Morgunblaðið - 02.02.2010, Page 10

Morgunblaðið - 02.02.2010, Page 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 2010 Svandís Svavarsdóttir umhverfis-ráðherra ákvað í gær að synja skipulagsbreytingum, sem snúa að virkjunum í neðri Þjórsá, staðfest- ingar. Þar með hafa þær fram- kvæmdir verið stöðvaðar um óákveðinn tíma og sama má segja um þann orkufreka iðnað sem treysti á þessar framkvæmdir.     Í gær birti Morg-unblaðið grein eftir Björgvin G. Sigurðsson, for- mann þingflokks Samfylkingarinnar, sem einkennist af algerri óskhyggju. Yfirskrift greinar Björgvins er „Á fulla ferð í atvinnu- málum“ og fjallar hún um þá ákvörð- un umhverfis- ráðherra að Suð- vesturlína skuli ekki fara í sameiginlegt umhverfismat. Björgvin segir þá ákvörðun marka „þáttaskil við upp- byggingu atvinnutækifæra á Suð- urnesjum og orkunýtingu á svæð- inu“.     Fróðlegt verður að lesa næstugrein Björgvins þar sem hann fjallar um þau þáttaskil sem nýjasta ákvörðun umhverfisráðherra markar við uppbyggingu atvinnu- tækifæra á Suðurnesjum.     Umhverfisráðherra hefur þvímiður staðfest að áhyggjur þeirra, sem óttast hafa að ríkis- stjórnin sé á móti uppbyggingu at- vinnulífsins, eru á rökum reistar. Ríkisstjórnin beitir ekki aðeins háum sköttum og langvarandi gjaldeyrishöftum til að halda aftur af atvinnulífinu. Hún stöðvar einnig orkuöflun sem er forsenda fram- kvæmda.     Engu breytir þótt einstaka þing-menn reyni að afvegaleiða al- menning. Verkin tala skýru máli. Björgvin G. Sigurðsson „Á fulla ferð í atvinnumálum“ Svandís Svavarsdóttir Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður Reykjavík 2 skýjað Lúxemborg -1 snjóél Algarve 15 léttskýjað Bolungarvík -1 skýjað Brussel 2 skýjað Madríd 10 heiðskírt Akureyri -2 alskýjað Dublin 6 skýjað Barcelona 10 léttskýjað Egilsstaðir -4 skýjað Glasgow 4 skúrir Mallorca 11 léttskýjað Kirkjubæjarkl. 1 alskýjað London 4 léttskýjað Róm 7 léttskýjað Nuuk 0 slydda París 5 skýjað Aþena 14 léttskýjað Þórshöfn 1 skýjað Amsterdam 2 léttskýjað Winnipeg -27 alskýjað Ósló -17 heiðskírt Hamborg 1 snjókoma Montreal -13 heiðskírt Kaupmannahöfn -3 alskýjað Berlín 1 skýjað New York -2 heiðskírt Stokkhólmur -2 skýjað Vín 1 skýjað Chicago -4 alskýjað Helsinki -5 snjókoma Moskva -1 alskýjað Orlando 16 alskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR 2. febrúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 2.19 -0,0 8.29 4,4 14.47 0,0 20.56 4,1 10:05 17:19 ÍSAFJÖRÐUR 4.24 0,1 10.25 2,5 16.55 0,0 22.57 2,2 10:26 17:08 SIGLUFJÖRÐUR 0.49 1,3 6.33 0,1 12.54 1,4 19.07 -0,1 10:10 16:50 DJÚPIVOGUR 5.41 2,3 11.52 0,2 17.55 2,2 9:39 16:44 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Á miðvikudag og fimmtudag Austan og norðaustan 3-8 m/s, en 8-13 við S-ströndina. Dálítil él, en yfirleitt léttskýjað V- lands. Frost 1 til 8 stig, en frost- laust við SV-ströndina. Á föstudag Austlæg átt. Snjókoma eða slydda S- og V-lands og hiti 0 til 5 stig, en annars úrkomulítið og vægt frost. Á laugardag, sunnudag og mánudag Austanátt með vætu af og til S- og SA-lands, en annars víða bjart. Svipaður hiti. VEÐRIÐ NÆSTU DAGA SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg átt, 10-13 m/s við S- og SV-ströndina, en annars hægari vindur. Stöku él við A- ströndina, en birtir sums stað- ar til fyrir norðan. Frost 1 til 7 stig, en hiti yfir frostmarki við S- og V-ströndina. Reykjanesbær | Þau settu sannarlega svip sinn á annars dökkklædda sam- komuna litskrúðugu fiðrildin sem leikskólabörn í Reykjanesbæ gerðu fyrir UNIFEM og voru notuð til að skreyta Kaffitár fyrir kynningarfund félags- ins sl. laugardag. Fiðrildin vísa í þau áhrif sem UNIFEM vill hafa um heim allan, hvernig vængjablak fiðrildis á einum stað getur orsakað hvirfilbyl hinum megin á hnettinum. Auk þess að kynna starfsemi UNIFEM á heimsvísu fengu gestir m.a. að hlýða á reynslusögu Sylvianne Kithole flóttakonu frá Kenía, sem flúði til Íslands til að hefja nýtt líf. Fjölmargar konur gengu í Systralagið og greiða ákveðna peninga- upphæð mánaðarlega í þágu kvenna heimsins og fjölskyldna þeirra. Morgunblaðið/Svanhildur Eirík Systralag í Reykjanesbæ ÞINGSÁLYKTUNARTILLAGA um að skipa rannsóknarnefnd þing- manna til að fara yfir aðdraganda að ákvörðun Íslands um þátttöku í Íraksstríðinu verður lögð fram í dag. Að henni standa Steinunn Valdís Ósk- arsdóttir, þingmaður Samfylkingar- innar, og Ögmundur Jónasson, þing- maður Vinstri grænna. Nefndinni verður samkvæmt til- lögunni gert að fara yfir hvernig ákvörðunin var tekin, af hverjum, hvers vegna og með hvaða hætti. Hún á að fara yfir öll gögn sem til eru varð- andi málið auk þess að kalla til sín ein- staklinga til skýrslutöku. Flutnings- menn telja að það sé mjög mikilvægt að þetta fari fram í heyranda hljóði. Steinunn Valdís telur tillöguna ekki koma of seint fram, en tæp sjö ár eru liðin frá því að ákvörðunin var tekin. „Við sjáum hvað er að gerast í Bret- landi og Hollandi nú, menn eru að rekja sig í gegnum þessi mál og færa upp á yfirborðið hvernig ákvarðanir voru teknar.“ andri@mbl.is Tillaga flutt um rannsókn á stuðningi við Íraksstríð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.