Morgunblaðið - 02.02.2010, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 02.02.2010, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 2010 einfalt & ódýrt! Goða kjöt- og bacon- búðingur og medisterpy lsa298kr.stk. Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is „ÞAÐ kemur okkur á óvart, þegar við fylgjumst með þessu, hvernig Bretar og Hollendingar haga sér. Það sem þeir eru að reyna að ná fram er ekk- ert annað en þjóðvegarán, með öllum þeim þrýstingi sem þeir beita Ísland. Þetta er einstaklega ósanngjarnt. Það er enginn lagalegur grundvöllur fyrir því sem þeir eru að reyna að ná fram,“ segir Alex Jurshevski, for- stjóri kanadíska ráðgjafafyrirtækis- ins Recovery Partners, um Icesave. „Við gjaldþrotaskipti eins og þessi er fyrst gengið að eignum þess sem er gjaldþrota […]. Eigendur hluta- bréfa og sparifjár í þessum bönkum eiga aðeins kröfu í eignir bankans.“ Jurshevski, sem á í viðræðum við íslensk stjórn- völd um aðkomu að málinu, telur það án fordæmis. Endurspeglar stjórnmálin „Þetta er for- dæmalaust og endurspeglar stjórnmálin sem flétt- ast í málið. Við vitum að bresk og hollensk stjórnvöld ákváðu að bæta sparifjáreigendum í löndum sínum tjónið með fé úr eigin sjóðum. Síðan er sagt að Íslandi beri að bæta tjónið þar sem fjármálaeftirlit landsins hafi brugðist, bankarnir ver- ið íslenskir og tryggingasjóður inni- stæðueigenda ekki dugað til. Íslensk stjórnvöld verða í kjölfarið að greiða Bretum og Hollendingum fullar bætur. Þetta er án nokkurs for- dæmis. Þetta er fráleitt lagalega séð og er óskynsamlegt efnahagslega fyrir alla nema stjórnvöld í Bretlandi og Hollandi.“ Jurshevski, sem hefur komið að skuldaaðlögun fyrir nýsjálenska rík- ið, rifjar upp gjaldþrot Lehman Brot- hers. „Fall Lehman Brothers olli hluta- fjáreigendum miklu tjóni. Við sjáum hins vegar ekki Breta, hvort sem það eru almennir borgarar eða fyrirtæki, fara til bandaríska fjármálaráðuneyt- isins með kröfu um fulla endur- greiðslu,“ segir Jurshevski sem býðst til að veita ókeypis ráðgjöf. Fordæmalaus greiðslukrafa  Fyrrverandi ráðgjafi stjórnvalda á Nýja-Sjálandi telur Íslendinga ekki geta unað við Icesave-málið  Telur kröfur Breta og Hollendinga án fordæmis  Býður íslenskum stjórnvöldum ókeypis ráðgjöf Alex Jurshevski KRAKKARNIR á leikskólanum Sunnuborg voru í hátíðarskapi í allan gærdag enda mörgu að fagna, bæði bronsverðlaunum íslenska hand- boltalandsliðsins sem þau hafa fylgst rækilega með en fyrst og fremst 40 ára afmæli leikskólans þeirra. Sunnuborg var opnuð 1. febrúar 1970 og þar hafa því margir Reykvíkingar slitið barns- skónum síðustu fjóra áratugi. Krakkarnir héldu í skrúðgöngu strax um morguninn og héldu pylsupartí í hádeginu en svo var opið hús fyrir foreldra sem fengu að kynnast leikskólastarfinu í máli og myndum og hlýða á söng barnanna. Að sögn Hrefnu Sigurðardóttur, leikskólastjóra Sunnuborgar, var þetta mikill hátíðisdagur fyrir bæði börn, starfsfólk og foreldra. SUNNUBORG FAGNAR FJÓRUM TUGUM Morgunblaðið/Heiddi „VIÐ VITUM öll hvernig staðan er en hér ætlum við að hefja störf á því að ræða um mál sem skipta máli; handtöku og afhendingu manna milli Norðurlanda, náttúruverndaráætlun – sem þeir sem flytja hafa gert lítið úr meðal annars – og síðan eru nokk- ur mál um vestnorræn samskipti. Hvar eru heimilin og hvar eru fyr- irtækin? Mér finnst að það þurfi að koma þeim skilaboðum til forystu- manna ríkisstjórnarinnar að hér þurfi að forgangsraða upp á nýtt.“ Með þessum orðum hófst þingfundur á Alþingi í gær og voru þau Gunnars Braga Sveinssonar, þingmanns Framsóknarflokks. Gunnar Bragi tók til máls undir liðnum fundarstjórn forseta og fleiri fylgdu í kjölfarið. Þingmenn stjórn- arandstöðunnar lýstu margir hverjir vonbrigðum sínum með dagskrá þingsins og það að utandagskrárum- ræða um efnahagsmál var tekin af dagskrá á síðustu stundu vegna anna forsætisráðherra. Þórunn Sveinbjarnardóttir, þing- maður Samfylkingar, steig m.a. í ræðustól. Hún gerði ekki athuga- semdir við dagskrána og sagði: „Það er ekki þannig að eitthvert þingmál, frumvörp eða þingsályktunartillögur eða annað það sem rætt er og af- greitt á hinu háa Alþingi, sé eitthvað ómerkilegra en annað.“ Guðlaugur Þór Þórðarson, þing- maður Sjálfstæðisflokks, þakkaði hreinskilnina. „Hér er útskýrt fyrir okkur að öll mál séu jafngild og þess vegna ætli menn að ræða hér í dag um árlegan vestnorrænan dag og vestnorræn nemendaskipti […]. Hér er óundirbúinn fyrirspurnartími, þannig að menn fá tvær til fjórar mínútur til að spyrja hæstvirtan efnahagsráðherra og hafið það og verið svo ekki að trufla hæstvirta rík- isstjórn með þessu um heimilin og fyrirtækin.“ andri@mbl.is Lýstu vonbrigðum sínum með dagskrá þingsins Morgunblaðið/Kristinn Þing Illugi Gunnarsson og Guð- laugur Þór stinga saman nefjum. Þingmenn stjórnar- andstöðu ósáttir við forgangsröðun DAGUR B. Egg- ertsson, varafor- maður Samfylk- ingarinnar, ræddi um Icesave-málið á fundi með for- mönnum flokka jafnaðarmanna á Norðurlöndunum sem haldinn var í janúar. Hann lagði áherslu á að efnahagsáætlun AGS héldi áfram. Fundurinn var haldinn fljótlega eftir að forseti Íslands vísaði Ice- save-málinu til þjóðaratkvæða- greiðslu. „Jafnaðarmenn á Norðurlöndum undirstrikuðu þá forystu sem Norð- urlöndin hafa gegnt varðandi lána- fyrirgreiðslu til Íslands og að þau myndu áfram verða þar í forystu- hlutverki.“ Dagur sagðist hafa rætt Icesave- málið og þá afstöðu ríkisstjórnar- innar og allra stjórnmálaflokka á Ís- landi að Ísland myndi standa við al- þjóðlegar skuldbindingar sínar. „Ég lagði áherslu á að efnahagsáætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Norð- urlandanna færi ekki í frost. Öll vinna stjórnvalda frá ákvörðun for- setans hefur snúist um að koma í veg fyrir það. Þessi fundur var liður í því.“ egol@mbl.is Icesave stöðvi ekki áætlun AGS Dagur B. Eggertsson „Ef samningaviðræður fara út um þúfur munum við að sjálfsögðu rannsaka málið. Þetta er mjög um- deilt mál og við tjáum okkur ekki frekar um það í gegnum fjölmiðla á meðan samningaviðræður standa yfir,“ segir Per Sanderud, forseti ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, um mögulega aðkomu stofnunarinnar að rannsókn á lagahliðum Icesave-deilunnar. Aðspurður hvort rannsóknin yrði ekki fljótafgreidd í ljósi þess að ESA hefur fylgst grannt með málinu segir Sanderud ekki við hæfi að tjá sig um málsmeð- ferðina á þess- ari stundu. „Við fylgj- umst grannt með málinu og hvernig það lít- ur út frá sjón- arhóli ESA. Við munum aðeins tjá okkur um það að rannsókn lok- inni. Við myndum meta málið gaumgæfilega eftir að hafa kynnt okkur allar staðreyndir þess.“ Myndu að sjálfsögðu rannsaka málið Per Sanderud

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.