Morgunblaðið - 02.02.2010, Page 36

Morgunblaðið - 02.02.2010, Page 36
ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 33. DAGUR ÁRSINS 2010 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana FÓLK Í FRÉTTUM»                       ! " #  $    $  ! %& '!&  !  ( )*+,-. */*,. ))0,01 *.,+0+ *),2)- )+,3)2 )*/,.- ),3))- )1+,.0 )++,)*  456  4 ), 7 58 5 */)/ )*+,0. */*,+1 ))1,*3 *.,0-+ *),2+1 )+,32+ )*/,21 ),3)-2 )1+,2+ )++,2* *.*,300+ %  9: )*0,). */.,*0 ))1,-1 *.,1*+ *),+3. )+,-)0 )*),/. ),3)1+ )10,-2 )+0,)* Heitast 1 °C | Kaldast 7 °C Austlæg átt, stöku él við A- ströndina, en birtir sums staðar til fyrir norðan. Frost 1 til 7 stig. » 10 Teiknimyndin Skýj- að með kjötbollum á köflum, er mikið og litskrúðugt sjónar- spil að mati gagn- rýnanda. »33 KVIKMYNDIR» Kjarngóðar kjötbollur TÓNLIST» Arfleifð Teddy Pender- grass. »31 Hljómsveitin Coma Cluster vann plötu með aðstoð tölvu- pósts og hefur að- eins tvisvar sinnum komið saman. »28 TÓNLIST» Samstarf landa á milli SJÓNVARP» Vaktirnar eru á leið til Finnlands. »28 TÓNLIST» Deilt um Evróvisjónlag Heru. »29 Menning VEÐUR» 1. Steingrímur Hermannsson látinn 2. Lést í slysinu á Langjökli 3. Atvinnuleysi meðal Í́slendinga... 4. Bogi meðal farþega í einkaþotu Íslenska krónan stóð í stað »MEST LESIÐ Á mbl.is  Tónlistarkonan Lay Low gefur plötu sína, Fare- well Good Night’s Sleep, út sjálf í Bandaríkjunum. Að sögn umboðs- manns hennar, Kára Sturlusonar, var samningi við útgáfuna Nettwerk rift og þess í stað gengið til samstarfs við ýmsa aðila sem hafa með kynningar- og dreifingarmál að gera. Platan kemur út í byrjun mars og framundan er tónleika- og viðtalaferð til New York og seinna á árinu verður farið í hljómleikaferð um Bandaríkin og Evrópu. | 28 TÓNLIST Lay Low gefur sjálf út plöt- una sína í Bandaríkjunum  Það var í nóvem- ber síðastliðnum sem verk eftir þá Sverri Guðjóns- son og japanska slagverksleikarann heimskunna Stomu Yamash’ta var flutt, og þá á japanskri menningar- hátíð í París. Verkið kallast Tómið eða The Void og í því steypa þeir fé- lagar saman fornum íslenskum sönglögum og kvæðum, japanskri nútímatónlist, zen-búddistasöng og slagverki. Sverrir ræddi við Árna Matthíasson um verkið. | 27 TÓNLIST Sverrir Guðjónsson vann með japönskum listamanni  Engilbert Jen- sen, sem er líklega þekktari meðal þjóðarinnar fyrir dægurflugur en veiðiflugur, kynnir fluguhnýtingar í handverkskaffi í Gerðubergi á morgun milli kl. 20 og 22. Engilbert, sem hefur sungið sig inn í hugi og hjörtu Íslendinga með hljómsveitinni Hljómum, er nefni- lega ástríðufullur áhugamaður um fluguhnýtingar og mun sýna til- búnar flugur en jafnframt hafa efni- við og verkfæri til hnýtinga til sýnis á staðnum. Aðgangur er ókeypis. FLUGUHNÝTINGAR Engilbert Jensen kynnir veiðiflugur í Gerðubergi ÁLAG á leik- menn, þjálfara og aðstoðarfólk íslenska lands- liðsins vegna þátttöku á Evr- ópumóti er meira en til dæmis í kring- um Ólympíu- leika, að sögn Guðmundar Þórðar Guðmundssonar, lands- liðsþjálfara í handknattleik karla. „Leikirnir eru fleiri og á skemmri tíma en á Ólympíu- leikum. Þá eru leikirnir erfiðari þar sem allir andstæðingar á Evrópumótinu eru erfiðir. Það er alltaf einn frídagur á milli leikja á Ólympíuleikum en á EM er á tíðum leikið dag eftir dag. Þannig að ég tel Evrópumótið vera erfiðasta stórmótið upp á álag og þess háttar að gera,“ segir Guðmundur Þórður sem var vel fagnað við komuna heim frá Evrópumeistaramótinu í gær. „Síðan er alltaf að dragast saman í getu milli landsliða. Á Evrópumóti er aldrei hægt að bóka neinn sigur fyrirfram,“ seg- ir Guðmundur Þórður ennfremur í ítarlegu viðtali í íþróttablaði Morgunblaðsins. EM erfiðara en Ólympíuleikar Guðmundur Þórð- ur Guðmundsson STARFSMENN Bláfjalla, þær Hrefna Silja Sigurgeirsdóttir og Hrefna Eronsdóttir, virða hér fyrir sér snjólitlar brekkur Bláfjalla. Líkt og íbúar höfuðborgarsvæðisins eru þær orðnar óþreyjufullar eftir að hægt verði að opna skíða- svæðið þennan veturinn. | 11 BEÐIÐ EFTIR SNJÓNUM Í BLÁFJÖLLUM Morgunblaðið/Árni Sæberg NÚ þegar bensínverð er orðið svo hátt sem raun ber vitni, er ein leið Frónbúa til að spara aurinn í fjár- útlátum heimilisins, að nota einka- bílinn minna en fara þess í stað um á reiðhjóli. Það er bæði heilsusamlegt og hressandi að hjóla á milli staða og ekki þarf að kaupa bensín á hjólafák- inn. En vönduð dekk geta verið dýr og því er margt reiðhjólafólkið orðið langþreytt á hvössum steinflísum sem eru í sandi þeim sem borinn er á hjólreiða- og göngustíga vegna hálku. Þessar flísar bora sér leið inn í dekkin og sprengja þau. Hjólreiða- fólk tók fyrst eftir þessum stein- flísum fyrir um þremur árum. Mætti sópa fyrr á vorin Albert Jakobsson, formaður Hjól- reiðafélags Reykjavíkur, hefur feng- ið þau svör hjá Reykjavíkurborg að sjávarsandur sé borinn á stígana, en honum finnst einkennilegt að hvass- ar steinflísar finnist í sjávarsandi. Albert segir að borgin mætti einn- ig standa sig betur í að sópa sand af hjóla- og göngustígum fyrr á vorin, svo sprungin dekk á reiðhjólum borgarbúa verði ekki svo algeng sem raun ber vitni. Svokölluð tubular-dekk á reiðhjól kosta 10.000 kr. stykkið, en í þeim er slangan saumuð við dekkið og því er ekki hægt að gera við þau ef þau springa. Gunnlaugur Kristjánsson, for- stjóri Björgunar, segir að sandurinn sem Reykjavíkurborg kaupir sé sigtaður þannig að ekkert sandkorn sé stærra en 8 mm. Sandurinn sé ekki unninn að öðru leyti og sé ekki aukaafurð vegna steinbrots. | 15 Hvassar steinflísar sprengja hjóladekk Sandur á hjóla- og göngustígum ergir hjólreiðafólk Morgunblaðið/RAX Sprungið Það er verulega pirrandi þegar dekk springur á hjóli en það þýðir ekki að deyja ráðalaus. Þessi höfðingi fer létt með að bera hjólið sitt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.