Morgunblaðið - 02.02.2010, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 02.02.2010, Qupperneq 18
18 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 2010 Á SUÐURNESJUM búa um 21.500 þúsund manns. Þá er fjöldi íbúa á háskólasvæðinu Ásbrú ekki tekinn með en þar búa um 1500 manns sem flestir eiga lögheimili annars staðar. Hér er einnig al- þjóðaflugvöllur og miðað við þann fjölda sem fer um flugvöllinn og af- skipti lækna af ferðamönnum í viku hverri, má ætla að heilt hverfi íbúa bætist við mannfjöldann á Suð- urnesjum. Suðurnesin skiptast í fimm sveitarfélög og er Reykjanes- bær stærsta sveitarfélagið. Heil- brigðisstofnun Suðurnesja (HSS) er staðsett í Reykjanesbæ. Vegna mikils samdráttar undanfarin tvö ár hefur stofnunin þurft að loka heilsugæsluseljum í Sandgerði, Garði og Vogum. Undanfarin ár hafa stjórnendur HSS bent ítrekað á þann mismun sem er í úthlutun fjármagns til sambærilegra stofnana í landinu. Ekki þarf flókna stærðfræðikunn- áttu til að sjá þennan mismun þeg- ar heildarfjárhæð til hverrar stofn- unar eru borin saman við t.d íbúafjölda hvers svæðis, sjá töflu 1. Á síðastliðnu ári var farið í miklar aðgerðir til hagræðingar á HSS. Vegna þessa tók starfsfólk á sig miklar launalækkanir auk þess sem nokkrir misstu vinnu sína. Á þenn- an hátt var hægt að viðhalda nær óbreyttu þjónustustigi þrátt fyrir niðurskurð. Ávallt hefur verið haft að leiðarljósi að vernda þjónustu við þá sem standa höllum fæti svo sem aldraða og langveika, auk þess sem reynt hefur verið af fremsta megni að vernda störf, sérstaklega þeirra lægst launuðu. Nú er hins vegar komið að þolmörkum fyrir stofnunina sem hefur mátt búa við fjársvelti í fjölda ára. Það er morg- unljóst að meiri sparnaður næst ekki nema með því að leggja af þjónustu og segja upp fólki. Í flest- um tilfellum er ekki hægt að bjóða því fólki sem sagt verður upp önnur störf. Á Suðurnesjum er mesta at- vinnuleysi á landinu og það fagfólk sem er í hættu á að missa vinnu sína á HSS er flest íbúar á svæð- inu. Frekari niðurskurður mun einnig óhjákvæmilega skerða þjón- ustu við íbúa. Við blas- ir að loka verður skurðstofum stofn- unarinnar og vísa sjúk- lingum til Reykjavík- ur. Fæðingaþjónusta starfar í nánu sam- neyti við skurðstofur og því mun lokun skurðstofa leiða til fækkunar fæðinga á svæðinu en sem stend- ur fæða hátt í 300 kon- ur börn sín á HSS ár- lega. Þeim konum sem ekki fæða á HSS verð- ur vísað til Reykjavíkur. Lokað verður á göngudeildarþjónustu við sykursjúka og sálfélagslegri þjón- ustu við börn og fjölskyldur þeirra verður hætt. Þessu fólki verður vís- að til Reykjavíkur. HSS fékk ný- lega að gjöf sneiðmyndatæki sem ætlað var að sinna þörfum fólks á svæðinu. Sneiðmyndatæki eru til staðar á öllum stærri heilbrigð- isstofnunum á landinu og eru sjálf- sagður þáttur í nútíma læknisfræði. Þeirri þjónustu verður hætt og fólki vísað í myndatöku í Reykjavík. Heilsugæsluþjónustu sem verið hef- ur of lítil verður að skerða enn frekar og þjónusta á vöktum verður minnkuð. Þessu fólki verður einnig vísað á þjónustu í Reykjavík. Það kreppir að í þjóðfélaginu og nauð- synlegt er að spara og hagræða sem mest. Þetta vitum við öll. Mað- ur verður hins vegar að spyrja sig hvaða hagræðing felist í aðgerðum af þessu tagi, sérstaklega þegar í raun er bara verið að flytja þjón- ustuna til og bæta atvinnuástandið á höfuðborgarsvæðinu á kostnað íbúa á Suðurnesjum. Í desember 2009 kom út skýrsla starfshóps á vegum heilbrigðisráðuneytis sem fjallar um endurskipulagningu á sjúkrahúsþjónustu á suðvest- urhorninu. Í þeirri skýrslu er raun- ar nokkuð af rangfærslum og reiknivillum sem ekki verða gerð nánari skil hér en stærsta spurn- ingamerkið sem setja má við nið- urstöðurnar er hvernig tekið er á því óhagræði að ekki sé talað um kostnað sem hlýst af flutningi þjón- ustunnar fyrir íbúa. Þetta verður enn áleitnari spurning þegar haft er í huga að þjónusta HSS við inni- liggjandi sjúklinga og fæðandi kon- ur er í raun mjög hagkvæm í sam- anburði við aðra sambærilega aðila, sjá töflu 2. Það er því miður hryggðarmynd sem blasir við. Flutningur þjónustu til Reykjavík- ur. Eyðilegging fyrirmyndarþjón- ustu sem í sumum tilvikum hefur tekið áratugi að byggja upp. Aukið atvinnuleysi. Reglulegar áætl- unarleiðir sjúkrabíla á Reykjanes- brautinni. Er þetta það sem við eig- um að stefna að? Þreföld Reykjanesbraut – ein akrein fyrir sjúkrabíla? Eftir Sigurð Þór Sigurðsson og Þórunni Benediktsdóttur »Hvaða hagræðing felist í aðgerðum af þessu tagi, sérstaklega þegar í raun er bara ver- ið að flytja þjónustuna til og bæta atvinnu- ástandið á höfuðborg- arsvæðinu á kostnað íbúa á Suðurnesjum. Sigurður Þór Sigurðsson Höfundar eru framkvæmdastjórar hjúkrunar og lækninga við Heilbrigð- isstofnun Suðurnesja Þórunn Benediktsdóttir Heildarfjárlög 2008 Íbúafjöldi 2008/2009 Upphæð í m/kr. Pr. íbúa Blönduós/Sauðárkr. 6.253 1.411.800 225.780 Ísafjörður 4.930 1.106.300 224.402 Austurland 11.391 2.112.600 185.462 Vestm.eyjar 4.090 702.500 171.760 Akranes 7.271 1.614.500 145.831 Suðurland 20.086 2.128.700 105.979 Suðurnes 21.564 1.824.400 84.604 Tafla 1 ‐ Fjárveitingar til nokkurra heilbrigðisstofnana 2008m.t.t. íbúafjölda. Alls fjöldi legudaga Kvensjd., handl., lyfl. Fjárveiting á sjúkrahús 2008 í m kr. Kostnaður/ metinn legudag HSS 11.300 929.300 74.000 HSU 7.390 811.800 99.000 SHA 9.117 1.137.600 109.000 Tafla 2: Upplýsingar úr skýrslu: "Endurskipulagning sjúkrahúsþjónustu á Suðvesturhorninu" EFTIR því sem maður heyrir í þjóð- félaginu, hjá stjórn- málamönnum og síðast en ekki síst ferðaþjón- ustuaðilum, lítur út fyr- ir að ferðaþjónustan sé og verði bjartasta vonin í svartnættinu sem herjað hefur á okkur landsmenn undanfarið. Ekki ætlum við félagar í Svifvængjasetri Norð- urlands að láta okkar eftir liggja. Í upphafi sáum við okkur ekki taka þátt í ferðaþjónustu, heldur sinna íþrótt á Norðurlandi eystra (Akureyri), halda þar námskeið áhugasamra um að læra svifvængjaflug, og datt okkur ekki til hugar að við myndum enda í ferðaþjónustu. Því miður hafði svif- vængjaflug hér á svæðinu dottið niður en það var í ágætum blóma um tíma. Við leituðum á náðir Atvinnu- þróunarfélags Eyjafjarðar, Vaxta- samnings, og fengum styrk hjá þeim til að koma inn í Sprotasetur með allri þeirri þjónustu sem fagmenn þar bjóða. Markaðsstofa Norðurlands hefur einnig komið að þessu verkefni ásamt fleira góðu fólki. Í Sprotasetrinu fæddist svo hug- myndin sem við vinnum nú með, að sækjast eftir áhugaflugmönnum í svifvængjaflugi (e. paragliding). Sér- staklega leituðum við eftir áhugasöm- um í þeim löndum sem liggja að flug- leið Iceland Express sem hefur flug til Akureyrar í sumar. Viðtökur er- lendis eru spennandi og á þessu ári ráðgerum við að flytja hingað, í þessa sérsniðnu flugpakka, um 80 manns. Ekki skemmir það fyrir að þetta er mannaflsfrek þjónusta, bæði leið- sögumenn, flugleiðsögumenn og ferðaskrifstofufólk, svo ekki sé talað um hlið- aráhrif í afþreyingu, gistingu, veitingum o.fl. þess háttar. Auðveld- lega er hægt að sjá fyrir sér að þessari tegund ferðaþjónustu muni fljótlega vaxa fiskur um hrygg og vinda upp á sig. Við höfum sett okkur í samband við fjölda að- ila og í dag er staðan sú að við áætlum að hefjast handa strax í lok júní eftir að nám- skeiðunum lýkur, en þau eru vel sótt. Þó svo að flugið verði uppistaðan mun íslensk náttúra spila aðalhlut- verkið. Gestir okkar njóta þess mikla úrvals afþreyingar, menningar og annarra þátta sem hlýtur að prýða svona ferðir, þegar þær eru gerðar með metnað í huga, enda á köflum af- ar metnaðarfullt fólk í ferðaþjónustu víða á Íslandi. Við hjá Svifvængja- setri Norðurlands höfum „kortlagt“ fjöldann allan af spennandi flug- stöðum, reynt þessa staði, vitum í hvaða áttum er best að fljúga, við hvaða skilyrði o.s.frv. Það er ósk okkar að áframhaldandi gott samstarf haldist við þá aðila sem sýnt hafa þessari nýbreytni í íslenskri ferðaþjónustu áhuga. Enda skiptir hver ferðamaður okkur hér á Norð- urlandi máli. Nýjung í ferðaþjón- ustu á Norðurlandi Eftir Gísla Steinar Jóhannesson Gísli Steinar Jóhannesson »Auðveldlega er hægt að sjá fyrir sér að þessari tegund ferða- þjónustu muni fljótlega vaxa fiskur um hrygg … Höfundur er svifvængjaflugmaður. –– Meira fyrir lesendur Ert þú í tísku? PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS FYRIR 15. FEBRÚAR PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16 mánudaginn 15. febrúar. Best er að panta sem fyrst til að tryggja sér góðan stað í blaðinu! NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Morgunblaðið gefur út stórglæsilegt sérblað, LIFUN, sem fjallar um Tísku og förðun, föstudaginn 19.febrúar. Í blaðinu verður fjallað um tískuna vorið 2010 í förðun, snyrtingu og fatnaði, fylgihluti auk umhirðu húðarinnar, dekur og fleira. ÍS L E N S K A /S IA .I S /M O R 48 90 9 1/ 10 MEÐAL EFNIS: Förðunarvörur Förðun Húðin, krem og meðferð Snyrting Kventíska Herratíska Fylgihlutir Skartgripir Árshátíðatískan Vortískan Og fullt af öðru spennandi efni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.