Morgunblaðið - 31.12.2009, Blaðsíða 60
60 Menning
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2009
1. Viltu vinna milljarð / Slumdog Milli-
onaire. Leikstjóri Danny Boyle. Bret-
land, 2008.
Myndin sem sigraði heiminn í ár og
ekki að ástæðulausu. Sagan er átak-
anleg og spennandi og sjónræn um-
gjörð hrífandi.
2. Andkristur/Antichrist. Lars von
Trier. Danmörk, 2009.
Myndin býður upp á mikla fræði-
lega umræðu og túlkun en það má
finna henni til forráttu að með henni
gerir vandræðabarnið Lars von Trier
fólskulega árás á vammlausa blygð-
unarkennd meginstraumsáhorfenda.
Blöskrun þeirra og umtal eykur þó
kaldhæðnislega hróður myndarinnar
og snörp skoðanaskiptin hjálpa til við
að koma henni á spjöld kvikmynda-
sögunnar.
3. Galopin augu / Einayim Pkuhot.
Haim Tabakman. Ísrael, 2009.
Áhrifamikil og ljóðræn lýsing á
átökum manns sem lendir milli steins
og sleggju hefða heittrúaðs samfélags
og sinna eigin óbeislanlegu ástríðna.
4. Uppklapp / Applaus. Martin Peter
Zandvliet. Danmörk, 2009.
Paprika Steen vinnur enn einn
leiksigurinn í þessari dramatísku og
ófegruðu raunasögu um leikkonu sem
þarf að láta af gegndarlausri sjálfs-
elsku og stjörnustælum til að eygja
von um að tapa ekki endanlega fjöl-
skyldunni.
5. Brostin faðmlög / Los abrazos ro-
tos. Pedro Almodóvar. Spánn, 2009.
Almodóvar straumlínulagar höf-
undareinkennin og bælir stuðandi
hispursleysi sitt í mynd sem ætti ekki
að misbjóða neinum en á sama tíma
heldur hann í marglaga og listilega
flókna frásögn og formfágar stíl-
hreina umgjörð sína.
6. Alvörugefinn maður / A Serious
Man. Joel og Ethan Coen. Bandarík-
in, 2009.
Áhorfendur geta ekki annað en
hrifist af listrænni ástríðu Coen-
bræðra og dottið inn í söguheiminn
en kolsvört meinfyndnin er vafalaust
ekki fyrir alla.
7. Upp / Up. Pete Docter og Bob Pet-
erson. Bandaríkin, 2009.
Nýjasta tromp Pixar-samsteyp-
unnar býður upp á spennandi frásögn
og persónusköpunin er einstök, lífleg
og trúverðug en mögnuð og vel
heppnuð tölvugrafík skiptir þar sköp-
um.
8. Anvil! Saga Anvil / Anvil! The Story
of Anvil. Sacha Gervasi. Bandaríkin,
2008.
Óvæntasti smellur ársins. Áhorf-
endur geta ekki annað en hrifist af
einlægni gömlu harðkjarna rokk-
kempanna í þessari heimildarmynd
og brosað að jafnri hrynjandi væm-
inna ástarjátninga og argra blóts-
yrða.
9. Avatar. James Cameron. Bandarík-
in, 2009.
Myndin opnar nýja vídd í bíóupp-
lifun þar sem stökkbreytt tæknileg
framþróun hefur átt sér stað. Þrí-
víddartæknin hefur verið fullkomnuð
og raunsæi tölvugrafískra persóna
verið aukið til muna þannig að áhorf-
endur geta auðveldlega samsamað
sig við þær þrátt fyrir að söguþráð-
urinn sé hálfvængstífður.
10. Draumalandið. Þorfinnur Guðna-
son og Andri Snær Magnason. Ís-
land, 2009.
Stórbrotið sjónarspil og eldfimt
umfjöllunarefni ferja áhorfandann á
heljarþröm í gegnum tilfinn-
ingarússíbana sem stuðar farþegana
til umhugsunar – sama hvort þeir
samþykkja einhliða málstað mynd-
arinnar eður ei.
Bestu kvikmyndir ársins
Slumdog Millionaire Hreif ógrynni bíógesta á árinu sem er að líða og báðir gagnrýnendur setja hana í fyrsta sæti.
Tekið skal fram að þótt sumar
kvikmyndir á listanum hafi verið
framleiddar árið 2008 er miðað
við þær myndir sem frumsýndar
voru hér á landi árið 2009.
Hjördís
Stefánsdóttir
1. Viltu vinna milljarð / Slumdog
Millinoaire. Danny Boyle. Bretland,
2008.
Í senn bráðsnjöll saga af uppreisn
lítilmagnans og einstök afþreying.
Gefur áhorfandanum fróðlega inn-
sýn í misfagurt mannlífið á Indlandi í
bónus Hrein snilld.
2. Svæði 9/District 9. Neill Blom-
kamp. Bandaríkin/Nýja-Sjáland.
2009.
Ekki látið staðar numið við vís-
indaskáldsöguhrollinn en sköpuð í
leiðinni ádeilin líkingasaga, því stað-
setningin er engin tilviljun; Suður-
Afríka var jú síðasta vígi aðskiln-
aðarstefnunnar. Hroðalegar, líf-
fræðilegar tilraunir á geimverunum,
framkvæmdar af stjórnvöldum,
minna einnig á annan óglæsilegan
kafla úr sögu mannkyns frá öldinni
sem leið.
3. Slovenka. Damjan Kozole. Slóven-
ía, 2009.
Aðalpersónan er ráðvillt sveita-
stúlka, engan vegin fær um að ráða
við gildrur borgarinnar, líkt og Slóv-
enía í samtökum Evrópuþjóða. Hún
og föðurlandið eru komin úr öskunni
í eldinn, þeirra beggja bíður löng og
tvísýn efnahags- og mannréttinda-
barátta. Spurning hvort æskuljómi
Alexöndru verður ekki tekinn að
sjúskast áður en hún fær sð njóta og
skilja nýfengið „frelsi“. Einkar um-
hugsunarverð fyrir Íslendinga í dag.
4. Sólskinsdrengurinn. Friðrik Þór
Friðriksson. Ísland, 2009.
Leikstjóri Eldsmiðsins og Kúreka
norðursins hefur engu gleymt í
heimildarmyndagerð. Myndin er
ekki aðeins upplýsandi um sjúkdóm-
inn einhverfu, sem hefur legið í lág-
inni, heldur er hún mynd vonar og
sigra í erfiðri baráttu einstaklinga og
aðstandenda. Vinnur á frá fyrstu
mínútu uns hún endar full af gleði
sem smitar til áhorfenda.
5. Skólabekkurinn /Entre les murs.
Laurent Cantet. Frakkland. 2008.
Mögnuð líkingasaga hvernig lagð-
ur er grunnur að nýju og öflugu fjöl-
þjóðasamfélagi sem á að stýra
Frakklandi næstu áratugina. Hver
kennslustund, hver nemandi og
kennari er mikilvægur hlekkur í
keðjunni, mikil ábyrgð hvílir þeim á
herðum að skapa heildrænt þjóð-
félag sem þolir ágjafir og umrót á
komandi árum.
6. The Curious Case of Benjamin But-
ton. David Fincher. Bandaríkin
2008.
Sagan býr yfir miklu skemmt-
anagildi, harmrænt og fallegt, mikið
bíó. Sýnir augnablikin sem gefa lífi
okkar tilgang; ástina, hamingjuna,
hlýjuna og gleðina í bland við þau
sem móta okkur til langframa, sorg-
ina, missinn. Óhindrað hugmynda-
flug leiðir okkur um vegu aðal-
persónunnar sem liggja um
furðustrandir veraldar.
7. Upp / Up. Pete Docter og Bob Pet-
erson. Bandaríkin, 2009.
Það kemur ekki á óvart að teikni-
mynd ársins er frá tölvusnilling-
unum hjá Pixar. Stórfenglegt æv-
intýri með boðskap, ótrúlegt
hugmyndaflug. Fjölskylduvæn úr-
valsskemmtun.
8. Fjölbragðaglímumaðurinn/The
Wrestler. Darren Aronofsky. Banda-
ríkin 2008.
Sorgarsaga vandræðagrips sem
þoldi greinilega ekki skammvinna
frægð sem gerði honum fátt til gagns
en spillti því litla sem hann átti. Nú
eygir hann örlitla von um endurreisn
en varúðarljósin blikka og í raun hef-
ur hann ekkert lært. Minnisvarði um
hinn einstaka Mickey Rourke.
9. Avatar. James Cameron. Banda-
ríkin, 2009.
Stórfengleg sjónræn upplifun og
tímamótamynd í sögunni sakir yf-
irburða þrívíddarbrellna samanborið
við eldri myndir. Sagan sjálf síður
eftirminnileg.
10. The Hangover. Todd Phillips.
Bandaríkin, 2009.
Minnir okkur blessunarlega á að
enn eru gerðar myndir sem koma
gleðilega á óvart. Einfaldlega „feel
good“-mynd ársins.
Óvænt District 9 kom bíóáhugamönnum skemmtilega á óvart. Sæbjörn setur hana í annað sæti.
Sæbjörn
Valdimarsson
Hangover Minnir okkur blessunarlega á að enn eru gerðar myndir sem koma gleðilega á óvart.
Brostin faðmlög Listilega flókin frásögn og stílhrein umgjörð.