Morgunblaðið - 02.02.2010, Side 29

Morgunblaðið - 02.02.2010, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 2010 KRISTEN Bell og Dax Shepard eru trúlofuð. Parið hefur verið saman í um tvö ár og ætlar nú að ganga saman að altarinu eftir að Shepard bað Bell í jólafríinu. Hin 29 ára leikkona sýndi trú- lofunarhringinn þegar hún kynnti verðlaun á Grammy-verðlaunahá- tíðinni á sunnudagskvöldið. Bell, sem kynntist Shepard þegar þau unnu saman að róm- antísku gamanmyndinni When in Rome, sagði nýlega að hún tæki ástarlífið fram yfir starfsfram- ann. „Mér finnst persónulega að hinn helmingurinn ætti að vera mikilvægari en vinnan. Ég elska að vinna en ég get ekki sagt að ég sé vinnualki því ég elska líka að slaka á,“ sagði Bell og bætti við góðum ráðum til að halda sambandinu gangandi. „Ég hef lært að það er mjög mikilvægt að tala saman um hinn dýpsta og myrkasta ótta og til- finningar. Maki þinn ætti að heyra yfir hverju þú ert óörugg því um leið og þú segir það upp- hátt hefur þú skapað öryggi.“ Reuters Ástfangin Kristen Bell. Reuters Ástfanginn Dax Shepard. Trúlofaðar turtildúfur Leikfélag Akureyrar Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is 39 þrep (Samkomuhúsið) Fös 5/2 kl. 19:00 Lau 13/2 kl. 19:00 Fös 26/2 kl. 19:00 Lau 6/2 kl. 19:00 Sun 14/2 kl. 20:00 Ný sýn Lau 27/2 kl. 19:00 Lau 6/2 kl. 22:00 Aukas Fös 19/2 kl. 19:00 Fös 12/2 kl. 19:00 Lau 20/2 kl. 19:00 Ósóttar pantanir seldar daglega Leiklestraröð - Einleikir (Samkomuhúsið) Mið 3/2 kl. 21:00 ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ „Besta leiksýning ársins“ Mbl., GB Mbl., IÞ Uppl. um sýningar og miðasala 551 1200 www.leikhusid.is 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Faust (Stóra svið) Fös 5/2 kl. 20:00 7.K Lau 20/2 kl. 20:00 10.K Lau 13/3 kl. 20:00 Aukas Mið 10/2 kl. 20:00 Fim 25/2 kl. 20:00 Aukas Sun 14/3 kl. 20:00 Fim 11/2 kl. 20:00 Fös 26/2 kl. 20:00 Lau 20/3 kl. 20:00 Fös 12/2 kl. 20:00 8.K Fös 5/3 kl. 20:00 Fös 19/2 kl. 20:00 9.K Lau 6/3 kl. 20:00 Aukas í samvinnu Borgarleikhússins og Vesturports Fjölskyldan - ágúst í Osagesýslu (Stóra sviðið) Lau 6/2 kl. 19:00 Lau 27/2 kl. 19:00 Lau 27/3 kl. 19:00 Lau 13/2 kl. 19:00 Fim 4/3 kl. 19:00 Fim 18/2 kl. 19:00 aukas Fös 12/3 kl. 19:00 Sýningin er þrír þættir, hver 1 klst að lengd. Hlé eftir 1. og 2. þátt. Góðir íslendingar (Nýja svið) Fös 5/2 kl. 20:00 5.kort Fös 12/2 kl. 20:00 Fös 19/2 kl. 20:00 Lau 6/2 kl. 20:00 Lau 13/2 kl. 20:00 Lau 20/2 kl. 20:00 Undir yfirborðinu býr sannarlega þjóð sem á sér ýmis leyndarmál. Skoppa og Skrítla á tímaflakki (Litla svið) Lau 6/2 kl. 14:00 frums Lau 13/2 kl. 14:00 3.K Sun 21/2 kl. 14:00 5.K Sun 7/2 kl. 12:00 Sun 14/2 kl. 12:00 Lau 27/2 kl. 12:00 Sun 7/2 kl. 14:00 2.K Sun 14/2 kl. 14:00 4.K Lau 13/2 kl. 12:00 Sun 21/2 kl. 12:00 Söngvaseiður (Stóra sviðið) Lau 6/2 kl. 14:00 aukas Sun 7/2 kl. 14:00 síðasta sýning Vinsælasti söngleikur ársins - síðasta sýning 7. feb! Djúpið (Nýja svið) Fim 11/2 kl. 20:00 síðasta sýn Allra síðustu sýningar. Sýningartími: 1 klst, ekkert hlé. Harry og Heimir (Litla sviðið) Fös 5/2 kl. 19:00 Fös 12/2 kl. 19:00 Fös 19/2 kl. 19:00 Lau 6/2 kl. 19:00 Lau 13/2 kl. 19:00 Lau 20/2 kl. 19:00 Lau 6/2 kl. 22:00 Lau 13/2 kl. 22:00 Fös 26/2 kl. 19:00 Sun 7/2 kl. 20:00 Sun 14/2 kl. 20:00 Lau 27/2 kl. 19:00 Bláa gullið (Litla svið) Mán 8/2 kl. 9:30 Mið 10/2 kl. 11:00 Mán 15/2 kl. 11:00 Mán 8/2 kl. 11:00 Fim 11/2 kl. 9:30 Þri 16/2 kl. 9:30 Þri 9/2 kl. 9:30 Fös 12/2 kl. 9:30 Þri 16/2 kl. 11:00 Þri 9/2 kl. 11:00 Fös 12/2 kl. 11:00 Mið 10/2 kl. 9:30 Mán 15/2 kl. 9:30 Uppsetning Opið út í samstarfi við Borgarleikhúsið. FaustHHHH IÞ, Mbl VLADIMIR Ashkenazy hljómsveit- arstjóri og Evgeny Kissin fengu Grammy-verðlaun í gærkvöldi fyrir bestu frammistöðu einleikara og hljómsveitar. Verðlaunin fengu þeir fyrir flutning á píanókonsertum Ser- gei Prokofievs númer 2 og 3. Ashkenazy, sem er 72 ára, fæddist í Rússlandi, er íslenskur ríkisborg- ari en býr nú í Sviss. Hann hefur áð- ur fengið sex Grammy-verðlaun fyr- ir píanóleik og hljómsveitarstjórn. Kissin, sem er 38 ára, fæddist í Rússlandi en býr í Bretlandi. Hann fékk áður Grammy-verðlaun árið 2006. Ashkenazy stjórnaði Fílharm- óníuhljómsveit Lundúna, sem lék undir hjá Kissin í píanókonsert- unum. Ashkenazy fékk Grammy-verðlaun Morgunblaðið/Jim Smart Vinningshafi „Nei, sjáðu til, þetta voru sjöundu verðlaunin semsagt...“ MATT Damon segir að næsta mynd í Bourne-röðinni (The Bourne Identity o.s.frv.) muni líklega eiga sér stað áður en hinar myndirnar byrjuðu, verði semsagt forsaga. Myndin verður sú fjórða í röðinni. Útsendarar kvik- myndaritsins Empire króuðu Damon af á einhverjum rauðum dregli fyrir stuttu og hann hafði þetta um málið að segja: „Það verður líklega gerð forsaga með öðrum leikara en mér og öðrum leikstjóra áður en við leggjum í aðra. Það eru líkast til fimm ár í þá mynd, okkur vantar enn hand- rit.“ Greiningardeild Empire fer síðan hamförum í bolla- leggingum um næstu skref. Damon hefur sagt að hann muni aðeins vinna með Paul Greengrass að Bourne-mynd, en hann leikstýrði tveimur síðustu. Empire-liðar núa því saman höndum yfir hliðarmynd sem myndi sýna yngri Bourne og illan, ekki minnislausa manninn með sam- visku, og svo gætu áhorfendur séð eldri og vitrari Damon eftir fimm ár koma inn í Bourne-hringekjuna á nýjan leik. Næsta Bourne-mynd? Feigur? Matt Damon í síðustu Bourne mynd, The Bourne Ultimatum. Eftir Hólmfríði Gísladóttur holmfridur@mbl.is UNDANFARNA daga hefur borið á umræðu á netinu og víðar um að eitt laganna sem komið er í úrslit Söngvakeppni Sjónvarpsins sé óþægilega líkt gömlu lagi með söng- konunni Kate Ryan. Íslenska lagið er „Je Ne Sais Quoi“ eftir þau Örlyg Smára og Heru Björk sem bera þol- inmóð af sér orðróminn. „Nei, þetta er ekki stolið,“ segir Örlygur Smári. „Þetta kemur upp á hverju einasta ári. Fólk fer að reyna að finna lög sem svipar til þess lags sem er líklegast til sigurs. Þetta eru bara lög úr sömu fjölskyldunni, þetta er bara danspopp. Mér finnst þetta ekkert svipað, nema hvað þetta er sami hljóðheimur.“ Barið á líklegum sigurvegurum Lag Ryan, „Who Do You Love“, er ekki eina lagið sem lag Örlygs og Heru hefur verið borið saman við og hefur því jafnvel verið haldið fram að lagið „This Is My Life,“ framlag Íslendinga til Eurovision 2008 og höfundarverk Örlygs Smára sjálfs, sé ískyggilega líkt nýja laginu. „Þess vegna finnst mér nú bara ástæða til að hlæja að þessu. Ég veit að það eru jafnmörg atkvæði í burðarlínunni í viðlaginu en það er það eina. Það er eins með þetta erlenda lag sem verið er að líkja okkar lagi við. Og það er eflaust hægt að tína til fleiri lög þar sem þetta er að finna.“ Það er Hera Björk sjálf sem flytur „Je Ne Sais Quoi“ og segist hún hafa heyrt af umtalinu í síðustu viku. Hún er búin að hlusta á „Who Do You Love“ en segir lögin alls ekki vera eins. „Við erum báðar kvenkyns og erum í sömu tóntegund. Við rekum upp þarna eitt gól sem er svipað, sömu nóturnar. Annars er hljóma- gangurinn annar.“ Hera tekur undir með Örlygi Smára og segir svona ásakanir heyr- ast á hverju ári. Hún segir uppá- komuna leiðinlega en ber sig vel og hlakkar til úrslitanna um helgina. „Þetta er alls ekki þægilegt en við vitum alveg að við erum sigur- strangleg og þá áttum við alveg von á því að á okkur yrði barið. Þannig hefur þetta verið undanfarin ár. Maður gerir bara eins og strákarnir okkar og stendur styrkur í vörn- inni,“ segir Hera og hlær, „það er það eina í stöðunni.“ Er lagið stolið? Morgunblaðið/Brynjar Gauti Söngvakeppni Hera Björk er sallaróleg og hlakkar til keppninnar.  Hera Björk og Örlygur þjófkennd vegna „Je Ne Sais Quoi“  Blása á allt slíkt tal og svara keik fyrir sig

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.