar upptökur af völsum Brahms og Eroica-tilbrigðum Beethovens. Erlendar plötur 1. Dirty Projectors – Bitte Orca Stórskemmtileg plata sem fer víðan völl í til- raunamennsku en nær samt alltaf að vera grípandi. Sveitin hefur örugglega bætt við sig nokkur hundruð þúsund aðdáendum árið 2009, m.a. vegna þessarar plötu. 2. Grizzly Bear – Veckatimest Hugljúf, einlæg og áhrifarík plata sem kem- ur á óvart við hverja hlustun. Það heyrist alltaf um leið þegar mikil vinna hefur verið lögð í tónlistina og hér er það einmitt tilfellið: Vec- katimest er þaulhugsuð og vönduð smíð. 3. Animal Collective – Merriweather Post Pavilion Góð plata með ógleymanlegum smellum, s.s. „My Girls“ og „Summertime Clothes“, á milli annarra ágætra og frumlegra laga. Alexandra Kjeld Íslenskar plötur 1. Hjálmar – IV Besta íslenska plata ársins og besta plata Hjálma. Ferðin til Jamaíka gerði þeim greini- lega gott! 2. Ruxpin – Where Do We Float From Here Ruxpin veit svo sannarlega hvað hann er að gera og sannar sig sem einn efnilegasta raf- tónlistarmann landsins. 3. Hjaltalín – Terminal Platan sem allir eru að tala um. Stórar út- setningar og breyttur hljómur einkenna plöt- una sem þó heldur í karaktereinkenni sveit- arinnar. Erlendar plötur 1. Animal Collective – Merriweather Post Pavilion Animal Collective áttu óvæntasta poppsmell ársins með laginu My Girls og rötuðu svo á toppinn á hinum ýmsu árslistum. Ekki að furða, því platan er fjandi góð! 2. Grizzly Bear – Veckatimest Fyrri plata sveitarinnar bliknar í sam- anburði við Veckatimest, sem er allt í senn: svöl, sæt, grípandi og skrítin. 3. Converge – Axe to Fall Þegar Converge senda frá sér plötu er ekki annað hægt en að leggja við hlustir. Ekki hlusta of hátt samt, það gæti endað með heyrnarskemmdum. Hildur Maral Hamíðsdóttir Íslenskar plötur 1. Bloodgroup – Dry Land Það sem áður var galsafengin danspoppsveit er orðið að myljandi þéttri rafpoppsveit sem hefur fært hlustandann af dansgólfinu og yfir í hægindastólinn og heyrnartólin. Lagasmíðar og pródúksjón á hreinræktaðan heims- mælikvarða. 2. Hjaltalín – Terminal Hjaltalín-flokkurinn hefur af miklum metn- aði stækkað strigann, fjölgað litum og penslum, að ekki sé minnst á stílbrögðin sem eru allrahanda, og eftir stendur svo marg- slungið stórvirki að áheyrendur myndi setja hljóða – bara ef lífsgleðin væri ekki svona bráðsmitandi! 3. Jónsi & Alex – Riceboy Sleeps Jónsi og Alex tefla fram einni eftirminnileg- ustu plötu ársins, fullri af seiðandi og ang- urværri stemningu. Merkilegt að svo hæglát músík geti verið jafn áhrifarík. Erlendar plötur 1. Animal Collective – Merriweather Post Pavilion Ekki ýkja frumlegt útspil, en við því er ekk- ert að gera; MPP var einfaldlega marslungn- asta, melódískasta, frumlegasta og frábær- asta plata ársins. Með því að gefa hana út strax í janúar sl. var sett fram óvægin mæli- stika á allt sem á eftir rann árið 2009. 2. The Antlers – Hospice Enn ein Brooklyn-sveitin sem kemur sér á framfæri fyrir hörkufína músík síðustu mán- uði og misseri. The Antlers standa undir orð- sporinu enda platan frábær, full af hæglátu úrvals elektró-indípoppi. 3. When Saints Go Machine – Ten Makes A Face Frændur vorir í danska kvartettinum WSGM eiga eina skemmtilegustu plötu árs- ins, enda músíkin mestan part melódískt og dansvænt gæðapopp, stílfært og stuðmikið. Jón Agnar Ólason Íslenskar plötur 1. Hjaltalín – Terminal Spútniksveit síðustu ára snarar fram mögnuðu meistaraverki þar sem saman fer djörfung, metnaður og framsækni. Stór- kostleg plata. 2. Kimono – Easy Music for Difficult People Kimono verður betri og betri með hverri plötu. Skotheld verk manna sem vita ná- kvæmlega hvað þeir eru að gera, stútfullt af hugmyndaríkum lagasmíðum. Ein besta gítarrokkplata síðustu ára. 3. Hildur Guðnadóttir – Without Sinking Hildur er hugrakkur listamaður sem fer óhikað inn á ókönnuð svæði með það mark- mið að velta upp einhverju nýju og spenn- andi. Dulúðugt verk, myrkt og fallegt í senn. Erlendar plötur 1. Grizzly Bear – Veckatimest Magnaður samsláttur á linnulausri til- raunastarfsemi og áhlýðilegum aðgengileg- heitum. 2. Espers – III Þessi síð-þjóðlagasveit frá Fíladelfíu vinnur glæsilega úr arfinum um leið og ný- sköpun er í hávegum höfð. 3. Florence and the Machine – Lungs Kvenfólkið átti tónlistarárið að mörgu leyti. Hugmyndaríkt nýpopp með vísanir út og suður í tónlistarsöguna en allt bundið saman með tilfinningaríkum söng Florence Welch. Arnar Eggert Thoroddsen Áræði Animal Collective átti bestu erlendu plötu ársins að mati margra. Morgunblaðið/Kristinn Heitir Hjálmar fönguðu hug og hjarta með fjórðu plötu sinni. Plötur ársins 1. Sororicide á Gauknum „Hólí sjæse bitte sjön!!“ sögðu menn á spjall- borðunum þegar það spurðist út að Sororicide myndi hita upp fyrir sænsku dauðarokkssveit- ina Entombed. Víst var gaman að fá Entom- bed, en „SORORICIDE!!!!!! Núna getur mað- ur dáið sáttur!“ 2. Hjaltalín í Fríkirkjunni Árið 2008 var ár Hjaltalín og tónleikarnir sem sveitin hélt í Fríkirkjunni voru einn af há- punktum þess árs. „… ekkert minna en guð- dómlegir,“ sagði gagnrýnandi Morgunblaðsins. 3. ORKA í Norræna húsinu Færeyska hljómsveitin ORKA er engin venjuleg hljómsveit, heldur leika liðsmenn hennar á ýmiskonar dót sem þorri manna kall- ar eflaust drasl; olíutunnur, krúsir, girð- ingastaura, ryðgaðar sagir og svo má telja. Tónleikar sveitarinnar í Norræna húsinu voru svo magnaðir að menn gleymdu bæði stað og stund. 4. Skúli Sverrisson í Þjóðmenningarhúsi Skúli Sverrisson heldur ekki oft tónleika hér á landi, enda er hann búsettur ytra og önnum kafinn þar. Hann var þó staddur hér á landi að taka upp plötu og greip tækifærið til að halda tónleika sem gagnrýnandi blaðsins sagði hafa verið „andleg afeitrun“. 5. Megas spilar Millilendingu Á Nasa Megas fékk Senuþjófana í lið með sér og flutti Millilendingu í heild á sérstökum tón- leikum fyrir troðfullu húsi á Nasa. „Svei mér þá, ef þetta eru ekki bestu Megasartónleikar sem ég hef upplifað síðan kommbakktónleik- arnir voru í Austurbæjarbíói,“ var haft eftir einum viðstaddra. 6. Lokatónleikar Þursaflokksins á Nasa Hinn íslenski þursaflokkur sneri aftur eftir áralangan dvala fyrir rétt tæpum tveimur ár- um og í haust þótti mönnum nóg komið og kvöddu að sinni. Lokatónleikarnir voru haldnir fyrir fullu húsi í Nasa og sveitin geislaði af spilagleði og menn nutu þess sýnilega að spila þessa stórkostlegu lög. 7. Damien Rice í Sundlauginni Það verður varla komist nær tónlistarmanni en Damien Rice bauð upp á á tónleikaröð í Sundlauginni í Álafosskvosinni, en þar sátu áheyrendur nánast í fanginu á honum. Við- fangsefni var ný lög, hálfköruð eða lengra komin og viðstaddir fengu færi á að sjá hvernig lög verða til í kollinum á Damien. 8. Tiger Lillies í Íslensku óperunni Tígrisliljurnar eru frægar fyrir að vera fráhrindandi, ef svo má segja, því inntak laga þeirra er yfirleitt móðgandi eða allt að því viðbjóðslegt, en flutningurinn og umbún- aðurinn er fágaður og fagur, fyndinn og frumlegur. Það mátti og sjá á eftirminnileg- um tónleikum sveitarinnar á Listahátíð í vor. 9. Willie „Big Eyes“ á Nordica Blúshátíð var haldin í Reykjavík í vor líkt og undanfarin ár og meðal gesta tveir blús- jöfrar, þeir Willie „Big Eyes“ Smith og Joe Willie „Pinetop“ Perkins. Báðir voru þeir í fínu formi þrátt fyrir háan aldur, Pinetop 95 ára og Willie „Big Eyes“ 73 ára, en sá síð- arnefndi heldur hressari og mikill fengur að fá hann hingað. 10. Airwaves í miðbænum Það var ekkert kreppuhljóð í mönnum á Airwaves-rokkhátíðinni. það var af nógu að tala og engin leið fyrir nokkurn mann að komast yfir nema brot af því sem í boði er. Eftirminnilegustu tónleikarnir: Páll Óskar & Hjaltalín í Listasafni Reykjavíkur, Tim Hec- ker í Iðnó, danska sveitin Choir Of Young Believers í Listasafni Reykjavíkur, The Me- gaphonic Thrift í Batteríinu, heilsutvennan Retro Stefson og FM Belfast í Nasa og Úti- dúr á Grand rokk. Árni Matthíasson og Arnar Eggert Thoroddsen Morgunblaðið/Kristinn Dýrlegt Tónleikar Hjaltalín í Fríkirkjunni voru „... ekkert minna en guðdómlegir". Tónleikar ársins
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.