Morgunblaðið - 31.12.2009, Side 68

Morgunblaðið - 31.12.2009, Side 68
FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 365. DAGUR ÁRSINS 2009 Heitast 0°C | Kaldast -10°C Hæg norðlæg eða breytileg átt, yfirleitt léttskýjað, en él á an- nesjum fyrir norðan. Víða bjartviðri. »10 Heimild: Seðlabanki Íslands DOLLARI STERLINGSPUND KANADADOLLARI DÖNSK KRÓNA NORSK KRÓNA SÆNSK KRÓNA SVISSN. FRANKI JAPANSKT JEN SDR EVRA MEÐALGENGI/VIÐSKIPTAVOG ÞRÖNG 125,4 198,9 119,65 24,182 21,594 17,432 120,92 1,3602 195,97 179,98 Gengisskráning 30. desember 2009 125,7 199,38 120 24,253 21,658 17,483 121,26 1,3642 196,55 180,48 233,2485 MiðKaup Sala 126,0 199,86 120,35 24,324 21,722 17,534 121,6 1,3682 197,13 180,98 FÓLK Í FRÉTTUM» TÓNLIST» Tón- og lagalistar breyt- ast lítið milli vikna. »62 Óvæntar fréttir voru margar á árinu og má þar m.a. nefna andlát Michaels Jackson og Brittany Murphy. »61 FÓLK» Margt þótti á ári óvænt FÓLK» Uchitel og Woods saman á Palm Beach? »47 FÓLK» Britney flokkar bull- fréttir af sér. »48 Orri Páll Ormarsson er hæstánægður með heimildarmynd í tveimur hlutum um árásina á Goðafoss árið 1944. »66 Framúr- skarandi SJÓNVARP» Menning 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT Í LAUSASÖLU 590 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200 VEÐUR» » VEÐUR mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. 18 ára stúlka myrt í Svíþjóð 2. Svavar neitaði að mæta á fundinn 3. Guðbjarti misboðið 4. Bjóða eiðsvarinn vitnisburð  Íslenska krónan styrktist um 0,3%  Ingibjörgu Sól- rúnu Gísladóttur, fyrrum formanni Samfylking- arinnar, þykir ágætt að eiga af- mæli á gamlársdag en hún er 55 ára í dag. „Það fylgir því sá kostur að eiga afmæli á degi eins og gamlársdegi að fleiri muna eftir því og hringja gjarna eða reka inn nefið,“ segir Ingibjörg sem helgar daginn þó að- allega komu nýs árs. Kveðst hún spennt fyrir því að takast á við árið 2010 og segir það mjög óráðið fyrir sig persónulega. TVÖFÖLD TÍMAMÓT Ingibjörg Sólrún fagnar afmæli sínu á gamlársdag  Listvinafélag Hallgrímskirkju heldur í dag tón- leika sem hefjast kl. 17. Yfirskrift þeirra er Hátíð- arhljómar við ára- mót og er þetta í sautjánda sinn sem félagið býður til þeirra. Trompetleikararnir Ásgeir H. Steingrímsson og Eiríkur Örn Pálsson og orgelleikarinn Hörður Áskelsson munu kveðja gamla árið með fagurri tónlist og fagna því nýja með lúðraþyt og orgelleik. Nýtt verk eftir Áskel Másson, Giubilante, verður frumflutt í upphafi tónleika. TÓNLEIKAR Hátíðarhljómar við áramót í Hallgrímskirkju í dag  Karlakórinn Heimir ætlar að sviðsetja fjölmenn- ustu orrustu Ís- landssögunnar, Ör- lygsstaðabardaga, í tali og tónum í menningarhúsinu Miðgarði í Skagafirði laugardags- kvöldið 2. janúar. Undirleikari er Thomas Higgerson og einsöngvarar Óskar Pétursson tenór og Ásgeir Eiríksson bassi. Dagskráin hefst kl. 20.30 og að henni lokinni er þrett- ándaball í Miðgarði með Hljóm- sveitar Geirmundar Valtýssonar. TÓNLIST Örlygsstaðabardagi settur upp af karlakórnum Heimi NÚ ERU 44 Ís- lendingar á lífi sem eru hundrað ára eða eldri og hafa þeir aldrei verið fleiri. Kon- urnar eru 36 og karlarnir átta. Fyrir einu ári voru á lífi 40 Ís- lendingar sem náð höfðu hundrað ára aldri, fyrir tíu árum voru þeir 26 og fyrir þrjá- tíu árum aðeins sex. Þetta kemur fram á vefsíðunni langlifi.net. Torfhildur Torfadóttir á Ísafirði er elst Íslendinga, 105 ára síðan í maí. Hún er fædd í Asparvík í Strandasýslu. Margrét Hannes- dóttir í Reykjavík er næstelst, varð 105 ára í júlí. Hún er frá Núpsstað í Vestur-Skaftafellssýslu. Fjögur systkini hennar eru á lífi, á aldr- inum frá 79 til 100 ára. Þriðji elsti Íslendingurinn og elsti karlmað- urinn er Sigsteinn Pálsson í Mos- fellsbæ sem varð 104 ára í febrúar. Hann fæddist á Tungu í Fáskrúðs- firði en bjó lengi á Blikastöðum í Mosfellsbæ. Aldrei fleiri hundrað ára og eldri á lífi Torfhildur Torfadóttir ÁRLEGT stjörnuljósasund sunddeildar KR var í gærkvöldi og talið er að milli 60 og 80 börn hafi verið í Vesturbæj- arlauginni. Öll ljós voru slökkt, krakkarnir syntu um með stór stjörnuljós og fóru svo í pottinn á eftir. KR-INGAR SYNTU MEÐ STJÖRNULJÓS Morgunblaðið/Ómar Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is NÁTTÚRUBÖÐ sem verið er að undirbúa við Deildartunguhver í Borgarfirði nýta aðdráttarafl vatns- mesta hvers jarðar og vísa einnig til sögunnar því þar verður hlaðin stór „Snorralaug“ og hugmyndir sóttar í ýmsar sögufrægar laugar víða um land. Miðaldaböðin Snorralindir er vinnuheiti verkefnisins sem Kjartan Ragnarsson og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir, stofnendur Land- námsseturs Íslands í Borgarnesi, hafa unnið að með sérfræðingum. Þau eru í sambandi við fjárfesta, bæði innlenda og erlenda, með það í huga að stofna félag til að vinna að frekari undirbúningi. Fram hefur komið að kostnaður við að koma upp fyrsta áfanga baðanna er áætlaður 750 milljónir kr. Ætlunin er að byggja upp baðað- stöðu með heitum laugum og gufu- böðum af ýmsu tagi í fyrsta áfanga, auk veitingastaða, minjagripaversl- unar og sýningaraðstöðu. Því er haldið opnu að byggð verði heilsu- stöð og hótel, annað hvort samhliða böðunum eða síðar. Kjartan vonast til að Miðaldaböð- in við Deildartunguhver muni hafa aðdráttarafl fyrir ferðafólk, eitthvað í líkingu við Bláa lónið og Gullfoss og Geysi. Fólk staldri við og noti jafn- framt þjónustu fyrirtækja á svæð- inu. Hann hefur orðið var við það í kynningu erlendis á starfsemi Land- námssetursins að mikið vantar á gott aðgengi og þjónustu við ferðafólk á þeim stöðum sem mest aðdráttarafl gætu haft á Vesturlandi.  Böð miðalda endurreist | 20 Miðaldaböð við Deildartunguhver Hugmyndir um að hlaða nýja „Snorralaug“ Ljósmynd/Basalt Snorralaug Hlaðnar verða laugar í Miðaldaböðunum í Deildartungu. Í HNOTSKURN »Deildartunguhver ervatnsmesti hver Íslands og sennilega á jörðinni. Hann er nýttur fyrir hitaveitu Akra- ness og Borgarfjarðar. »Erlendir ferðamenn sækjamikið í jarðböð, eins og sést á Bláa lóninu á Reykja- nesi og Jarðböðunum í Mý- vatnssveit. »Borgfirðingar nýta sér-stöðu sína með því að sækja hugmyndir í söguna. MORGUNBLAÐIÐ kemur næst út mánudaginn 4. janúar. Fréttavakt verður á Fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is, um áramótin. Hægt er að senda ábendingar um fréttir á net- fangið netfrett@mbl.is. Áskriftardeild blaðsins er opin í dag, gamlársdag, frá kl. 7-13. Dreifingardeild verður opin í dag frá kl. 5-11. Lokað er á nýársdag, laugardag og sunnudag. Símanúmer áskriftardeildar er 569-1122. Næsta blað kemur út 4. jan. SIGURÐUR Ari Stefánsson varð í gærkvöldi norsk- ur bikarmeistari í handknattleik þegar lið Elver- um bar sigurorð af Drammen, 25:24, í æsispenn- andi úrslitaleik sem háður var í Spektr- um-höllinni í Osló að viðstöddum 6.700 áhorfendum. Sigurður skoraði eitt af mörkum Elverum. | Íþróttir Sigurður bikar- meistari í Noregi Sigurður Ari Stefánsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.