Ísfirðingur


Ísfirðingur - 15.12.1976, Blaðsíða 10

Ísfirðingur - 15.12.1976, Blaðsíða 10
10 ISFIRÐINGUR Kemur þá fyrst: Skýrsla um jarðabætur árin 1928—1933. Ch Nýrækt ha. Grjótnám m3 SkurSir m3 III jsæy •5 $o 3 s Matg. m2 Dagsverk alls 1928 1.00 115 540 1242 3509 1114.69 1929 1.90 300 954 2052 613 1203.10 1930 5.00 150 614 244 1560 1524.00 1931 2.78 200 410 1398 1155.00 1932 2.22 500 1037 2190 480 1482.00 1933 2.26 250 254 372 895.00 Alls 15.16 1515 3.809 7498 5682 480 7373.79 Þess skal getið, að skýrsla þessi er tekin upp úr j arðabótaskýrslum Búnaðarfélags Eyrarhrepps árin 1928 til 1933. Þá kemur skýrsla um heyskap, kúafjölda, meðal- kýmyt, mjólkurmagn og mjólkurverð árin 1927 til 1933: 'rjH Heyskapur 100 kg. Kúafjöldi 31/12 Meðal- kýrnyt kg. Samanlagt mjólkurmagn í lítrum SL 3 *o 3 'O s 1927 80 19 15.700 55 aurar 1928 150 22 2424 49.700 50 aurar 1929 300 24 2618 55.890 50 aurar 1930 600 24 2900 62.813 50 aurar 1931 550 27 3003 74.000 50 aurar 1932 800 27 3250 82.000 45 frá i/4 1933 1000 29 3289 85.469 42 aurar Hér skal þvi bætt við, að frá 1/1 1934, var mjólkin seld á 40 aura lítrinn. Þá finnst mér rétt, að geta þess, að auk bústofns- ins, sem talinn er á skýrsl- unni í árslok 1933, voru á Selj alandsbúinu 9 kvigur á ýmsiun aldri, 1 naut, 4 hestar og 160 hænsni. Ég hefi ekki tök á að greina frá búskapnum 1934 með sambærilegum hætti. Fullyrða má þó að bústofninn hafi verið likur og árið 1933, og nokkuð hafi verið haldið í horíinu með j arðahætur og ræktun. Af þessari skýrslu má draga eftiríarandi álykt- anir um þróunina árin 1927 til 1933: Að heyskapur á Selja- iandsbúinu hefur liðlega tólffaldast og er þá aðeins átt við kúafjöldann. Að meðalársnyt kúnna hefur vaxið úr 2424 kg árið 1928, i 3289 kg árið 1933, eða um 685 kg. Að mjólkurframleiðslan hefur tvöfaldast miðað við 1928. Að Selj aiandsbúið hefur frá því það tók til starfa í júnílok 1927 og til ársloka 1933, flutt á mark- að á Isafirði alls 425.577 lítra af mjólk, eða að meðaltali nálega 180 lítra á dag. Að lokmn má sjá, að mjólk lækkar í verði á ísafirði úr 60 aurum árið 1927, í 40 aura í árshyrj un 1934, eða um liðlega 33%. Að lokum skal þess getið, að samvinna min við bæj- arstj órnarmeirihlutann á Isafirði var ávallt með miklum ágætum, og að ég á margs góðs að minnast frá þeim samskiptum. Hér læt ég staöar numið i frásögn minni mn Selja- iandsbúið þau ár, sem ég veitti þvi forstöðu. Land- námsstörfin sem þar voru framkvæmd, veittu mér meiri lifsfyllingu, heldur en flest annað sem ég hef unnið við. Fátt er ánægju- legra en að eiga hlut að þvi að breyta fúamýrum og grýttum melum í blóm- leg tún og bylgj andi hafra- akra. Að sá fræi eða höfr- um í vel unnið moldarflag í mildri og draumljúfri vornæturkyrrð veitir sann- arlega d j úpstæðan unað og gleði. Vinnugleðin sem ræktunarstörfunum eru samfara, er traustur og góður förunautur í endur- minningunni. Jens Hólmgeirsson Jarðvinnsla á Tungutúni. HOTELBYGG- ING Á ÍSAFIRÐI Þann 29. október s.l. var imdirritaður verksamningur að fyrsta áfanga hótelbygg- ingar á ísafirði. Aðilar að samningi þessum eru bygg- ingaverktakinn Kubbur h.f., ísafirði, og stjórn hlutafél- agsins Hótel ísafjörður h.f. Framkvæmdir við fyrsta áfanga eru gerð undirstöðu og botnplötu. Verkið er þegar hafið og miðar vel áleiðis. Arkitekt byggingarinnar er Óli Jóhann Ásmundsson, Reykjavík. Verkfræðistörf annast Verkfræðistofa Sig- urðar Thoroddsen s.f., Rvik, en rafteikningar eru gerðar hjá Rafhönnun s.f. Tiifboðsupphæð þessa áfanga er 14,2 milljónir og gert ráð fyrir að framkvæmdum ijúki í janúar n.k. Gert er ráð fyrir að greiða fyrsta áfanga með hlutafjár- framlögum, en hluthafar eru fyrirtæki og einstaklingar á ísafirði ásamt bæjarsjóði ísa- fjarðar. Byggingin verður redst í miðbæ ísafjarðar, gegnt Hafnarstræti og Aðalstræti. Húsið verður fjórar hæðir. Á tveimur efri hæðunum verða gistiherbergi 32 að tölu. Á gnmnhæð verður, auk gesta- móttöku, verslunar- og sfcrif- stafuhúsnæði, veitingasalur með sjálfsafgreiðslu (cafe- tería), saunabað o.fl. Á ann- ari hæð verður aðal eldhús og samkomusalur sem rúmar um 250 manns. í sæti. Til áframhaldandi fram- kvæmda verður leitað eftir lánsfé frá Ferðamálasjóði og öðrum lánasjóðum, ásamt því að haidið verður áfram söfn- un hlutafjár. 1 stjóm Hótel ísafjörður hf. eru: Ólafur B. Halldórss. Fylkir Ágústsson, Jóhann T. Bjarna- son, Gunnar Jónsson og Guð- rún Vigfúsdóttár. Gullbrúöhjón Mánudaginn 22. nóvember s.l. áttu gullbrúð- kaupsafmæli hjónin Rebekka Pálsdóttir og Jó- hannes Einarsson, Bæjum á Snæfjallaströnd, N.- Is. Sama dag átti frú Rebekka 75 ára afmæli. Þau hjónin bjuggu á Dynjanda í Grunnavíkur- hreppi til ársins 1948, en fluttu þá að Bæjum í Snæfjallahreppi. Þar bjuggu þau myndarbúi í mörg ár og hafa átt þar heima síðan. Þau eign- uðust átta börn og eru sjö þeirra á lífi. Öll hafa börnin tekið að erfðum myndarskap og dugnað foreldra sinna. Þeim Rebekku og Jóhannesi er árnað allra heilla í tilefni þessara merku tímamóta. Úrval jólagjafa Hljómflutningstæki: □ Magnarar □ Hátalarar □ Plötuspilarar □ Cassettusegulbönd □ Heyrnartæki □ Ferðaútvörp m/cassettu Hljómplötur og cassettur í úrvali VERSLUNIN KJARTAN R. GUÐMUNDSSON ÍSAFIRÐI — SÍMI 3507

x

Ísfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.