Morgunblaðið - 02.02.2010, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 2010
nánari upplýsingar ásamt
sýnishornum úr stykkjunum má
www.metoperafamily.org
CARMEN
ÖNNUR AUKASÝNING MIÐVIKUDAGINN 3. FEBRÚAR KL. 18
KRINGLUNNI 0G AKUREYRI
BJARNFREÐARSON YFIR 60.000 GESTIRHHHHMEINFYNDIN...– FRÉTTABLAÐIÐ/BERGSTEINN SIGURÐSSON HHHHÞAÐ VAR LAGIÐ!– DV/DÓRI DNA
Byggð á einni
ástsælustu sögu
okkar tíma
HHHH
„JONZE HEFUR KVIKMYNDAÐ ÆVINTÝRI EINS OG
ÞAÐ SÉ ALGERLEGA RAUNVERULEGT, SEM LEYFIR
OKKUR AÐ SJÁ HEIMINN MEÐ AUGUM MAX,
FULLAN AF FEGURÐ OG HÆTTU.“
- ROLLING STONE, PETER TRAVERS
HHHH
-ROGER EBERT
“SANNKALLAÐ
MEISTARAVERK”
- FOX-TV
“FÁRÁNLEGA FRÁBÆR”
- ELLE MAGAZINE
7 Frábær mynd fráleikstjóranum SPIKE JONZE
SÝND Í ÁLFABAKKA
STÓRKOSTLEG MYND SEM SLEGIÐ
HEFUR RÆKILEGA Í GEGN
GEORGE CLOONEY, VERA
FARMIGA OG ANNA KENDRICK
FARA Á KOSTUM
Í ÞESSARI FRÁBÆRU MYND
HHHH
„REITMAN HEFUR TEKIST Í ÞRIÐJA SINN AÐ GERA EINA
BESTU, SKEMMTILEGUSTU OG FERSKUSTU MYND ÁR-
SINS. ÉG HVET ALLA SEM HAFA ÁNÆGJU AF BÍÓFERÐUM
AÐ SETJA UP IN THE AIR EFST Á ÓSKALISTANN.“
- S.V.,MBL
HHHH
„HITTIR Á ALLAR RÉTTU
NÓTURNAR... HÚN ER
FYNDIN, SNJÖLL, HRÍF-
ANDI, ÓFYRIRSJÁANLEG
OG BLESSUNARLEGA
KLISJULAUS.”
- T.V. - KVIKMYNDIR.IS
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA Á MIDI.IS
Robert Downey Jr. og Jude Law
eru stórkostlegir í hlutverki
Sherlock Holmes og Dr. Watson
HHHH
„IT’S PROBABLY THE MOST PURELY FUN
FILM EXPERIENCE I’VE HAD ALL YEAR. SEE
IT AS SOON AS YOU CAN“
- WWW.JOBLO.COM
HHH
„BÍÓMYND SEM UNDIR-
RITAÐUR GETUR MÆLT
MEÐ...“
„SENNILEGA EINHVER
ÖFLUGASTA BYRJUN SEM
ÉG HEF SÉÐ...“
- KVIKMYNDIR.IS – T.V.
HHHH
-NEW YORK DAILY NEWS
HHH
„FYNDIN OG VEL LEIKIN“
- S.V. – MBL.
Besti leikarinn,
Robert Downey Jr.
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI,
AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
600 kr.
600 kr.
600 kr.
/ KEFLAVÍK
THE BOOK OF ELI kl. 5:30 - 8 -10:30 16
PLANET 51 kl. 6 L
WHIP IT kl. 8 10
SHERLOCK HOLMES kl. 10:20 12
THE BOOK OF ELI kl. 8 - 10 16
TOY STORY 1 m. ísl. tali kl. 6 L
BJARNFREÐARSON kl. 5:40 L
UP IN THE AIR kl. 8 L
SHERLOCK HOLMES kl. 10:10 12
THE BOOK OF ELI kl. 8 - 10:30 16
PLANET 51 kl. 6 L
SHERLOCK HOLMES kl. 10:20 12
WHIP IT kl. 8 10
ALVIN OG ÍKORNARNIR m. ísl. tali kl. 6 L
/ SELFOSSI/ AKUREYRI
GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR,
VIP OG 3D MYNDIR
30.01.2010
17 24 25 30 34
0 6 4 3 2
1 2 1 4 2
37
27.01.2010
13 15 17 26 29 39
4135 486KVIKMYNDIN Avatar situr enn á toppi Bíó-
listans, eftir sína sjöundu viku í sýningu.
Myndin virðist vera að slá öll met og hafa nú
rúmlega 102.000 manns séð hana hér á landi.
Book of Eli var frumsýnd á föstudaginn og
kemur hún næst á eftir Avatar. Sæbjörn Valdi-
marsson, gagnrýnandi Morgunblaðsins, gaf Bo-
ok of Eli þrjár stjörnur í dómi í blaðinu í gær.
Hann sagði ánægjulegt að sjá Denzel Wash-
ington, sem fer með hlutverk Eli, skítugan,
íklæddan lörfum og höggvandi mann og annan
í myndinni.
Önnur ný mynd, It́s Complicated, nær að
vera þriðja tekjuhæsta myndin eftir helgina.
Um er að ræða rómantíska gamanmynd með
Meryl Streep, Steve Martin og Alec Baldwin í
aðalhlutverkum. Streep leikur konu sem á upp-
komin börn og stendur í farsælum veitinga-
rekstri.
Samskipti hennar við fyrrverandi eiginmann
hafa verið til fyrirmyndar í þau tíu ár sem liðin
eru frá skilnaðinum en þegar kemur að útskrift
sonar þeirra þurfa þau að verja tíma saman og
þá kemur margt óvænt upp á.
Tekjuhæstu myndirnar í íslenskum bíóhúsum
! !
" #$
%
& '
(
)
$
*
+
,
#
-
.
/
0
$1
It́s Complicated Meryl Streep og Alec Baldwin fara með aðalhlutverkin.
Engin mynd veltir Avatar úr sessi
Teiknimyndadeild Sony ætlarekkert að gefa eftir í sam-keppninni við risann WaltDisney og snillingana í Pix-
ar sem heyra undir þann gamla risa.
Cloudy with a Chance of Meatballs,
eða Skýjað með kjötbollum á köflum,
er byggð á vinsælli, samnefndri
barnabók Judi og Ron Barrett og það
verður að teljast snjall leikur hjá
Sony-mönnum að fara þessa leið,
gera teiknimynd upp úr vinsælli
barnabók. Með því taka menn minni
áhættu hvað varðar vinsældir, ef sag-
an er þegar vinsæl ætti teiknimynd
eftir henni að virka, ekki satt?
Í myndinni segir af ungum vísinda-
manni sem þráir viðurkenningu föður
síns. Hann býr til vél sem er þeirri
merkilegu náttúru gædd að geta búið
til mat úr vatni en verður fyrir því
óhappi að skjóta vélinni upp til skýja
og í kjölfarið fer að rigna hamborg-
urum yfir bæjarbúa sem áður þurftu
að lifa á sardínum. Bæjarstjórinn,
vondi karlinn í sögunni, sér þarna leik
á borði og skjótfenginn gróða. Vís-
indamaðurinn getur enn forritað
matarvélina af jörðu niðri og fær bæj-
arstjórinn hann til þess að láta alls
konar mat rigna yfir bæinn og það oft
á dag. En vélin þolir illa álagið og
maturinn stækkar og stækkar og á
endanum fer allt úr böndunum, þegar
hinn fé- og matgráðugi bæjarstjóri
sendir vélinni skipun um að láta heilu
hlaðborði af risavöxnum mat rigna yf-
ir bæjarbúa sem kenna vísindamann-
inum unga auðvitað um allt saman.
Hann breytist því úr hetju í skúrk en
fær tækifæri til að bjarga bænum og
ganga í augun á stúlkunni sem hann
elskar og föður sínum.
Sjónarspilið er tilkomumikið í
þessari teiknimynd og þá sérstaklega
þegar matnum gríðarstóra fer að
rigna yfir bæjarbúa. Ádeilan í sög-
unni er býsna augljós fullorðnum
áhorfendum, hér er deilt á banda-
ríska (eða vestræna) matarmenn-
ingu, alltof stóra matarskammta,
óhóf og offitu. Í raun er sagan mar-
tröð þó svo börnin sjái sjálfsagt lítið
annað en litskrúðugt ævintýri. Hinn
gráðugi bæjarstjóri er holdgervingur
græðginnar, maður sem kann sér
ekki hóf í neinu og hikar aldrei við að
maka krókinn. ,,Stórt er fallegt“ segir
hann við vísindamanninn og skipar
honum að senda risastóran mat af
himnum ofan, þó hann sé sjálfur orð-
inn farlama af fitu. Þennan kunnug-
lega frasa má svo heimfæra upp á
myndina sjálfa, hún gengur út á of-
gnótt og vilji menn ganga enn lengra
má auðvitað heimfæra þetta allt upp
á Hollywood, þar sem ofhlæði vill nú
gjarnan vera boðorð dagsins. Það
vantar heldur ekki klisjurnar; stirt
samband sonar við föður, hetjudýrk-
un, uppreisn nördsins og farsælan,
sykurhúðaðan endi.
Í hinni upphaflegu barnasögu segir
afi nokkur barnabörnum sínum sög-
una af bænum Matarkistu, þar sem
mat og drykk rignir alla daga og end-
ar sá draumur með því að bæjarbúar
þurfa að flýja og nema land annars
staðar. Lexían er auðvitað sú að
menn verða að kunna sér hóf. Það má
draga í efa nauðsyn þess að bæta við
upphaflegu söguna vísindalegri skýr-
ingu á þessu undarlega veðri en bókin
ein er svo stutt að sagan dugar ekki í
90 mín. teiknimynd. En hér eru auð-
vitað á ferðinni vangaveltur gagnrýn-
anda og föður sem eiga eflaust lítið
skylt við upplifun barnsins. Í það
minnsta gaf 12 ára strákur myndinni
einkunnina „geðveikt skemmtileg“ og
skemmtileg er hún og jafnframt
besta teiknimynd Sony til þessa.
Að lokum skal nefnt að undirrit-
aður sá myndina í hefðbundinni út-
gáfu, ekki þrívídd, en þrívíddin ku
vera „geðveikt flott“.
helgisnaer@mbl.is
Stórt er fallegt
Skýjað með kjötbollum á köflum „Sjónarspilið er tilkomumikið í þessari mynd og þá sérstaklega þegar matnum
gríðarstóra fer að rigna yfir bæjarbúa,“ segir Helgi Snær m.a. um nýjasta útspil teiknimyndadeildar Sony.
Regnboginn, Háskólabíó,
Smárabíó, Laugarásbíó
Skýjað með kjötbollum á köflum
bbbmn
Leikstjórn: Phil Lord & Chris Miller. 90
mín. Bandaríkin 2009.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR